Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Qupperneq 26
42
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002
r>v
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára____________
_ Árni Kristjánsson,
* Holti II, Þórshöfn.
85 ára_______________________________
Sigurveig Björgvinsdóttir,
Hamrahlíö 40, Vopnafiröi.
80 ára_______________________________
Guðlaug Kristjánsdóttir,
Rauðalæk 33, Reykjavík.
Sólveig Axelsdóttir,
Oddagötu 15, Akureyri.
Arnbjörg Halldórsdóttir,
Réttarholti 1, Akureyri.
Björn Gunnlaugsson,
„ Bröttuhlíö 17, Hverageröi.
75 ára_______________________________
Hulda Stelnsdóttlr,
Álandi 9, Reykjavík.
Tryggvi Kjartansson,
Brekkugötu 10, Akureyri.
Jóhanna Ólafsdóttir,
Litlahvammi 8a, Húsavík.
Ólöf Þórðardóttir,
Vesturbergi 71, Reykjavík.
70 ára_______________________________
Einar Ragnarsson,
Lágholti 12, Stykkishólmi.
Guðrún J. Haraldsdóttir,
Nýbýlavegi 82, Kópavogi.
, 60 ára_______________________________
Lárus Lárusson,
Snælandi 6, Reykjavík.
Haraldur Borgar Rnnsson,
Álfheimum 56, Reykjavík.
Guðmunda Erla Þórhallsdóttir,
Skeiöarvogi 157, Reykjavík.
Ólafur Gunnarsson,
Sjávargötu 14, Njarövík.
Guðmundur Bergsteinn Jóhannsson,
Birkigrund 2, Selfossi.
Guðrún Margrét Pétursdóttir,
Breiövangi 19, Hafnarfiröi.
50 ára_______________________________
María Kristín Ingvarsdóttir,
Sunnuvegi 3, Selfossi.
Ásmundur Gústafsson,
Þjórsárgötu 6, Reykjavík.
Magnea Þórarinsdóttir,
Litlageröi 3, Húsavík.
Níels Óskar Jónsson,
Grenigrund 44, Akranesi.
Þórey Hannesdóttir,
Sunnufelli 4, Egilsstöðum.
Hjalti Hugason,
Laugarnesvegi 94, Reykjavík.
Letecia Renegado Tabigue,
Beijarima 14, Reykjavík.
Ása Jóna Karlsdóttir,
Markarflöt 20, Garðabæ.
40 ára______________________________
L María Ragnarsdóttir,
Skógarási 9, Reykjavík.
Hafsteinn Guðmundsson,
Krókamýri 38, Garöabæ.
Guðrún Björk Bjarnadóttir,
Háulind 8, Kópavogi.
Ágústa Pálsdóttir,
Grundargötu 7b, Siglufiröi.
Snorri Sigurðsson,
Lækjarhvammi 1, Hafnarfirði.
Auður Ólafsdóttir,
Kjaiarlandi 23, Reykjavík.
Barbara Maria Sawka,
Höföagötu 1, Stykkishólmi.
Arnþrúður H. Aspelund,
Hlíöarvegi 5, ísafiröi.
Svala Dögg Þorláksdóttir,
Ásavegi 24, Vestmannaeyjum.
Runólfur V. Sturluson,
, Víöigrund 22, Akranesi.
T
SuÖurhlíö35- Sfmi 581 3300
8verrir Einarsson Bryndls
útfararstjóri Valbjarnardéttir
útfararstjúri
Útfararstofa íslands
Fólk í fréttum
Sturla Böövarsson
samgönguráöherra
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra hefur verið í fréttum að und-
anförnu vegna samgönguáætlunar
fyrir árin 2003-2014.
Starfsferill
Sturla fæddist í Ólafsvík 23.11.
