Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 J>V Fréttir Nýjar upplýsingar í einu frægasta sakamáli seinustu aldar: Leitað að Leirfinni - Keflavíkurlögreglumenn neita að bera vitni í Leirfinnsmáli Lára V. Júlíusdóttir er sérstakur saksóknari í þeim anga Geirfinns- málsins sem snýr að ástæðum þess að Magnús Leópoldsson var aðfara- nótt 26. janúar 1976 handtekinn. Þessa vetrarnótt var hann fluttur í Síðumúlafangelsið þar sem hans beið 105 daga fangavist. Magnús var á þessum tíma framkvæmdastjóri veitingahússins Klúbbsins en ásamt honum voru Sigurbjöm Ei- ríksson, eigandi Klúbbsins, og Valdimar Olsen, starfsmaður á skrifstofu veitingastaðarins Þórs- kaffis, og Einar Bollason kennari, handteknir. Þetta var gert meðal annars eftir ábendingum Sævars Ciesielskis og Erlu Bolladóttur sem sátu í varðhaldi, grunuð um að hafa átt aðild að hvarfi Geirfinns Einars- sonar sem ekkert hafði spurst til síðan að kvöldi 19. nóvember 1974. Sí&ustu stundir Geirfinns Það síðasta sem spurðist til Geir- finns Einarssonar var laust eftir klukkan 22.30, 19. nóvember, þegar hann ók frá heimili sínu til fundar við ókunnan mann eða menn við Hafnarbúðina. Skömmu áður hafði Þórður Ingimarsson, kunningi Geirfinns, ekið honum áleiðis að Hafnarbúðinni. Þórður kom heim til Geirfinns í því skyni að fara með honum í kvikmyndahús. Geirfinn- ur sagði honum þá að ekkert yrði af því að hann færi í kvikmyndahúsið því hann hefði verið boðaður til dularfulls fundar Hafnarbúðina. Fyrsti Geirfinnur Einarsson í bíl utan við Við yfirheyrslu sagði Þórður að hann hefði boðist til að aka Geirfinni áleiðis til fund- arins. Á leiðinni lýsti Geirfinnur því að þess hefði verið óskað að hann kæmi einn og fótgangandi til fundarins. „Það hefði líklega verið rétt að vera vopnaður i svona leið- angri,“ hafði Þórður eftir Geirfmni. Geirfinnur bað Þórð að stöðva bíl- inn í hvarfi við Hafnarbúðina og hleypa sér út. Þetta gerði Þórður og kvaddi Geirfinn. Þetta var í síðasta sinn sem þeir sáust. Seinna lýsti Guðný Sigurðar- dóttir, eiginkona Geirfinns, því þegar hún kom heim örlagadag- inn 19. nóvem- ber, um klukkan 18. Hjónin snæddu kvöld- verð og þar sem hún var að vaska upp eftir matinn var Geirfmnur að þvo sér frammi á salerni. Þetta var rúmum tveimur klukkustundum fyrir hvarf hans. Skyndilega kom Geirfinnur fram og spurði: „Hvað er að?“ „Það er ekk- ert að,“ kveðst Guðný hafa svarað. „Mér heyrðist þú öskra eins og ver- ið væri að drepa þig,“ hefur hún eft- ir Geirfinni. Guðný segir i skýrslu sinni að hvorki útvarp né sjónvarp hafl verið í gangi og sjálf hafi hún ekkert heyrt. Hjónin fóru út í garð til að aðgæta hvort skýringu væri að finna þar en heyrðu ekkert og meira var ekki um málið talað. Síð- ustu orð Geirfinns sem heimildir eru til um voru í síma áður en hann fór í seinna skiptið til fundar utan við Hafnarbúðina. Þá segist Guðný hafa heyrt innan úr svefnherbergi að Geiríinnur svaraði í simann. „Ég er búinn að koma,“ hefur hún eftir manni sínum og síðan: „Jæja þá, ég kem“. Síðan hélt hann af stað út i myrkrið og aldrei hefur neitt til hans spurst síðan. Leirfinnur fæ&ist Strax daginn eftir hvarf Geir- finns