Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002 MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002 Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson A&alritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aöstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Fróttastjóri: Birgir Guömundsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangssræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiöir ekki viömælendum fýrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Ævintýri í Rússlandi Fáir ef nokkrir höfðu trú á því að uppbygging bjór- verksmiðju í Rússlandi, þar sem uppistaðan var gömul framleiðslutæki frá íslandi, gæti skilað miklu. Margir hristu hausinn yfir því sem þeir kölluðu ævintýra- mennsku og aðrir hentu góðlátlegt grín að bröltinu. Feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor ásamt viðskiptafélaga sínum, Magnúsi Þorsteins- syni, létu úrtölu- og efasemdaraddir ekki hafa áhrif á sig og héldu uppbyggingu verksmiðjunnar undir merkjum Bravo ótrauðir áfram. Slíkt er siður athafnamanna sem hafa trú á því sem þeir eru að gera og vita hvernig fram- kvæma á hlutina. Um 12 árum eftir að ævintýrið hófst hafa þeir félagar selt bjórverksmiðjuna fyrir um 41 millj- arð króna eða svipað og samanlagt markaðsvirði Eim- skips, Olís, Skeljungs og Olíufélagsins og litlu lægra en markaðsvirði íslandsbanka. Ekki svo lítið afrek á liðlega áratug. Ævintýrið í Rússlandi er að líkindum eitt merkasta framtak íslendinga á sviði viðskipta og skiptir þá litlu hvaða mælikvarði er notaður. Verksmiðjan er ein af sex stærstu bjórverksmiðjum Evrópu - fullkomin verksmiðja með 535 milljón lítra framleiðslugetu á ári. Því kemur ekki á óvart að margir hafi litið hana hýru auga þó Heineken hafi að lokum hreppt hnossið. Bravo heldur áfram að reka verksmiðju sem framleiðir áfenga svala- drykki og kokkteila í samvinnu við Heineken. En auk uppbyggingarinnar í Rússlandi hafa feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor haslað sér völl víðar. Þeir hafa sannarlega verið í fararbroddi í út- rás íslendinga í viðskiptum. Með kaupum á lyíjafyrir- tæki í Búlgaríu, sem nú hefur verið sameinað Pharmaco, hafa þeir farið ótroðnar slóðir en uppskorið ríkulega. Reynslan sem þeir hafa aflað með viðskiptum sínum er dýrmæt eins og Björgólfur Thor benti á í samtali við DV síðastliðinn laugardag: „Hún er í raun mun verðmætari en allir seðlar og aurar sem við höfum nú.“ Arðbærar fjárfestingar og reynsla feðganna efla öðr- um, sem kunna að vera tvístígandi, dáð og þor til efna- hagslegra verka. Þeir sem slíkt gera eru með réttu nefnd- ir athafnaskáld. Gæfa íslendinga hefur verið sú að eignast athafna- skáld út um allt land til sjávar og sveita, þó á stundum hafi stjórnmálamenn og fjölmiðlungar reynt að gera slíka menn tortryggilega. En athafnaskáldin halda áfram við uppbyggingu atvinnulífsins og ryðja þannig brautina til bættri lífskjara. Strákamir okkar Frábær árangur íslenska landsliðsins í handbolta á Evrópumótinu hefur virkað sem vítamínsprauta fyrir handbolta á íslandi. Þjóðin hefur fylgst með leikjunum og dáðst að frammistöðu „strákanna okkar“, fyrirtæki hafa verið hálflömuð á meðan sjónvarpað hefur verið að sýna frá leikjunum og ungir drengir og stúlkur hafa lagt enn meira