Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 Fréttir DV Niöurstaða fanga á Litla-Hrauni í ítarlegri greinargerö um fangelsið: Refsiþyngjandi þættir ofan á frelsissviptingu - talsmaöur fanganna segir deildarstjóra ekki gæta mannúðar eða sanngirni Fangar á Litla-Hrauni hafa tekið saman ítarlega greinargerð þar sem þeir gagnrýna fjölmðrg atriði í fang- elsinu sem þeir telja fara í bága við mannréttindasáttmála og evrópskar fangelsisreglur. Þessa stundina eru um 70 fangar í fangelsinu. DV ræddi við talsmann umræddra fanga þar sem hann kynnti málið. í samantektinni kemur m.a. fram að fangar vilja vekja athygli á fangels- isreglum sem Evrópusambandið hefur geflð út og aðildarríki þess hafa gert að fyrirmynd varðandi löggjöf í fang- elsismálum hvers lands. Árangurinn hafl verið sá að evrópsk fangelsislög- gjöf byggist að meginstefnu á mannúð og betrun sem ríkjandi þáttum í stað refsi- og hefndarstefnu sem þeir segja virðast ríkja á íslandi. Þar er átt við refsiþyngjandi þætti eftir aö einstak- lingar eru sviptir frelsinu og þeir lok- aðir á bak við lás og slá. Skýrsla fanganna er á leiðinni til fjögurra ráðherra, dómsmálaráðu- neytis, tólf þingmanna, umboðsmanns Alþingis, allra fjölmiðla og fleiri aðila. Lokun fyrirmyndargangsins braut ísinn Upphafið að samantekt fanganna var lokun svokallaðs fyrirmyndar- gangs á Litla-Hrauni, þó svo að sá gjörningur sé aðeins hluti af því sem kemur fram í samantekt fanganna. „í þessu fangelsi glata fangar tengslum sínum við samfélagið og fátt bíður þeirra að afplánun lokinni," segir tals- maður fanganna. „Við bendum á ómarkviss og ósanngjöm vinnubrögð fangelsisyfir- valda og handahófskenndar hugmynd- ir stjórnenda fangelsisins. Hér eru einstaka yfirmenn nær einráðir, menn sem hafa hvorki menntun né reynslu til að taka ákvarðanir um hluti sem eru fóngum hjartans mál. Persónuleg viðhorf og geðþótta- ákvarðanir, til dæmis eins deildar- stjórans hér, sem ekki hefur menntun til slíks, eru daglegt brauð hérna.“ Framtið hvers fanga er frelsi Draumur fanga og aðstandenda þeirra er að þeim áskotnist sömu tækifæri til að endurheimta frelsið og þeim sem standa í sömu sporum ann- ars staðar í Evrópu,“ segir í úttekt fanganna. „Ósk okkar er að stjórnend- ur landsins og yfirvöld í fangelsismál- um tileinki sér þá stefnu sem önnur Evrópuríki hafa sett í öndvegi og tek- ur mið af raunverulegum heildarhags- munum þjóðfélagsins. Staðreyndin er sú að framtíð hvers fanga ber frelsi í skauti sér. Það er rétt að fólk hafi í huga að þegar fanga- vistinni lýkur þá er runnin upp sú stund að þjóðfélagið þarf að sætta sig við hina dæmdu á ný. Dvöl í fangelsi í dag er til þess fall- in aö rjúfa tengsl okkar um of við um- heiminn. Langtíma-innilokun gerir suma nær ófæra um að aðlagast þjóð- félaginu að afplánun lokinni. Oft missa fangar sjálfsbjargarviðleitnina og leggjast á framfærslu almennings að afplánun lokinni," segir fanginn. Tilgangur lífsins hverfur „Kjarni þessa máls er að fangelsis- reglur sem skerða möguleika okkar á að vera í sambandi við okkar nánustu þýða að tengsl fanga rofna með tíman- um,“ segir talsmaðurinn. „Þannig hverfur tilgangur lífsins. Eftir standa sársaukafullar tilfinningar. Við telj- um að sú hugmyndafræði ríki hjá fangelsisyfirvöldum á íslandi að fanga þurfi að einangra, að þrengja þurfi að fóngum og ástvinum þeirra og aö hvatt sé til höfnunar. Þetta köllum við refsi- og hefndarsjónarmið ofan á sjálfa frelsissviptinguna á kostnaö betrunarsjónarmiða. Þjóðfélaginu er ekki best borgið með því að sérhverj- um fanga sé kippt til hliðar og hann einangraður frá fjölskyldu sinni þar til honum er á endanum vísað út fyr- ir hlið.