Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Side 32
36
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001
• Tilvera I>'V
múm og Blái
hnötturinn
í kvöld verður hljómsveitin
múm með tónleika að lokinni
sýningu á Bláa hnettinum í
Þjóðleikhúsinu. Hljómsveitn
samdi tónlistina sérstaklega fyr-
ir verkið og er þetta einstakt
tækifæri til að sjá sveitina flytja
þetta efni á sviði.
Fundir og ráðstefnur
■ GEGN KYNÞATTAFORDÓMUIVI
» Málstofa um heimsráðstefnu gegn
kynþáttafordómum, kynþáttamisrétti
og útlendingahatri, sem Sameinuðu
þjóöirnar héldu I september sl.,
verður í Lækjarbrekku í
Bernhöftstorfunni I dag kl. 17.
Frummælendur eru Berglind
Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri,
Haukur Ólafsson sendifulltrúi og
Bjarney Friðriksdóttir
framkvæmdastjóri.
■ HÁDEGISFYRIRLESTUR Á
KELDUM
Fræðslufundur verður haldinn í
hádeginu á morgun á bókasafni
Keldna og hefst kl. 12.30. Hann ber
’ yfirskriftina Næmi lúðu, sandhverfu,
þorsks og lax fyrir bakteríunni
Moritella viscosa og er haldinn af
Bjarnheiöi Guömundsdóttur,
líffræðingi á Keldum.
Tónlist
■ OARASHI A GAUKNUM
Hljómsveitin Qarashi heldur síðustu
tónleika sína, áður en hún heldur I
tónleikaferð til Bandaríkjanna, á
Gauki á Stöng í kvöld
Sýningar
■ ASTIN ÓG LÍFIÐÍ STRAUMI
Sýningin Astin og lífiö er í
Listamiöstööinni Straumi. Hún
samanstendur af Ijósmyndum,
Ijósverki og póstkortum.
’ ■ BIÐJUM FYRIR FRfDI í MAN
Fjöllistakonan Kjuregej Alexandra
og glerlistakonan Ingibjörg
Hjartardóttir hafa opnað
samsýningu í Listasal Man við
Skólavöröustíg. Þema hennar er
Biöjum fyrir friöi.
■ MÁLVERK OG LEIRMUNIR Á
GLUGGASYNINGU Anna S.
Hróömarsdóttir sýnir málverk og
leirmuni í glugga Samlagsins
Listhúss á Akureyri.
■ ÓLI G. OG KRISTJÁN PAVIÐS Í
LISTASAFNI AKUREYRAR Svninear
á verkum Ola G. Jóhannssonar og
Kristjáns Davíössonar eru í
Listasafninu á Akureyri um þessar
mundir. Sýning Óla G. er stærsta
einkasýning listamannsins fram til
þessa en hann er bæjarlistamaður
*■ Akureyrar 2001/2002. Verk
Kristjáns spanna tímabilið frá 1967-
1995. Þau eru fengin að láni hjá
Listasafni Reykjavíkur.
■ TORGERÐ SÝNIR SKART
Færeyski skartgripasmiöurinn
Torgerö Suöuroy er gestur Vest-
norræna menningarhússins í
Hafnarfirði.
Síðustu forvöð
■ SKOLASYSTUR I LISTHUSI
Þrjár fyrrum skólasystur minnast
skólad,aga í Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1964-1966 meö sýn-
ingunni „Those Were.the Days“,
■ sem lýkur í Listhúsi Ófeigs aö
Skólavörðustíg 5Í dag. Laila
Aasand Björnsson, norsk, búsett í
Brisbane í Ástralíu, sýnir grafík.
Ingema Andersen frá Noregi sýnir
skart og Katrín Pálsdóttir sýnir gler.
Efla þarf siðferði,
samkennd og virðingu
- segir Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor
„Unga fólkið er stórkostlegt en
viö sem eldri erum gætum gert
meira af því að efla samfélagsvitund
þess og samkennd," segir Sigrún
Aðalbjarnardóttir, prófessor í upp-
eldis- og menntunarfræði við Há-
skóla íslands. Að hennar áliti þarf
að auka umræðu um ýmis siðferði-
leg, félagsleg og tilfinningaleg mál,
bæði á heimilum og í skólum, og
eíla þannig þroska barna og ung-
linga á þessum sviðum. „Það verður
að leggja áherslu á að rækta hjá
þeim virðingu fyrir sjálfum sér og
öðrum og hjálpa þeim að skoða mál-
in frá mismunandi sjónarhornum,"
segir hún.
