Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2001, Page 4
18
Innkaup
FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001
DV
Léttvín
• C&ilíLero t>el t>tAbU>
Chileska vinið Casill-
ero Del Diablo Merlot
‘99 ætti að freista vín-
unnenda eins og mörg
vín frá þessum nýja
risa í heimi vínsins.
Þetta vín, sem Allied
Domecq Spirits &
Wine ehf. flytur
inn, er frá Rapel
Valley í Chile. Lit-
urinn er dökkur og
djúprauður og þeg-
ar lyktað er fyllast
vitin af gómsætum
ávaxtailmi ásamt
angan af kirsuberj-
um, garðberjum og
plómum. í bragðinu
af Casillero Del Di-
ablo Merlot ‘99 er
vottur af súkkulaði
og kryddi en það er
einnig mótað af ristaðri eik.
Þetta kraftmikla vín er fyrir
þyngri og bragðmikinn mat eins
og rjúpur og aðra villibráð. Það
er einnig gott með ýmsum ost-
um. Það fæst í Ríkinu og kostar
þar 1290 krónur.
Tajrr&zu Tournon
Berglind í Te & kaffi mælir
með Costa Rica Tarrazu To-
urnon sem kafli vikunnar.
Costa Rica var fyrsta Mið-Amer-
íkulandið til þess að rækta kaffi
en þangað kom það frá Kúbu í
kringum 1729.
Þar eru eingöngu ræktaðar
fyrsta ffokks kaffibaunir,
arabica , og frá hinu þekkta hér-
aði Tarrazu kemur mjög eftir-
sótt kaffi sem öðlast hefur
ákveðinn virðingarsess meðal
þeirra sem sækjast eftir góðu
kafii. Af mörgum kallað „Burg-
undy“ suður-ameríska kaffisins.
Bestu Tarrazu-baunimar koma
frá búgörðunum Tournon, La
Minita,
Juan Vinas og Santa Rosa.
Tarrazu Toumon er gott jafnt að
morgni, í erli dagsins eða eftir
góða máltið. Góð bragðfylling,
frísklegt létt eftirbragð og dá-
samlegur ilmur prýða þetta ljúf-
fenga kaffi.
* Sutppxtmjfoihjf
Sveppasmurostur í 250 g dós-
um hlaut á dögunum sérstök
heiðursverðlaun á ostasýningu í
Herning í Danmörku. Sveppaost-
urinn er gerður úr
tilbúnum osti
með bræðslu,
þ.e. sérstakri
. hitunar-
meðferð
jsem
mýkir
aferðina og
tryggir gott geynisluþol án þess
að bragðið breytist. Osturinn er
mjög góður í alla matargerð, svo
sem í fiskrétti, í súpur og 1 sósur
og með grófu brauði. Sveppaost-
ur er ein af mörgum tegundum
smurosta sem framleiddir em
hjá Osta- og smjörsölunni í
Reykjavík. Einnig er fáanlegur
smurostur með papriku, humri,
blaðlauk, beikon, rækju, hvít-
lauk, skinku og án bragðefna.
Smin-ostar innihalda 18% fitu.
Enn fremur em framleiddar 3
tegundir af léttosti með einungis
6% fitu. Smurostar Osta- og
smjörsölunnar em fáanlegir í 20
g og 250 g dósum. -hlh
Nennti ekki á elliheimili
- og keypti því Gallerí smíðar og skart
Á vaktinni
Svava Jónsdóttir, annar eigenda Gallerís smíöa og skarts
Hún söölaði algerlega um þegar hún varö aö hætta störfum sem skjalavöröur
á Landspítalanum vegna aldurs.
Svava Jónsdóttir vann sem
skjalavörður hjá Landspítalan-
um í 10 ár. Þegar hún varð sjö-
tug fyrir nokkrum árum varð
hún að hætta í þeirri vinnu
þar sem ekki var ætlast til að
þeir sem hafa náð þessum
aldri starfi áfram. í stað þess
að setjast í helgan stein, eins
og flestir gera, ákvað hún
ásamt syni sínum, Guðmundi
Jóni Kjartanssyni, að kaupa
gallerí við Skólavörðustíginn
og hafa þau rekið það af mikl-
um myndarskap æ síðan.