hófst umdeild en viðamikil leit. Þremur dögum eftir hvarf hans hófst rannsókn sem beindist að dularfullum manni sem hafði sést í Hafnarbúðinni í Keflavík kvöldið sem Geirfinnur hvarf. Um þetta leyti var gerð fræg leirstytta af hinum grunaða en seinna hélt teiknarinn því fram að fyrirmynd styttunnar hefði verið mynd af Magnúsi Leópoldssyni. Einu vitn- in sem sáu dularfulla manninn í eigin persónu voru tvær konur sem voru í Hafnarbúðinni kvöldið sem Geirfinnur hvarf. Guðlaug Jóns- dóttir, starfsstúlka í Hafnarbúðinni, lýsti því í lögregluskýrslu að Geirfinnur hefði komiö þangað inn og keypt einn pakka af vindling- um. Geirfinnur hélt síðan á brott en 10 til 15 mínútum sið- ar kom maður inn. Koma hans varð upphafið að Leirfinni sem allar götur síðan hefur tröllriðið rannsókn Geirfinnsmálsins. Um- ræddur maður virtist, að sögn afgreiðslustúlkunnar, vera eitthvað órólegur. Hún lýsti þvi lögregluskýrslu að hann hefði horft ofan í af- greiðsluborðið en síðan tilkynnt að hann ætlaði ekkert að fá. „Er hægt að gera eitthvað fyrir þig?“ segist hún hafa spurt en hann svar- aði því til að hann ætlaði ekkert að fá. Skömmu seinna óskaði hann eft- ir því að fá að hringja. Afgreiðslu- stúlkan segir hann hafa verið fljót- an í símanum en hún veitti því ekki eftirtekt hvort maðurinn hefði i raun hringt. Hann lagði smápening á borðið og fór án þess að þakka fyrir sig. Önnur stúlka, Ásta Grétarsdóttir, sem einnig var í Hafnarbúðinni þetta kvöld, veitti manninum eftirtekt. Báðar tóku stúlkurnar eftir leðurjakka mannsins sem var brúnn og með lausu belti. Annað einkenni var að einn rannsóknarlögreglumann- anna í Keflavík við DV í gær. Rannsóknin leiddi til handtöku Sævars Ciesielskis, Erlu Bolladóttur og fleiri ungmenna. Við yfirheyrslur nefndu þau Magnús Leópoldsson, Sigurbjörn Eiriksson, Valdimar Olsen og Einar Bollason. Þeir voru fangelsaðir í janúar 1976, 14 mán- uðum eftir hvarf Geirfinns. Rúm- um 100 dögum síðar var þeim sleppt og mörgum árum síðar voru mönnunum fjórum dæmdar bætur vegna varðhaldsins. Jón Grímsson Einar Bollason Magnús Leópoldsson Sigurbjörn Eiríksson maðurinn var rjóður í kinnum og myndarlegur. Þá var hann örugg- ur i framgöngu, að mati Ástu, og óhikandi. Ásta tók sérstaklega fram að leirmyndin væri ekkert sérlega lík manninum með tilliti til munnsvips og þess að hár leir- styttunnar væri of snyrtilegt. Eigi að síður hélt rannsókn lögreglunn- ar áfram þar sem styttan af Leir- finni var þungamiðjan. Þegar spunnust sögusagnir um að Leir- finnur væri Magnús Leópoldsson. Keflavíkurlögreglan fór með rann- Reynir Traustason ritstjórnarfulltrúi Innlent fréttaljós sókn málsins framan af en i júní 1975, rúmu hálfu ári eftir hvarf Geirfinns, tók Lögreglan í Retkjavík við málinu. Þeir sem báru hitann og þungann af rann- sókninni í Keflavík eru enn þann dag í dag mjög ósáttir við frammi- stöðu RLR. „Þeir klúöruöu rann- sókn Geirfinnsmálsins," sagði Rannsókn gagnrýnd Framganga lögreglu í Geir- finnsmálinu hefur verið gagn- rýnd mjög. Meðal annars er á það bent að kona Geirfinns hafi átt í föstu ástarsambandi við mann frá því í júní 1974 og þar til maöur hennar hvarf. Þá