Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002
Fréttir DV
Héraðsdómur dæmir lögreglumönnum í vil vegna vangoldinna launa:
Seinagangur Hagstofu
kostar ríkið milljónir
Ríkið gæti þurft að greiða lög-
reglumönnum allt að 30 milljónir
króna í vangreidd laun en dómur
þess efnis féll í Héraðsdómi Reykja-
víkur þann l. febrúar. Málið var
höfðað í nafni eins lögreglumanns
gegn ríkisfjárhirslu og snerist það
um túlkun á samkomulagi sem gert
var árið 1993 milli Landssambands
lögreglumanna og fjármálaráðuneyt-
is. í samkomulaginu segir að lög-
reglumenn skuli fá launahækkun,
sem er samsvarandi meðalhækkun
viðmiðunarhópa tvisvar á ári eins og
hún er metin af Hagstofu íslands.
Liggi matið ekki fyrir hækki laun
lögreglumanna til bráðabirgða um
3% frá sama tíma og metin hækkun
ætti að gilda.
Lögðu ríkið
Lögreglumenn sækja vangoldin laun
meö hjálp dómstóla.
Dráttur varð á mati Hagstofunnar
fyrir tímabilið október 1999 til apríl
2000. í september 2000 barst Qármála-
ráðuneytinu svo mat Hagstofunnar
vegna launabreytinga fyrir þetta
tímabil þar sem fram kom að laun lög-
reglumanna höfðu breyst að meðaltali
um 12% á tímabilinu. Á sama timabili
heíðu laun viðmiðunarhópanna að-
eins hækkað um 6,7-6,8%. Samkvæmt
því hefðu laun lögreglumanna hækk-
að umtalsvert meira en laun saman-
burðarhópsins og því ekki komið til
leiðréttingar.
í niðurstöðu dómsins segir að þar
sem mat lá ekki fyrir hafi átt að
greiða bráðabirgðahækkun, 3%, ofan
á laun mannsins frá 1. maí 2000 til
septemberloka, þar sem skýrt kæmi
fram í samkomulaginu frá 1993 að
lægi mat ekki fyrir ætti að greiða
bráðabirgðahækkunina. Lækka þau
síðan frá 1. október 2000 með mati
Hagstofunnar að launahækkun lög-
reglumanna væri meiri en viðmiðun-
arhópa. Var því ríkinu gert að greiða
stefnanda 51.580 kr. auk dráttarvaxta
og málskostnaðar.
Mál lögreglumannsins var höfðað
sem prófmál og segir Kristján B.
Thorlacius hdl., lögmaður hans, að
dómurinn gildi um alla lögreglumenn
sem falla undir þennan kjarasamning,
en þeir eru 5-600 talsins. Dómurinn
gæti því kostað ríkið um og yfir 30
milljónir króna í vangoldin laun ein-
göngu. Auk þess þarf ríkið að greiða
dráttarvexti frá árinu 2000. „Það ligg-
ur fyrir að allir þeir lögreglumenn
sem voru í vinnu á þessum tíma eiga
svipaða kröfu á ríkið.“ -ÓSB
Landsliðið heim:
Móttaka í
Smáralind í dag
í dag klukkan 16.30 verður haldin
„þjóðhátíð" í vetrargarðinum í
Smáralind þar sem landsliðið mun
mæta, beint af flugvellinum. Þar verð-
ur tekið á móti „strákunum okkar“
með pompi og pragt.
Um 15 milljónir króna hafa nú safn-
ast í landssöfnun til styrktar hand-
knattleikslandsliðinu. Sigurjón Pét-
ursson, varaformaður HSÍ, segir að
um 3 milljónir hafi safnast í gegnum
símann og 11,9 milljónir í söfnun Rás-
ar 2. „Reyndar er ekki komið fullnað-
aruppgjör úr söfnuninni því ekki hef-
ur gefist tóm til að hafa samband við
öll þau fyrirtæki sem skorað var á en
farið verður í það næstu daga. Svo
hafa ýmis sveitafélög lofaö framlögum
en við höfum ekki fengið formlegar
tilkynningar þar um. En sölunni er
ekki lokið fyrr en klinkið er komið í
kassann."
