Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Page 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001
Fréttir DV
Fjölmiðlakönnun Gallup:
Aukinn lestur DV
- þrátt fyrir nýtt ókeypis dagblað á markaðnum
Lestur á DV hefur aukist þrátt fyr-
ir tilkomu nýs ókeypis dagblaðs á
markaðnum samkvæmt nýrri fjöl-
miðlakönnun Gallup. Meðallestur á
hvert tölublað DV er nú 36,8 prósent í
stað 35,1 prósents í könnun Gallup í
apríl. Meðallestur Morgunblaðsins
hefur lækkað á sama tíma, úr 60,3 pró-
sentum í 58,9 prósent. Aukning á
lestri DV á sér stað alla daga nema
þriðjudaga. Aukning er mest í lestri
DV á fimmtudögum, 3,5 prósentustig,
2,5 prósentustig á miðvikudögum, 2,1
á föstudögum, 1,4 á laugardögum og
1,1 prósentustig á mánudögum. Á
fimmtudögum er nýtt fylgirit, DV Inn-
kaup, með DV.
Þegar niðurstöðurnar eru greindar
eftir því hvort eitthvað hafi verið les-
ið í dagblaði í vikunni kemur í Ijós að
Meðallestur DV
40 j—
35,1
36,8
35
30
25
20
15
10
5
%
1
Vor
2001
Haust
2001
FJölmlölakönnun GALIXSP
62,7 prósent sögðust eitthvað hafa les-
ið í DV, 77 prósent í Morgunblaðinu
en 56,6 prósent höfðu lesið eitthvað í
Fréttablaðinu sem dreift er ókeypis.
Samkvæmt könnun Gallup gefa
prentmiðlarnir notendum fjölmiðla
mikilvægar upplýsingar umfram aðra
fjölmiðla. Á kvarðanum 1-5 gagnvart
mikilvægi upplýsinga í íjölmiðlum
fær DV 3,8 í einkunn, er í öðru sæti á
eftir Morgublaðinu sem fær 4,1. Sjón-
Eitthvað lesið í vikunni
8» 77,0
70LK' 1 - _______
FJölmldlakönnun GALUIP
varpið kemst næst DV með 3,7 í ein-
kunn en Stöð 2, Rás 1 og Rás 2 fá 3,5 í
einkunn hver miðill.
Fréttir DV í kvöldfréttatíma Skjás
eins klukkan 22 hafa betur en kvöld-
fréttir Stöðvar 2 kl. 21.45 á Faxaílóa-
svæðinu þá daga vikunnar sem báðar
stöðvar senda út kvöldfréttir. Meðalá-
horf á DV-fréttir Skjás eins er að með-
altali 6,1 prósent en samsvarandi tala
fyrir Stöð 2 er 4,6 prósent. -hlh
Félag um bætta umgengni um fiskistofna stofnað um áramót:
Eigum að læra af Færeyingum
- segir Guðmundur Halldórsson eftir ráðstefnu á ísafirði
Sjónvarpsáhorf:
SkjárEinn
jafnar Stöð 2
SkjárEinn sækir enn á í vinsæld-
um samkvæmt nýrri fjölmiðlakönn-
un Gallups sem gerð var vikuna 25.
til 31. október. SkjárEinn jafnar
Stöð 2 þegar uppsafnað áhorf fyrir
vikuna á Faxaflóasvæðinu er mælt,
báðar stöðvar mælast með 78%
áhorf en ríkissjónvarpið á sama
svæði mælist með 93% áhorf.
SkjárEinn bætir einnig við sig
þegar uppsafnað áhorf yfir landið
allt er skoðað. Skjárinn mælist þar
með 66% áhorf, var með 64% 1 mars
sl., Stöð 2 er með 74%, var með 79%,
og ríkissjónvarpið stendur í stað
með 93%.
Fréttastofa RÚV hefur mikla yfir-
burði þegar kemur að kvöldfréttum.
Meðaltalsáhorf á fréttir RÚV er á
bilinu 41,6-45% yfir vikuna en með-
altalsáhorf á Stöð 2 mælist á bilinu
23,3-29%. -aþ
Ráðstefna sem haldin var á
ísafirði á sunnudag heppnaðist
mjög vel að mati eins forsvars-
mannsins, Guðmundar Halldórs-
sonar, skipstjóra í Bolungarvík.
