Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002
Landið
DV
Kaupfélagiö, Húsasmiðjan og BYKO bjóða í steinullarbréf:
Skagfirðingum
fannst lágt boðið
Þessa dagana er unnið að sölu á
hlutabréfum Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar í SteinuUarverksmiðjunni.
Kaupfélag Skagfirðinga ásamt Byko og
Húsasmiðjunni sendu inn tilboð á dög-
unum i bréfin og einnig i hlutabréf
finnska aðilans Poroc og hefðu þá
þessi fyrirtæki eignast meirihlutann í
Steinullarverksmiðjunni. Byggðarráð
sendi síðan i samráði við finnska fyr-
ÍWWl
. BILABUÐ
RA BBA
:: Tangarhöföa 2 :: Sími 5671650 ::
Glói ehfs: 544 5770
Dalbrekku22 Kóp.
www»gloiJs
irtækið gagntilboð og er boltinn núna
hjá tilboðsgjöfunum. Poroc á 24% í
Steinullarverksmiðjunni, Sveitarfélag-
ið Skagaflörður 24%, ríkissjóður 30%,
GLD (Húsasmiðjan og Byko) 12% og
KS 4%, auk íjölmargra einstaklinga.
Samkvæmt hennildum DV buðu KS
og félagar 2,65 í bréfm sem þýddi að
sveitarfélagið hefði fengið 175 mifljón-
ir fyrir þau en byggðarráði fannst það
ekki nóg, enda hafði það í samráði við
ftnnska aðilann gefið út að æskilegt
verð fyrir bréfm væri á genginu 3,05,
eða 203 milljónir fyrir bréf sveitarfé-
lagsins. Svo virðist sem millileiðin hafi
verið farin i gagntilboðinu þar sem í
fjárhagsáætlun, sem lögð var fram á
fundi sveitarstjómar á þriðjudag, er
gert ráð fyrir 185 milljónum fyrb- stein-
ullarbréftn.
Snorri Styrkársson, formaður
byggðarráðs, segir að vitaskuld sé
ómögulegt að segja til um hvað ná-
kvæmlega gæti fengist fyrir bréfin en
það hefði verið endaslagið að setja
þessa upphæð inn í fjárhagsáætlunina
en hún er nokkuð hærri en sú sem sett
var inn í fjárhagsáætlunina fyrir einu
ári. Þá var hún 145 milljónir og hefur
því hækkað um 40 mifljónir milli ára.
Þess má geta að rekstur Steinullar-
verksmiðjunnar hefur gengið vel síð-
ustu árin. Á seinasta ári bætti verk-
smiðjan við sig pökkunarbúnaði ásamt
húsnæði er kostaði um 170 milljónir
króna og greiddi verksmiðjan þá fram-
kvæmd af eigin fé. -ÞÁ
DV-MYND ÞÖRHALLUR ÁSMUNDSSON
Góður rekstur
Nýja pökkunarstöðin í Steinullarverksmiðjunni tekin í notkun í lok ársins.
Rekstur verksmiðjunnar hefur gengið prýðilega að undanförnu.
Hækkanir afturkallaðar í Árborg:
Slaum ekki af framkvæmdum
- segir Karl Björnsson bæjarstjóri
Bæjarráð Ar-
borgar samþykkti
á fundi sinum
fyrir helgi ráðstaf-
anir til að leggja
sitt af mörkum til
að vinna gegn
verðhækkunum í
þjóðfélaginu. Sam-
þykkt var að
draga til baka áð-
Karl Björnsson.
ur samþykkta 5,3% hækkun álagning-
arhlutfalls holræsagjalds sem verður
óbreytt frá fyrra ári, 0,15%. Dregin
verður til baka áður samþykkt 15%
hækkun sorpgjalds á íbúðarhúsnæði
sem verður óbreytt, kr. 9.000 á íbúð á
ári. Þá var ákveðið að veita 15% af-
slátt af lóðarleigu vegna íbúða- og at-
vinnulóða í sveitarfélaginu vegna
hækkunar á lóðarmati milli ára.
„Það er ekki gert ráð fyrir að draga
úr framkvæmdum hjá sveitarfélaginu
til að mæta þessu, hugsanlega náum
við fram spamaði í öðrum liðum á
móti þeim samdrætti í tekjum,“ sagði
Karl Björnsson, bæjarstjóri Árborgar,
viö DV.
Karl segir að þar sem þessar breyt-
ingar á tekjulið sveitarfélagsins komi
í upphafi ársins sé hægt að eiga við
áhrifin út árið. Síðan verði fjárhags-
áætlun endurskoðuð í haust, þá verði
hægt að meta áhrifin og bregðast við
henni. „Þó ætlum við ekki að hækka
þessa liði aftur í haust,“ sagði Karl.