hafi hún einnig átt í ástarsambandi við þriðja manninn rúmum mánuði fyrir hvarf Geirfinns. Þessi ástarfer- hyrningur er reifaður í undirrit- aðri skýrslu Guðnýjar. Gagnrýn- in sem beinist að Keflavíkurlög- reglu er sú að þarna hafi mál ekki verið rannsökuð til hlítar. Þarna hefði verið „mótív“ sem eðlilegt hefði verið að grand- skoða. Liðnir voru niu dagar frá hvarfi Geirfinns þegar tekin var skýrsla af konu hans. Þar lýsir hún ástarsambandi sínu við um- rædda menn en taldi þó að hjóna- bandið hefði verið gott. Þeir sem gagnrýna rannsóknina telja að Keflavíkurlögreglan hefði átt að horfa í aðrar áttir við rannsókn- ina. Meðal þess sem kom fram við yfirheyrslur var að Jón Grimsson bilstjóri, sem starfaði við Sigöldu- virkjun, hefði átt leið til Keflavík- ur umrætt kvöld. Þangað kom hann í leigubíl og í óundirritaðri skýrslu segir að Jón hafi farið inn á Aðalstöðina í Keflavík og fengið að hringja þar. Hann var íklæddur brúnum leðurjakka með lausu belti og lýsing stúlkn- anna í Hafnarbúðinni passar Á. um margt við hann. Sjálfur hefur Jón, sem býr í Seattle í Bandaríkjunum, sagt við DV að hann kannist ekki við að hafa komið á Að- alstöðina. Á umrædduin tíma hafi hann verið bláókunnugur í Kefla- vik og ekkert vitað hvar hann var. Eftir að RLR tók við mál- inu var Jón aftur yf- irheyrður en að þessu sinni var það Njörður Snæhólm sem yfirheyrði hann í heimahúsi við Sogaveg. DV hefur ekki séð skýrslu um þá yfirheyrslu en þar kom fram að Njörður var ekki ánægður með litinn á leöurjakka Jóns. Seinna, þegar Jón Grímsson fékk lýs- -f ingu á Hafnarbúðinni, segir hann að augu sín hafi opnast fyrir því að líklega væri hann títtnefndurt Leirfinnur. Hann kannast ekki við að hafa skrifað undir skýrslu í þessum dúr og tel- ur að þar sé um alvarlegar rang- færslur að ræða. Jón Grimsson hefur nú verið kallaður til skýrslugerðar hjá saksóknara. Neita a& bera vitni Mikið vatn er runnið til sjávar síðan Geirfinnur Einarsson hvarf og Leirfinnur skaut upp kollinum í Hafnarbúðinni. Magnús Leó- poldsson hefur stöðugt krafist þess að rannsóknaraðferðir lög- reglu verði kannaðar með það fyrir augum að varpa Ijósi á það hvers vegna hann, saklaus mað- urinn, var sviptur frelsi sínu í rúma þrjá mánuði. Hæs'tiréttur hefur hafnaö því að taka málið upp að nýju en á þessu ári var lögum breytt þannig að dóms- málaráðherra gat heimilað endurupptöku málsins. Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð- herra ákvað að taka málið upp afmarkaða grunni að yrði hvers vegna Valdimar Olsen á þeim rannsakað Magnús var hnepptur i varðhald. Sá angi málsins nær ekki til Geir- finnsmálsins í heild heldur ein- ungis Leirfinnshluta málsins og þess sem snýr að Magnúsi. Lára V. Júlíusdóttir var skipuð sak- sóknari málsins en Jón Steinar Gunnlaugsson var skipaður lög- maður Magnúsar. Vitnaleiðslur hafa staöið undanfarið og hafa lögreglumenn frá Keflavík verið kallaðir fyrir, auk annarra vitna sem komu við sögu málsins fyrir rúmum aldarfjórðungi. Nú hefur það gerst að Haukur Guðmundsson, sem rannsakaði Geirfinnsmálið í upphafi, neitar að bera vitni við yfirheyrslurnar. Hann telur aö rannsókninni sé beint