Þar hafi tekist að opna umræðu
sem vonandi gæti leitt til bættr-
ar umgengni um fiskistofna við
ísland. í lok ráðstefnunnar hafi
verið lögð drög að stofnun félags
um bætta umgengni fiskistofna
og sátt um stjórn fiskveiða við
ísland og margir skrifað sig þar
á. Félagið verður formlega stofn-
að eftir áramót.
Sérlega góður rómur var gerö-
ur að orðum færeyskra frum-
mælenda sem lýstu fiskveiði-
stjórnunarkerfi Færeyinga sem
byggist á sóknardagakerfi. Guð-
mundur sagðist
hins vegar alls
ekki vilja gera
lítið úr hlut Haf-
rannsóknastofn-
unar á fundin-
um. Vegna mis-
skilnings á milli
sín og blaða-
manns DV á
sunnudag hafi
mátt skilja að
þátttaka Hafró í fundinum hefði
verið lítils virði. Sú væri þó alls
ekki raunin.
Guðmundur segir helsta
byggðavandann í dag vera þann
hversu lítið er fiskað. Verði
áfram niðurskurður á fiskveiði-
heimildum um 15 til 20 þúsund
tonn á ári leiði það aðeins til enn
stórfelldari byggðaröskunar en
orðið er.
„Við erum að ganga götuna til
glötunar í dag undir vísindalegu
eftirliti. Sáttin liggur í því að af-
rakstur fiskistofnanna sé að
fullu nýttur því við erum að
fiska allt of lítið. Ef við fiskuðum
svona 400 þúsund tonn væru
þessir ílutningar af landsbyggð-
inni óþekktir.
Við eigum að skoða fiskidaga-
kerfið sem Færeyingar nota. Það
er mun gjöfulla enda tökum við
ekki toppana í okkar kerfi. Við
eigum að læra af Færeyingum og
skoða þeirra kerfi fordóma-
laust,“ segir Guðmundur Hall-
dórsson. -GG/HKr.
Konur í
slagsmálum
Lögreglan i Reykjavík var í nótt
kvödd að íbúðarhúsi þar sem til-
kynnt var að tvær konur ættu í ill-
deilum.
Þegar höfð voru afskipti af kon-
unum kærði önnur þeirra hina fyr-
ir að hafa slegið sig í höfuðið með
könnu. Höggið hefur þó ekki verið
meira en svo að ekki þótti ástæða til
að fara með konuna á sjúkrahús en
skýrsla var tekin af konunum víga-
móðu. -gk
Bílveltur í Kirkjubólshlíð:
Konan slapp
ótrúlega
Kona sem var á ferð í Kirkjubóls-
hlíð, skammt frá ísafirði, í gærdag
slapp ótrúlega vel þegar bíll hennar
fór út af veginum við Bása.
Þarna er löng og brött brekka og
fór bíllinn út af veginum, niður
brekkuna og alveg niður í sjó. Kon-
an, sem var í bílbelti, gekk hins veg-
ar ómeidd út úr bílnum og komst
upp á veg þar sem hún lét vita af
sér. Hún var flutt á sjúkrahús til
skoðunar í öryggisskyni en reyndist
ómeidd.
Síðdegis fór annar bíll út af vegin-
um í Kirkjubólshlíð. Þar var um
flutningabíl að ræða, sem flutti fisk,
og hafnaði hann á hliðinni utan veg-
ar. Ökumaður meiddist ekki og
reyna átti að ná bílnum upp á veg-
inn í morgun. -gk
Dekkjaþjófar á ferð:
Skildu jeppann
eftir á grindinni
Óvenju bíræfnir
dekkjaþjófar voru
á ferðinni í Mos-
fellsbæ í nótt,
en lögreglu
var tilkynnt
um grunsam-
legar manna-
ferðir á fjórða
timanum.