1945 og ólst þar upp. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Skógaskóla 1961,
sveinsprófi í húsasmíði við Iðnskól-
ann í Reykjavík 1966, raungreina-
prófum frá Tækniskóla íslands 1970
og BSc-prófi í byggingatæknifræði
þaðan 1973. Með námi starfaði
Sturla viö húsbyggingar hjá föður
sínum í Ólafsvík, vann á verkfræði-
stofu Sigurðar Thoroddsens 1971-74,
var sveitarstjóri og síðar bæjar-
stjóri í Stykkishólmi 1974-91,
stundakennari viö Iðnskólann í
Stykkishólmi 1978-85, hefur veriö
þingmaður Vesturlands frá 1991 og
er nýskipaður samgönguráðherra í
þriðja ráðuneyti Davíðs Oddssonar.
Sturla sat í stjórn LÍN 1970-72,
kjaradeildar Tæknifræðingafélags-
ins 1973-74, sjúkrahúss St.
Fransiskusreglunnar og heilsu-
gæslustöðvar í Stykkishólmi frá
1975, formaður byggingarnefndar
elliheimilis og grunnskóla- og
íþróttahúss í Stykkishólmi 1975-91,
í fulltrúaráði Sambands íslenskra
sveitarfélaga 1978-83, í endurskoð-
unarnefnd sveitarstjómarlaga
1980-83, formaður Samtaka sveitar-
félaga á Vesturlandi 1981-82, i stjórn
Hótel Stykkishólms 1980-95, formað-
ur fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins
á Snæfellsnesi 1981-83, í byggingar-
nefnd sjúkrahúss St. Fransiskusar-
reglunnar frá 1981, formaður stjórn-
ar landshafnar í Rifi 1984-90, í Hafn-
arráði ríkisins frá 1986, í stjórn flóa-
bátsins Baldurs hf. 1987-90, í hús-
friðunarnefnd ríkisins 1987-95, for-
maður stjórnar Hafnarsambands
sveitarfélaga 1988-94, formaður hér-
aðsnefndar Snæfellinga 1989-91, í
bæjarstjórn Stykkishólms 1990-94, í
stjórn íslenska járnblendifélagsins
1992-98, formaður Þjóðminjaráðs
1994- 98, formaður byggingarnefndar
Þjóðminjasafnsins frá 1994, formað-
ur nefndar um stofnun þjóðgarðs
undir Jökli, í stjórn Landsvirkjunar
1995- 97 og í stjórn RARIK frá 1997.
Sturla var varaforseti Alþingis 1991-
95 og 1995-99, sat í fjárlaganefnd Al-
þingis 1991-99 og varaformaður
1992-99, sat í samgöngunefnd Al-
þingis 1991-95, var formaður sér-
nefndar Alþingis um fjárreiður rík-
isins og sat í sérnefnd Alþingis um
breytingar á stjómskipunarlögum
og kjördæmaskipan.
Fjölskylda
Sturla kvæntist 19.11. 1967 Hall-
gerði Gunnarsdóttur, f. 13.12. 1948,
húsmóður og laganema við HÍ. Hún
er dóttir Gunnars Guðbjartssonar,
bónda á Hjarðarfelli og fyrrv. for-
manns Stéttarsambands bænda, og
k.h., Ásthildar Teitsdóttur hús-
freyju.
Börn Sturlu og Hallgerðar eru
Gunnar, f. 17.7. 1967, lögfræöingur í
Reykjavík og MA í Evrópurétti, en
kona hans er Guðrún Margrét Bald-
ursdóttir; Elínborg, f. 21.12.1968, BA
í heimspeki, guðfræðinemi og sinn-
ir barnastarfi í kirkjum en maður
hennar er Jón Ásgeir Sigurvinsson
guðfræðingur; Ásthildur, f. 10.6.
1974, nemi í stjórnmálafræði við HÍ;
Böðvar, f. 12.6. 1983, nemi; Sigríður
Erla, f. 8.7. 1992, nemi.
Systkini Sturlu eru Auður, f. 16.3.