á sig við æfingar en áður. Þannig hefur bar- áttuandinn og leikgleðin smitað þjóðina og fýllt hana stolti. Árangur landsliðsins er langt umfram þær væntingar sem gerðar voru í upphafi móts þó auðvitað hefði verið gaman að leggja frændur okkar, Svía eða Dani. Til hamingju, strákar. Óli Bjöm Kárason DV Skoðun ESB og auðlegð byggðanna „Viljum nýta kraftinn og sérstöðuna, mannlífið og þá menningu sem hefur þrifist og þróast kynslóð fram af kynslóð í aldanna rás út um hinar dreifðu byggðir. “ Dreifðar byggðir íslands fela í sér mikla auðlegð. Sú auðlegð er í dag vannýtt og á síðustu tíu árum, meðan Davíð Oddsson fór með byggðamálin, hefur hún drabbast niður. Lands- byggðin hefur tapað hluta af atgervi sínu og mannauði. Unga fólkið fer og kemur sjaldan aftur eftir nám. Aðild islands aö Evr- ópusambandinu gæti falið í sér sóknarfæri fyrir hinar dreifðu byggðir. og veitir okkur færi til sóknar. Möguleikar iandsbyggðarinnar til nýrrar sóknar í gegnum Evrópusambandið er eitt af því sem menn verða að skoða for- dómalaust áður en þeir taka afstöðu til sambandsins og mögulegrar aðild- . ar íslendinga. Endurreisn íslandsbyggðar Að mati höfunda skýrslunnar um byggðamál í Evrópuúttekt Samfylk- ingarinnar eru uppbyggingarsjóðir ESB langstærsta einstaka umfjöllun- arefnið sem lýtur að byggðamálum fyrir Islendinga ef til aðildarumsókn- ar kemur. Höfundar byggja niður- stöður sínar að hluta á skýrslu utanríkisráð- herra og þar er margt fróðlegt á ferðinni. Ekki síst fyrir þau okkar sem unna og viljum endur- reisa íslandsbyggð sem kostur er. Viljum nýta kraftinn og sérstöðuna, mannlífið og þá menn- ingu sem hefur þriíist og þróast kynslóð fram af kynslóð í aldanna rás út um hinar dreifðu byggðir. Það er útúrsnúningur að setja máliö upp sem við yrðum ölm- usuþegar sem ekkert gæfum á móti, eins og þeir halda fram, sem vilja bannfæra opna um- ræðu um ESB. Við höfum margt að færa Evrópu úr farteski íslenskr- ar sögu og þjóðarreynsíu. Við eigum og þurfum að nýta kosti alþjóðasam- starfsins til hins ýtrasta til góðra verka í okkar eigin samfélagi. Sérstaöa íslands Þátttaka íslands í uppbyggingar- og framkvæmdasjóðum ESB myndi kalla á róttæka uppstokkun á þeirri byggðastefnu sem nú er rekin á Is- landi. Hvernig málum lyktar að lok- um er að sjálfsögðu undir þeim samningi komið sem viö næðum að loknum viðræðum. Hvað uppbygg- ingarsjóðina varðar þá nýtur ísland margháttaðrar sérstöðu. Hún felst m.a. í fjarlægð frá öðrum löndum, veðurfari og fólksfæð. Einangrunin frá evrópskum mörk- uðum spilar þar inn í og sá mikli fólksflótti sem átt hefur sér stað síð- asta áratuginn hérlendis. Innan ESB ríkir sú stefna að vinna skuli gegn þessum þáttum og stuðla að upp- byggingu dreifðu byggðanna. Endurheimtum afl byggðanna Markmið uppbyggingarsjóðanna hafa nú verið endurskilgreind og þeim fækkað. Markmið þeirra er að gefa þjóðum eins og okk- ur tækifæri á að endurheimta afl hinna dreifðu byggða. Þau miða að því að stuðla að þróun og uppbyggingu svæða sem dregist hafa aftur úr öðrum svæðum, að stuðla að efna- hagslegri og félagslegri upp- byggingu svæða sem standa frammi fyrir erfiðleikum, að stuðla að aðlögun og nútíma- væðingu menntastefnu og skólakerfa, starfsþjálfunar og atvinnu. Af þessu stutta yfirliti yfir þau tækifæri sem felast