Þegar lög-
reglan kom á
vettvang kom hún að
nýrri jeppabifreið sem var „á grind-
inni“. Þjófarnir höfðu stolið öllum
fjórum dekkjunum undan jeppanum
og varadekkinu að auki. Hins vegar
vildi ekki betur til fyrir þjófana en
svo að lögreglan gat rakið spor
þeirra og í nágrenninu fundust þeir
þar sem þeir voru að reyna að koma
stolnu dekkjunum fyrir í annarri
jeppabifreið. Mennirnir voru hand-
teknir og gistu fangageymslur það
sem eftir lifði nætur. -gk
Stormur á landinu
Norðvestanátt, víöa 20-25 m/s og snjókoma
eöa skafrenningur í dag en hægari
austanlands. Norðvestan 13-18 og él meö
kvöldinu en lægir síöan í nótt. Frost 0-8 stig.
Sólarlag í kvöld
Sólarupprás á morgun
Síödegisflóö
Árdegisflóö á morgun
AKUREYRI
15.56 15.20
10.37 10.41
16.26 20.59
04.49 09.22
Skýringar á veðurtáknum
J^VINDATT 10°^_HITI
■^Nvíndsttrkur * V™0ST
5 nwtrum á MkflndU f
HEJOSKÍRT
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ .o ALSKÝJAÐ
w RIGNING SKÚRIR i © StYDDA © SNJÓKOMA
ÉUAGANGUR © RRUIVIU- VEÐUR W 5KAF- RENNINGUR ÞOKA
Víða ófærð
Slæmt veður er á V-landi, Vestfjörðum
og N-landi vestra. Ófært er í Staöar-
sveit á Snæfellsnesi og um
Bröttubrekku. Þá er ófært frá Brú í
Hrútafirði til Hólmavíkur og ísafjaröar og
sömuleiðis um Klettsháls, Dynjandis-
heiði og Hrafnseyrarheiði. Á norðan- og
austanverðu landinu eru vegir færir.
t=I SNJÓR
■ÞUNGFÆRT
■UÓFÆRT
Kólnandi veður
Breytileg átt, 3-8 m/s og dálítil él en vestan 8-13 á annesjum
norðanlands. Kólnandi veður og frost 1 til 10 stig, kaldast inn til
landsins.
Vindur: ( - ’
13-18 m/T X /
Hiti 0“ tii
Vestan 13-18 m/s og
snjókoma eöa él, en
úrkomulítlö austanlands.
Frost yfirleltt 0 tll 5 stlg,
en frostlaust á
Austfjöröum.
Suölæg átt, 8-13 m/s og
víöa él, en úrkomulítlö á
Noröurlandl. Frost víöa O
til 5 stig en sums staöar
frostlaust vlö ströndlna.
Vindur:
8-13 m/»l ^
Hiti 0“ til dgÞ
Suölæg átt, 8-13 m/s og
víöa él, en úrkomulítiö á
Noröurlandi. Frost víöa 0
til 5 stig en sums staöar
frostlaust viö ströndina.
AKUREYRI rigning 3
BERGSSTAÐIR rigning 1
B0LUNGARVÍK snjókoma -6
EGILSSTAÐIR hálfskýjaö 1
KIRKJUBÆJARKL. skafrenningur -1
KEFLAVÍK skafrenningur -1
RAUFARHÖFN rigning 3
REYKJAVÍK snjókoma -1
STÓRHÖFÐI snjókoma 0
BERGEN léttskýjaö 4
HELSINKI alskýjað 2
KAUPMANNAHÖFN skýjað 2
ÓSLÓ alskýjaö -1
STOKKHÓLMUR 2
ÞÓRSHÖFN skúr 4
ÞRÁNDHEIMUR heiöskírt 2
ALGARVE skýjað 12
AMSTERDAM léttskýjað 2
BARCEL0NA þokumóða 7
BERLÍN þokumóða 3
CHICAGO þokumóða 9
DUBLIN rigning 8
HALIFAX alskýjaö 7
FRANKFURT rigning 6
HAMB0RG þoka -2
JAN MAYEN þokumóöa 2
L0ND0N skýjaö 2
LÚXEMB0RG skýjaö 4
MALL0RCA skýjaö 11
M0NTREAL alskýjaö 7
NARSSARSSUAQ skýjaö -13
NEW Y0RK hálfskýjaö 10
0RLAND0 léttskýjaö 18
PARÍS heiöskírt 1
VÍN frostrigning -1
WASHINGTON hálfskýjaö 5
WINNIPEG þoka -8