Færri börn á heimilum
Sigrún segir reynda kennara
finna fyrir vaxandi agaleysi meðal
barna og að mörg þeirra eigi erfltt
með að setja sig í annarra spor.
Þeim finnist þetta hafa breyst nokk-
uð síðustu áratugi. Hverja telur hún
ástæðuna? „Að einhverju leyti þá að
við fullorðna fólkið erum svo óöguð.
Við erum á hraðferð í lífmu og
heimilin eru að breytast. Systkina-
hópar eru minni en þeir voru
þannig að börn æfast ekki nægilega
í að taka tillit til annarra bama á
heimilum. Þótt kennari geti ýmis-
legt gert til að bæta úr agaleysinu
þá gerist slíkt ekki í tómarúmi.
Grunnurinn er lagður á heimilinu,
þar fer mikilvægasta uppeldisstarf-
ið fram og að sjálfsögðu er áriðandi
að gott samstarf sé á milli heimilis
og skóla.“
Vill foreldrafræðslu inn í
heilsugæsluna
„Svo er ekki nægileg virðing bor-
in fyrir uppeldishlutverkinu í sam-
félaginu," segir Sigrún og bendir
m.a. á að í okkar menntakerfi sé
varla nokkur foreldrafræðsla. Hún
sér fyrir sér að auðvelt væri að ná
til foreldra í gegnum heilsugæsluna
því þangað komi þeir með nýfædd
börn sín i skoðun og séu á þeim
DV-MYND BRINK
Vill breyta áherslum í skólastarfi
Við leggjum áherslu á svo margt sem hefur ekki djúpstæða merkingu fyrir unga fólkið, “ segir Sigrún Aðalbjarnardótt-
ir, prófessor í uppeldis- og menntunarfræðum við HÍ.
tima einkar móttækilegir fyrir leið-
beiningum. „Þar sé ég fyrir mér
ekki aðeins fræðslu um heilsu
barna heldur líka um uppeldishlut-
verkið. Allir vilja vera góðir foreldr-
ar og fræðslan þarf að byrja
snemma," segir hún. Þá telur hún
mikilvægt að efla kennslu í skóla-
kerfinu um það að vera þegn bæði í
eigin samfélagi og alþjóðlegu. „Við
leggjum áherslu á svo margt sem
hefur ekki djúpstæða merkingu fyr-
ir unga fólkið og því leiðist jafnvel í
skólanum. En svo er hvergi minnst
á viðfangsefni sem eru þó afar þýð-
ingarmikil í undirbúningi þess und-
ir lífiö, til dæmis um sambúð, heim-
ilisrekstur, foreldrahlutverkið og
samfélagið í víðum skilningi, rétt-
indi okkar og skyldur sem samfé-
lagsþegna," segir hún.
Mál sem snerta mannkynið
allt
Sigrúnu líst ekki á aukna áherslu
á samræmd próf og fjölgun þeirra
og segir hættu á að umfjöllun um
siðferðileg efni verði hornreka. „Þó
verður æ meira knýjandi aö taka á
slíkum viðfangsefnum og efla hæfni
í samskiptum eftir því sem þjóðfé-
lagið verður flóknara og fjölþjóð-
legra. Ekki bara okkar þjóðfélag
heldur verðum við líka að hugsa
hnattrænt," segir hún. Hún bendir á
mikilvægi þess að ræða málefni
þeirra sem setjist að í nýju landi og
mannréttindi hvers konar enda
snerti þau mannkynið allt. „Við
komumst ekki hjá því að ræða ýmis
álitamál og eigum ekki að komast
hjá því heldur taka á þeim af víð-
sýni,“ segir þessi skelegga kona og
vitnar í lokin í Martein Lúther
King: „Það er alltaf rétti tíminn til
að gera það sem er rétt.“
-Gun.
