Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Qupperneq 16
28 Skoðun ÞRIDJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 I>V Hið mennska líf Byggt og byggt.... íslensk húsnæöisstefnan hrein eignastefna og sniöin aö óskum eignastétt- arinnar, segirJón m.a. t bréfinu. Hver er uppáhalds ♦ hátíðisdagurinn þinn? Hjörtur Torfi Halldórsson nemi: Aöfangadagur, þá er góöur matur og fullt af fínum gjöfum. Ágúst Már Kristinsson nemi: Aðfangadagur, þaö er hátíölegasti dagurinn. Birgir Þormóösson tæknifræðingur: Gamlársdagur, þaö er ákveöinn góöur dagur. Bjarni Hilmarsson nemi: Gamlársdagur; stemningin yfir þeim degi er góö. Elva Ósk Gylfadóttir nemi: Aöfangadagur, hann er svo heilagur. Sigrún Klörudóttir nemi: Gamlársdagur, þaö er skemmti- legasti dagurinn. Heimilisréttur- inn hefur aldrei verið mikils met- inn hér á landi en jafnan þurft að lúffa fyrir ýmsum öðrum rétti, ekki síst eignaréttin- um. Margar sögur eru til af hrepp- stjóravaldinu sem gjarnan, með að- stoð presta og sýslumanna, sundraði fátækum heimilum, flutti fólkið hreppaflutn- ingi á sína fæðingarsveit og bauð það síðan upp á hreppsþingi. Ég spyr mig stundum hvort þarna hafi eitt- hvað breyst annað en formsatriðin. Þann 19. nóv. sl. skrifaði Sig- mundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri DV, áhugaverðan leiðara í blað sitt um fjölskyldumál. Þar segir m.a. „Á íslandi hefur um langt árabil verið rekin samfélagsstefna sem níðist á fjölskyldunni, einkum ungu barna- fólki.“ Sigmundur færir síðan ýmis rök fyrir því að ríkinu sé illa við börn og segir að lokum um ríkið: „í fjölskyldumálum er ekki heil brú í framkvæmd þess.“ Undir þetta má vissulega taka, börn eru oft fómarlömb og ekki að- eins á fátækum heimilum. Hitt get ég ekki samþykkt í áður nefndum leiðara að „augu íslenska velferðar- kerfisins hafa beinst að sjúku fólki og einstæðingum ... en heilbrigðar flölskyldur hafa gleymst." Örorkubætur eru nú 18.424 kr. á mánuði og tekjutrygging 32.566 kr. á mánuði. Alls kr. 53.990 á mánuði. Alla viðbót verður fólk að sækja sér- staklega, oft með kostnaði og fyrir- höfn og undir' hælinn lagt hvað fæst. Breytist aöstæður er strax skorið niður. Hrafnketl Daníelsson skrifar: Það henti mig nýlega að ég varð það sem kallað er gjörsamlega kjaft- stopp, er ég fór í námsmat hjá syni mínum sem er að verða 9 ára gam- all. Þar fékk ég þær upplýsingar að hann sé að öllum líkindum lesblind- ur, og geti því aldrei orðið almenni- lega fær um að tjá sig skriflega á réttu máli. Við því var lítið að segja. Margt fólk hefur þrátt fyrir það, spjarað sig ágætlega í lífinu. Lika lokið háskólanámi með góðum ár- angri. - Er ég grennslaðist frekar um þetta hjá sérkennara sem hefur haft drenginn í tímum hjá sér, fékk ég athyglisverða útskýringu. Orðrétt haft eftir kennaranum: „Drengurinn er að öllu leyti rétt- hentur, en beitir sjón og heym „Nú eru skuldir heimil- anna að ndlgast 700 millj- arða kr. með húsnœðið að veði og hér hefur aldrei mátt móta þroskaðan leigu- markað. Félagsleg þjónusta er úrrœðalaus og sjúkt fólk gengur húsnœðislaust og margir fleiri í vondri stöðu. “ Útgjöldin, ekki síður en tekjurn- ar, hafa áhrif á kjör og allar aðstæð- ur. íslensk húsnæðisstefna hefur t.d. þá sérstöðu að vera hrein eigna- stefna og sniðin að óskum eigna- stéttarinnar. Litið er á húsnæði ein- göngu sem eign þarsem heimilis- „Og staðreynd er, að eftir að lestrarkennslu var breytt hér á landi fyrir nokkuð löngu síðan, hrakaði náms- árangri í íslensku heilmik- ið. Það virðist sem bömum sé einungis kennt það sem stafirnir segja, en ekki hvað þeir heita. “ þannig að hann notar vinstra eyra til að hlusta eftir hljóðum. Hann beitir vinstra auga til að miða út hluti. Hann beitir frekar vinstri fæti til að sparka bolta og vinstri hendi til að kasta.