Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Side 11
11 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 DV_______________________________________________________________________________ Útlönd Bandaríkjamenn fjölga í herliði sínu í Afganistan: Undirbúningur fyrir uppgjörið í Kandahar í fullum gangi Undirbúningur fyrir lokasprettinn í Afganistan Bandarískir landgönguliöar við æfingar á flugmóöurskipinu Pelelia, sem statt er á Persaflóa, áöur en þeir halda til hernaðaraögeröa í Afganistan. Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði á blaða- mannafundi í Pentagon í gær, í kjöh'ar hertöku borgarinnar Kunduz, síðasta vígis talibana í Norður-Afganistan, að hlutverk bandarísku sérsveitanna í Afganistan yrði nú, auk þess að elta uppi Osama bin Laden, að koma í veg fyrir að hermenn talibana og foringj- ar al-Qaeda hryðjuverkasamtaka bin Ladens geti komist undan, mæla út skotmörk fyrir loftárásir flughersins og taka þátt í leifturárásum þar sem þess verður þörf. „Landgönguliðarnir voru upphaf- lega sendir inn til þess að hjálpa til við að veikja stöðu talibana og koma í veg fyrir að þeir ásamt stríðsmönnum al-Qaeda geti valsað um landið að vild. Við munum á næstu sólarhring- um senda inn aukið lið sem skiptir hundruðum, en ekki þúsundum," sagði Rumsfeld. Að sögn talsmanna hersins verða um eitt þúsund landgönguliðar sjó- hersins sendir til Afganistans í dag og á morgun, þar sem þeir hitta fyrir um 600 félaga sína sem tekið hafa þátt í aðgerðunum að undanförnu. Mun það í fyrsta skipti sem svo margir banda- rískir hermenn taka þátt i stríðsátök- um síðan í Persaflóastríðinu árið 1991, en síðan hafa bandariskar hersveitir verið sendar til Sómalíu árið 1993 og til friðargæslu í Balkanlöndunum. Aðalbækistöðvar bandarísku her- sveitanna verða á Dolangi-flugvelli, um 90 kílómetra suðvestur af Kandahar, síöasta vígi talibana í Afganistan. Bandarísku hersveitirnar hertóku flugvöllinn án mikilla erfið- leika í gærmorgun, en hann var end- urbyggður og aðallega notaður af hryðjuverkaforingjanum Osama bin Laden. Að sögn talsmanna hersins mun einkaþyrla trúarleiðtogans Mull- ah Muhammed Omars hafa staðið á vellinum fyrir nokkrum dögum. Bandarísku hersveitirnar lentu í sínum fyrsta beina bardaga í Afgan- istan í gær þegar herþyrlur þeirra gerðu árás á bíla- og skriðdrekalest talibana sem virtist stefna á bæki- stöðvar þeirra á Dolangi-flugvelli sem þeir höfðu þá nýlega hertekið. Var árás talibana þar með stöðvuð og öku- tækin að mestu eyðilögð. Að sögn Rumsfelds er sveitunum ekki ætlað að taka þátt í beinum hern- aðaraðgerðum á Kandahar, heldur munu þær koma í veg fyrir herflutn- inga talibana á flutningaleiðunum til og frá Kandahar. Það er því ljóst að innrás í Kandahar, síðasta vígi talibana er í undirbúningi, en þar mun Omar, leiðtogi talibana, búa menn sína undir að berjast til síðasta blóðdropa og er haft eftir honum sjálfum að uppgjöf sé ekki til umræðu. Samkvæmt fréttum frá Mazar-e- Sharif hafði hersveitum Norður- bandalagsins, með hjálp bandarískrar sérsveitar, ekki enn tekist að bæla niður fangauppreisnina í Janghi- virki, en um fimmtíu fangar, aðallega fylgismenn al-Qaeda hreyfmgarinnar, neita að gefast upp og verjast enn í einu horni virkisins, þrátt fyrir sprengjuárásir Bandaríkjamanna úr lofti. í loftárásunum í gær vildi svo slysalega til að bandarísk sprengju- flugvél varpaði sprengjum á eigin menn þar sem þeir sátu