Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001
Viðskipti______________________________________________________________________________________________________________1>V
Umsjón: Viðskiptablaðið
Tap hjá Lyfjaverslun
þrátt fyrir tekjuaukningu
Rekstrarniðurstaða Lyfjaversl-
unar íslands hf. á fyrstu níu mán-
uðum ársins 2001 var neikvæð um
21 milljón króna, en hagnaður fyr-
ir afskriftir og fjármagnsgjöld
nam 186 miUjónum króna á tíma-
bilinu. Rekstrartapið stafar fyrst
og fremst af áhrifum gengislækk-
unar íslensku krónunnar. Félagið
varð fyrir beinu gengis-
tapi á erlendum
skuldbinding-
um að upphæð
219 milljónir
króna en
einnig veldur
fyrirkomulag
verðstýringar
á lyfjaverði
tímabundinni
lækkun framlegðar.
Tekjur tímabilsins
eru nánast þrefalt hærri en
á sama tíma árið áður, eða 4,6
milljarðar króna. Auk innri vaxt-
ar skýrist tekjuaukningin að
mestu af því að í samstæðuupp-
gjöri Lyfjaverslunar íslands hf.
eru nú í fyrsta sinn dótturfélögin
A. Karlsson hf., Thorarensen Lyf
hf„ Lyfjadreifing ehf. og J.S.
Helgason ehf. og ná samanburðar-
tölur frá fyrra ári ekki yfir þessi
félög.
Fram kemur í frétt frá Lyfja-
verslun íslands að þær deilur sem
stóðu um félagið á fyrri hluta árs-
ins höfðu í för með sér kostnað
umfram áætlanir og töfðu vinnu
við hagræðingu
' 1 i
■A SiW :íi f v
w t
■ 4; •.
4. .
'''
vegna
kaupa félagsins á A. Karlsson hf.
og Thorarensen Lyf ehf. Sú vinna
er nú í fullum gangi. Launakostn-
aður samstæðunnar nam 470
milljónum króna á tímabilinu og
er það samkvæmt áætlun. Af-
skriftir námu 103 milljónum
króna og aukast um 80 milljónir
króna frá fyrra ári. Vegna kaupa
Lyfjaverslunar íslands hf. á
Thorarensen Lyf hf. og A. Karls-
son hf. hafa afskrifanlegar eignir
félagsins aukist mikið, jafnframt
því sem hafin er afskrift yfirverðs
vegna kaupanna.
Hrein fjármagnsgjöld
námu 179
milljónum
króna á tímabilinu. Sem
lið i fjármögnun kaupanna á
Thorarensen Lyf hf. og A. Karls-
son hf. hugði félagið á hlutafjárút-
boð fyrir áramót. í lok október-
mánaðar var hlutur félagsins í
Delta hf. seldur sem gerir það að
verkum að ekki er þörf á sölu
hlutafjár í þeim tilgangi. Vaxta-
gjöld félagsins munu lækka um-
talsvert vegna sölunnar.
Eigið fé samstæðunnar í lok
tímabilsins nam samtals 605 millj-
ónum króna samanborið við 549
milljónir króna í ársbyrjun. Eign-
ir samstæðunnar jukust úr 1.891
milljón króna í 4.973 milljónir
króna á fyrstu níu mánuðum árs-
ins, fyrst og fremst vegna kaupa á
A. Karlsson hf. og Thorarensen
Lyf hf. Á sama tíma
jukust skuldir sam-
stæðunnar úr 1.348
milljónum króna í 4.383
milljónir króna.
í frétt Lyfjaverslunar
er tekið fram að þriðji
ársfjórðungur er jafnan
sá lakasti hjá söluaðil-
um lyija og heilbrigðis-
vara. Því má reikna með að af-
koma fjórða ársfjórðungs verði
betri. Hagnaður vegna sölu á hlut
félagsins í Delta hf. í október er
áætlaður allt að 590 milljónir
króna eftir að tekið hefur verið til-
lit til 18% tekjuskattshlutfalls. Sal-
an hefur það í for með sér að bæði
eiginfjárstaða og veltufjárhlutfall
félagsins styrkist verulega.
HEILDARVIÐSKIPTI 3.Ó24m.kr.
- Hlutabréf 383 m.kr.
- Húsbréf 1.386 m.kr.
MESTU VIÐSKIPTI:
Vinnslustöðin 121 m.kr.
I Q Delta 73 m.kr.
| 0 Bakkavör 52 m.kr.