í aðild að ESB fyrir hinar dreifðu byggðir má sjá að margt þarf að athuga þegar rætt er um mögulega umsókn okkar um aðild. Um er að ræða kosti og galla fyrir alla helstu þætti samfélags okk- ar en ef við berum ekki gæfu til að fara ítarlega og ígrundað yfir það gætum við staðið frammi fyrir glöt- uðum tækifærum og óbætanlegu tjóni. Þá gildir einu hvort við horf- um til hinna dreifðu byggða eða komandi kynslóða íslendinga. Össur Skarphéðinsson Gamanið er „grátt“ Snemma á þessum vetri birti ung- ur heimspekingur landsmönnum þau tíðindi, og þóttu nýstárleg, að lítill sem enginn munur væri á stjórn- málaflokkunum. Istefhuskrám sínum legðu þeir allir áherslu á sömu eða svipaða hluti: lýðræði, jöfnuð, þjóð- legt sjálfstæði o.s.frv. Tíðindin voru reyndar ekki nýstárlegri en svo, að fyrir einum fjórum áratugum orðaði fyrrum leiðtogi Frjálslynda flokksins í Bretlandi, Joseph Grimmond, svip- uð viðhorf. Sagði hann m.a. að stjórn- málabaráttan væri orðin rislág og þvi líkust sem allir flokkar væru að reyna að selja sömu vöru, einungis í mismunandi umbúðum. Þetta er vissulega nærri lagi að svo miklu leyti sem stjómmálaflokkarnir halda einatt á loft hugsjónum sem þeir hafa tekið traustataki hver frá öðrum. TO dæmis má minna á að Sjálfstæðisflokkurinn barðist á sín- um tíma með oddi og egg gegn þjóð- þrifamálum á borð við vökulög, líf- eyrissjóði, ellOífeyri, sjúkrasamlög, sumarleyfi - yfirleitt öOu sem miðaði að aukinni velferð alþýðu manna, en telur sig nú berjast fyrir þessu öOu og öðru sem hann hyggur að gangi i augun á kjósendum. Hitt er svo annar handlegg- ur, að orð og athöfn eru sift hvað, og þegar tO framkvæmda kemur er næsta augljós skOs- munur á flokkum til vinstri og hægri, þó vissulega sé bilið mOli þeirra tO muna mjórra en fyrir fáeinum áratugum. Grimm sérhyggja hægrimanna og samhyggja vinstrimanna verða seint sættar. Klúbbur atvinnumanna Gagnkvæm nálgun flokkanna helgast meðal annars af því, að stjórhmálavafstur er að stórum hluta orðið atvinnumennska. Stjórnmála- menn hafa myndað með sér klúbb, eitthvað í líkingu við leýnisamtök frimúrara, þarsem þeir hygla hver öðrum og verja hver annan fyrir óæskilegri hnýsni og gagnrýni-sam- borgaranna. Þessi pólitíska samá- byrgð lýsir sér til dæmis í hlægilega skömmum vinnutíma alþingis- manna (tæpt hálft ár á fuOum árs- launum) og margvíslegum skattfríð- indum og sporslum sem þeir skammta sjálfum sér í skálkaskjóli svonefnds kjaradóms. I reynd felast athafnir einstakra stjórnmálamanna ekki fyrst og fremst í baráttu gegn frambjóðend- um og fuOtrúum annarra flokka, heldur gegn keppinautum í eigin flokki. Þeir óttast ekki að verða í minnihluta á þingi eöa í sveitar- stjóm, þvi tap og sigur skiptast jafn- an á, heldur hræðast þeir að fá ekki að taka þátt í leiknum, fá ekki fram- boð eða trúnaðarstöðu í flokki sínum. Það er á sjálfu flokksheimilinu sem menn faOa, því svo- kallaðir andstæðingar í öðrum flokkum geta eng- um ýtt frá þátttöku í stjórnmálavafstrinu. Þannig verða andstæð- ingamir i rauninni minni andstæðingar en samherjamir, og má segja til sanns vegar færa að atvinnustjóm- málamenn, án tdlits tO flokka, sameinist aOir andspænis kjósendum, þarmeð töld- um sínum eigin kjóséndum og sínum eigin flokkssystkinum, sem ekki hafa komist nógu innarlega