Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002
DV
13
Útlönd
Öflugur jarðskjálfti varð tugum að bana í Tyrklandi í gær:
Björgunarsveitum
hraðaö á vettvang
Öflugur jarðskjálfti í vesturhluta
Tyrklands varð að minnsta kosti 42
að bana í gær. Rúmlega eitt hundr-
að og fimmtíu menn slösuðust í
skjálftanum og nokkur fjöldi manna
var enn fastur undir rústum hrun-
inna húsa þegar síðast fréttist.
Tyrknesk yfirvöld, sem hafa sætt
harðri gagnrýni fyrir að bregðast
seint við tveimur snörpum skjálft-
um árið 1999, sendu björgunarsveit-
ir með leitarhunda þegar á vettvang
í landbúnaðarhéraðinu Afyon.
Að minnsta kosti eitt hundrað
hús hrundu í skjálftanum sem
mældist sex stig á Richter. Tugir
manna særðust þegar húsin hrundu
yfir þá á flóttanum.
Eldar kraumuðu í sumum
hrundu húsanna og einbeittu björg-
unarsveitir og slökkvilið sér að
þeim húsum þar sem talið var að
fólk væri innilokað.
REUTER-MYND
Við rústir heimilisins
Fullorðin tyrknesk hjón sitja við
heimiti sitt sem öflugur jarðskjálfti
lagði í rúst í gærmorgun.
Slegið var upp sérstökum tjöldum
þar sem hjúkrunarlið veitti særðum
fyrstu aðstoð. Þá voru matvæli og
aðstaða til eldunar send til hamfara-
svæðisins sem er um 250 kílómetra
suðvestur af Ankara.
„Stjórnvöld gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að draga úr þján-
ingum og sorg þegnanna," sagði Bu-
lent Ecevit, forsætisráðherra Tyrk-
lands, eftir að hann hafði heimsótt
jarðskjálftasvæðið.
Embættismenn sögðu í gær að
flutningabílar væru á leið til
skjálftasvæðisins með bæði tjöld og
ábreiður handa þeim sem misstu
heimili sín.
Mannskæðir jarðskjálftar eru al-
gengir í Tyrklandi þar sem mikið er
um jarðlagamisgengi. Annar skjálft-
anna árið 1999 mældist 7,4 stig á
Richter og varð hann um sautján
þúsund manns að bana.
REUTER-MYND
Hamingja í konungshöllinni
Hamingjan skein úr andlitum þeirra Willems-Alexanders, ríkisarfa í Hollandi, og hinnar argentínsku Maximu Zorregui-
eta þegar þau gengu í hjónaband í Nieuwe Kerk, eða Nýju kirkjunni, í Amsterdam á laugardag. Hátt á annað þúsund
manns komu til veislunnar, kóngafólk úr Evrópu og annað fyrirmenni. Brúðhjónin ungu héidu til Sviss í gær þar sem
þau gera sér vonir um að geta eytt hveitibrauðsdögunum í friði fyrir ágangi fjölmiðla og annarra forvitinna.
Drottningarmaður í Danmörku leggst undir feld:
Henrik telur sig vanmetinn
Henrik prins, eiginmaður Mar-
grétar Þórhildar Danadrottningar,
liggur nú undir feldi í vínkastala
sínum í Caix í sunnanverðu Frakk-
landi og endurmetur stöðu sína inn-
an dönsku konungsfjölskyldunnar.
Prinsinn segir í viðtali við
danska blaðið B.T. í gær að sér fmn-
ist hann hafa verið settur til hliðar
og auðmýktur.
Kornið sem fyllti mælinn var
nýársveisla konungsfjölskyldunnar
þar sem honum fannst hann hafa
verið lækkaður i tign, settur í þriðja
sætið á eftir Margréti drottningu og
Friðriki rikisarfa.
Þegar drottning gat ekki sinnt
gestgjafaskyldu sinni vegna veik-
inda var það Friðrik krónprins sem
tók við gestgjafahlutverkinu en ekki
Henrik. Og það sárnaðí drottningar-
manni mjög.
Vegna alls þessa kaus Henrik að
fara ekki í brúðkaup ríkisarfa
Hollands um helgina, heldur sat
sem fastast í kastalanum i Ca'ix.
„Ég fór til Ca'ix til að endurmeta
líf mitt. Ég verð að fá tíma til að
hugsa minn gang. í mörg ár hef ég
verið í öðru sæti i Danmörku og það
er hlutverk sem ég er ánægður með
en ég vil ekki skyndilega láta lækka
mig í tign niður í þriðja sæti og
gegna hlutverki eins konar ómerki-
legs viðhengis," segir Henrik
drottningarmaður í Danmörku í
viðtalinu við B.T. Hann segir’þetta
ekki tengjast sambandi sínu við eig-
inkonu sína og eldri son.
Dalvegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Sími: 544 4656
Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is
5NJDKEÐJUR
Fyrir flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiða
<íg> TOYOTA
Handlyftarar
Y KRAFTVÉLAR
Dalvegur 6-8 ■ 200 Kópavogur • Sími 535 3500 • Fax 535 3501
haraldur@kraftvelar.is • www.kraftvelar.is
rl ■ ■ ■ ■
ÞflKSKRÚFUB
1 txmuTmumv
Heithúðaúar
Ryðfrfar
flllar geröir
festinga fyrir
klæðningar
á lager.
ásc&Sa
Ármúli 17, lOB Reykjavi
símh 533 1234 fax: 55B 04£
...aðeins betra
Verið velkomin í
sýningarsal okkar og
kynnið ykkur 2002
línuna. Fagleg ráðgjöf,
stutturafgreiðslutími og
persónuleg þjónusta.
Þú þarft ekki að leita lengra
til að fá það betra
Stuttur afgreiðslutími
Lágmúla 8 • Sími 530 2800