Sigurjón segir mótið hafa verið eitt
allsherjar ævintýri og að árangurinn
sé einn af toppunum í íslenskri hand-
boltasögu. „Þó ekki hafi náðst verð-
launasæti er ljóst að einhvers staðar
hlaut liðið að stoppa. Við sjáum fram
á bjarta tíma, liðið er ungt og á fram-
tíðina fyrir sér en mikil endurnýjun
hefur átt sér stað undanfarið."
DV-MYND EINAR.J
Mikil spenna
DV bauö í handboltabíó um helgina. Fjölmargir lesendur DV lögöu leiö sína í Bíóborgina þar sem leikir íslenska hand-
boltalandsliösins voru sýndir. Þessi mynd er tekin á laugardag stuttu eftir að leikur íslendinga viö Svía hófst. Mikil
stemning var í salnum en hún dofnaði nokkuö eftir því sem á leiö og Svíar sigu fram úr okkar mönnum.
Stóriðja:
Bitist um
Eyjafjörð
Valur Knútsson, formaður at-
vinnumálanefndar Akureyrarbæj-
ar, hyggur að japanski hópurinn,
sem kom á dögunum til að skoða aö-
stæður fyrir úrvinnsluverksmiðju á
áli i Eyjafirði, hafi verið ánægður
með kringumstæður. Hins vegar sé
málið á algjöru frumstigi og engan
veginn sé ljóst hvort hugmyndir
Japananna verði að veruleika.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra lýsti sömu skoðunum í
samtali viö DV í gærkvöld. Hún
sagðist ekki vilja hafa stór orð um
málið á þessu stigi, enda væru Jap-
anarnir að skoða fjögur önnur lönd.
Ekki alls fyrir löngu kom rúss-
nesk sendinefnd til að kanna að-
stæður í Eyjafirði vegna súrálsverk-
smiðju og virðast því margir renna
hýru auga til Akureyrarsvæðisins
sem möguleika fyrir orkufrekan
iðnað. Valur Knútsson segir að
orkuverðið heilli einkum en Val-
gerður segir algjörlega ósamið um
það ef einhverjar svona hugmyndir
verði að veruleika.
Valur segir að ef af Kárahnjúka-
virkjun verði séu engar aðstæður
fyrir rússnesku súrálsverksmiðj-
una. Valgerður segir að ekki sé
mjög mikil orka til á Eyjafjaröar-
svæðinu en þó væntanlega nóg til
að uppfylla þarflr Japananna. -BÞ
Hugmyndir um samstarf B- og D-lista á Húsavík:
Halldór og Halldór
á móti samkrulli
Frammámenn í Sjálfstæðisflokki og Framsókn eru lítt hrifnir af samrkulli.
Framsóknarmenn og sjálfstæðis-
menn hafa enn ekki útilokaö sam-
starf fyrir sveitarstjómarkosning-
amar á Húsavik í vor en skiptar
skoðanir eru um málið meðal
beggja flokka. Heimildir DV herma
að æðstu menn flokkanna séu alla-
jafna lítt hrifnir af hugsanlegu sam-
krulli.
Dagbjört Þyrí Þorvarðardóttir, odd-
viti Sjálfstæðisflokksins á Húsavík,
sagði í samtali við DV í gærkvöld aö
einn óformlegur fundur hefði farið
fram um málið en að öðm leyti væri
það óskoðað. Hún hafi ekki tekið per-
sónulega afstöðu en viti að sitt sýnist
hverjum. Halldór Blöndal hefur verið
sagður gegn samkruOinu og Dagbjört
Þyrí segir að sér skiljist að Halldór
Ásgrímsson, formaður Framsóknar-
flokksins, sé á móti hugmyndinni.
„Það er alveg eðlilegt. Þeir vilja
halda í sína flokka en hins vegar em
sveitarstjórnarmálin svolítið annars
eðlis. Ég er ekki tilbúin að meta
hvemig þetta fer. Það verður að
grandskoöa málið frá öllum hliðum,"
sagði Dagbjört Þyrí.