“ Séu þetta aðferðirnar til að rétturinn er aukaatriði. (sbr. Lög um fjöleignarhús) Það er eigendum í hag að skapa skort á húsnæði því verðið hækkar og getur endað í okri. Fólk með ofannefndar tekjur og aðrir sem hér eru nefndir hafa engin ráð á slíkum viðskiptum með lánsfé og 60% útborgun. Nú eru skuldir heimilanna að nálgast 700 milljarða kr. með hús- næðið að veði og hér hefur aldrei mátt móta þroskaðan leigumarkað. Félagsleg þjónusta er úrræðalaus og sjúkt fólk gengur húsnæðislaust og margir fleiri í vondri stöðu, einnig vinnandi fólk. Heimilin eru grundvöllur þjóðfé- lagsins. Atvinnulífið er til vegna fólksins en ekki öfugt. Hagsmunir eignastéttarinnar eru ekki al- mannahagsmunir. Fjármagnið er ekki lifandi vera. Hið mennska lif er kjarni alls, án þess væri ekkert. ákvarða, hvort börn séu lesblind eður ei, þá er að mínu mati illa komið fyrir mér. Ég ætti hvorki að vera læs né skrifandi, þar sem öll ofangreind atriði eiga við mig. Læt fylgja með svona i lokin, að ég var orðinn læs á 6. ári og skrifandi um svipað leyti. 1 skóla voru einkunn- irnar í íslensku og stafsetningu frá 6.5 til 10. Það þakka ég þeirri kennslu sem ég fékk þegar ég lærði að lesa. Og staöreynd er, að eftir að lestr- arkennslu var breytt hér á landi fyr- ir nokkuð löngu síðan, hrakaði námsárangri í íslensku heilmikið. Það virðist sem bömum sé einungis kennt það sem stafirnir segja, en ekki hvað þeir heita. - Þessu má e.t.v. líkja við að ég heiti Hrafnkell, en er kallaður Keli. Á Keflavíkurflugvelli Eftir hverju er beöiö? Keflavík - Grænland Ómar Sigurösson skrifar: Nú ætla Grænlendingar að fá inni fyrir flug sitt til og frá Grænlandi á Keflavíkurflugvelli í stað þess að nota áfram flugstöðvar í Narsarsuaq og Kangerlussuaq. Hér er athygliverður þáttur að hefjast í flugsögu hjá okkur að þessu leyti. Aðallega vegna þess að við íslendingar erum enn að burðast með innanlandsflugið frá Reykjavík, svo og Færeyjaflugið og Grænlands- flug til skamms tfma a.m.k. Mér fmnst að stjórnvöld ættu nú að fara að dæmi Grænlendinga og flytja allt flug héðan til Keflavikurflugvallar. Flug frá Reykjavík er hvort eð er tímaskekkja og hættuspil. Eða ætlum við að bíða eftir að neyð reki flugið úr Vatnsmýrinni? Verð á karlmannafötum Þórður Sigurðsson skrifar: Ég hef verið að kanna verð á karl- mannafötum á svipuðu verði og ég minnist að hafa séð í Dublin í hitti- fyrra er ég var þar á ferð. Ég minnist ekki á fatnað i dýram búðum eins og t.d. Herragarðinum eða slíkum því þau kaupi ég einfaldlega ekki. Ég fór í Debenhams og sá þar nokkuð góð föt á um 20 þús. kr. Síðan fór ég í Dressman og Hagkaup í Kringlunnin og þar voru ágæt föt úr hreinni ull eða blöndu af ull og viscose á 12.900 kr„ alveg sambærileg þeim í Deben- hams. Svo fór að ég keypti fötin í Hag- kaupi. Þetta sýnir að maður á að bera saman verð, og skoða um og skyggn- ast áður en gengið er tO kaupanna. Skyrtuverð þykir mér hins vegar hátt, milli 6 og 7 þúsund krónur. - Þá er komið að því að hagkvæmara er að skella sér í verslunarferð til Irlands. Arftakar iðnsveina Kristjana Sigurðardóttir skrifar: í nýlegum pistli eiganda og fram- kvæmdastjóra skemmtistaðarins Bóhems, ræðir hann um nektar- staði, vændi og eiturlyfjasölu, og spyr: „Hvern á að vernda, og fyrir hverjum? Hann segir gesti nætur- klúbba fullorðna karlmenn sem komi af fúsum og frjálsum vilja. Dansmeyjamar séu þarna einnig af fúsum og frjáls- um vilja, og ferðist mUli landa og borga við störf sín, „líkt og iðnsvein- ar forðum"! Femfniskur þjösnaskapur og skort- ur á umburðarlynid íslenskra stjóm- málakvenna muni aldrei hljóta braut- argengi í lýðfrjálsu landi, segir hann i lok pistilins. - Ég spyr nú bara: Er eigandi Bóhems að reyna að koma súludansmeyjum hér inn í iðnaðar- stétt, til að geta fóðrað þær sem far- andverkamenn? Leiðrétting við bréf Alberts í lesendabréfi Alberts Jensen þriðjud. 