á bekk á flokksheimOinu og hafa sameigin- legra hagsmuna að gæta gagnvart þeim. Trúðleikur Það sjónarspil sem Reykvíkingar hafa nýlega orðið vitni að í sam- bandi við framboð Sjálfstæðisflokks- ins í næstu borgarstjórnarkosning- um, er skóladæmi um leynda og ljósa innbyrðis baráttu flokkssystk- ina um bestu sætin á bekknum. Sú barátta er stundum háð undir for- merkjum „fórnfýsi": menn segjast vera að fórna sér fyrir flokkinn með því að draga sig í hlé eða rýma fyrir öðrum, en áOt er það einber trúðleik- ur sem ætlað er að draga dul á þau óvægnu lögmál sem stjórnmálabar- áttan er undirorpin: „en bróðemið er flátt mjög / og gamanið er grátt, / í góðsemi vega þeir þar hver annan“. Sigurður A. Magnússon „Þessi pólitíska samábyrgð lýsir sér til dœmis í hlœgi- lega skömmum vinnutíma alþingismanna (tœpt hálft ár á fullum árslaunum) og margvíslegum skattfríðind- um og sporslum sem þeir skammta sjálfum sér í skálkaskjóli svonefnds kjaradóms. “ Forkastanleg forræðishyggja „Ein hættulegasta at- laga að eignarétti ein- staklinga eru nýju tó- baksvarnarlögin. Þar er einstaklingum bannað að ráðstafa eignum sín- um að vOd. Jafnvel vOja stjórrivöld kikja á glugga heim- Oa og athuga hvort fólk svæli eina rettu við einhverjar sérstakar að- stæður. Og hvað á að þýða að banna finkoma neftóbak og munntóbak? Þessi forkastanlega forræðishyggja er furðuleg og í raun rannsóknarefni hvernig slík lög komust i gegnum Al- þingi. Einnig er málfrelsið heft þar sem ekki má tala á jákvæðan hátt um tóbak! Verður ekki að krefjast svara hjá þingmönnum Sjálfstæðis- flokksins?" Björgvin Guðmundsson á frelsi.is Merkin um batann „Það er ljóst aö mörg fyrirtæki hafa verið að nota sér umræðuna í samfélaginu um niður- sveiflu sem ástæðu fyrir uppsögnunum án þess að farið sé að sverfa að þeim að því marki sem gerir þessar aðgerðir nauðsynlegar. Þetta getur valdið hraðari niðursveiflu án þess að brýn þörf sé hjá fyrirtækjum. Vissu- lega hefur dregið úr framkvæmdum en það er ekkert óeðlOegt við það miðað við árstíma. Ljóst er einnig að það fólk sem hefur minnstu menntunina og veikasta stöðu á vinnumarkaði missir oftast fyrst vinnuna á vinnustaðmun. Öll él styttir upp um síðir. Merki um bata í efnahagslífinu má sjá á sjón- deOdarhringnum." Sigurður Bessason, á efling.is Spurt og svarað A að breyta skólakeifinu þannig að íslenskir unglingar Ijúki stú - ^ . - Baldur Gíslason, skólam. Iðnskólans í Reykjavík: Áhrif á atvinnulífið „Töluverður hópur lýkur nú framhaldsskóla við 19 ára aldur. Þar eru t.d. nemendur í starfs- námsbrautum sem ljúka skólanáminu 18 tO 19 ára og fara þá í starfsþjálfun á vinnumarkaðinum. Við leng- ingu skólaárs i framhaldsskólanum þarf að skoða bet- ur áhrif þess á s.s. byggingariðnaðinn. Á hverju sumri er verulegur hópur nemenda af starfs- og iðn- menntabrautum sem fer í byggingastörf, einmitt þeg- ar mest er að gera. Verða oft stór hluti vinnuaflsins á álagstímum. Hitt er svo annað mál að stytting náms tO stúdentsprófs er í sjálfu sér ekki mikið mál í skól- um sem nota áfangakerfi. Það eru hinir fáu hefð- bundnu menntaskólar sem verður erfiðara með.