gegn sér og að í raun séu hann og aðrir frá Keflavíkur- lögreglu sakborningar í máli þar sem þeir beri enga sök. Klúðrið sem orðið hafi til þess að Magnús Leópoldsson var sviptur frelsi sínu í 105 daga megi alfarið skrifa á Reykjavíkurlögregluna og þá- verandi saksóknara. Það hvílir nú á Láru V. Júlíusdóttur að varpa ljósi á eitt dularfyllsta sakamál síðustu aldar. Umsjón: Birgir Guðmundsson netfang: birgir@dv.is Nýr dómari í heita pottinum eru menn afar veikir fyrir spurningakeppnum og þá ekki síst Gettu betur, spurninga- keppni fram- haldsskólanna I sem Logi Bergmann I Eiðsson hefur stjórnað af festu undanfarin ár. I Þar hafa margir I frægir menn kom- ið við sögu sem ' dómarar og í hugum pottverja er dómarastarflð í þessari keppni eitt mikilvægasta starfið í islenskri fjölmiðlun. Nú hefur frést að nýr dómari sé að taka við en það er Eggert Þór Bernharðsson sagn- fræðingur sem skrifaði m.a. bókina frægu um braggahverfin... Vinsamlegir Kristni Athygli vekur að á Hriflu, vef reykvískra fram- sóknarmanna, er grein í gær þar sem mikið er fjargviðrast yfir því að RÚV hafi haldið því fram í fréttum að fyrn- ingarleiðin og Kristinn H. Gunnarsson hefðu orðið undir á miðstjórnarfundi ílokksins um helgina. Greininga skrifar Gestur Kr. Gestsson, einn af ritstjórum síðunnar, og er honum mikið í mun að benda á að fyrningarleið- inni hafi ekki verið hafnað, enda hafi hún ekki verið borin undir at- kvæði sem slík. Eins að sjónarmið Kristins H. hafi ekki orðið alfarið undir, t.d. hafi farið inn í ályktun ákvæði um að setja bæri í stjórnar- skrá að fiskimiðin væru sameigin- leg eign þjóðarinnar. Benda pott- verjar á að Kristinn er að fá miklu betri stuðning við sjónarmið sín í Reykjavík en í sínu eigin kjör- dæmi, Norðvesturkjördæminu. Þetta telja margir benda til að hann muni flytja sig um set fyrir næstu kosningar... Ásgeir efstur? Eins og fram kom í heita pott- inum í gær er kosningaskjálfti kominn fram á Akureyri milli þeirra flokka sem standa að Akur eyrarlistanum en I það eru fyrst og ■ fremst Samfylkingin og Vinstri grænir. Hvorugur flokkurinn hefur þó enn gengið frá sínum framboðs- málum en hjá VG heyrist nafn Kristínar Sigfúsdóttur enn oftast nefnt og einnig hefur Bjöm Vig- fússon menntaskólakennari verið nokkuð nefndur. Samfylkingin er hins vegar með sin mál í skoðun og í pottinum er fullyrt að Ásgeir Magnússon, sem nú er formaður bæjarráðs og var áður efsti maður á Akureyrarlista, sé talinn líkleg- astur til að leiða listann... Snöggreiddust Ágústi Ágúst Einarsson prófessor skor- aði ekki mörg stig hjá félögum sín- um í Reykjavikurlistanum með því aö skrifa gagn- rýna grein um Línu.Net á heima- síðu sína í gær. Ágúst líkir þessu óskabarni R-list- ans við bæjarút- gerðina sálugu og víst er að þessi orð fyrrum for- manns framkvæmdastjómar Sam- fylkingarinnar hljóma sem tónlist í eyrum göngumóðra.sjálfstæðis- manna í Reykjavík. R-listamenn munu sumir hverjir hafa snöggreiðst Ágústi. Aörir i þessum herbúðum héldu þó ró sinni og töldu að gagnrýnin umræða innan- búðarmanna myndi einungis styrkja R-lista samstarfið...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.