Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Blaðsíða 23
35 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 I>V Tilvera Caroline Kennedy 44 ára Afmælisbarn dagsins, Caroline Kennedy, var einu sinni prinsessan í Bandaríkjunum, lítil og falleg dóttir Johns F. Kenn- edys. Þetta breytt- ist allt þegar faðir hennar var myrtur. Caroline var aldrei jafnmikið fyrir sviðsljósið og foreldrar hennar og bróðir, sem fórst í flugslysi i fyrra eins og öllum er fersku í minni. Caroline, sem býr í New York, hefur bætt aftan við Kennedy-nafnið ættamafni eigin- manns síns, Schlossberg. Gildir fyrir miðvikudaginn 28. nóvember Vatnsberinn 120. ian.-is. febr.t . Þú átt mjög annríkt ' um þessar mundir en ert vel upplagður og kemur miklu í verk. Þér lætur betur að vinna einn en með öðrum í dag. Fiskarnir (19. febr.-20. marsr Láttu ekki á þvi bera Iþótt þér finnst vinur þinn eitthvað ergileg- ■ ur. Það á sínar orsakir og er best fyrir alla að láta sem ekkert sé. Hrúturinn (21. mars-19. apríll: ^^Stjömumar em þér mJeinkar hagstæðar um \j^l þessar mundir og allt leikur f höndunum á þér. Vinir koma saman og eiga virkilega glaða stund. Nautið (70. anríl-20. maii: / Eitthvað sem hefur - verið að angra þig undanfarið færist svo um munar til betri vegar. Fjármálin standa ekkert sérlega vel í augnablikinu. Tvíburarnir (21. maí-21. iúníi: V Ástarmálin eru í far- y^^sælum farvegi og ekki _ / f annað séð en þau gætu verið þaö áfram. Þú hitfir gamla félaga og deilir minn- ingum með þeim. Krabbinn (77. iúní-22. iúií>: Þú þarft að sinna köldruöum í fjölskyld- ' unni. Reyndar á heimilislífið og fjölskyldan hug þinn allan um þssar mundir. Liónið (23. iúlí- 22. áeústl: ■ Þú ert mikið að ^ velta framtíðinni fyrir þér. Það er ekki einkennilegt þar sem þú stendur að vissu leyti á krossgötum. Mevian (23. ágúst-22. sept.): Þú ert mjög bjartsýnn um þessar mundir og ^^V'lfchefur fulla ástæðu til ^ r þess. Það virðist nefni- lega allt ganga þér í haginn. Happatölur þínar eru 3,11 og 17. Vogin (23. sept.-23. okt.): J Fjárhagsaðstaðan f>y hefur nú ekki verið V f beysin hjá þér r Jr undanfarið en nú er útlit fyrir að verulega fari að rofa til í þeim efnum. Snorðdreki (24. okt.-21. nðv.): iÞér lætur best að vinna einn í dag þar LV^ksem þér finnst aðrir * *bara trufla þig. Þú ferð út að skemmta þér með vinum þínum í kvöld. Bogmaðurinn (22. nðv.-2i. des.): ■E>ú ert eitthvað niður- dreginn. Það er ekki vist að það sem er að angra þig sé svo stór- vægilegt að ástæða sé til að vera dapur vegna þess. Stelngeitin (22. des.-19. ian.): Þú býður heim vinum, allavega fyllist allt af fólki hjá þér síðdegis og í kvöld. Dagurinn veðrur allsérstæður vegna þessa. Happatölur þínar eru 8, 14 og 19. Tom fær flugvél og Nicole húsin Hollywoodstórstjörnurnar Tom Cruise og Nicole Kidman hafa nú komist að samkomulagi um uppskipt- ingu sameiginlegra eigna í kjölfar skilnaðai’ins fyrr á árinu. Tom fær einkaþotuna en Nicole fær glæsihýsin þeirra. „Allir eru sælir og glaðir," segir lögmaður Nicole, enda herma fregnir að skiptingin hafi farið fram í fullri vinsemd. Þotan sem Tom fær er af gerðinni Gulfstream IV, fyrir þá sem það vilja vita. Húsin sem Nicole fær eru í Los Angeles og Sydney, hvort öðru glæsi- legra. Hjónin fyrrverandi ætla svo að deila forræði barnanna tveggja. „Rifsberin mín“ Að sögn popp- drottningarinnar Madonnu, sem eld- ist eins og aðrir, hefur eiginmaður- inn Guy Ritchie bannað henni að ganga í efnislitlum fótum, svo hún líti ekki út eins og „gömul slepja“. Madonna segist oft taka tillit til vilja hans um klæðaburð- inn, en þó ekki alltaf. „Honum líkar alls ekki þegar ég gegn í gegnsæjum bolum, því hann vill ekki að neinn sjái „rifsberin mín“,“ sagði Madonna. „Hann vill helst að ég hylji allan lík- anann og bendir mér stundum á það. Ég fer yfirleitt að vilja hans, nema ég sé eitthvað að tlýta mér.