Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2001, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2001, Side 10
32 FIMMTUPAQUR .22, NÓVEMBER 200X ■ Innkaup_____________________________________________________________________________________________________DV Spænskt vfirbraqð r „Ég vil að viðskiptavinum líði vel hérna hjá mér og geti gefið sér tíma til að skoða. Ég reyni því að hafa ró- legt og af- slappað andrúms- loft, kveiki á kertum og reykels- um,“ segir Dagný Guðnadótt- ir, eigandi Gjafagaller- ís, Frakka- stíg 12. Verslun Dagnýjar lætur ekki mikið yfir sér, er í kjallara spöl- korn fyrir ofan Laugaveginn. Yfir búðinni er spænskt yfirbragð. Þar selur hún spænskar gjafavörur og skrautmuni og einnig muni frá Mexíkó og Suður-Ameríku, antik, trúarlegar myndir og krossa. Þá er hún einnig með grófari vöru eins og stóra leirpotta. Loks býr Dagný til ýmisa fallega muni. Dagný fer reglulega á sýningar í Barcelona og Madrid og flytur mest alla sína vöru inn sjálf. -hlh Rólegt andrúmsloft Dagný í Gjafagalleríi á Frakkastíg. Númer 10 þúsund Jóhann Pétur Guöjónsson, sölustjóri Íslandssíma, afhenti Magnúsi Jón- atanssyni Nokia 8310 farsíma og blómvönd á dögunum í tilefni þess aö hann varö 10 þúsundasti viö- skiptavinur fyrirtækisins. ÓB lækkar um 5 krónur Um þessar mundir eru fimm ár síöan fyrsta „ÓB-ódýrt bensín“- stöðin var opnuð við stórmarkað Fjarðarkaupa í Hafnarfirði í nóv- ember 1996. Af því til- efni munu ÓB-stöðv- amar bjóða eldsneyti tímabundið á verði sem er 5 krónum undir hefðbundnu verði á bensínstöðvum olíuféiag- anna. Verð lækkar bæði á bensíni og disiloliu. Y ÓB-stöðvamar em nú orðnar tiu á svæðinu frá Borgamesi til Njarð- víkur. Gert er ráð fyrir fjölgim ÓB- stöðva á næstu misserum. ÍT-ferðir 5 ára Nú i nóvember á ferðaskrif- stofan ÍT-ferðir 5 ára afmæli. ÍT- feröir sérhæfa sig í alls konar hópferðum, til íslands og frá, þ.e. íslandsferðir fyrir erlenda hópa og utan- lands- ferðir fyrir ís- lenska hópa. Fyrirtæk- ið var stofnað í nóvem- ber 1996 af Herði Hilmarssyni og fjölskyldu, en Hörður átti þá að baki 10 ára reynslu í ferðaþjón- ustu. Starfsmenn ÍT-ferða em fimm. Sérstaða ÍT-ferða í íslenskri ferðaþjónustu er fólgin í áherslu og markaðssetningu á íslands- ferðum erlendra íþróttaliða, en fyrirtækið sinnir einnig utan- landsferðum íslenskra íþróttaiiöa, tónlistarhópa, skóla- hópa, fyrirtækjahópa o.s.frv. ÍT- ferðir hafa síðustu árin tekið á móti fjölmörgum erlendum hóp- um til íslands, einkum íþrótta- hópum en einnig eldri borgur- um, menningarhópum, hópum í hvataferðum o.fl. Laust og liðugt í eldhúsinu Einu sinn var ekki ætlast til að gestir kæmu inn í eldhús þegar þeim var boðið í heimsókn. Þeir sátu í stofunni og ef boðið var upp á mat var hann snæddur í borðstofunni. Hlutimir hafa heldur betur breyst síðan þá. Nú er hús- næði allt mun opnara og formlegt eldhús hefur í mörgum tilfellum vikið fyrir einhvers konar fjölskyldurými þar sem ýmislegt fleira fer fram en undirbúningur máltíða. Þessari þróun hafa fylgt öðruvísi innréttingar sem eru ekki nagl- fastar, heldur lausar og frístandandi þannig að eigandinn geti breytt rýminu eftir því hvernig hann er stemmdur. Reyndar hafa slíkar innrétt- ingar verið lengi við lýði í mörgum löndum, í Þýskalandi tekur fólk í flestum tilvikum inn- réttingarnar með sér þegar það flytur úr einu húsnæði i annað. Þar er algengt að þegar flutt er inn sé ekkert í eldhúsinu nema innstungur og vatnsrör út úr veggnum. Töluvert mörg fyrirtæki framleiða lausar ein- ingar fyrir eldhús og þar er í fram- varðarsveit ítalska fyrirtækið Boffi. Þeir sem vilja kynna sér þá vöru er bent á að versl- unin í gegnum glerið í Ármúla hefur umboðið hér á landi og hefur i gegnum tíðina sér- pantað fyrir þá sem það vilja. Nokkrir aðrir aðil- ar flytja einnig inn og selja frístand- andi eldhúsinn- réttingar. Innkaup kannaði málið. Massíf eik frá Belgíu Svona innréttingu er hægt aö sérpanta í versluninni í húsinu. Oliva í versluninni Habitat við Askalind í Kópavogi fást lausar eld- húsinnréttingar sem kallast Oliva. Þær eru úr fallegu, gegnheilu beyki og eru þar af leiðandi afskaplega