1941, kennari í Ólafsvík; Snorri, f.
prófessors. Bjarnveig var dóttir Vig-
fúsar, b. á Kálfárvöllum, Vigfússon-
ar, bróður Guðbjargar, langömmu
Hallgerðar, konu Sturlu. Móðir
Bjamveigar var Sólveig Bjarnadótt-
ur frá Neðri-Lá, systur Brands,
langafa Gunnars Hanssonar for-
stjóra.
Elínborg er dóttir Ágústs, b. í
Mávahlíð, hálfbróður Sigurðar hrl.,
foður Jóns, lektors á Bifröst, og Þór-
unnar leikstjóra. Ágúst var sonur
Óla, oddvita í Stakkhamri, Jónsson-
ar, b. í Borgarholti, bróður Kristín-
ar, langömmu Ólafs Thors forsætis-
ráðherra. Móðir Ágústs var Lilja
Benónýsdóttir. Móðir Elínborgar
var Þuríður, systir Þorleifs, afa Elsu
Kristjánsdóttur, fyrrv. oddvita í
Sandgerði. Þuríður var dóttir Þor-
steins, b. í Hólmkoti, Þorleifssonar
og Herdisar Bjarnadóttur.
17.6. 1947, raf-
veitustjóri í
Ólafsvík.
Foreldrar
Sturlu: Böðvar
Bjarnason, f.
30.3. 1911, d.
15.5.1986, bygg-
ingameistari
og bygginga-
fulltrúi í Ólafs-
vík, og k.h., El-
ínborg Ágústs-
dóttir, f. 17.9.
1922, húsmóðir
og fyrrv. starfs-
maður við
barnaheimili.
Ætt
Böðvar var
bróðir Gunn-
ars, hreppstjóra í Böðvarsholti, og
Þráins, oddvita í Hlíðarholti. Böðv-
ar var sonur Bjarna í Böðvarsholti,
bróður Þórðar, föður Þóris guð-
fræðiprófessors, og bróður Víglund-
ar, afa Guðmundar Ólafssonar, leik-
ara og rithöfundar. Bjarni var son-
ur Nikulásar, b. í Lukku, Árnason-
ar, í Staðarsveit, Jónssonar, bróður
Jóns á Kálfárvöllum, afa Jóhanns
Sæmundssonar, tryggingayfirlækn-
is og ráðherra, og langafa Guð-
mundar Ingólfssonar píanóleikara
og Hjalta Guðmundssonar dóm-
kirkjuprests. Móðir Bjama var Ólöf
Bjarnadóttir, systir Vigdisar, móður
Holgers CahiUs, listfrömuðar í New
York. Móðir Böðvars var Bjamveig,
systir Guðbrands, oddvita í Ólafs-
vík, Vigfúsar, föður Óskars, fyrrv.
formanns Sjómannasambandsins.
Systir Bjarnveigar var Pálína, móð-
ir Lofts Þorsteinssonar verkfræði-
Sjötugur
Þórarinn Árnason
lögfræðingur í Reykjavík
Þórarinn Árnason lögfræðingur,
Fálkagötu 17, Reykjavík, varð sjö-
tugur í gær.
Starfsferill
Þórarinn fæddist við Skálholts-
stíginn i Reykjavík og ólst upp við
Garðastrætið. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1953 og embættisprófi í
lögfræði frá HÍ 1959.
Þórarinn var fulltrúi bæjarfóget-
ans i Hafnarfirði og sýslumannsins
í Gullbringu- og Kjósarsýslu
1959-64, var lögfræðingur Búnaðar-
banka Islands 1964-88, lögfræðingur
Stofnlánadeildar landbúnaðarins
1988-95 og hefur verið lögfræðingur
Ferðamálasjóðs um nokkurra ára
skeið.
Þórarinn hefur sinnt ýmsum fé-
lagsmálum lögfræðinga, sat í kjara-
málanefnd Lögfræðingafélags ís-
lands 1971-73 er nefndin var lögð
niður og hefur nokkrum sinnum átt
sæti í yfirkjörstjórnum Sambands
íslenskra bankamanna um vinnu-
samninga.