“ 7.-X Breiöagerðisskóla Anna Björg Guðjónsdóttir, Arna Guðnadóttir, Auður Jensdóttir, Auður Sif Jónsdóttir, Álfhildur Pálsdóttir, Ása Dagmar Jónsdóttir, Ásdís Erla Ásgrímsdóttir, Ásrún Ágústsdóttir, Bryndís Rós Viðarsdóttir, Elín Rós Elíasdóttir, Emilía Guðrún Valgarðsdóttir, Eva Björg Björgvinsdóttir, Hanna Björg Egilsdóttir, Hrönn Þorgeirsdóttir, Karen Björg Jónsdóttir, Lilja Björk Sigurjónsdóttir, Sara Mist Sverrisdóttir, Sigríður G. Elíasdóttir, Sigrún Ásta Jörgensen, Snjólaug Sigurjónsdóttir, Tinna Ásmundsdóttir, Tinna Óðinsdóttir, Þórey Heiðarsdóttir. Kennarar Hlín Daníelsdóttir og Ingibjörg Þóra Garðars- dóttir. Hilmar Jensson og félagar með fimm tónleika á fimm dögum: Stef, spuni og elektrónik Þessa dagana halda þeir Hilmar Jensson, Andrew Di Angelo og Jim Black fimm tónleika í Vesturporti v/Vesturgötu. Þar flytja þeir frum- samda tónlist sína sem þeir síðan munu hljóðrita og kanadíska útgáf- an Songlines mun svo gefa út á næsta ári. Þeir munu leika á hefð- bundin hljóðfæri sín (gítar, sax, b- klarinett og trommur) en einnig verða ýmis elektrónisk tól með i för. Andrew og Jim eru íslendingum að góðu kunnir og hafa sótt landann heim Qölmörgum sinnum áður. Þeir hafa báðir leikið um allan heim, Jim með listamönnum eins og, Dave Douglas, Tim Berne, Uri Caine og Laurie Anderson og hljómsveitun- um Pachora, Human Feel, YeahNO og sinni eigin AlasNoAxis. Andrew hefur leikið með Bobby Previte, Matt Wilson Quartet, Hum- an Feel, Erik Friedlander og Jaimie Saft. Hilmar Jensson hefur verið áber- andi í íslenku tónlistarlíti um árabil og leikið á fjölda geisladiska jafnt innlendum sem erlendum. Hann hefur meðal annars leikið með, Ala- sNoAxis, Tim Berne, Leo Smith, Rafael Toral, Arve Henriksen, Kevin Drumm og Eyvind Kang. Hann hefur og leikið í 20 löndum með ýmsum djasssveitum og komið fram á mörgum helstu djasshátíð- um heims. I stuttu spjalli sagði Hilmar að hann hefði lengi gengið með það í maganum að vera með tónleikaröð á borð við þessa og liti hann á tón- leikana sem góða æfmgu um leið og hann væri að kynna fyrir fólki hvað hann og félagar hans væru að gera. Tónleikarnir eru á hverju kvöldi í Vesturporti v/Vesturgötu og hefj- ast kl. 21.00. Miðaverði er stillt í hóf. þeir kosta 800 kr. Opið mánudaga %li föstudaga f r*Q- *1 S.“* S -verítfisHjuL. Hilmar Jensson og Andrew D'Angelo Þeir söknuðu félaga síns, Jim Black, á fyrstu tónleikunum. Megas á Nasa Á fimmtudagskvöldið kl. 21 verð- ur Megas með útgáfutónleika plöt- unnar Far...þinn veg á skemmti- staðnum Nasa við Austurvöll. Með honum koma fram úrvals hljóðfæra- leikarar eins og venjulega og má þar nefna Gunnar Hrafnsson bassa- leikara, Kristin Árnason á gítar, Valgeir Sigurðsson á hljómborð og Birgi Baldursson á trommur. Söng- konan Sara Guðmundsdóttir, oft kennd við. Lhooq, syngur með Meg- asi og sérlegur leynigestur mun enn fremur troða upp. Ekki verða ein- ungis leikin lög af Far...þinn veg heldur einnig af öllum gömlu plöt- unum og verður fróðlegt að heyra þau í flutningi þessara frábæru hljóðfæraleikara undir styrkri stjórn söngraddar meistarans. Miða er hægt að nálgast í Japis Laugavegi og í Kringlunni og kosta þeir 1500 krónur. Efhún erekki skaleg hundur heita! t 1 BÓNUSVÍDEÓ heldur urval Megas Ekki bara nýju lögin af öllum hinum plötunum. wmmmmmammmmmmmamamámmmmmmmmmm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.