sterkar. Sem dæmi má nefna að þyngd einnar einingarinnar er heil 83 kg. Eins og flestir vita er beyki ljós viður en með timan- um dökknar hann aðeins og á hann kemur hlý- legur gylltur blær. Oliva-irinréttingamar eru viðhaldslitlar en þó þarf að oliubera viðinn ein- staka sinnum og gott er að pússa yfir þær með fínustu stálull. Til eru margar einingar þannig að allir ættu að geta raðað saman fallegu eld- húsi úr þeim. Hægt er að fá vaskaeiningu með postulínsvaski og skúffueiningar nýtast einnig sem helluborð. Þar sem platan er mjög þykk má setja í hana helluborð án þess aö skemma nýt- ingu þeirra skúffa sem undir lenda. Skáphurð- um má snúa á báða vegu og stilliskrúfur eru undir öllum löppum. Eins eru stilliskrúfur á skápum sem notaðar em til að færa skápa upp og niður og að og frá vegg. HTH-álprófílar Hjá Bræðrunum Ormsson/HTH fást álpróffl- ar sem innréttingaeiningum frá HTH er stungið inn í. Álprófllamir eru 4x4 cm og koma í stöðl- uöum stærðum eins og innréttingamar. Þá er hægt að fá á fótum eða með hjólum þannig að Oliva í Habitat Þessi er úr gegnheilu birki og fá má nokkrar mismunandi einingar auk hillna og annarra fylgihluta. Verde Verde-innréttinging, sem seld er í Ikea, fékk hönnunarverðlaunin Rauða punktinn og er framleidd úr gegnheilu birki. Til eru 18-20 út- færslur í þessari línu sem byggð er á nokkrum grunneiningum sem raðað er saman að vild. Ekkert er spónlagt nema fulningar í hurðum efri skápa en þá er einnig hægt að fá með gleri. Neðri skáparnir em margs konar, með skúffum og hillum. Allar hurðir í neöri skápum eru úr birki en lagöar hvítu plasti. Boröplötur eru til í ýmsum útfærslum, t.d úr stáli þar sem gert er ráð fyrir helluborði eða helluborði og vaski. Svo eru plötur þar sem í eru tveir vaskar. í þessari línu fæst einnig hjólaborð úr massífu birki með stálhillu að neðan og margs konar hillur og bastkörfur sem passa í einingamar. -ÓSB Verde fra Ikea Þessi eldhúsinnrétting er byggö á nokkrum grunneiningum sem síöan fást í mismunandi útfærslum. Með henni má fá hillur og bastskúffur sem passa viö. Eln fyrir unga fólkið Attityd frá Ikea er úr áli, krossviöi og með plasthuröum. auðvelt er að færa einingamar til. Hjá HTH inn- réttingum fengust þær upplýsingar að þessi kostur væri töluvert nýttur, og þá oft með hefð- bundnum naglföstum innréttingum. Þá væri hluti innréttingarinnar ekki festur í vegg held- ur komið fyrir í álramma. Bæði gefur það inn- réttingunni léttara yfirbragö svo og sveigjan- leika þar sem hægt er að færa þær til. Margir kjósa einnig að fá sér álramma í hluta innrétt- ingar til að ríma við t.d. háfa eða isskápa úr stáli, sem hafa verið afskaplega vinsælir undan- farið. í húsinu í húsinu er verslun við Ingólfsstræti þar sem finna má alls kyns hluti og húsgögn sem fegra heimilið. Þar eru til sölu laus eldhúsinnrétting og eldhúshúsgögn frá Belgíu en sérpanta verður fyrir hvern viðskiptavin. Þeir sem leggja leið sína í búðina geta um þessar mundir séð vaska- einingu úr þessari línu sem einnig inniheldur skápa og borð, sem er langt og nýtist bæði sem matarborð og vinnuborð. Borðin er hægt að fá í lengdunum 2,30 m og 2,70 m. Innréttingin er úr massífri eik og vaskurinn er úr postulini og eru þær því afskaplega þungar og veglegar. Attityd í Ikea eru seldar tvær tegundir lausra inn- réttinga, Attityd og Verde Attityd- innréttingin er hönnuð fyrir ungu kynslóðina og hentar vel í opnar íbúð- ir, svo sem stúdíóíbúðir. Hún er sett saman úr krossviði, plasti og stáli. Renni- hurðir á henni eru úr plasti, ramm- amir úr stáli og hliðar og bak eru úr krossviði sem litaöur er annaðhvort blár eða hvítur. Allir skápar eru með baki sem lítur vel út og þvi þurfa þeir ekki að snúa að vegg. Þeir geta því virkað sem skil- rúm milli t.d. stofu og eldhúss. Innréttingin byggist upp á 10 mismunandi einingum í mis- munandi stærðum og útfærslum sem raðað er saman að vild. Hægt er að fá einingar fyrir ofna, helluborð og vask og skúffueiningar. Innréttfng í álrömmum Þeir sem kaupa innréttingu hjá HTH geta fengiö hluta hennar í álrömmum eins og þeim sem hér sjást.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.