“ Fyrsta dagsleyfið eftir 1-5 ár I samantekt fanganna vísa þeir á sjónvarpsviðtal við Erlend Baldurs- son, afbrotafræðing hjá Fangelsis- málastofnun, sem sagði að fangar á ís- landi sem sitji lengur en fimm ár eigi mjög erfitt með að fóta sig i samfélag- inu eftir afplánun. Þeir segja að lykilatriði hvað varði möguleika fanga til að snúa aftur til samfélagsins séu samskipti hans og tengsl við ástvini og umheiminn. Þar er einkum átt viö leyfi úr fangavist- inni, heimsóknartíma og afnot af síma. í dag fær fangi ekki dagsleyfl til að hitta ástvini sína fyrir utan fang- elsið fyrr en að lokinni þriðjungs af- plánun og aldrei fyrr en eftir eitt ár. Þetta þýðir að fangi með 15 ára dóm fær fyrst dagsleyfi eftir heil 5 ár. Allt þar til fyrir nokkrum árum gafst fongum tækifæri til að fara í sitt fyrsta dagsleyfi eftir að hafa lokið 1 árs afplánun," segir í úttektinni. Með reglugerð dómsmálaráðuneytisins var þessari skipan breytt og framan- greindar reglur settar. „Þetta þykir okkur beinlinis til þess fallið að rjúfa tengsl fanga við ástvini sína. Erlendis eru helgarleyfi veitt ef dagsleyfi þykja skila árangri. Á íslandi eru helgar- leyfi ekki veitt," segir talsmaðurinn. Meginreglur um mannlega virðingu í reglum um fangelsi innan Evrópu- A bak við lás og slá Á Litla-Hrauni eru ýmis agaviðurlög. Mjög er umdeilt hvernig og hverjir ákveða hvort viðuriögunum er beitt og með hvaða hætti. DV-MYNDIR HILMAR ÞÖR Fangavöröur meö talsmann fanga sér viö hlið Greinargerð fanganna á Litla-Hrauni verður send til fjögurra ráðherra, tólf þingmanna og fleiri aðila. Athygli þeirra verður ekki síst vakin á atriöum sem snúa að reglum Evrópusambandsins um fangelsi. sambandsins segir meðal annars að stjórnendur fangelsa séu hvattir til að móta stefnu, stjórnunaraðferðir og venjur sem byggist á heilbrigðum samtímasjónarmiðum um tilgang og réttlæti. Lögð er áhersla á meginregl- ur um mannlega virðingu og hlutverk fangelsisyfirvalda hvað varðar mann- úðlega og jákvæða meðferð. í 3. grein reglnanna er tilgangur fangavistar rakinn - hún skuli stuðla að því að fangar geti snúið aftur til þjóðfélagsins þannig að sem mestar líkur séu á að þeir hlíti lögum og geti séð sér farborða er þeir hafa öðlast frelsi að nýju. Hvað varðar samband fanga við umheiminn er lögð áhersla á að þeim skuli leyft að hafa samband við fjöl- skyldu sína og fá heimsóknir eins oft og unnt er. Einnig er það tiltekið að fangelsun sé vissulega frelsissvipting. Því skuli ekki auka þjáningar fanga. Tengslum við skyldmenni, sem þjóni best hagsmunum fanga og fjölskyldna, skuli haldið og þau treyst. Einnig aö störf fanga skuli skipulögð þannig að þeir fái tækifæri til samskipta við hið frjálsa þjóðfélag þannig að hin félags- lega aðlögun verði betri að lokinni af- plánun. í reglunum er vikið að því að við flokkun í fangelsi skuli tekið mið af afbrotaferli, íjölskylduaðstæðum og öðrum ytri aðstæðum fanga. Hér telja fangar einmitt íslensk fangelsisyflr- völd hafa snúið frá hinum fyrsta vísi að því að fara að þessum reglum með því að loka fyrirmyndarganginum svokaOaða. Ef einn brýtur af sér þjást hinir „Á Litla-Hrauni eru allir fangar meðhöndlaðir líkt og eplið og eikin með hliðsjón af þvi að epli vaxa ekki á eikartrjám," segir talsmaður fanga og vísar til þess að geri einn fangi eitt- hvað af sér þá þurfi allir að gjalda fyr- ir þaö og þjást. Nærtækasta dæmið um það var lokun fyrirmyndargangs. Annað dæmi um þetta er að fóngum er óheimilt að veröa sér úti um rakspíra nema hann berist sem jóla- gjöf og á afmælisdögum þeirra er að- standendum bannað að koma með kökur. „Það er eins og hugsunin sé sú að fangar noti rakspíra almennt til drykkjar og eiginkonur og börn feli vímuefni eða annan bannvarning í því sem þau hafa með sér á heimsókn- artímum," segir fanginn. Umdeildur deildarstjóri í samantekt fanganna, sem reyndar er óundirrituð, segja þeir að tiltekinn deildarstjóri á staðnum, sem gjarnan hefur séð um að ákveða hvar fangar Vald deildarstjóra of mikið „Mér finnst mest gagnrýnivert við Litla-Hraun að aga- viðurlög sem menn þar eru beittir eru í engu samræmi við það brot sem menn hafa framið. Ef ein- hver verður t.d. upp- vís að þvi að skemma eigur eða koma dónalega fram við fangaverði, sem á auðvit- að ekki að líðast, eöa eitthvað