MESTA HÆKKUN:
O Flugleiöir 15,4%
; Q Hlutabréfamarkaðurinn 4,9%
i O Bakkavör 4,8%
MESTA LÆKKUN:
O íslenski hugbúnaðarsj. 4,9%
O Hlutabréfasj. Búnaðarb.s 3,8%
O Kaupþing 3,5%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.071 stig
| - Breyting_________Q +0,28% i
Vaxtalækkun
yfirvofandi
í Kína
Líklegt þykir seðlabanki Kína
lækki stýrivexti bankans í fyrsta
skiptið í tvö ár til að ýta undir frek-
ari neyslu og koma í veg fyrir að
hagvöxturinn í landinu hægi á sér.
Vaxtalækkunin mun verða 0,5%
og verður vaxtastigið 5,35% ef af
verðhjöðnun verður, segir Xu
Hongyuan, hagfræðingur hjá Upp-
lýsingamiðstöð ríkisins. Peninga-
málastefna seðlabankans er sett af
ríkisstjórninni.
Lyf
/ frétt Lyfjaverslunar
er tekiö fram aö
þriöji ársfjóröungur er
jafnan sá lakasti hjá
söiuaöiium lyfja og
heilbrigöisvara.
Flugleiðir úr Úr-
valsvísitölunni?
Horfur á að Flugleiöir falli út af lista Kaupþings
Greiningardeild Kaupþings hefur tekiö saman lista yfir veitumestu félög á
Veröbréfaþingi í þeim tilgangi aö reyna aö sjá fyrir hvaöa félög munu veröa í
Úrvalsvísitölunni fyrstu sex mánuöi næsta árs.
Stjórn Lífeyrissjóðsins Hlífar sendir út yfirlýsingu:
Ekkert bendir til fjár-
hagslegs tjóns sjóðsins
Frestur til að
skila inn tilboð-
um í Landssím-
ann framlengdur
Framkvæmdanefnd um einka-
væðingu hefur ákveðið að verða við
ósk um að skilafrestur í síðasta
áfanga sölu Landssíma íslands verði
framlengdur og veittur frestur til 7.
desember nk.
í kjölfar þess að sjö óbindandi til-
boð bárust í lok síðasta mánaðar
ákvað framkvæmdanefnd um einka-
væðingu, að fengnum tillögum
PricewaterhouseCoopers, að bjóða
þremur þeirra að halda áfram og
skila inn bindandi lokatilboði í lok
þessa mánaðar. í frétt frá fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu
segir að bjóðendurnir hafi undan-
farið lagt í mikla vinnu við að
kynna sér nánar rekstur Landssíma
Islands og undirbúa tilboð sín. Ósk
hefur nú komið fram frá þátttakend-
um í þessum síðasta áfanga sölufer-
ilsins um að skilafrestur bindandi
lokatilboða verði framlengdur og
eins og áður segir hefur verið orðið
við þeirri ósk.
Uppboð á lík-
amsræktar-
tækjum
37 líkamsræktartæki (spinnhjól, hlaupa-
bretti o.fl.) verða boðin upp að Bílds-
höfða 12, Reykjavík, miðvikudaginn 5.
desember nk., kl. 14.00.
GREIÐSLA VIÐ HAMARSHÖGG.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Uppboð á upp-
lýsingaskiltum
Tvö upplýsingaskilti sem standa við Vest-
urlandsveg verða boðin upp 6. desember
nk. og hefst uppboðið kl. 10.00. Eitt skilti
er staðsett við Ullames, gegnt Áslandi í
Mosfellsbæ, og annað er við innkeyrslu
að skógrækt undir Hamrahlíð í Mosfells-
bæ. Uppboðið mun byrja við Ullames í
Mosfellsbæ á framangreindum tíma.
GREIÐSLA VIÐ HAMARSHÖGG
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Greiningardeild Kaupþings hefur
tekið saman lista yfir veltumestu fé-
lög á Verðbréfaþingi í þeim tilgangi
að reyna að sjá fyrir hvaða félög
munu verða í Úrvalsvísitölunni
fyrstu sex mánuði næsta árs. Sem
stendur eru horfur á að Flugleiðir
og Húsasmiðjan muni detta út úr
Úrvalsvísitölunni og að í þeirra stað
komi Sjóvá-Almennar og Delta.
Samsetning Úrvalsvísitölunnar
er endurskoðuð tvisvar ár hvert,
þ.e.a.s. að endurskoðað er hvaða fé-
lög skipa vísitöluna. Ný visitala er
birt 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Til
að ákveða hvaða fimmtán félög
standa að baki Úrvalsvísitölunni fá
þau fimmtán félög sem eru með
mestu veltu á Verðbréfaþingi á
hverjum viðskiptadegi eitt stig.