„Ég nennti ekki á elliheimil-
ið Grund þegar ég varð að
hætta hjá Landspítalanum,"
segir Svava. „Svo ég varð að
gera eitthvað. Sonur minn
kom þá með þessa fínu uppá-
stungu, að við keyptum þetta
gallerí og rækjum það saman.“
Svava hefur reynslu af versl-
unarrekstri því sem ung stúlka
vann hún við afgreiðslustörf í
bókabúðum og fleira. „Svo
vann ég hjá tannlækni í 35 ár
áður en ég fór upp á Landspít-
ala. Og hér er ég búin að vera
í tæp þrjú ár.“
Hún segir ekki hafa verið
erfitt að söðla um og fara út í rekst-
ur eigin fyrirtækis. „Þegar heilsan
er góð er allt hægt og ég hef verið
heppin að því leyti. Ég hef líka
reynt að mikla ekki hlutina fyr-
ir mér.“
í Gallerí smíðar og skart fást málverk,
keramik og alls kyns listmunir frá mörgum
listamönnum sem setja verk sín í umboðssölu
þar. „Einnig setjum við upp sýningar einstakra
listamanna. Hinn 1. desember nk. munum við t.d.
starfar skemmtilegt fólk. Auðvitað var maður
svolítið uggandi fyrst þar sem rekstur í miðbæn-
um varð æ erfiðari en það virðist ekki hafa gerst
hér, nema síður sé. Eftir þriggja ára rekstur hér
finnst mér sem aðsóknin sé meiri nú en áður.
Skólavörðustígurinn hefur verið að skapa sér
sess í hugum fólks sem skemmtileg gata með gall-
eríum og sérbúðum á hverju strái.“
opna sýningu myndlistarkon-
unnar Steinu sem hefur lært og
starfað í Ástralíu. Hún ætlar
að sýna hér verk sin sem
bæði eru unnin í olíu og akrýl.“
segir gott að vera með rekstur á Skóla-
vörðustígnum. „Þetta er skemmtileg gata og hér
Þakkargjörðarhátíðin setur svip sinn á matarinnkaup fyrir helgina:
Borð svigna undan kalkún
og alls kyns krásum
Matur
Með auknum ferðum íslendinga til útlanda hafa
margir kynnst bandarísku þakkargjörðarhátíðinni
sem er í dag. Þakkargjörðarhátíðin á rætur sínar að
rekja til sautjándu aldar og var upphaflega haldin af
bandarískum landnemum og indíánum sem vildu
þakka fyrir uppskeruna. Það var síðan árið 1863 sem
Abraham Lincoln, forseti Bandaríkjanna, skipaði svo
fyrir að fjórði fimmtudagur í nóvember skyldi gerð-
ur að opinberum hátíðardegi þakkargjörðarinnar.
Þakkargjörðin er ein mikilvægasta hátíð ársins í
Bandaríkjunum og mun stærri í sniðum en jólin. Þetta
er mesta ferðahelgi ársins en algengt er að fólk eigi frí
á fóstudeginum og fái þannig langa helgi. Þá markar
dagurinn upphaf jólaverslunar og jólaundirbúnings.
Æ fleiri hér á landi halda þennan dag hátíðlegan og
borða þá kalkún og annað hefðbundið meðlæti. Á þakk-
argjörðarhátíðinni er alltaf mikið af mat á borðum. Þar
er fylltur kalkún í aðalhlutverki, með sósu og gjaman
kartöflustöppu eða fylltum bökuðum kartöflum. Þá
þykir trönuberjasósa, sem er eiginlega hlaup,
ómissandi. í eftirrétt eru gjaman hafðar bökur að am-
erískum sið, t.d. graskersbökur eða eplabökur.