Bíógagnrýni
* r ^gfei
Sam-bíóin - Training Day: ★ ★ ★
Ognvekjandi löggæsla
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Kennarinn og lærlingurinn
Alonzo (Denzel Washington) kennir Jake (Ethan Hawke) hvernig lögreglumað-
ur á að haga sér í Los Angeles.
Lögreglumenn starfa við mis-
munandi aðstæður. Þeir sem starfa
í stórborgum þar sem nálgun við
glæpi er daglegt brauð þurfa oft á
miklu siðferðisþreki að halda til að
geta haldið sönsum og starfað eðli-
lega. Við þessar aðstæður er spill-
ingin innan lögreglunnar mest.
Training Day segir frá sólarhring í
starfi tveggja lögregluþjóna í Los
Angeles. Annar er ungur nýliði með
háleitar hugmyndir um starf sitt.
Hinn er reyndur í starflnu, hefur
starfað innan um glæpalýðinn of
lengi. Hann er harður í hom að
taka og margverðlaunaður. Hann er
einnig stórhættulegur og sjálfsagt
eitt versta dæmi um það hvemig
lögregla getur snúist í andhverfu
sína.
í upphafi glymur í vekjaraklukk-
unni hjá Jake Hoyd (Ethan Hawke).
Hann er að vonum spenntur, enda
er hann að fara á sína fyrstu vakt
sem óeinkennisklæddur lögreglu-
þjónn. Reyndur lögreglumaður,
Alonzo Harris (Denzel Washington)
tekur á móti honum og gerir í
fyrstu frekar lítið úr nýliðanum um
leið og hann kannar viðbrögð hans.
Jake er ekki vanur slíku og fram
eftir degi er margt í háttalagi
Alonzo sem kemur honum á óvart.
Þetta var ekki það sem hann lærði í
lögregluskólanum. Þar var þeim
kennt að handtaka glæpamenn,
ekki lemja þá sundur og saman og
sleppa þeim síðan. Eftir því sem líð-
ur á daginn koma fram fleiri og
dekkri skuggahliðar á Alonzo sem
gerir það að verkum að Jake fer að
huga að stöðu sinni, hvort hann eigi
nokkuð heima i þessu umhverfi of-
beldis sem Alonzo er orðinn hluti
af, auk þess sér Jake ekki betur en
að Alonzo starfi eftir eigin lögum og
reglum. Ástandið á þó eftir að
versna þegar líður á kvöldið.
Training Day er sérlega vel skrif-
uð kvikmynd þar sem nánast hver
setning sem sögð er hefur vissa
merkingu og jafn markvisst og
harðsoðið handrit að löggumynd
hefur varla sést síðan Dirty Harry
var upp á sitt besta: Það nægir samt
ekki að vera með gott handrit ef því
er ekki fylgt eftir með góðum leik.
Ethan Hawke og Denzel Washington
eru leikarar sem valda hlutverkum
sírium og þó ekkert sé hægt að setja
út á leik Hawkes þá hverfur hann í
skuggann fyrir mögnuðum leik
Denzels Washingtons. Hann hefur
ekki leikið annað eins illmenni (hef-
ur í raun aldrei leikið illmenni ef að
er gáð). Washington er eins og áður
einstaklega sjarmerandi þegar það á
við, en breytingin sem verður á
honum þegar hið rétta eðli hans
kemur í ljós felst ekki í einhverjum
beinum aðgerðum, heldur kemur
Washington til skila innrætinu með
hreyfingum og andlitsdráttum.
Leikur sem hefur óskarstimpil á
sér.
Það eina sem hægt er að flnna að
Training Day er endirinn. Það er
eins og allt eigið púður hafi verið
uppurið og þurft að fá lánað ein-
hversstaðar annarsstaðar frá til að
geta klárað dæmið. Miðað við ein-
staklega spennandi og athyglisverða
atburðarás þá er endirinn of staðl-
aður.
Leikstjórl: Antoine Fuqua. Handrit: David
Ayer. Kvikmyndataka: Mauro Fiori. Tón-
list: Mark Mancina. Aöalleikarar: Denzel
Washington, Ethan Hawke, Scott Glen,
Dr. Dre og Snoop Dog.