Samanlagður fjöldi stiga yfir 12
mánaða tímabil ákvarðar svo hvaða
félög verða í vísitölunni. Visitalan
verður endurskoðuð 1. janúar næst-
komandi og til hliðsjónar þeirri
ákvörðun verður velta á tímabilinu
1. desember 2000 til 30. nóvember í
ár athuguð og félögum gefin stig í
samræmi við áðurnefnda aðferð.
Stjórn Lífeyrissjóðsins Hlífar
sendi í gær frá sér yfirlýsingu
vegna mikillar umfjöllunar fjöl-
miðla um meint fjármálalegt mis-
ferli eins sjóðstjóra Kaupþings,
sem tengist fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Lífeyrissjóðsins
Hlífar. í yfirlýsingunni kemur
fram að framkvæmdastjóranum
hafi verið vikið úr starfi um leið
og málið hafi komið upp og séu
málefni hans nú í höndum efna-
hagsbrotadeildar Ríkislögreglu-
stjóra. Hafi stjórn lífeyrissjóðsins
farið yfir reikninga og bókhald
sjóðsins frá því að málið kom upp
en að á þessu stigi bendi ekkert til
þess að sjóðurinn hafi orðið fyrir
fjárhagslegu tjóni.
Fram kemur að stjórnin hafl
ráðið endurskoðendur frá
PriceWaterhouseCoopers til að
fara yfir starfsemi lífeyrissjóðsins
tvö ár aftur í tímann. PriceWater-
houseCoopers hafi ekki áður kom-
ið að málefnum Lifeyrissjóðsins
Hlífar, en muni að lokinni rann-
sókn skila ítarlegri skýrslu til
stjórnarinnar.
„Stjórn lífeyrissjóðsins vill und-
irstrika að ekkert er hægt að full-
yrða um niðurstöður rannsóknar-
innar fyrr en að lokinni endur-
skoðun og lögreglurannsókn. Þeg-
ar niðurstöður liggja fyrir mun
stjómin gera opinberlega grein
fyrir þeim,“ segir síðan í niður-
lagi yfirlýsingarinnar.
Færeysk
símafélög
sameinast
Færeyska
fjarskiptafé-
lagið P/F
TeleF, sem er
i jafnri eigu
Islandssíma
hf. og P/F TeleTænasten, hefur ver-
ið sameinað færeyska fjarskiptafé-
laginu P/F Kall. Sameinað félag
heitir P/F Kall. Skrifað var undir
samkomulag þessa efnis í Feyreyj-
um 24. nóvember sl. Óskar Magnús-
son, sem tekur við starfi forstjóra
Íslandssíma um næstu áramót, situr
í stjóm P/F Kall.
í frétt frá Íslandssíma hf. kemur
fram að jafnhliða samrunanum
munu hluthafar í hinu sameinaða
fyrirtæki taka þátt í hlutafjáraukn-
ingu. Markmið hennar er meðal
annars að styrkja félagið sem
hyggst hefja GSM-þjónustu í Fær-
eyjum. íslandssimi hf. hefur lagt
fram 1,6 milljónir danskra króna í
aukningunni. Eftir aukningu á ís-
landssími 16,5% í P/F Kall.
P/F TeleF og P/F Kall áttu hvort
í sínu lagi í samkeppni við færeyska
landssímann, Föroya Tele. Er það
mat stjómenda að eftir sameiningu
sé félagið betur í stakk búið að
standa í samkeppni við Föroya Tele.
_ 27.11.2001 kl. 9.15
KAUP SALA
110,120 110,680
154,910 155,700
68,990 69,410
13,0120 13,0830
12,1700 12,2370 i
10,3700 10,4270 i
16,2758 16,3736
14,7527 14,8414 !
CÍBelg. franki 2,3989 2,4133
CTl Sviss. franki 66,0500 66,4100
QhoIL gylliní 43,9130 44,1769
[jÞýskt mark 49,4785 49,7758
T]ít líra 0,04998 0,05028
OSAust. sch. 7,0327 7,0749
ÍPort. escudo 0,4827 0,4856
Tjspá. peseti 0,5816 0,5851
| • jjap. yen 0,88520 0,89050
|_Jírskt pund 122,874 123,612
SDR 138,5600 139,3900
gECU 96,7716 97,3531 ;
>*HKan. dollar
feglDönskkr.
ff~ÍNorsk kr
uS Sænsk kr.
h4Hn. mark
E ^ Fra. ffanki