Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2001, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2001 Fréttir DV Stórkostlegar hækkanir á hlut sjúklinga í sjúkraaðgeröum: Dæmi um 470 prósenta hækkun - fátækt fólk getur ekki leyft sér slíkt, segir Ásta R. Jóhannesdóttir um nær 470 pró- senta hækkun á hlut sjúklinga þegar búiö er að taka tillit til af- sláttar. Er þetta sam- kvæmt útreikn- ingum sem Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hef- ur látið gera. Koma þessar hækkan- ir til viðbótar því að hámarksþak greiðsluhlutdeildar almennra sjúk- linga var hækkað um þúsund krón- ur 1. júlí í sumar. Eða úr 5000 í 6000 krónur. Sambærilegar upplýsingar fengust hjá heilbrigðis- og trygg- Jón Kristjánsson ráóherra. samkvæmt fjárlögum. Þannig mun hlutur almenns sjúklings vegna að- gerða við liðþófa á báðum hnjám í raun aukast úr 6.000 króna há- marksgreiðslu í 28.164 krónur. Er þá búið að taka tillit til endur- greiðslu samkvæmt afsláttarkorti á 2/3 hlutum umfram 18.000 krónur. Að öðrum kosti væri hlutur sjúk- lings 48.492 krónur. Þetta er 469% aukning þegar búið er að taka tillit til afsláttarkorts. Varðandi eldri borgara og öryrkja sem og barna hækkar hlutdeild sjúklings þó mun minna og í sumum tilvikum litið sem ekkert. Bæklunaraðgerðir sem þessar eru dýrar en þó m.a. mjög algengar hjá íþróttamönnum. í þessum dæmum er svæfing reiknuð með. Ef um ann- að hnéð er að ræða er hlutur al- menns sjúklings eftir hækkun að teknu tilliti til afsláttar 21.552 krón- ur sem er nettóhækkun um 359%. Æðahnútaaðgerðir eru einnig mjög algengar, ekki síst hjá konum. Þar eykst hlutur almenns sjúklings vegna æðahnútaaðgerðar á einni hlið úr 6000 króna króna hámarks- greiðslu í 20.016 krónur, eða um 336%. Er þá búið að taka tillit til 4.032 króna afsláttar vegna afsláttar- korts. Þess ber að geta að hafi sjúkling- ar verið búnir að ávinna sér rétt til afsláttar vegna aðgerða eða læknis- þjónustu á árinu, þá er gildistími af- sláttarkortsins aðeins innan ársins eða til áramóta. Uppsafnaður kostn- aður fellur þá út. Eftir það þarf við- komandi að greiða fullt gjald, eða þar til hann er á ný kominn upp í 18 þúsund króna kostnað. Afslátturinn miðaðist hins vegar áður við 12 þús- und krónur hjá almennum sjúkling- um, eða fram til 1. júlí í sumar. Hjá öldruðum var hámarkið 3000 krón- ur en hækkaði í 4.500 krónur í sum- ar. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir segir að með þessu sé verið að láta sjúklinga greiða afganginn á fjárlög- unum sem sé algjörlega forkastan- legt. „Þetta mun leiða af sér að fá- tækt fólk á íslandi mun ekki geta leyft sér að fara í svona aðgerðir.