Þórarinn lauk við að skrá ævi-
sögu Jóns Vídalíns, eftir séra Árna
Sigurðsson og er nú að ljúka við að
skrá sögu Félags bankalögfræðinga.
Fjölskylda
Systur Þórarins eru Ragnheiður
Árnadóttir, f. 8.10. 1923, deildar-
stjóri, gift ísak Sigurgeirssyni for-
stjóra; Ingibjörg Árnadóttir, f. 10.10.
1926, húsmóðir, gift Þórarni Svans-
syni, fyrrv. framkvæmdastjóra
Slippfélagsins.
Foreldrar Þórarins voru Árni Sig-
urðsson, f. 13.9. 1893, d. 20.9. 1949,
frikirkjuprestur í Reykjavík, og
k.h., Bryndís Þórarinsdóttir, f. 10.12.
1899, d. 11.11. 1988, húsmóðir.
Ætt
Árni var bróðir Þorkels, föður
Kristínar myndlistarmanns og
Salóme, fyrr. alþingisforseta. Árni
var sonur Sigurðar, b. í Gerðiskoti í
Sandvíkurhreppi, rithöfundar og
fasteignasala, Þorsteinssonar.
Móðir Árna var Ingibjörg, systir
Sigríðar, móður Vilhjálms Ámason-
ar útgerðarmanns, fóður Árna hag-
fræðiprófessors. Ingibjörg var dóttir
Þorkels, hreppstjóra á Hólum, hálf-
bróður Ólafar, móður Sigurgeirs
Sigurðssonar biskups, fóður Péturs
biskups. Þórkell var sonur Jóns
yngri, formanns á Óseyrarnesi,
Jónssonar. Móðir Þorkels var Ólöf,
systir Símonar, langafa Jóhanns í
Mundakoti, afa Ragnars í Smára.
Móðir Ólafar var Valgerður Ara-
dóttir, b. í Neistakoti, Jónssonar, á
Roðarhóli, Bergssonar ættföður
Bergsættar, Sturlaugssonar. Móðir
Ingibjargar var Sigríður Jónsdóttir,
b. á Vestri-Loftsstöðum, Jónssonar
og Sigríðar elstu Jónsdóttur ríka,
hreppstjóra í Vestri-Móhúsum,
Þórðarsonar. Móðir Jóns var Guð-
laug, systir Ara í Neistakoti.
Bryndís var dóttir Þórarins, pr. á
Valþjófsstað, Þórarinssonar, b. á
Skjöldólfsstöðum á Jökuldal, Stef-
ánssonar, pr. á Skinnastað, bróður
Þorbjargar, ömmu Kristjáns Eld-
jáms forseta. Móðir séra Þórarins á
Valþjófsstað var Þórey, systir Hjör-
leifs pr. á Undirfelli, fóður Einars
Kvarans skálds. Þórey var dóttir
Einars, pr. í Vallanesi, Hjörleifsson-
ar, pr. á Krossi í Landeyjum. Móðir
Bryndísar var Rafnheiður Jónsdótt-
ir, prófasts að Hofi í Vopnafirði,
Jónssonar, pr. í Klausturhólum,
Jónssonar, pr. í Hruna, Finnssonar,
bróður Hannesar Finnssonar bisk-
ups Jónssonar, biskups í Skálholti,
Halldórssonar, prófasts og fræði-
manns í Hítardal. Móðir Ragnheið-
ar var Þuríður Kjartansdóttir, pr. í
Skógum, Jónssonar, af ætt Jóns
Steingrimssonar, eldprests á Prest-
bakka á Síðu.
Þú nærð alltaf sambandi
við okkur!
550 5000
<£>
mánudaga til fimmtudaga kl. 9 — 20
föstudaga kl. 9 — 18
sunnudaga kl. 16 — 20
smaauglysingar@dv.is
hvenær sólarhringsins sem er
550 5000
Hllon sólarhringlnn. www.Utfofin.is