Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Page 24
36 ★ Tilvera ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 z>v ★ * E1 Grillo-lokum fagnaö af Seyðfirðingum: Siv ráðherra og björg unarmenn fengu lof lí f iö E F T I R V I N N U Kvöldstund meö Matthíasi Matthías Johannessen, skáld og fyrrum ritstjóri, mun fræða fólk um Gunnlaug Scheving listmálara i Listasafni íslands í kvöld. Þar mun hann lesa úr bók sinni um listamanninn og spjalla við gesti um hann og verk hans. Viðamikil sýning stendur yfir í Listasafninu á verkum Gunnlaugs Scheving. Dagskráin hefst kl. 20.30. Kiassík ■ PIANOTONAR I SALNUM Kl. 20 verða TIBRA Röð 4 píanótónleikar í Salnum. Edda Erlendsdóttir leikur verk eftir Haydn, Schubert, Pál Is- ólfsson og Grieg. ■ HÁSKÓLATÓNLEIKAR A háskólatónleikum í Norræna húsinu kl. 12.30 á morgun leikur Kventettinn verk eftir þekkt tónskáld. Kventettinn skipa: Karen J. Sturlaugsson, trompet, Asdís Þóróardóttir, trompet, Lilja Valdimarsdóttir, valdhorn, Vilborg Jónsdóttir, básúna, og Þórhildur Guðmundsdóttir túba. Leikhús_____________________ ■ VOLUSPA Barnaleikverkiö Völu- spá veröur sýnt í dag, kl. 10, á veg- um Möguleikhússins. ■ PÍKUSÖGUR Á AKRANESI Píkusögur verða sýndar í kvöld í Fjölbrautaskólanum á Akranesi. Krár ■ NÝJÁBRIJM A GAUKNUM Úngar og upprennandi hljómsveitir fá að spreyta sig á Stefnumóti Gauksins ■ KNIRKEN Á VÍDALÍN Hlióm sveitin Knirken leikur á Vídalín í kvöld. Hún er skipuö íslenskum og dönskum tónlistarmönnum sem leika vinalegt og værðarlegt rokk. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00. ■ TÓNLEIKAR Í VESTURPORTI Þeir Hilmar Jensson, Andrew D’Angelo og Jim Black halda tónleika í kvöld kl. 21.00 í Vesturporti v/Vesturgötu. Fundir og fyrirlestrar ■ DRAUMALEIKSTJÓRINN Almennur borgarafundur vegna E1 Grillo-málsins var haldinn á Seyðisfirði. Til fundar mætti Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Sten Ingi Riise, framkvæmda- stjóri norska björgunarfyrirtækis- ins, auk fulltrúa frá Hollustu- vernd, Rikiskaupum og frá um- hverfisráðuneytinu sem hafði um- sjón með öllu verkinu. Umhverfis- ráðherra flutti ávarp og Sten Ingi Riise gerði grein fyrir björgun olí- unnar og sýndi myndband frá verkefninu af vettvangi. Má segja að með þessum fundi sé lokið löngum og erfiðum kafla í sögu Seyðisfjarðar sem hófst 10. febrúar 1944 þegar E1 Grillo var sökkt. Olían flæddi um allan sjó og upp í fjörur og var þetta mesta mengunarslys sem orðið hefur á íslandi. Verkið var boðið út og Norð- menn voru með lægsta tilboðið. Alls 30 manns unnu við fram- kvæmdina og þar af 20 kafarar. Allt var það mjög tæknilega og vel unnið og kostaði mikla ná- kvæmni, sérstaklega köfunin nið- ur að skipinu. Þetta er stærsta for- varnarverkefni sem unnið hefur verið í Evrópu. Kostnaður var 120 milljónir. Heimamenn eru búnir að berjast fyrir þessari hreinsun i áraraðir og loksins er kominn ár- angur. Ríkisstjórn og þingmenn stóðu vel að málum og það er vissulega ástæða til þess að fagna. Siv Friðleifsdóttur var sérstaklega þakkað fyrir það hversu hraust- lega hún tók á málum og kom þeim í höfn. Sýndir voru ýmsir munir úr skipinu t.d. loftvarna- byssa, kompás og stígvél af einum skipsmanninum. Stefnt er að því að opna E1 Grillo-sýningu næsta sumar. Hörður Torfa - Lauf ★★★★ Beint í mark Lauf er ein besta plata Harðar Torfasonar til þessa - kannski sú al- besta. - Hún hefur kosti fyrri platna listamannsins: hnittna, vel orta texta og þekkileg lög við þá ásamt leikrænni og tilfinningaríkri túlkun höfundarins. Það sem setur punkt- inn yfir i-ið að þessu sinni er án efa framlag upptökustjórans og útsetj- arans Vilhjálms Guðjónssonar sem að auki grípur í alls kyns hljóðfæri til að gæða lögin hans Harðar dýpri lit en ella. Hörður Torfa hefur hingað til fyrst og fremst verið evrópskur í lagasmíðum sínum, viljandi eða óviljandi. Sumt í lögum hans á Lauf- um hefur sterkari tilvísun vestur á bóginn en hingað til. Góðan dag er til dæmis undir dæmigerðum kántríáhrifum. Brekkan, eitthvert magnaðasta dægurlag sem komið hefur út hér á landi í langan tima, er í gospelstíl. Á fleiri en einum stað heyrir maður áhrif frá Johnny Cash, meðvituð eða ómeðvituð. Gott ef örlar ekki líka á Bob Dylan. Hörð- ur hefur undanfarin misseri annast þáttinn Sáðmenn söngvanna á rás eitt og kannski hefur nálægðin við ýmsa erlenda meistara skilað sér inn í lögin