Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 Fréttir r>v Sérfræðingar í verðbólguspám gera allir ráð fyrir meiri verðbólgu en sátt atvinnulífs og launþega þolir: Metnaðarfullt markmið - segir forstjóri Þjóðhagsstofnunar Seðlabankinn, Landsbankinn og Þjóðhags- stofnun telja i spám sinum að verðbólga verði meiri á fimm fyrstu mánuðum næsta árs en hið rauða strik ASÍ gerir ráð fyrir. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, segir erfitt að svara þeirri spurningu hvort líkur séu á að verðbólga verði innan við 3% frá janúar til maí 2002. Hann bend- ir einnig á að útfærsla þessara hug- mynda liggi ekki nákvæmlega fyr- ir. „Hins vegar er alveg ljóst að þetta er mjög metnaðarfullt mark- mið. Að gera ráð fyrir vísitölu upp á 222,5 er allmiklu lægra en við reiknuðum með. Það þarf því tölu- vert mikið til að þetta gangi upp,“ segir Þórður. Þjóðhagsstofnun gerði ráð fyrir vísitölu sem næmi 225 á þessum tíma sem er rúmu prósenti hærri verðbólga en má verða svo hægt sé að bjarga kjarasamningum í maí nk. Þórður bendir einnig á að spá Þjóðhagsstofnunar hafi gert ráð fyrir minni verðbólgu en hjá öðr- um fagaðilum. Þannig spái Seðla- bankinn u.þ.b. 4% verðbólgu frá upphafi næsta árs til loka, Lands- bankinn 4,9% en Þjóðhagsstofnun 3,5%. Allir eru hins vegar sammála um að hraði verðbólgu verði mest- ur í byrjun næsta árs en fari síðan ört lækkandi. Óvissuþættir verðbólguspár eru hins vegar margir. í fyrsta lagi má nefna gengisóstöðugleika, í öðru lagi óvissu um launamál sem helst áfram þótt uppsagnarákvæðinu hafi verið frestað um 3 mánuði. í þriðja lagi er spurningin hve mikill samdrátturinn verður. En hvað þarf að breytast til að launþegar, atvinnurekendur og stjónvöld nái markmiði sinu? Þórð- ur bendir á líkur á hækkandi gengi, t.d. með lántöku á erlendu lánsfé sem fari í innlend lán. Erfitt sé hins vegar að segja fyrir um gengismál til skamms tíma og spá- kaupmennska með gengið og al- mennar væntingar spili því stórt hlutverk. Einnig er gert ráð fyrir minni álögum á grænmeti en Þórð- ur vill ekki meta líkurnar á að þetta gangi allt eftir. Það fari að miklu leyti eftir því hve málum verði fylgt fast eftir, sem og al- mennu mati markaðarins á aðgerð- unum. -BÞ Þórður Friöjónsson. Stálu tölvum og myndavélum Innbrotsþjófar, sem brutust inn í verslunina BT-tölvur við Reykja- víkurveg í Hafnarfirði um klukkan 4 í nótt, höfðu snör handtök og voru horfnir af vettvangi þegar lög- reglan kom á staðinn skömmu síð- ar. Öryggiskerfi i versluninni fór í gang við innbrotið og lögreglan fór strax á vettvang. Þjófarnir voru þá á bak og burt og höfðu haft meö sér 4-5 fartölvur að talið er, 8-9 myndavélar og eitthvað fleira smávegis. -gk DV-MYND GVA Enn standa margar íbúðir auðar í Grafarhoiti Væntingar manna á þenslutíma áranna 1999-2000 hafa reynst ofmikiar varöandi skjóta sölu stórra íbúöa í hverfinu. Of miklar væntingar gerðar til skjótrar íbúðasölu í Grafarholti: Stórar eignir seljast hægar en búist var við - minni íbúðir renna hins vegar út og eru nær uppseldar Sala íbúða í Grafarholtshverfinu nýja hefur gengið misjafnlega sam- kvæmt upplýsingum vektaka á svæð- inu. Lóðir undir íbúðir voru á sínum tíma boðnar út og virðist sá misskiln- ingur hafa verið ríkjandi að ekki mætti byggja minni íbúðir er til- greindar voru í útboði. í kjölfar versn- andi efnahagsástands hafa stóru íbúð- irnar selst hægar en menn vonuðust til. Forsvarsmenn fyrirtækisins Járn- bendingar ehf. fóru þá leið að byggja minni íbúðir en upphaflega var gert ráð fyrir á þeirra reit. Segja þeir ekk- ert