“ -HKr. Eigandi Exxxotica dæmdur í héraðsdómi: Sakfelldur fyrir sölu klámmynda Hörður Þór Torfa- son, eigandi verslun- arinnar Exxxotica, var i gær sakfelldur fyrir sölu klám- mynda i verslun sinni. Honum er gert að greiða 150 þúsund króna sekt auk máls- kostnaðar. í niðurstöðu hér- aðsdóms kemur fram Eigandinn og verjandinn Hörður Þór Torfason, eigandi Exxxotica, ásamt iögmanni sín- um, Gísla Gíslasyni. sala slíkra tímarita færi fram óáreitt. í áliti dómsins kemur fram að kvikmyndim- ar sem ákært er fyrir séu hreint kynlifsefni og að tímarit sem ákærði benti á að væru til sölu á bensín- stöðvum væru vissu- lega sambærileg við kvikmyndirnar. að dómari hafi skoðað verslun Harðar og tekið er fram að á útihurð standi skýrum stöfum að fólki yngra en 18 ára sé óheimill aðgangur. Þá eru sölumyndböndin höfð í niðurgi'öfnu kjallaraherbergi og veröur að fara þangað um þröngan stiga. Lögregla gerði húsleit í versluninni i maí síðast- liðnum og lagði þá hald á 82 myndbönd og 122 mynddiska þar sem meginmyndefnið fjallaði um kynlíf. Hörður neitaði sök fyrir dómi og sagði það mat sitt að nú á dögum væri lagður annar skilningur í hugtakið klám, enda sé það myndefni sem hann hefur til sölu sambærilegt tímaritum sem dreift sé um landið frá bensín- stöðvum. Hörður sagði fyrir dómi að Einnig sé alkunnugt að hliðstætt efni sé hægt að sjá í sjónvarpi hérlendis. Þá segir í dómnum að einnig megi vel vera rétt hjá ákærða að viðhorf fólks hafi breyst og fáir hneykslist núorðið á þvi klámefni sem þetta til sölu. Þrátt fyrir þetta er Hörður sakfelld- ur og segir í dóminum að ekki verði litið fram hjá dómi Hæstaréttar frá ár- inu 2000 þegar maður var sakfelldur og honum refsað fyrir að dreifa klám- kvikmyndum. „Verður því ekki kom- ist hjá því að sakfella ákærða..." segir í dómsorðinu. Ákærða er talið til máls- bóta að hann var samvinnufús við rannsóknina og að hann virðist hafa gert sér sérstakt far um að meina böm- um aðgang að versluninni. -aþ Sjúklingar borga meira Hlutur sjúklinga vegna dýrra aögeröa stórhækkar samkvæmt fjárlögum ársins 2002. ingamálaráðuneytinu í gær. Var þar einnig upplýst að þessar breyt- ingar á hlutdeild sjúklinga eiga að taka gildi nú um áramótin. Hefur Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sagt að ekki verði komist hjá gjaldtöku af þessu tagi. Gríðarleg hækkun Ásta Ragnheiður fékk Trygginga- stofnun ríkisins til að reikna út hlutdeild sjúklinga miðað við þær breytingar sem fyrirhugaðar eru Komdu og njóttu hátíðarstemningarinnar í Smáralind þar sem jólasveinarnir og yfir 70 verslanir og þjónustuaðilar bjóða alla velkomna. 16:00-18:00 í Sumargarðinum bjóða jólasveinar bömunum með sér í stuttar hestvagnaf erðir. Jóladagskráin í Vetrargarðinum í dag! 16:30 og 17:30 Jólasagan íesin. 17:00 JÓlaskemmtUn fyríralla fjölskylduna. Ævintýraheimur barnanna i Jólalandinu í allan dag. Veröldin okkar er full af lífi og fjöri í dag og það sama á við um göngugötuna þar sem tónlistarflutningur Magga Kjartans og harmonikkuleikarar skapa rétta jólaandann. Smáralind | V -RÉTTI IÓUAN0INN Verslanir oprar (Pag mllli klukkan 11:00 og 20:00 • www.smaraliml.i5 Meðal úrræða ríkisstjórnarinnar í niðurskurði ríkisútgjalda næsta árs, eru stórkostlegar hækkanir á greiðslum sjúklinga vegna ýmissa aðgerða. I um- ræðu vegna af- greiðslu fjárlaga var kynnt að rík- isstjórnin ætlar að ná fram 160 milljóna króna spamaði með þessum hætti. Gilda hækkan- irnar um alla sér- fræðilæknaþjón- ustu. Dæmi eru — Asta Ragnheiöur Jóhannesdóttir. Heiti potturinn Umsjón: Birgir Guömundsson netfang: birgir@dv.is Nýr foringi? Innan íþróttahreyfingarinnar eru mjög skiptar skoðanir um störf for- ystumanna hreyfingarinnar, sérstak- lega íþróttabanda- lags Reykjavíkur, og hins vegar íþrótta- og Ólymp- íusambands ís- lands. Reikna má fastlega með því að á næstu þingum ÍBR og ÍSÍ komi fram mótframboð gegn sitjandi for- manni ÍBR, Reyni Ragnarssyni, og forseta ÍSÍ, Ellert B. Schram. Sá sem er helst orðaður við þessi mót- framboð er Snorri Hjaltason, fráfar- andi formaður Ungmennafélagsins Fjölnis í Grafarvogi. Snorri er að láta af störfum sem formaður Fjölnis sem er stærsta ungmennafélag landsins. Hann þykir hafa unnið frábært starf i Grafarvoginum og sýnt mikla ábyrgð í peningamálum. Er í því sambandi skemmst að minnast þess er hann og aðalstjórn félagsins ákváðu að senda ekki handboltalið til keppni í efstu deild karla. Snorri þykir hafa styrkt stöðu sína verulega innan íþróttahreyfingarinnar í kjöl- farið en hann er í stjórn ÍTR og for- maður Taekwondoo-nefndar ÍSÍ... Óli Tynes á förum Enn fækkar reynsluboltunum á fréttastofu Stöðvar 2 en nú mun vera ljóst að Óli Tynes sé á fórum ofan af Lynghálsi. Óli hef- ur marga fjöruna sopið í fréttunum utan úr heimi og starfað um langt árabil á Stöðinni og þar áður á dagblöð- um. En Óli er ekki einn á ferð úr fyrir- tækinu þessa dagana því fréttir herma að helsti útlitshönnuður Stöðv- ar 2, Björgvin Ólafsson, sé einnig hættur. Brotthvarf hans þykir mikill missir fyrir Stöðina, enda er Björgvin sagður vera heilinn á bak við allt út- lit Stöðvar 2 frá upphafi og sagður fara með mikið vit úr fyrirtækinu ... Hræddir við Jón Egill Helgason á Skjá einum sendir frjálshyggjumönnum tóninn í pistli á heimasiðu sinni i tilefni af þeirri sérkennilegu stöðu að sjálfur fijálshyggjupostul- inn Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs- son virðist ekki til- búinn að einka- væða RÚV eitt rík isfyrirtækja og seg ist Egill ekki hafa heyrt frjálshyggju- mennina innan Ríkisútvarpsins hafa útskýrt þessa afstöðu svo trúverðugt sé. Egill segir: „Nema ástæðan sé sú, eins og marga er farið að gruna, að áframhaldandi ríkisrekstur sé eina leiðin sem þeir sjá til að hamla gegn áhrifum Jóns Ólafssonar á ijölmiðla- sviðinu? Ætli það sé ekki nokkurn veginn ástæða þess hversu sjálfstæð- ismenn eru núorðið elskir að Ríkisút- varpinu, fremur en hvað þeir hafa hreiðrað vel um sig þar inni - eða treysta þeir bara engum öðrum en ríkinu til að halda úti almennilegri útvarps- og sjónvarpsdagskrá?" Önnur Jakobína Mývetningar eru bókhneigðir menn og úr þeirra röðum hafa í gegnum tíðina komið góð skáld, s.s. Jakobína Sigurð- ardóttir frá Garði. Ekki hefur þó komið út skáldverk eftir Mývetning um skeið þar til I ár að Bjöm Þorláksson blaðamaður, úr Vogum, gaf út smá- sagnasafnið „Við“. Björn var að lesa upp úr bókinni fyrir sveitunga sína um helgina og Friðrik Steingríms- son, sá landskunni hagyrðingur, kastaði þá fram stöku: Mývetnsk bók var kynnt í kveld er kœti vakti mína. Er hér komin, að ég held, önnur Jakobína.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.