hans. Um það er ekki nema gott eitt að segja. Stundum hefur verið talað um að Hörður Torfa sé best geymda leynd- armál íslenska dægurtónlistar- heimsins. Nú er lag að kynnast hon- um í eitt skipti fyrir ölL Byrja á Laufum, fjárfesta síðan í Hugílæði (þessari með Litla fuglinum), þá Kossinum og svo koll af kolli. Rús- ínan í pylsuendanum gæti síðan verið alfyrsta plata listamannsins, þessi með Guðjóni bak við tjöldin og bláu blómunum sem hann leitaði að hér um árið. Ásgeir Tómasson -KÞ DV-MYNDIR KARÓLÍNA ÞORSTEINSDÓTTIR. El Grillo-safn Næsta vor á að opna sérstakt El Grillo-safn um þá olíuvá sem ógnaöi Seyöfiröingum áratugum saman. Hér eru myndir af nokkrum munum sem kafarar hafa tekiö meö sér, kompási og fjarskiptatækjum fyrri tíma, ásamt stíg- véium eins skipverjans. Maður lifandi 55 Kaupum ekki“ dagurinn Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar. Umræöur um leikhúsmál veröa á Litla sviði Borgarleikhússins í kvöld kl. 20. Sjónum verður beint að draumaleikstjóranum. Frum- mælendur: Gunnar Hansson leikari og leikstjórarnir Hllmar Jónsson, Kjartan Ragnarsson og Steinunn Knútsdóttir. Allir velkomnir. ■ SÁLFRÆÐI í ODDA Anna-Llnd Pétursdóttir sálfræðingur heldur erindi á morgun, miðvikudag, kl. 12.05-12.55 í Odda 201.Erindiö nefnist Kennslutækni byggö á hagnýtri atferlisgreiningu: Þjálfun starfsfólks og áhrif á færni barna með þroskahömlun. ■ BARÁTTA VH) HRYÐJUVERK Málþing um baráttuna gegn hryðjuverkamönnum og styrjöldina í Afganistan veröur haldiö í dag í Hatíðarsal Háskólans og hefst kl. 16.30. Frummælandi er sendiherra Bandaríkjanna, Barbara J. Griffiths. ■ UPPLESTUR Á SÚFISTANUM Lesið verður upp úr nýjum bókum á Súfistanum í kvöld bæði af höfundum þeirra og öðrum. Meðal þeirra sem lesa eru Einar Már Guðmundsson, Sjón og Sveinbjörn I. Baldvinsson. Tríó Sigurðar Flosasonar lejkur tónlist af nýjum diski sínum: Úr djúpinu. Ég sá í Fréttablaðinu að síðastliðinn laugar- dagur var „Kaupum ekki dagur“. Merking þess dags hafði alveg farið fram hjá mér og jafnvel þótt ég hefði vitað af honum hefði það engu skipt. Einu dagarnir sem líða án þess að ég kaupi nokk- uð eru dagarnir þegar ég er peningalaus. Það eru vondir dagar og ég hef engan áhuga á að fjölga þeim. Hún er skrýtin þessi barátta vissra hópa til að gera mann ósáttan við að búa í þjóðfélagi þar sem flestir hafa í sig og á, og reyndar rúmlega það. Af hverju eigum við að fara í hlutverkaleik nokkrum sinnum á ári og láta eins og við höf- um engan áhuga á nokkurs konar neyslu? Ég hef engan áhuga á að lifa í samviskubiti dag hvern vegna þess að ég hef efni á að kaupa mér hluti sem aðrir hafa ekki efni á. „Gerviþarfir" er orð sem iðulega heyrist og þá vitaskuld í neikvæðri merkingu. Ég hef fullt af gerviþörf- um og gæli oft við hugmyndina um að koma öllum mínum gerviþörfum í framkvæmd. Sumar þeirra hef ég reyndar þeg- ar gert að raunveruleika. Stóri rauði sófFmn minn er ein af mínum gervi- þörfum. Það sama á við um stóru standklukkuna sem slær eins og Big Ben. En ég á enn eftir að kaupa mér risastóra sjón- varpstækið sem mun gera vídeógláp að himneskri reynslu. Ég skammast mín ekkert fyrir þetta. Ég veit vel að ég gæti verið án þessara hluta en vil það síður. Þeir gera lífið skemmtilegra. Svo finnst mér gaman að kaupa. „Kaupum ekki dagur“ er því hryllingsdagur í mín- um huga. Annar vitleysislegur dagur er hinn árlegi „Ekki McDonalds dagur“. Þá eigum við ekki að fara á McDonalds af því þetta er svo ógurlega vont fyrirtæki sem svindlar á starfsmönnum, misþyrm- ir dýrum og blekkir viðskiptavini. Auðvitað hlýðir almenningur ekki ámátlegum skilaboðum eins og „Annar vitleysislegur dagur er hinn árlegi „Ekki McDonalds dagur“. Þá eig- um við ekki að fara á McDonalds af því þetta er svo ógurlega vont fyrirtæki sem svindlar á starfsmönn- um, misþyrmir dýrum og blekkir viðskiptavini. Auð- vitað hlýðir almenningur ekki ámátlegum skilaboð- um eins og þessum, sem eru bara samansafn fúkyrða. “ þessum, sem eru bara samansafn fúkyrða. Þarna er fyrirtæki sem sí- fellt er með hagstæð tilboð í gangi. Gott að fá hamborgara á hundrað kall þegar lítið er eftir í pyngjunni seinni hluta mánaðar. Svo höldum við bara áfram að efla verslun i landinu með því að kaupa. Viðskipti eru af hinu góða, þrátt fyrir að nöldursálir reyni að telja okkur trú um annað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.