vandamál því hafa verið í gangi við að losna við þær íbúðir. Þar er mest um að ræða þriggja og fjögurra herbergja íbúðir, um 90 til 110 og 120 fermetrar að stærð. Af 35 íbúðum í tveim blokkum fyrirtækisins sé ein- ungis ein íbúð óseld. Sem dæmi um verð er þriggja herbergja 93,5 fer- metra íbúð þar auglýst á 11,8 milljón- ir króna. Það þýðir að fermetraverð á þessari íbúð er um 126 þúsund krón- ur. Dæmi um fokhelda sérhæð annars verktaka í Ólafsgeisla á 15,8 milljónir sýnir hins vegar fermetraverð upp á ríflega 97 þúsund. Þá er eftir að klára húsið að innan sem gemr allt að því tvöfaldað þetta verð. Mörg fleiri svip- uð dæmi eru til. Vandinn virðist því hafa verið varðandi sölu stærri íbúða sem talsvert hefur verið byggt af í hverfinu og kosta eðlilega meira. Áður en uppbygging Grafarholtsins hófst var talin mikil þörf á byggingu stórra íbúða. Verktakar tóku því margir þann kost að uppfylla óskir um stórar íbúðir. í kjölfar efnahags- samdráttar, þegar kom fram á þetta ár, hafa að sögn fasteignasala hins vegar orðið nokkur umskipti í eftir- spurninni. Fólk kaupir frekar minni og ódýrari íbúðirnar. Fermetraverð í Grafarholtinu hefur til þessa verið talið nokkuð hátt í sam- ræmi við hátt lóðaverð. Það er samt langt frá því að vera það hæsta sem sést hefur í Reykjavík. I Bryggjuhverf- inu í Grafarvogi er jafnvel talað um verð allt að 180-200 þúsund krónur á fermetra fyrir tveggja til þriggja her- bergja íbúðir. Þó er að mati fasteigna- sala enn hæsta verðið i Þingholtunum og þar í kring en verð í úthverfunum fer samt hækkandi. Væntingar hafa verið um að minnkandi spenna á fasteignamark- aði leiddi til lækkaðs íbúðaverðs. Að sögn Þorleifs St. Guðmundssonar, fastseignasala hjá Eignamiðluninni, hefur það alls ekki reynst vera raun- in. Segir hann sölu og eftirspurn nú í góðu jafnvægi og verð hafi ekki lækk- að eins og menn bjuggust við. Hann segist ekki sjá nein teikn um breyting- ar á þessu næstu misserin. Varðandi Grafarholtið segir hann að bjartsýnin um skjóta sölu íbúða þar hafi einfald- lega verið of mikil. Hins vegar sé þar ágæt sala og minni íbúðir í hverfinu nánast að verða uppseldar. -HKr. Bæ j arst j órnarkosningarnar: Allar líkur á framboöi Oddur Helgi Halldórsson. Allar líkur eru á því að L-listinn, listi fólksins, sem bauð fram í kosn- ingunum til bæjar- stjómar Akureyr- ar árið 1998 og fékk einn bæjar- fulltrúa kjörinn, muni bjóða fram að nýju við kosn- ingamar í vor. „Það hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun en það bendir allt til fram- boðs og það er mjög mikið þrýst á mig að gefa kost á mér áfram,“ segir Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi L-list- ans og sá maður sem framboðið var nánast búið til utan um á sínum tíma. Oddur segir að fyrir sig persónulega sé framboð ekkert sáluhjálparatriði. „Ég hef litið svo á að ég væri í þessu fyrir fólkið og ef fólkið vill hafa mig áfram þá er ég tilbúinn að starfa. Loka- ákvörðun hefur ekki verið tekin en ég er þó þegar farinn að undirbúa það að ég haldi áfram í bæjarmálunum," seg- ir Oddur. í kosningunum 1998 kom L- listinn gríðarlega á óvart og fékk 931 atkvæði, eða 11,5%, og Oddur fékk ör- ugga kosningu. Oddur segir að „harði kjaminn" sem standi á bak við sig og sæki reglu- lega bæjarmálafundi L-listans sé ekki stór en hann sé 19-12 manns. „Hversu margir era svo þar fyrir utan sem styðja okkur heilshugar veit ég ekki en við sem stöndum að þessu teljum ekki nokkra spumingu að grandvöllur sé fyrir framboðinu. -gk Umræður á Alþingi í gær um „þjóðarsáttarpakkann“: ^ Davíð mjög