um virkið og særðust fimm sérsveitarmenn, þar af tveir mjög alvarlega. Að sögn tals- manna hersins eru þeir ekki í lífs- hættu og hafa þegar verið fluttir til bækistöðva bandaríska hersins í Úz- bekistan, þaðan sem flytja átti þá til lækninga í Þýskalandi. Að sögn talsmanna Norðurbanda- lagsins gekk hertaka Kunduz nokkuð átakalaust fyrir sig, en þó munu tali- banar enn halda einum tveimur þorp- um í nágrenni borgarinnar. Þúsundir þeirra hafa þó gefist upp og lofar Da- oud, helsti foringi Norðurbandalags- ins á svæðinu, að þeir fái meðferð samkvæmt alþjóðlegum lögum. REUTER-MYND Anders Fogh Rasmussen Kosningaloforðin eru komin í stjórnarsáttmálann í Danmörku. Ný stjórn Foghs á fund drottning- arinnar á morgun Ný ríkisstjóm Danmerkur, undir forystu Anders Foghs Rasmussens, leiðtoga Venstre, gengur á fund Margrétar Þórhildar drottningar á morgun. I vasanum verður Anders Fogh með stefnuskrá stjórnar sinn- ar þar sem er að finna helstu kosn- ingaloforðin. Ríkisstjórn Venstre og íhalds- flokksins ætlar meðal annars að veita þegnunum aukið frelsi, meiri þjónustu og jafnframt að lækka á þá álögurnar þegar til lengri tíma er litið. „Stjórnarsáttmálinn er orð fyrir orð það sem við lofuðum," segir væntanlegur forsætisráðherra við blaðið Jyllands-Posten. Mogens Lykketoft, fráfarandi ut- anríkisráðherra í stjóm Pouls Ny- rups Rasmussens, segir að niður- skurður á aðstoð við erlend ríki muni leiða til þess að áhrif Dan- merkur í heiminum minnki. Jonathan Motzfeldt Grænlenskir þingmenn í vanda vegna launahækkana. Grænlenskir þing- menn verða af launahækkunum Allt bendir til að Jonathan Motz- feldt; formaður grænlensku heima- stjómarinnar, og aðrir fulltrúar á grænlenska þinginu verði að gefa eftir 35 til 40 prósenta launahækkun sem þeir skömmtuðu sér fyrir skömmu vegna gífurlegra mótmæla. Inuit Ataqatigiit (IA), samstarfs- flokkur Siumut, flokks Motzfeldts, í heimastjórninni, var frá upphafi andvígur launahækkuninni og krafðist þess aö hún yrði dregin til baka, ellegar að boðað yrði til nýrra þingkosninga. Frestur IA rann út í gær en vegna slæms veður fram- lengdist hann til dagsins í dag. Gusmao hvetur flóttamenn til að koma aftur heim Xanana Gusmao, væntanlegur forseti Austur-Tímors, hefur hvatt tugi þúsunda manna sem flúðu blóð- baðið í landinu fyrir tveimur árum til að snúa aftur heim og taka þátt í uppbyggingunni. Gusmao er í þriggja daga heim- sókn á Vestur-Tímor, sem er undir stjórn Indónesíu. Þangað flúðu tugir þúsunda Austur-Tímora undan morðóðum vígasveitum andstæð- inga sjálfstæðis landsins. Vertu viðbúinn vetrarfærðinni Hjá Suzuki bílum býðst einstaklega fjölbreytt úrval fjórhjóladrifsbíla. Allt frá nettum og einstaklega sparneytnum bæjarbíl eins og Wagon R+ upp í nýjasta og stærsta jeppann, Suzuki Grand Vitara XL-7, sjö sæta glæsijeppa með 2.7 L173 hestafla vél. Allir Suzuki fjórhjóladrifsbílarnir eru byggðir á traustum grunni og áratuga reynslu Suzuki í smíði rúmgóðra og sparneytinna jeppa og fólksbíla. Grand Vitara 2.0L, 5 dyra Grand Vitara XL-7 2.7L, 7 sæta Verð kr. 2.420.000 Verð kr. 3.080.000 Grand Vitara 1.6L, 3 dyra Verðkr. 2.110.000 JimnyJLX 1,3L, Verð kr. 1.665.000 Baleno Wagon GLX 1.6L, Verð kr. 1.955.000 Ignis GL 1.3L, Verð kr. 1.640.000 Wagon R+ 1.2L, Verð kr. 1.375.000 # SUZUKI SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Simi 568 51 00. www.suzukibilar.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.