Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Side 28
Opel Zafira
Bílheimar
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá i síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001
Lögregla neitar að mæta sem vitni:
Hef stöðu sem
sakaður maður
- segir Haukur Guðmundsson í Keflavík
Haukur
Guömundsson.
Þeir sem unnu aö frumrannsókn á
Geirfinnsmálinu í nóvember og des-
ember 1994 eru mjög ósáttir við þá
rannsókn sem
Lára V. Júlíus-
dóttir, sérstakur
saksóknari í máli
Magnúsar Leó-
poldssonar, stend-
ur fyrir. Rann-
sókn Láru beinist
að því hvað varð
til þess að Magnús
sat í 105 daga i
varðhaldi grunað-
ur um að hafa átt aðild að hvarfi
Geirfinns Einarssonar þann 19. nóv-
ember 1974. Að frumrannsókn máls-
ins vann Lögreglan í Keflavík með
Hauk Guðmundsson rannsóknarlög-
reglumann og Valtý Sigurðsson, full-
trúa sýslumanns, í fararbroddi. Þá
var Kristján Pétursson, deildarstjóri
tollgæslunnar í Keflavík, áberandi
við rannsóknina. Allir hafa þessir
menn verið boðaðir til að bera vitni
fyrir saksóknara. Eftir þvi sem DV
kemst næst mun Kristján mæta í
dag. Brynjar Níelsson, lögmaður
Hauks, hefur ritað saksóknara bréf
þar sem því er lýst að skjólstæðingur
hans muni ekki mæta sem vitni.
Sjálfur segir Haukur rannsóknina
eins og hún er lögð upp vera óþarfa.
„Lögmaður minn hefur ritað sak-
sóknara greinargerð þar sem fram
kemur að ég mæti ekki sem vitni.
Eins og málið er lagt fyrir þá get ég
ekki mætt sem vitni. Ég hlýt að hafa
stöðu sem sakaður maður,“ sagði
Haukur i morgun.
Hann þvertekur fyrir að Keflavík-
urlögreglan hafi á sínum tíma mark-
visst unnið að þvi að koma sök á
Magnús Leópoldsson með því meðal
annars að láta teikna myndir af
Magnúsi sem urðu fyrirmynd að
frægum leirhaus.
„Það er út í hött að halda því fram
að Keflavíkurlögreglan hafi með sam-
særi komið Magnúsi Leópoldssyni í
vandræði. Slíkar kenningar eru út í
hött því Reykjavíkurlögreglan fór
með rannsókn málsins þegar Magnús
var hnepptur í varðhald í janúar
1976. Hvergi í málsgögnum okkar er
orð um það að finna. Eins og allur al-
menningur las ég það í blöðunum á
sínum tíma að búið væri að loka
Magnús inni,“ segir Haukur.
Lára V. Júlíusdóttir hefur kallað
til fjölda vitna. í gær mætti Skarp-
héðinn Njálsson lögreglumaður og í
dag átti Kristján Pétursson að mæta.
Jón Grímsson, íbúi í Seattle, sem
sjálfur telur líklegt að hann sé dular-
fulli maðurinn i Hafnarbúðinni sem
varð fyrirmynd Leirfinns, mætir sem
vitni undir lok vikunnar.
Ekki náðist í Láru V. Júlíusdóttur
til að fá hennar viðbrögð við því að
Haukur neitar að mæta.
Sjá fréttaljós á bls. 6
-rt
Tónlistarkennarar sömdu
Nýr kjarasamningur Félags tón-
listarkennara og launanefndar
sveitarfélaga var undirritaður
húsakynnum sáttasemjara á tí-
unda tímanum i morgun. Sátta-
fundur hafði þá staðið i sólar-
hring, eða frá þvi níu í gærmorg-
un.
Sigrún Grendal, formaður Fé-
lags tónlistarkennara, sagði við
DV í morgun eftir undirritun
samnings, að þegar á allt væri lit-
ið væri hún þokkalega ánægð með
hann. Hún kvaðst ekki vilja tjá sig
um innihald hans fyrr en hann
hefði verið kynntur félagsmönn-
um. Samninganefnd tónlistar-
kennara hefl sett sér ákveðið
markmið í upphafi, sumt hefði
náðst annað ekki.
Verkfalli 620 tónlistarkennara,
sem hófst 22. október síðastliðinn,
hefur verið frestað til 14. desember
næstkomandi. -aþ/JSS
Víða slæmt veður um landið
„Það voru 30 metrar á sekúndu í
Eyjum i morgun og mjög víða á Vest-
urlandi um 20 metrar. Þetta mun þok-
ast austur um í dag en í kvöld og nótt
fer að draga úr veðurhæðinni," sagði
Hörður Þórðarson veðurfræðingur í
morgun.
Veður var mjög slæmt víða í morg-
un, einna hvassast i Eyjum og á Vest-
urlandi og sums staðar nokkur ofan-
koma og skafrenningur. Allt flug lá
niðri og á svæðinu frá Ströndum aust-
ur um til Eyjafjarðar var skólahaldi
víða aflýst. Mjög víða voru vegir ófær-
ir á Vesturlandi, Vestfjörðum og
Norðurlandi vestra. í dag er reiknað
með að veðrið verði einna verst á
Norðvesturlandi og jafnvel eitthvaö
austar á Norðurlandið og þar er von á
miklu hvassviðri og snjókomu. -gk
DVJVIYND GVA
A undan storminum
Landsmenn lifa nú viö mikia umhleypinga, en Veðurstofan gerir ráö fyrir stormi á vestanveröu iandinu í dag, en svo
fer hann að blása hressiiega á Noröurlandi og víöa sunnaniands siödegis i dag. Þessi landsmaöur á myndinni beiö
eftir strætó i bylnum í Reykjavík í morgun og var fremur kuldalegur á bak við gleriö í skýlinu.