finnst í þvagi eru þeir stund- um settir í refsingu - vinna tekin af þeim, þeir settir í símabann eða heimsókna- bann eða verða jafnvel að hitta ættingja sina með því að horfa á þá i gegnum gler,“ segir Hilmar Ingimundarson hæstaréttarlögmaður. Hann segir ljóst að undirmenn for- stöðumanns Litla-Hrauns, deildarstjórar, taki greinilega ýmsar áhrifaríkar ákvarðanir - nokkuð sem hann telur að forstöðumaðurinn einn eigi í öllum tilvikum að taka, til dæmis varðandi aga- viðurlög." Varðandi niður- lagningu fyrirmjmd- argangsins segir Hilmar að eftir því sem hann viti best þá hafi einn fangi brotið þar af sér. „Þá var eitt látið yfir alla ganga. Það er ekki í samræmi við refsipólitík og réttlæti að eitt skuli yfir alla ganga. Þetta eru röng sjónarmið. Eitt skemmt epli eyðileggur ekki allan eplakassann." Hilmar segir fráleitt að það komi fyrir að fangar fái ekki dagsleyfi fyrr en eftir þriðj- ung afplánunar, jafnvel eftir 5 ár. „Þessum reglum þarf að breyta, ekki síst í samræmi við evrópsku fangelsisregl- urnar. Mér finnst það líka álitamál að Fangelsismála- stofnun fái að ákveða ein- hliða um reynslulausnir." Hilmar Ingimundarson. Lalla Johns líöur ekki vel þarna „Þau skipti sem ég fór þarna inn með Lalla Johns á sínum tíma fannst mér frekar óvistlegt á Litla-Hrauni - ópersónulegt og kaldranalegt þarna inni. Mér fannst þetta ómanneskju- legt,“ segir Þorfinn- ur Guðnason kvik- myndagerðarmaður vann myndina um sem Lalla Johns sem nýlega var sýnd. - Hvernig fannst þér Lalla líða innan veggja fangelsis- ins? „Honum líður ekkert vel þarna. Reyndar er hann manna vanastur. Þetta um- hverfi hefur hins vegar ekki latt hann til afbrota. Hann kemur þarna aftur og aftur. Sumir segja að hann og aðrir fari þarna inn á vetuma til að fá sér húsa- skjól - þetta sé því félags- legt vandamál." Þorfinnur segir að sér finnist við- mót starfsfólks á Litla-Hrauni ein- staklingsbundið. „Hins vegar finnst mér mjög erfitt að ná inn á Litla- Hraun. Símatímar Þorfinnur eru takmarkaðir, Guönason. það er mjög erfitt að komast að og það er oft á tali. Ef fanginn er ekki nógu fljótur að kom- ast að missir hann kannski af því. Ég hef orðið var við að ef þvagprufa er tekin úr fongum og þeir greinast með eitthvað þá eru þeir settir í símabann í langan tíma. Þá geta menn ekki tal- að við aðstandendur sína svo vikum skiptir. Mér finnst ekki gott að sjá unga stráka þama sem villast af leið. En þeir koma ekki heilir út úr þessu fangelsi," sagði Þorfmnur Guðnason. Gerræðislegar ákvarðanir „Ég hef orðið var við gerræðislegar ákvarðanir sem sjaldnast eru til- kynntar skriflega. Af þessum sökum er erfitt fyrir fangana að leita réttar síns. Þama eru einhverjar ákvarðanir teknar og þeir hafa ekkert í höndunum. Þess vegna hafa þeir þurft að fá sérstaklega skriflega afstöðu til að hægt sé að kæra ákvörð- unina. Á hinn bóginn hafa ég og skjólstæðingar mính yfir- leitt ekki yfir miklu að kvarta þarna," segir Páll Arnór Páls- son hæstaréttarlögmaður um aðbúnað fanga á Litla-Hrauni. Páll Arnór segir að i sjálfu sér hafi fangaverðir ekki komið illa fram. Hins vegar sé vandi fangelsisins í heild slíkur að hætta sé á að ákvarðanir kunni að verða gerræðislegar vegna þess vinnulags sem viðhaft er. „Þetta á til dæmis við ef menn eru settir í einangrun. Einnig eru viðkvæmir hlutir í sambandi við heim- sóknh eða dagsleyfi. Eitt dæmi get ég nefnt. Fyrh skömmu var fangi kominn inn og óskaði eftir að fá sambýliskonu sína í heimsókn. Þá reynd- ist það ekki hægt vegna þess að hún var með afbrotaferil. Þetta reyndist ekki hægt að fá skriflegt en í það var vísað munnlega að konan gæti ekki heimsótt manninn inn í klefa til hans af þessum sökum. Þau urðu því að tala saman í gegnum gler.“ Páll Arnór segir aö mjög sé aðfmnsluvert á Litla-Hrauni að margar skyndileith, þar sem ruðst er skyndilega inn í klefa, skapi óróa og óvissu. „Þetta er mannréttindaskerð- ing.“ Páll Arnór Pálsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.