Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001
I>V
Tilvera
31
DV-MVNDIR HARI
Sigurinn í höfn
Hagaskótinn hreppti Skrekk að þessu sinni.
Hagaskólinn sigraði á Skrekk 2001:
Gífurleg stemning og
spennandi keppni
Óhætt er að segja að stemningin
hafi verið „geðveik" í Borgarleikhús-
inu í gærkvöld á Skrekk 2001, hæfi-
leikakeppni grunnskólanna í Reykja-
vík. Stóri salurinn var þéttsetinn
áhorfendum, flestum á grunnskóla-
aldri sem létu óspart í sér heyra og
eggjuðu lið sín til dáða. Þetta var úr-
slitakvöldið. Áður höfðu farið fram
keppnir í hverjum skóla. Alls höfðu
um 4000 manns tekið þátt í þeim. Nú
stóðu sex skólar eftir þegar búið var
að sía og aftur sía. Flestir voru þeir
með fjölmenna hópa listafólks í liðum
sínum. Kynnar kvöldsins voru hinir
heimilislegu Simmi, Jói og Sveppi,
þekktir úr þáttunum 70 mínútur á
PoppTíVí. Verðlaunagripurinn var
stór og mikil stytta sem blasti við
áhorfendum meðan keppnin fór fram.
Engin „paniku
Fyrstur á svið var Laugalækjar-
skóli. Atriðið hét Skór. Uppistaðan í
því átti að vera myndband sem tvær
kjarnakonur úr skólanum höfðu fram-
leitt. Eitthvað fór úrskeiðis á úrslita-
stundu og aðeins smábrot af mynd-
inni birtist á tjaldinu. Hljóðfæraleik-
arar létu það ekki slá sig út af laginu
og svartklæddar stúlkur sem sátu eft-
ir endilöngu sviðinu og sveifluðu fót-
um héldu flestar áfram að brosa fram
í sal. Engin „panik“ sjáanleg. Prik fyr-
ir það! Þrjár dömur úr liðinu voru
króaðar af á eftir, þær Lilja Hlín Ingi-
bjargardóttir, Tara Jensdóttir og
Heljarstökk
Listafðlkiö sýndi mikit tilþrif á sviði
Borgarleikhússins.
Anna Kolbrún Jensen. Þær voru að
vonum svekktar. „En við bjuggumst
aldrei við að vinna,“ viðurkenndu
þær. „Urðum rosahissa þegar við
komumst í undanúrslit og vorum í
sjokki lengi á eftir!“
Næstur kom Engjaskóli með fjöl-
mennt dansatriði um lifið og líka var
leikið á harmóníku, nútímalegt verk.
Eflaust samið á engjunum. Danshóp-
urinn skipti sér í vetur, sumar, vor og
haust og milli þeirra sveif hvítklædd
vera og stjórnaði því hvaða árstíð
tæki völdin hverju sinni. Ungur mað-
Stemnlng í salnum
Áhorfendur létu oft óspart í sér heyra.
ur las frumort ljóð. Blaðamaður náði
litlu niður af því nema þessari heim-
spekilegu setningu: Lífið er í hverju
hjarta og hverju strái.
Sveiflast milli nýja og gamla
tímans
Þá var röðin komin að Réttarholts-
skóla. Fyrstur á svið var „afi garnli"
sem rifjaði upp eitt og annað frá árinu
1918. Síðan kom inn þjóðlega klæddur
hópur sem sveif um sviðið undir vals-
takti. Eftir það hófst kennslustund í
kaldri stofu og kennarinn bað nem-
endur að reyna að skyggnast fram í
tímann til næstu aldamóta en þótti
flest atriði með miklum ólíkindum
sem þeir brugðu upp. Fimlega sveifl-
ast milli nýja og gamla timans. Á end-
anum var afinn kominn með farsíma
og var að hendast í BT eftir tækjum
handa barnabörnunum!
Hagaskóli átti greinilega marga
fulltrúa í salnum - og raddsterka.
Hann sótti efnið í fortíðina, eins og
„Réttó“. Atriðið átti að gerast á
skemmtistaðnum Sveiflunni árið 1920
þar sem krassandi sveifla var í gangi.
