Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Page 12
12 Útlönd MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002 DV REUTER-MYND Látinna minnst í Londonderry Ættingjar þeirra sem féllu fyrir kúl- um breskra hermanna í London- derry fyrir 30 árum og þúsundir ann- arra minntust voöaverkanna í gær. Þúsundir minn- ast blóðbaðs Þúsundir manna gengu um regn- votar götur borgarinnar Londond- erry á Norður-írlandi í gær til að minnast þess að þrjátíu ár eru liðin frá svokölluðum „blóðugum sunnu- degi“ þegar breskir hermenn drápu þrettán baráttumenn fyrir mann- réttindum. Drápin 30. janúar 1972 vöktu mikla reiði meðal kaþólskra ibúa Norður-írlands. Deilur þeirra við mótmælendatrúarmenn breyttust í allsherjarskæruliðastríð þar sem 3.600 manns hafa týnt lífi. Áhrif drápanna gætir enn i erfíð- um samskiptum trúarhópanna. Enginn bresku fallhlífarhermann- anna, sem tóku þátt í drápunum á sínum tíma, hefur sætt ákæru fyrir gjörðir sínar. Yfirmenn Enron hirtu milljónir dollara í hagnað Innanhússkýrsla úr gjaldþrota bandaríska orkusölufyrirtækinu Enron sýnir að fyrirtækið gerði of mikið úr hagnaðí sínum á sama tíma og nokkrir æðstu starfsmenn þess hirtu milljónir dollara í hagnað sem þeir hefðu aldrei átt að fá. Háttsettir bandarískir þingmenn sögðu í gær að nokkrir forráða- manna Enron gætu átt yfir höfði sér að verða sóttir til saka. „Þetta er hrikaleg skýrsla. Það má heita að spillingin sé landlæg hér,“ sagði öldungadeildarþingmað- urinn Byron Dorgan í þætti á sjón- varpsstöðinni NBC. Þúsundir starfsmanna misstu vinnuna og lífeyrissparnað sinn við gjaldþrot Enron í desember. REUTER-MYND Mary Robinson Mannréttindastjóri SÞ vill aö hnatt- væöingarsinnar leyfi atmenningi aö vera með í stefnumótuninni. Hnattvæðingin verði siðvædd Mary Robinson, mannréttinda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði stjómmálaleiðtogum og kaupsýslu- mönnum á efnahagsráðstefnunni World Economic Forum að stórfyr- irtæki og stofnanir yrðu að vera ábyrgari. Ella myndu þau mæta vaxandi andstöðu almennings og fá- tækra rikja. „Við þurfum að siðvæða hnatt- væðinguna," sagði Robinson á fjórða degi fundarins í New York. Sívaxandi bil milli ríkra og fá- tækra þjóða hefur verið helsta um- ræðuefnið á ráðstefnunni. íranar sakaðir um að aðstoða talibana við að flýja: Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels, sagði í gær að loforð Yass- ers Arafats, forseta Palestínu- manna, um að binda enda á árásir á ísraelska borgara væri „góð byrj- un“. Hann hvatti Arafat jafnframt til að fylgja orðum sinum eftir í verki. Peres sagði í ávarpi á efnahags- ráðstefnunni World Economic For- um í New York að Arafat yrði að hafa hemil á fjölda vopnaðra hópa harðlínumanna ef hann vildi sjá draum sinn um sjálfstætt ríki Palestínumanna rætast. Arafat hefur verið í herkví ísra- elsmanna á skrifstofum sínum á Vesturbakkanum frá því í desember og bandarísk stjórnvöld leggja hart að honum að berjast gegn palest- ínskum harðlínusamtökum. „Ef Arafat gerir það sem hann hefur sagst ætla að gera er það góð REUTER-MYND Rjúkum ekki burt Colin Powell utanríkisráöherra segir bandarísk stjórnvöld ekki snúa baki við deilendum í Miö-Austurlöndum. REUTER-MYND Meö finu fólki í Feneyjum Kjötkveöjuhátíöin í Feneyjum á Italíu er hafin meö tilheyrandi gleðskap og spássitúrum í sínu fínasta pússi. Þessi mynd var tekin í gær af hópi fólks í dæmigeröum búningum frá Feneyjum fyrri tíöar. Fólkiö gekk um götur borgarinnar til aö sýna sig og sjá aöra. Kjötkveöjuhátíðin í Feneyjum er einhver sú elsta á Ítalíu og á ári hverju laöar hún mikinn fjölda feröamanna, bæöi innlendra og erlendra, til borgarinnar fögru. Arafat lofar að binda enda á árásir á almenning í ísrael: Shimon Peres hvetur forseta Palestínu til aö láta verkin tala byrjun,“ sagði Peres. Þar var ísraelski utanríkisráð- herrann að bregðast við grein Arafats í New York Times í gær þar sem hann greindi frá hugmyndum Paiestínumanna um frið. Arafat sagði í greininni að Palestínumenn væru reiðubúnir að setjast niður með hvaða ísraelskum leiðtoga sem væri til að binda enda á átökin, sem nú hafa staðið linnulaust í sextán mánuði, og semja um frið. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lýsti í gær yfir ánægju sinni með að Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, hefði hitt fulltrúa Palestínumanna á dögunum og hét því að bandarísk stjórnvöld myndu gera slíkt hið sama. Powell sagði í sjónvarpsviðtali að Bandaríkin gætu ekki snúið baki við deilendunum fyrir botni Mið- jarðarhafs. Líkið sem fannst í Karachi ekki Pearl Votviörasamir vetur Breskir og sænskir vísindamenn segja að útlit sé fyrir að á næstu 100 árum muni mjög votviðrasömum vetrum fjölga mjög í Norður- og Mið-Evrópu, meöal annars vegna gróðurhúsaáhrifanna. Músiímar drepnir Stjórnarherinn á Filippseyjum, sem naut aðstoðar orrustuþotna, drap sextán islamska skæruliða með tengsl við al-Qaeda hryðjuverkasam- tökin í átökum um helgina. Kohl leggur íhaldinu lið Helmut Kohl, fyrrum Þýska- landskanslari, segir i tímaritsviðtali sem birtist í dag að flokkur hans, Kristilegir demó- kratar, eigi að geta unnið kosningarn- ar i haust þar sem stjórn Schröders hefði klúðrað efnahagsstjórninni. Kohl ætlar að leggja sitt af mörkum til þess að svo megi verða. Kasmír efst á blaði Indversk stjórnvöld sögðu í gær að framtíð pakistanska hluta Kasmírs yrði efst á blaði ef fundað yrði með stjórnvöldum í Islamabad en neituðu jafnframt að hafa sett það skilyrði fyrir viðræðum að hér- aðinu yrði skilað. Mugabe verði felldur Morgan Tsvang- irai, leiðtogi stjórn- arandstöðunnar í Simbabve, hóf kosningabaráttu sina í gær með því að hvetja lands- menn til að koma Robert Mugabe for- seta frá völdum. Tsvangirai sagði landsmenn ekki hafa efni á forseta sem legði landið i rúst. Stríðsherrar berjast Nokkrir afganskir stríðsherrar héldu áfram bardögum sinum um áhrif og völd um helgina. Háttsettur foringi i friðargæslusveitunum seg- ir að fjölga þurfi þeim til muna. Bandariskir embættismenn sögðu á ráðstefnu um öryggismál í Múnchen um helgina að Evrópu- þjóðir yrðu að verja meira fé til landvarna ef þær vildu að NATO skipti áfram einhverju máli. Fulltrúi bandaríska utanríkis- ráðuneytisins staðfesti í gærkvöld að lík sem fannst í borginni Karachi í Pakistan væri ekki af Daniel Pearl, blaðamanni Wall Street Joumal. Öryggisfulltrúi utanríkisráðu- neytisins í Washington, sem hafði margoft hitt Pearl, gerði sér ferð á sjúkrahús í Karachi til að skoða lík- ið. Að sögn talsmanns utanríkis- ráðuneytisins staðfesti fulltrúinn að hinn látni væri ekki Pearl. Lögreglustjórinn í Karachi hafði nokkru fyrr sagt fréttamanni Reuters að líkið væri ekki af Pearl, þvert ofan í fréttir bandarískra sjón- varpsstöðva. „Við höfum sýnt starfsbræðrum Pearls líkið og þeir hafa staðfest að það sé ekki af Daniel," sagði lög- reglustjórinn, Tariq Jamil. Daniel Pearl hvarf í Karachi þann 23. janúar siðastliðinn þegar hann var að reyna að komast í samband við hóp harðlínumúslíma sem talið er að séu í tengslum við sádi-arab- íska hryðjuverkamanninn Osama bin Laden sem grunaður er um að hafa staðið fyrir árásunum á New York og Washington í september. Donald Rumsfeld, landvarnaráð- herra Bandaríkjanna, sakaði í gær írönsk stjómvöld um að aðstoða talibana og liðsmenn al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna við að flýja Afganistan. Tæp vika er síðan George W. Bush Bandaríkjaforseti sakaði Iran, írak og Norður-Kóreu í stefnuræðu sinni um að mynda það sem hann kallaði „öxulveldi hins illa“ sem væru staðráðin í að komast yfir gj örey ðingarvopn. Ummæli Bush hafa vakið ugg í brjósti margra vinveittra þjóða. Háttsettir bandarískir embættis- menn héldu hins vegar uppi vöm- um fyrir forseta sinn í bandarísku sjónvarpi í gær og gætti óþreyju í orðúm þeirra í garö bandamanna sem hafa gagnrýnt Bush. REUTER-MYND Daniel Pearl Bandarískir embættismenn sögðu í gær aö lík sem fannst í Karachi í Pakistan væri ekki af blaðamanni Wall Street Journal, eins og þó haföi veriö haldið fram fyrr um daginn. Varnir endurskoðaðar Jonathan Motz- feldt, formaður grænlensku heima- stjórnarinnar, sagði eftir fund með And- ers Fogh Rasmus- sen, forsætisráð- herra Danmerkur, fyrir helgi að ákvörðun um endurskoðun samn- ingsins um varnir Grænlands sem, gerður var við Bandaríkin 1951, væri framfaraspor í samskiptum Dana og Grænlendinga. Göng opnuð vegna veðurs Aftakaveður sem gerði í Færeyj- um á laugardag varð til þess að far- ið var á tveimur rútum með flugfar- þega um göngin milli Straumeyjar og Vágeyjar þar sem flugvöllurinn er. Stutt er síðan nýjasta haftið var rofið og rúmt ár í opnun ganganna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.