Þótt þakkargjörðarhátíðin hafi upphaflega verið
uppskeruhátíð er hún nú tækifæri fyrir fjölskylduna
til að koma saman og borða góðan mat, borða mikið
og lengi.
Kalkún með trönuberjahlaupi
Hér fylgir uppskrift að kalkún með trönu-
berjamauki. Meðlæti fer eftir smekk hvers og
eins. í þessa uppskrift þarf:
í soðið
1 kalkún, 5-6 kg
salt og pipar
1 lítri hænsnasoð
1 grófsaxaður laukur
1 gulrót í tenlngum
1 lárviðarlauf
1 kvistur timian (1 msk. þurrkað)
stilkir af steinselju
f fyllingu:
250 g smjör
2 stórir fínt hakkaðir laukar
2 sellerístilkir í teningum
250 g reykt skinka i litlum teningum
1 búnt söxuð steinselja
1 msk. hakkað timian
1 msk. hökkuð salvía
1 dagsgamalt brauð í teningum
maizena-mjöl
Þerrrið kalkúninn vel og nuddið
með salti og pipar að utan og innan.
Setjið hænsnasoð i pott ásamt lauk, gul-
rót, lárviðarlaufi, timian og stein
seljustilkum ásamt vængendum
kalkúnsins og innmat. Lát-
ið sjóða rólega í eina og
hálfa klukkustund.
Bætið smá vatni i af
og til. Að lokinni
suðu er soðið síað.
Bræðið helming
smjörsins í potti
og svitið sellerí
og lauk þar til
hann er glær.
Bætið í
reyktri
skinku,
kryddjurtum
og brauðten-
ingum. Hrærið
vel og bætið 3-4 dl
af soðinu í. Blandan á
að vera létt. Kryddið
með salti og pipar.
Fyllið kalkúninn með
fyllingunni og lokið hon-
um með kjötnál. Bræðið
restina af smjörinu og
börkur af einni appelsínu í striml-
um (án þessa hvíta en það gefur
beiskt bragð)
4stk. heiil kanill
12 negulnaglar
375 g trönuber
Bræðið sykurinn í edik-
inu í potti og látið smásjóða
í korter. Bætið trönuberjun-
um út í og sjóðið þar til hýð-
ið á berjunum rifnar. Lækkið
hitann og látið blönduna
malla við vægan hita í hálfa
klukkustund eða þar til hún fer að'
þykkna. Takið af hitanum og kælið. -hlh
í þakkargjörðarveisluna
Starfsmaður Hagkaups heldur á
kalkún, 798 kr. kílóið, og pökkum
meö fyllingu og fleiru frá Butterball í
þakkargjörðarmáltíðina.
penslið kalkúninn vandlega. Setjið hann því næst í
200 gráða heitan ofn og steikið i 45 mínútur. Þá er hit-
inn lækkaður í 170 gráður og kalkúninn steiktur
áfram í 2 klukkustundir. Dreypið safanum úr steik-
ingarfatinu reglulega yfir kalkúninn og restinni af
smjörinu. Stingið kjötnál í lærið á kalkúninum til að
athuga með steikinguna. Ef tær safi vellur út er fúgl-
inn fúllsteiktur. Annað óbrigðult ráð, ættað frá
indíánum, er að setja handfylli af mais inn í kalkún-
inn og er hann fullsteiktur þegar maísinn byrjar að
poppa. Kjöthitamælir síns tíma.
Sjóðið upp af steikarpönnunni með vatni, siið það
og blandið við það sem eftir var af soðinu. Sjóðið
niður þar til bragðið er hæfilega mikið. Þykkið með
maizena-mjöli hrærðu út í vatni.
Trönuberjamauk
Trönuber þykja ómissandi á þakkargjörðarborð-
inu. Hér fylgir útfærsla á trönubeijum með smá
jólaívafi:
750 ml eplaedik
200 g sykur