“ Sigurður Sigursveinsson, skólam. Fjölbrautáskóla Suðurlands: Forsendur og fyrirvarar „Það er eðlOegt að menn velti því fyrir sér hvort íslenskir nemendur eigi ekki að geta lok- ið framhaldsskóla fyrr en nú er. Smám saman eru að verða tO forsendur fyrir slíkri breytingu með endurskoðun námskráa og meiri sveigjanleika í starfi grunnskóla og fram- haldsskóla. Hrein hagfræðileg athugun á málinu með alls konar forsendum og fyrirvörum tekur einungis tO hluta álitamálsins, og sumar niðurstöður orka þar tvímælis, tO dæmis að stytting fram- haldsskóla dragi úr brottfaUi.“ Guðrún Ebba Ólafsdóttir, formaður Félags grunnskólakennara: Opnar umrœðuna „Ekki er óeðlilegt að við velt- um fýrir okkur hvort það komi ungu fólki á íslandi betur eða verr að brautskrást með stúdentspróf einu tO tveimur árum eldri en í nálægum löndum. Það er gott framtak hjá VR að láta gera þessa skýrslu; það opnar umræðuna út frá hagfræðOegum for- sendum. Hinar hliðar málsins eru t.d. innihald náms, hagsmunir nemenda og menntastefnan í víðu samhengi. I umræðu um að' flýta lokum grunnskóla ber að hafa í huga að framhaldsskól- ar eru ekki í hverri byggð landsins, sem myndi þá þýða að unglingar fjórtán til fimmtán þyrftu að fara þá svo ung að heiman.“ Reinhard Reynisson, bœjarstjóri á Húsavík: Er nám full vinna? „Að mínum dómi er full ástæða til að skoða allar hug- myndir þar aö lútandi. I ljósi at- vinnuþátttöku íslenskra framhaldsskólanema hlýtur sú spurning að vakna hvort nám á þvi skólastigi sé í raun fuO vinna. Þjóðhagslega hlýtur að vera skynsamlegra að setja meiri kraft í námið þannig að sú þekking sem nemendur afla sér skili sér fyrr út í at- vinnulífið. Nauðsynlegt er að íslensk skóla- stefna sé sífellt tO umræðu og endurskoðunar, ekki síst í ljósi þeirra hröðu breytingar á at- vinnuháttum og í raun á þjóðlífinu öOu sem nú eru að verða." Þetta vill VR. Hagfræöistofnun HÍ hefur gert skýrslu um málið. Segir að ef börn hefji grunnskólanám ári fyrr, skólaárið verði lengt og heiidarnámstími styttur megi auka þjóðartekjur um milljaröa. 4- Lífskjör og þjóðhollusta Oft fara landsfeður og ábyrgðarfuOir stjórnendur hagkerfa með þuluna um að það varði þjóðarheiO að launþegar geri hófsama kjarasamninga og varist að sprengja þá ramma sem settir eru um efnahagslífið. Þegar orðið er viö tOmæl- unum er launþegaforyst- unni klappað á koOinn og hún skjöOuð með hóli um þjóðarsáttir og hve ábyrgð- arfuO hún sé. En samt leika efnahagskerfin á reiöi- skjálfi og eru að springa út úr römm- um sínum. I launapólitíkinni er nefnilega vitlaust gefið eins og víðar í lífskjaraspilinu mikla. Samkvæmt launavísitölu Hagstofu íslands hafa laun opinberra starfs- manna og bankamanna hækkað um- talsvert fram yfir kaup á almennum vinnumarkaði undanfarin ár og breikkar bilið fremur en hitt. Hið op- inbera og peningastofnanir fylgja greinilega ekki sömu launastefnu og ætlast er til að gert sé á almennum vinnumarkaði. Fyrst og fremst er það ríkið sem spennir upp launin og hefur þannig forystu í þeirri launapólitík sem efnahagskerfið stendur iOa undir og æsir upp verð- bólgu með tilheyrandi óáran. Kapphlaupiö við rauðu strikin í maí er lífróður undan heimatObún- um hremmingum sem ríkisvaldið og peningavaldið eiga upptök að. Kjara- dómur er það tæki sem ábyrgðar- snauðir pólitíkusar nota tO að stór- bæta laun sín og kjaraaðalsins sem á eftir fylgir, langt fram yfir það sem leyfist á öðrum vinnumarkaði. Að- skOjanleg samtök