20 nóv. sl. var vegna mistaka tvítekin setningin: „Mér hafa fallist hendur, og jafnvel orðið nokkuð svartsýnn á framtíð lands og þjóðar eftir að hafa rætt við sanntrúaða framsóknarmenn". - Einnig brenglað- ist setningin: „Það er rosalegt að hafa stjórnmálaflokk að átrúnaði" (sem er rétt svona). - Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. PVl Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is Eða sent bréf til: Lesendasíða DV, Þverholti 11, 105 ReyKjavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang. Össur í Framsókn Garri hefur tekið eftir því að óvenjumiklir kærleikar virðast vera að myndast með Fram- sóknarflokknum og Samfylkingunni. Þetta birtist í ýmsum myndum. Þannig hefur Framsóknar- flokkurinn ákveðið að hefja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, framtíöarleiðtoga Samfylkingar, til vegs og virðingar í Reykjavík með samstarfi í Reykjavíkurlistanum. Einnig hefur ástarorðum verið hvíslað milli flokkanna í Evrópumálum en á því sviði eiga þeir augljóslega mesta samleið íslensku stjómmálaflokkanna. í velferðarmálum gildir það sama en merkjanlegrar hlýju gætir í tóni samfylkingarfólks þegar það upphefur raust sína og fer að tala um skoðanir heilbrigðisráð- herra og afstöðu framsóknar f heilbrigðismálum . og er þessi hlýi tónn mun sterkari en sú mála- ** myndagagnrýni sem verið er að bera fram þegar flokkarnir eru 1 hlutverkaleik sem stjórnarand- stöðuflokkur á móti stjómarflokki. Ávarp Össurar Nú hefur þetta samband tekið nýtt stökk með birtingu ávarps á vef Samfylkingarinnar í gær sem Össur Skarphéöinsson skrifar. Össur er þar ekki í hlutverki stjómarandstæðingsins heldur % er greinilegt að hann telur sig miklu frekar vera einn úr liði framsóknarmannanna. Þáð sem meira er; hann vill greinilega vera einn af leiðtogum Framsóknarflokksins til að geta haft áhrif á leiðsögn og túlkun Hall- dórs Ásgrímssonar á vilja annarra flokksmanna. Garri fær ekki betur séð en Össur sé í raun að taka að sér hlut- verk varaformanns í Framsóknarflokkn- um í þessum pistli þar sem hann leggur mat á afstöðu og skoðanir framsóknar- manna og hvaða leið best væri fyrir flokkinn að fara í ljósi þeirra. Utanflokks varaformaður Össur telur það semsé ekki rétt mat hjá Halldóri að vilja fara þessa magn- bundnu veiðigjaldsleið þar sem hljóm- grunnurinn í flokknum sé greinilega gríðarlegur fyrir fymingarleiðinni. Með því að fara fyrningarleiðina gæti Hall- dór að mati Össurar hins vegar náð sáttum við flokksmenn sína og auk þess ýmsa aðra stjórn- málaflokka, bæöi núverandi stjórnarandstöðu og stóran hluta af Sjálfstæðisflokknum. Garri skilur Össur þannig að með þessu myndi Framsóknar- flokkurinn styrkja sig meira, en með þvf að kaupa friðinn í núverandi ríkisstjórn því verði að fara veiðigjaldsleiö. össur er því í raun að gera tilraun til að stýra Framsóknar- flokknum til forustu í nýrri rlkisstjóm miðju- og vinstrimanna og nota til þess sjávarút- vegsmálin. Að öllu jöfnu væri það hlut- verk helstu forustumanna Framsóknar að veita for- manni sínum þessa leiðsögn og þetta að- hald, en úr því Össur er hvort sem er hálfgerður framsóknarmaður og er í anda í Framsókn þá lætur hann það ekki á sig fá, að vera eins konar utanflokks varaformaður. Garri á hins vegar eftir að sjá hvort þeir Halldór og Guðni Ágústsson, sem er jú innanflokks varafor- maðurinn, hafi eitthvað á móti því að bæta við þessari nýjung í flokks- skipulagið? Jón Kjartansson frá Pálmholti skrífar: Hvað er lesblinda? Dansað fyrir fullorðna lönaöur eða list?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.