Þetta var dans-og söngatriði í Versl-
unarskólastíl, frumsamið af nemend-
um. Tvær hressar úr hópnum voru
króaðar af, Guðrún Helga Kristjáns-
dóttir og Erna Svanhvít Sveinsdóttir.
Þær sögðu tveggja mánaða vinnu að
baki við undirbúning, enda hefði hóp-
urinn saumað búningana sjálfur.
„Mömmumar þurftu ekkert að hjálpa,
- nema aöeins," sögðu þær.
Búin að æfa síðan í fyrra
Hver man ekki eftir Super Mario
Bros-tölvuleiknum? Þrjátíu og þrír
nemendur Húsaskóla voru að minnsta
kosti með allar persónur hans á
hreinu og höfðu samið dansverk upp
úr honum. Ragnheiður Marta Jóhann-
esdóttir og Hjördís Halla Hreiðars-
dóttir úr 10. bekk sögðu hópinn vera
búinn að leggja mikla vinnu í atriðið.
Við erum búin að æfa síðan í fyrra.“
sögðu þær.
Síðastur en ekki sístur var Hvassa-
leitisskóli með hugljúfa Öskubusku-
sögu í nýjum búningi. Grín, söngur,
dans og leikur, allt í einum pakka.
Gómuðum tvö úr þeim hópi, Gunnar
Ormslev og Ninu Sordal. Þau voru
ánægð. Aðspurð hvort liðið ætlaði
kannski að koma fram sem fjöllista-
hópur oftar tóku þau því ekki fjarri.
„Við bjuggumst að minnsta kosti ekki
við að komast svona langt,“ sögðu þau
og bættu við: „En skólastjórinn hafði
alltaf mikla trú á okkur.“ Meðan dóm-
nefnd réði ráðum sínum komu nokkr-
ir skemmtikraftar á svið; Síðan skein
sól, Védís Hervör og Páll Óskar. Svo
voru úrslitin gerð kunn. Það var
Hagaskóli sem sigraði Skrekk 2001 og
hreppti styttuna góðu. Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir afhenti hana fyrir
hönd ÍTR.
-Gun.
Súper Marío Bros
Húsaskóii flutti dans- og söngleik saminn upp úr tölvuleik.
Notaðir bílar hjá
Suzuki bíium hf.
Dodge Intrepid 3,3, 4 d., ssk.
Skr. 5/94, ek. 69 þús. Verð kr.
onn K.'.e TU.BOÐ kr. 780 þús.
Hyundai Accent Gsi, 3 d., bsk.
Arg. '98, ek. 38 þús. Verð kr.
635 þús. TILBOÐ kr. 490 þús.
MMC Lancer st. 4x4. Skr. 5/99,
ek. 58 þús. Verð kr. 1260 þús.
TILBOÐ kr. 990 þús.
Opel Astra station, ssk. Skr.
3/98, ek. 32 þús. Verð kr. 1130
þús.TILBOÐ kr. 800 þús.
Suzuki Baleno GLX, 4 d., bsk.
Skr. 7/97, ek. 39 þús. Verð kr.
860 þús. TILBOÐ kr. 750 þús.
Fiat Punto Sporting, bsk. Skr.
12/97, ek. 41 þús. Verð kr. 780
þús. TILBOÐ kr. 590 þús.
Suzuki Baleno Wagon 4x4.
'97, ek. 122 þús. Verð kr. 790
þús. TILBOÐ kr. 650 þús.
MMC Lancer GLXi, 4 d., ssk.
Skr. 6/97, ek. 63 þús. Verð kr.
860 þús. TILBOÐ kr. 690 þús.
Suzuki Swift GX, 5 d., bsk. Skr.
9/96, ek. 48 þús. Verð kr. 540
þús. TILBOÐ kr. 470 þús.
Suzuki Swift GLX, 5 d., bsk.
Skr. 3/98, ek. 52 þús. Verð kr.
650 þús. TILBOÐ kr. 550 þús.
Sjáöu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---////-------
SUZUKI BÍLAr
Skeifunni 17, sími 568-aiuu