ánægður með ASI Davíð Oddsson forsætisráðherra lýsti á þingi í gær mikilli ánægju með það samkomulag sem virðist í augsýn milli stjórnavalda, atvinnu- rekenda og verkalýðshreyfingarinn- ar. Þetta kom fram þegar Jóhanna Sigurðardóttir (SF), Steingrímur J. Sigfússon (VG) og Össur Skarphéð- insson (SF) gerðu athugasemdir um störf þingsins og töldu rétt að fresta 3. umræðu um tekju- og eignaskatt þar sem nýjar upplýsingar hefðu komið fram, s.s. 0,25% lækkun trygg- ingargjalds og minni álögur á græn- moti. Davíð sagði enga ástæðu til að fresta umræðunum þar sem lækkun tryggingargjaldsins yrði ekki fyrr en 2003 og grænmetismálin ekki skoðuð fyrr en næsta vor. Steingrímur J. Sigfússon vildi hins vegar að óbreytt skattalög giltu út næsta ár fyrir utan lækkun tekjuskatts i samræmi við hækkun útsvars, auk afnáms skatts á húsaleigubætur sem allir myndu styðja. Hann sagði vinnubrögð ríkis- stjórnarinnar ekki áferðarfalleg. Það væri að verða lenska að hækka hlut- ina fyrst en lækka þá svo aftur, sbr. íjárlagapakka stjórnarinnar. Össur lýsti ánægju með það þrí- hliða samráð sem nú hefði verið við- haft en það væri vonum seinna eftir að Samfylkingin hefði lengi hvatt til þess. Vonandi yrði hægt að lækka vexti og verðbólgu en hinu síöar- nefnda væri gefið fóður með hækkun tryggingargjalds. Davíð sagði forystumenn verka- lýðsins hafa komið fram af miklum myndarskap, sem og fulltrúar stærstu aðilanna á vinnumarkaði. „Ég er ánægður með að þetta ferli skuli vera að takast. Þetta mun hafa góð áhrif á krónuna og verðbólguna," sagði Davíð og vitnaði til þess að gengi krónunnar hefði þegar styrkst töluvert um miðjan dag í gær. -BÞ Sólargan riJJ REYKJAVÍK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 15.32 15.46 Sólarupprás á morgun 11.13 11.29 Síödegisflóö 16.38 21.11 Árdegisflóð á morgun 05.09 09.42 Rigning fyrir sunnan Sunnan og suöaustan 8 til 13 m/s vestantil síödegis en hægari sunnan- átt austan til. Rigning á Suður- og Vesturlandi en þykknar upp annars staðar. Sunnan og suðaustan Sunnan og suðaustan 5 til 15 m/s á morgun, hvassast vestan til. Dálitil súld sunnan til fram á morgundaginn en annars skýjað meö köflum. Hiti 4 til 9 stig. Föstudagur Laugardagur Sunnudagur O :0 Hiti 4" Hiti 4° Hiti 1° til 10“ tii 10° til 4° Vindur: Vindur: Vindur: 5-13 5-10 w/» 5-10 m/& t t Skýjað með Súld eöa rignlng köflum og þurrt sunnan- og breytlleg átt og aö kalla en víöa vestanlands en léttskýjaö skýjaö meö víöast hvar og noröan og köflum kölnandl veöur. austan th. noröaustan til. Hlýtt 3 Logn m/s 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviðri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveður 28,5-32,6 Fárviðri >= 32,7 AKUREYRI hálfskýjaö 5 BERGSSTAÐIR hálfskýjað 4 BOLUNGARVÍK skúrir 3 EGILSSTAÐIR léttskýjaö 4 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 2 KEFLAVÍK hálfskýjaö 3 RAUFARHÖFN heiöskírt 4 REYKJAVÍK skýjaö 3 STÓRHÖFÐI léttskýjað 5 BERGEN heiðskirt -1 HELSINKI kornsnjór -2 KAUPMANNAHÖFN skýjaö 1 ÓSLÓ þoka -3 STOKKHÓLMUR þokumóða 3 ÞÓRSHÖFN skýjaö 9 ÞRÁNDHEIMUR þoka -2 ALGARVE rigning 14 AMSTERDAM þokumóöa 4 BARCELONA heiðskírt 1 BERLÍN súld 4 CHICAGO léttskýjaö 3 DUBLIN þokuruöningur 5 HALIFAX heiöskírt 1 FRANKFURT rigning 3 HAMB0RG hrimþoka -1 JAN MAYEN léttskýjað 2 LONDON heiöskírt 4 LÚXEMBORG súld 1 MALLORCA léttskýjaö 6 MONTREAL heiðskírt 1 NARSSARSSUAQ aiskýjaö 0 NEW YORK heiöskirt 6 ORLANDO hálfskýjað 21 PARÍS þokumóða 3 VÍN snjókoma 1 WASHINGTON þokumóða 4 WINNIPEG þoka -3 wmsgmœwamEmmmmm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.