Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Blaðsíða 13
13
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001
x>v
Utlönd
Dönsku þingkosningarnar:
Kosið um mál sem
helst má ekki nefna
AUt bendir til að Poul Nyrup
Rasmussen hafi misreiknað sig
illilega þegar hann ákvað í skyndi
að efna til þingkosninga í Dan-
mörku eftir vinsældabólu sem
blés upp þegar hann lagði stríðinu
við hermdarverkamenn lið eftir
atburðina 11. sept. Samkvæmt
samhljóða skoðanakönnunum eru
hann og ríkisstjórnin kolfallin og
samsteypustjórn borgaraflokka
tekur við.
Þótt fáir þori að segja það ber-
um orðum, þá eru innflytjenda-
málin það sem kosið var um í
gærdag. Mörgum Dönum ofbýður
sá fjöldi útlendinga sem sestur er
að í landinu og þykir sem þjóðin
Situr eftir
Poul Nyrup Rasmussen.
Afdrifaríkur
misreikningur
Formaður sósíaldemókrata í Dan-
mörku, Poul Nyrup Rasmussen, hef-
ur veriö forsætisráðherra síðan í
janúar 1993, en þá tókst honum og
félögum hans að fella stjórn íhalds
og Venstre sem setið hafði í áratug.
Hann vann góðan kosningasigur
1998 og allt benti til að hann yrði
forsætisráðherra næsta kjörtímabil
sem átti að hefjast í mars nk. En
hann taldi sig eiga svo góðan með-
byr núna að hann ákvað að flýta
kosningum. En þar misreiknaði
hann sig illa og yfirsást hvert yrði
helsta kosningamálið.
Poul Nyrup er 58 ára og vann
nauman sigur í næstliðnum kosn-
ingum en þá hélt vinstristjórn hans
velli, ekki síst vegna fylgishruns
Venstre. Hann er um margt glæsi-
legur stjórnmálamaður og vekur
traust með framkomu sinni en síður
hrifningu eða aðdáun. Áður en Nyr-
up hóf afskipti af stjórnmálum var
hann hagfræðingur verkalýðssam-
takanna.
Nú verður það hans ákvörðun og
flokksmanna hans hvort hann held-
ur áfram um stjórnartauma sósí-
aldemókrata.
hafi breytt um ásjónu. Sérstaklega
er að því fundið hve seint og illa
hinum aðkomnu gengur að aðlag-
ast siðum og háttum heima-
manna.
Önnur mál kosningabaráttunn-
ar þóttu falla í skuggann eöa voru
meira til að sýnast fela andúð á
aðfluttum, sem helst má aldrei
komast upp á yfirborðið, enda fá
þeir stjórnmálamenn það óþvegið
sem lýsa yfir „röngum" skoðun-
um á því máli. Samt hefur Þjóðar-
flokkurinn undir formennsku Piu
Kærsgaard umtalsvert fylgi en sá
flokkur er opinberlega á móti inn-
flytjendum frá fjarlægum löndum.
Sigurvegari skoðanakannana og
væntanlega kosninganna er
Venstre, sem er gamall bænda-
flokkur en er nú borgaralegur
flokkur hægra megin við miðju.
Minna má á að íslandskunninginn
Uffe Ellemann-Jensen gerði garð-
inn frægan þegar hann gegndi for-
mennsku í Venstre en tapaði síðar
illilega fylgi.
Þá tók Andres Fogh Rasmussen
við formennsku og leiðir hann
flokkinn nú og er líklegasta for-
sætisráðherraefnið. Hann er nú 48
ára að aldri og er enginn viðvan-
ingur í stjómmálum. Hann var
fjármála- og efnahagsráðherra á
ámnum 1987-1992, í stóm íhalds-
flokks og Venstre.
Fogh Rasmussen er fimur bar-
dagamaður og hefur haft betur í
öllum viðureignum við nafna sinn
Nyrup í stuttri en harðri kosn-
ingabaráttu, sem samt virtist
heldur deyfðarleg, þar sem ein-
göngu var tekist á um innanlands-
mál, svo sem skatta þar sem sósí-
aldemókratar fóru heilan hring í
stefnumörkun og þóttu lítt trú-
verðugir.
Fogh Rasmussen hefur lagt
áherslu á aö setja strangar hömlur
á innflutning fólks, auka ekki
skatta en viðhalda velferðarkerf-
inu en gera það frjálslegra og jafn-
vel draga úr ríkisafskiptum á því.
Hann telur að einkavæða beri til-
tekna hluta þess.
Venstre hlaut mikið afhroð í
kosningunum 1998, sem rakið er
til þess að andstæðingunum tókst
að telja kjósendum trú um að þeir
ætluðu að afnema velferðarkerflö
og varð fátt til varnar. Þetta ætlar
Fogh að varast að hendi aftur og
hefur tekist að vinna traust kjós-
enda á ný.
í málefnum flóttamanna og inn-
flytjenda hefur Fogh Rasmussen
og flokkur hans tekið mið af al-
menningsálitinu og lofar strangri
löggjöf um að minnka strauminn
til Danmerkur. Þjóðarflokkurinn
gengur enn lengra og stingur upp
á að innflytjendum sem þegar eru
komnir veröi fækkað. íhaldsflokk-
urinn og kristilegir afneita ekki
þessum stefnumiðum og eru lík-
legir samstarfsflokkar Venstre og
jafnvel Þjóðarflokksins í borgara-
legri stjórn.
Alls buðu tíu flokkar fram í
kosningunum og skiptast þeir á
milli hægri og vinstri og allt þar á
milli. En hver svo sem stefnumál-
in eru, þá snerust kosningarnar í
gær um málefni varðandi sam-
skiptin við innflytjendur, hvort
sem mönnum líkar betur eða ver
eða fást til að viðurkenna það eða
ekki. Sjá nánar á næstu opnu.
Sigurvegarinn
Andres Fogh Rasmussen.
Aflmikil og sparneytin 16 ventla vél,
meðaleyðsla aðeins 6.9 L á hundraðið
Veghæð 17,5 cm
Vertu viðbúinn vetrarfærðinni
VerAfr 1.640.000 kr.
SUZUKIIGNIS bætir kostum
jepplingsins við bestu eiginleika
smábílsins.
Meðal staðalbúnaðar er: Sítengt
fjórhjóladrif, ABS hemlar, álfelgur,
upphituð framsæti, þakbogar og
rafdrifnar rúður.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www. suzukibilar. is
Smáauglýsingar
550 5000
vantar þig félagsskap?
Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍI'-ÍS
nýjungar í launavinnslu
á Grand Hótel 22. nóvember. Skráðu þig á www.tm.is
H-Laun
...ekki sætta þig við minna!
TÖLVUIiliÐLUn
Tölvumiðlun hf. • Engjateipir 3 • 105 Reykjavik
Simi 545 5800 • Fai 545 5001 • www.tm.is • tm©tmls