Hann segir hækkun á lóðamati sem
kom í fyrra frá Fasteignamati hafi
verið það mikil að afsláttur af lóðar-
leigu nú sé viðráðanlegur vegna
þeirrar breytingar. Hækkun holræsa-
gjalds sem nú hefur verið dregin til
baka átti að koma til móts við miklar
framkvæmdir sem Árborg stendur í
vegna lagningar nýrrar stofnæðar
fyrir holræsakerfið.
„Þær framkvæmdir eru það miklar
að áhrif lækkunarinnar hefur ekki
mikil áhrif á framkvæmdirnar, þar
verður haldið áfram framkvæmdum
að settu marki," sagði Karl. Hann tel-
ur að þetta útspil Árborgar ásamt því
sem önnur sveitarfélög hafa verið að
gera undanfarna daga vegi sitt í að
koma til móts við sett markmið í að
halda verðbólgunni innan settra
markmiða.
„Tekjulækkun Árborgar vegna þess-
ara breytinga er um kr. 10-llmilljónir
króna. Þessar lækkanir koma hlutfalls-
lega best út fyrir tekjulága hópa sem
búa í eigin húsnæði þar sem um jafiia
krónutölulækkrm er að ræða í sorp-
hirðugjöldunum. -NH
DV-MYND NJORÐUR HELGASON
Grafið áfram
Karl Björnsson segir að þrátt fyrir
samdrátt í tekjum verði ekki slegið
af framkvæmdum á vegum Árborgar.
Hér er verið að vinna við nýtt stofn-
ræsi bæjarins við Þóristún.
Veðurklúbburinn:
Afram rysjótt og
fer kólnandi
Veðurklúbburinn á Dalbæ spáir því
að veðrið i febrúar verði dálítið
köflótt. Segja að það sé svo mikið af
veðurpunktum sem komi undarlega
fyrir að snúið sé að spá í hvernig veðr-
ið verði. En klúbbfélagar eru síður en
svo svartsýnir á febrúarveðrið.
Hitinn verður undir meðallagi en
það virðist alltaf hlýna inn á milli.
Ekki er hægt að segja að stöðugleiki
einkenni veðrið, rysjótt tíð mun betur
eiga við febrúar. Það á eftir að snjóa
eitthvað. Kannski ekki mikið miðað
við árstíma, en þó meira en verið hef-
ur fram að þessu, alla vega norðan-
lands. Vaxandi kuldi mun þó sjá til
þess að sá snjór sem sest kemur tO
með að hafa einhverja viðveru. Það
verður einhver breyting á áttum, til
dæmis þar sem ekki hefur gefið á sjó.
Þar eru líkur á að einhver breyting
verði, kannski ekki alveg strax en sjá-
um til með það, segja spámenn Dalbæj-
ar.
Nýtt tungl kviknar í austri þann 12.
febrúar, á sprengidaginn. Sumir setja
spurningarmerki við breytingar í
kringum tunglkviknunina. Við fylgj-
umst vel með því hver sú breyting
verður því klúbbfélagar telja að ekki
sé gott að fá neikvæða breytingu rétt í
kringum öskudaginn.
Margir hafa haft samband við Veð-
urklúbbinn af Norðurlandi með vanga-
veltur um hve lítið barómetið hefur
rótað sér í langan tíma. Klúbbfélagar
eru sammála þessu og finnst sumum
þetta sérstakt.
Frá Dalvík.
„Við sögðum frá einum félaga okkar
sem dreymdi veðurdraum en vildi
ekki deila honum með okkur hinum
strax, það er sennilega einhver snjó-
koma og norðanskot í þessum draumi.
En félaginn vill enn geyma að hann
rætist og hvort þaö verður í lok mán-
aðarins eða í byrjun þess næsta skal
ósagt látið,“ segir í spá Veðurklúbbs-
ins á Dalbæ.
Kyndilmessa er 2. febrúar.
Efí heiöi sólin sést
á sjálfa kyndilmessu,
vœnta snjóa máttu mest,
maöur upp frá þessu
(Sumir segja að ef i heiði sólin sest
en ekki sést og getur það gert nokkurn
mun)
Um góuna er svo að orði komist:
„Grimmur skyldi góudagur hinn
fyrsti, annar og hinn þriðji, þá mun
góa góð verða.
Annars boðar það vorharðindi ef
góan er góð.
Ef hún góa öll er góö,
aó því gœti mengi,
þá mun harpa, hennar jóð
heröa á mjóa strengi
En flestir þekkja hana svona:
Ef hún góa öll er góó,
öldin má það muna,
þá mun harpa, hennar jóö
heröa veóráttuna. -HIÁ
•trúleg vetrarævintýri fyrir norðan! %
- - ; | |Y * ÍJiS
SPORTFERÐIR
Akureyri - Mývatn
Netfang: sporttours@sporttours.is
www.sporttours.is - sími 461 2968
SBA-NORÐURLEIÐ
FLUGFÉÍAG ÍSIANDS '