opinberra starfs- manna fylgja síðan á eftir og er Olt að neita þeim um kjarabætur eftir að Kjaradómur er búinn að dida þeim sem betur mega á kostnað skatt- greiöenda. Yfirmenn meira og minna ríkisrekinna peningastofnana dingla svo á eftir og munar ekkert um aö hækka vexti og aOs kyns gjöld til að mæta auknum launakostnaði. Óþarfi er að misskiija það sem hér er skrifað. Hér er ekki veriö áö am- ast viö sæmilegum kjörum opin- berra starfsmanna eða bankamanna, þau mættu gjarnan vera enn betri, en aðeins verið að benda á mismun- un og aðstöðumun. Oddur Olafsson skrífar: beita Kjaradómi fyrir sig til að æða fram úr öðrum stétt- um í launum og fríðindum og þykjst svo hvergi nærri koma þegar hervirkin eru unnin. Eftir höfðinu dansa svo limirnir, en almenni vinnumarkaðurinn á einn að standa við þjóðarsáttir og sitja eftir þegar kjarabót- um er úthlutað og passa upp á verðbólguþróunina. Ef einhver velkist í vafa um mismununina má benda á að framkvæmda- stjóri ASÍ sýnir fram á að hans um- bjóðendur sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum eru á allt öðrum kjör- um en þeir sem eru í félögum þeirra opinberu. Hann segir líka í blaðavið- tali að til viðbótar mismunandi launaþróun sé líka ljóst að ýmis rétt- indi, svo sem varðandi lífeyrissjóði, séu ekki talin með og mundu gera samanburðinn enn verri en eOa væri svo gert. Tvær stéttir launþega Ömurlegast er þegar forystumenn launþegahreyfinga eru jafnvel enn skilningssljórri en sjálfsánægðir pólitíkusar á þau kjör sem algengust eru í landinu. Þannig fer hagfræði- menntaður formaður bankamanna mikinn i grein sem hann skrifar tii að ófrægja tvo starfsmenn ritstjórn- ar DV fyrir skrif þeirra um lífeyris- sjóði. Svo kirfilegur er sá útúrsnún- ingur að hann hæfir varla öðrum en ómerkilegustu pólitíkusum í kosn- ingaham og þvi ekki við hæfi að leið- rétta missagnir og rangfærslur sem þar eru á borð bornar. En það dæmi sýnir ef tO vOl að í landinu eru tvær stéttir launþega sem bera lítið skynbragð á kjör hver annarrar. Enginn láir opinberum starfsmönnum og bankamönnum að bæta lífskjör sín eftir því sem kostur er á. Hitt kann að vera ámælisvert að valdamenn ráðuneyta, sveitarfélaga og fjármálastofnana bæta eigin laun og fríðindi upp úr öOu valdi og starfs- fólk þeirra fylgir i humátt á eftir. En þegar kemur aö fólkinu á vinnumarkaði þar fyrir utan á það eitt að lagfæra það sem misferst í efnahagsstjórninni. Það sannast á því að það er for- ystulið ASÍ sem nú hamast við að passa upp á að kaupið hækki ekki þegar rauða strikið verður dregið yfir getu- leysi peninga- valdsins til að hafa stjórn á efna- hagsmálum. Skilningsleysi Ætlist ríkisvaldið til að aðildarfé- lög ASl sýni ein þá þjóðhollustu að rýra kjör sin til að leiörétta vonda efnahagsstjórn sýnir það aðeins hve skOningsvana stjórnendur landsins eru á hver raunveruleg kjör skuld- um vafinna láglaunastétta eru. Kjömir fulltrúar og embættismenn og peningastofnanir fylgja greinilega ekki sömu launastefnu og œtlast er til að gert sé á almenn- um vinnumarkaði. Fyrst og fremst er það ríkið sem spennir upp launin og hefur þannig forystu í þeirrí launapólitík sem efnahagskerfið stendur illa undir og œsir upp verðbólgu með tilheyrandi óáran. < < r- #

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.