Sigurjón Benediktsson tannlæknir
sagði nýverið af sér sem bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks á Húsavík en Dag-
björt Þyrí segir að ákvörðun hans
tengist ekki samstarfshugmyndinni.
DV hefur ekki náð tali af Sigurjóni
vegna ákvörðunar hans en búið var
að bjóða honum 2. sætið i vor.
Oddviti sjálfstæðismanna segir að
sameiningarkosningar við Reykja-
hverfi séu helsta málið í augnablik-
inu og ekkert verði ákveðið um
samstarf fyrr en að loknum samein-
ingarkosningunum. Húsvíkingar og
Reykhverfingar munu kjósa um
sameininguna 9. mars nk. og segist
Dagbjört Þyrí vona að íbúarnir segi
já. -BÞ
msEnzs--
mikilvægar
Efling rann-
sókna- og vísinda-
starfs í Háskóla ís-
lands er ein mikil-
vægasta forsenda
þess að skapandi
þekkingariðnaður
fái byr undir báða
vængi á íslandi.
Páll Skúlason háskólarektor sagði
þetta við brautskráningu við skól-
ann á laugardag.
Margir mæðrastyrkir
Mæðrastyrksnefnd afgreiddi
beiðni um aðstoð frá 1335 fjölskyld-
um í desember sl. Það er mikil
aukning frá því í desember árið áð-
ur. Umsóknir frá einstæðum mæð-
um, sem í sumum tilvikum eru ör-
yrkjar, voru alls 760.
Vaka tilbúin
Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, hefur kynnt framboðslista
sinn við kosningar til stúdentaráðs
og háskólaráðs. Kosið verður síðar í
mánuðinum. Sigþór Jónsson við-
skiptafræðinemi leiðir listann og
Guðjón Ármannsson laganemi er í
öðru sæti.
Rannsoknir
Áhyggjur í Gunnarsholti
Hreppsnefnd Rangárvallahrepps
hefur sent frá sér ályktun þar sem
lýst er yfir áhyggjum af þróun mála
á Vistheimilinu Gunnarsholti. Þar
hefur verið ólga, s.s. í starfsmanna-
haldi. Er skorað á yfirstjórn Land-
spítala - háskólasjúkrahúss að bæta
úr.
Brotist inn í báta
Brotist var inn í þrjá báta í
Grindavíkurhöfn um helgina og
lyíjum stolið úr tveimur þeirra.
Ekki er vitað hverjir stóðu að inn-
brotunum, segir á vef Víkurfrétta.
Sturla fjólgar feröum
i
manns sóttu fundinn sem er sá fjöl-
sóttasti sem þingmaður hefur hald-
ið í Eyjum. Eyjafréttir sögðu frá.
Ekki aur í Árna
Árni Friðriksson RE, nýlegt skip
Hafrannsóknastofnunar, verður
bundið við bryggju fram í mars þar
sem stofnunin hefur ekki næga pen-
inga til að halda því í rekstri. Mbl.
greindi frá þessu um helgina.
Hávaði í Kaupfélaginu
Stjórn Félagsíbúða iðnnema ætlar
í skaðabótamál gegn borginni verði
ekkert gert vegna skemmtistaöarins
Kaupfélagsins á Laugavegi. Hávaði
valdi því að ekki sé íbúðarhæft i ná-
lægum húsum.
Fækka fólki
íslenska útvarps-
félagið fækkaði um
mánaðamótin um
fimm stöðugildi á
útvarpssviði sínu.
Uppsagnirnar eru
hluti af skipulags-
breytingum í
rekstri félagsins, að
því er haft er eftir Jóni Axeli Ólafs-
syni á Vísi.is
Bólusetningar hefjast
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
hefja bólusetningar gegn men-
ingókokka-sjúkdómi sem valdið get-
ur hættulegri heilahimnubólgu. All-
ir á aldrinum 3-18 ára verða bólu-
settir.