Þriggja milljarða niðurskurðarhugmyndir ríkisstjórnarinnar:
Höggvið í fæöingarorlof
- en tölvum hlíft. Efasemdir hjá stjórnarliðum
Nokkurra efasemda gætir í röðum
stjórnarliða með hugmyndir um nið-
urskurð á fjárlagafrumvarpi sem
kynnt hefur verið í þingflokkum
stjórnarflokkanna og í ríkisstjóm.
Hugmyndin er að þessi niðurskurð-
ur, sem er upp á um 3 milljarða
króna, komi til framkvæmda fyrir
þriðju umræðu fjárlagafrumvarpsins
en önnur umræða er í dag og þar
munu koma fram nýjar útgjaldatil-
lögur frá meirihluta fjárlaganefndar
upp á 2,3 milljarða, þannig að miðað
við þriggja milljóna kr. sparnað við
næstu umræðu er verið aö tala um
700 milljóna til milljarðs niðurskurð.
Stefnt mun að því að fjárlagaafgang-
ur verði um 3,5 milljarðar.
Samkvæmt upplýsingum DV eru
inni í hugmyndapakkanum um nið-
urskurð áform um að fresta að hluta
gildistöku fæðingarorlofs og ýmsum
vegaframkvæmdum. Hins vegar mun
niðurskurðurinn dreifast á mála-
flokka og ráðuneyti þannig að hann
kemur víða við. Samkvæmt upplýs-
ingum DV líst stjórnarþingmönnum
Ólafur Örn Einar IVIár
Haraldsson. Slguröarson.
misvel á þær tillögur sem inni í þess-
um pakka eru og þykir sumu hlíft
sem mætti missa sín á meðan höggvið
er í aðra hluti sem viðkvæmari eru.
Þannig er t.d. gríðarmiklu verkefni
við tölvuvæðingu og gerð landskrár
fasteigna hlíft í þessum tillögum en
þaö er verkefni upp á um milljarð
króna á meðan fæðingarorlofið, sem
ýmsir stjómarþingmenn telja helstu
skrautijöður stjórnarinnar, fær að
kenna á niðurskurðinum. Þeir stjóm-
arþingmenn sem blaðið ræddi við
telja þó líkur til að lending náist
nokkuð auðveldlega í málinu enda all-
ir sammála um að brýnt sé að sýna
ýtrastu aðhaldssemi í fjárlögunum.
Niðurskurðarmál þetta bar að með
mjög sérstökum hætti í umræðunni
en Davíð Oddsson upplýsti í sjón-
varpsþættinum Silfur Egils á sunnu-
dag að niðurskurður yrði kynntur í
þingflokkum stjórnarflokkanna í
gær, mánudag. Enginn slíkur niður-
skurður hafði hins vegar verið
kynntur í fjárlaganefnd og krafðist
stjórnarandstaðan aukafundar í
nefndinni um málið síðdegis í gær.
Ólafur Örn Haraldsson segir að eng-
ar formlegar tillögur hafi verið lagð-
ar fram í íjárlaganefnd eða í þing-
flokkunum og því hafi meira verið
gert úr málinu en efni stóðu til. Hins
vegar sé ljóst að efnahagsástandið
hafl breyst og þvi líklegt að breyting-
ar kæmu fram á frumvarpinu við
þriðju umræðu. Stjórnarandstaðan
hefur hins vegar gagnrýnt þessa
málsmeðferð alla og Einar Már Sig-
urðarson sagði í fjölmiðlum í gær
aðra umræðu fjárlaga, sem hefst í
dag, sýndarumræðu. -BG
Guðni Ágústsson um ummæli Halldórs Ásgrímssonar:
Erum ekki að
„Maður veit náttúrlega aldrei
hvernig framtíðin þróast en í mínum
huga er það ekki á dagskrá að tengjast
evrunni. Framsóknarflokkurinn hef-
ur, þrátt fyrir evru- og krónuumræðu,
orðið sammála um það að stefnan snú-
ist ekki um að ganga inn í Evrópu-
sambandið - en það er auðvitað for-
sendan fyrir evrunni," segir Guðni
Ágústsson, varaformaður Framsókn-
arflokksins. Halldór Ásgrímsson sagði
i setningarræðu sinni á miðstjómar-
fundi um helgina að erfitt gæti reynst
fyrir íslendinga að standa utan Mynt-
bandalags Evrópu á sama tíma og við
lytum samkeppnisreglum hins innri
markaðar. Guðni hefur verið í hópi
tengjast evru
ræðu að vara við óveðursskýjum sem
era kannski að magnast upp, m.a.
vegna evrannar, og umræðunnar sem
fylgir í kjölfarið vegna gengisþróunar
krónunnar. Hann getur ekki hafa ver-
ið að tala um að við séum að fara inn
í myntbandalag á morgun þvi hann
veit vel að það eram við ekki að gera
og getum ekki," segir Guðni. Hann
vildi ekki kannast við að áherslumun-
ur væri milli hans og Halldórs. „Ég
held að við séum alveg sammála um
þá stefnu flokksins að við ætlum að
skoða EES-samninginn og styrkja
hann og annað er lengra inni í fram-
tiðinni ef þetta gengur ekki upp,“ seg-
ir Guðni. -BG
Guönl Halldór
Ágústsson. Ásgrímsson.
þeirra framsóknarmanna sem hafa
viljað fara varlega í Evrópumálunum.
En hvernig skilur hann þá ummæli
Halldórs? „Mér finnst að Halldór hafi
fyrst og fremst verið i þessari um-
Útiljós
Rafkaup
Ármúla 24 • S. 585 2800