Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2002, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2002, Síða 14
Sápuóperur er stór hluti af landslagi sjónvarpsmenningarinnar hvort sem menn vilja við- urkenna það eða ekki. Oftar en ekki hafa sápurnar verið fórnarlömb fordóma en þeir eru færri sem viðurkenna að þetta er skemmtun eins og hún gerist best. Staðreyndirnar tala sínu máli - allt að 18 þúsund íslendingar sitja límdir við skjáinn á hverjum degi þegar sáp- urnar fara í loftið. Ef þú ert ekki ein(n) þeirra ættirðu kannski að endurskoða afstöðu þína. Það er aldrei of seint aS byrja að glápa „Grant Chambers, are you in love?“ (Grant brosir lymskulega á meðan myndavélin færist nær á andlit hans í þann mund sem skjárinn verður svartur). Dæmigerð atburðarrás í sápuóperuþætti áður en skipt er yfir í auglýsingar. Þetta kannast allir við sem hafa óvart slysast til að horfa á slíka þætti enda mynda þeir heim út af fyrir sig. í heimi sápuóperunnar er sjálfgefið að leika illa, að allt sé augljóslega tekið upp í myndveri, að allir séu með öllum og að söguþráðurinn tekur aldrei enda held- ur flækist sífellt. I sápuóperum er mýgrútur af nöfnum og er það nærri að eitt nafn kemur fram í hverri setningu sem sögð er í þættinum. Það er sífellt verið að kynna persónurnar einmitt til þess að nýir áhorfendur eigi í litlum vandræðum með að sogast inn í hringiðuna. A íslenskum sjónvarpsstöðvum eru þrjár sápuóperur í gangi, Leiðarljós á RUV og Glæstar vonir og Nágrann- ar á Stöð 2. Þetta eru rótgrónir og heimsfrægir þættir sem hafa alið af sér margan ffægan leikarann og hin besta skemmtun og verður hér eftir stiklað á stóru um þetta gæðasjónvarpsefni. Leiðaruósið Leiðarljós (Guiding Light) er elsta sápan sem til er í dag og var sú fyrsta á stnum tíma. Hún byrjaði árið 1937 í útvarpi og færði sig yfir á bandaríska sjónvarpsskjáinn árið 1952 og hefur verið sýnd sleitu- laust síðan þá. Sjónvarpið hefur sýnt þættina í mörg ár en þættirnir sem þeir sýna nú eru rúmlega 10 ára gamlir, eða frá 1991, og er það þess virði að horfa á þá ef það væri ekki nema fyrir fata- og hárstíl einstakra persóna. Þar til 1978 hétu þættirnir Leiðarljósið (The Guiding Light) en þá var ákveðið að taka ákveðna grein- inn út, ltklega til að taka burt allan vafa um raunverulegt lífsgildi þátt- anna. Leiðarljós gerist í miðvesturríkjum Bandaríkjanna, í bænum Springfield. Áður fyrr var Bauer-fjölskyldan mið- punktur þáttanna en síðar komu til sögunnar hinar vellríku Spaulding, Chamberlains og Lewis-fjölskyldumar ásamt almúga- fjölskyldunurri Reardon og Shayne. En Bauer-fólkið er þó enn hjarta þáttarirts. Þar að auki koma við sögu fjöídamargir einstaklingar sem hrista upp í samfélag- inu og hafa mikil áhrif á söguþráðinn. Viðskiptaþema þáttarins (sem er í hverri góðu sápuóperu) er olía. Það sem er aðalmálið í dag er hvort N ick McHenry sé í raun sonur Alexöndru Spaulding. Hún missti son sinn, Lujack, í slysi fyrir nokkrum árum en hann og Nick eru algerir tvífarar og því er Alexandra í mikilli klemmu. Kærasti hennar, Fletcher Reade, er orðinn það þreyttur á ástandinu að hann hefur gefið henni úr- slitakosti - annaðhvort hættir hún að hugsa um þetta eða hann yfirgefur sambandið. En Melinda Sue Lewis er ástfangin af Nick og vill flytjast til New York með honum þar sem hún hyggur á ff ægð og frama í fatahönnun sem hún reyndar vinnur við í Springfield. Holly er sjónvarpskona á stöð Roger Thorpe og tekur viðtal við konu sem átti systur sem var myrt og sendir Roger viðtalið út í beinni útsendingu, án vitundar Holly. Það sem hún veit heldur ekki er að kærasti hennar, Dr. Daniel, er morðinginn og í þann mund sem konan ætlar að segja nafh hans fer brunavamakerfið í gang og því óljóst nafh hvers kon- an er að segja. Læknirinn góði er því í stórri hættu á að verða uppgötvaður og eru því góð ráð dýr fyrir hann. Að síðustu ber að nefna erjur lögreglunemans Harley Davidson við yfirmann sinn í lögreglunni, AC Mallet, en gefið er í skyn að þær erjur eru aðeins forleikur að yf- irvofandi sambandi þeirra. Glæstar vonir Tískuiðnaðurinn ræður ríkjum í Glæstum vonum (The Bold and the Beautiful) og segir í umsögn um þættina að „í tískuheiminum ræður Forrester-fjöl- skyldan lofum og lögum ffá glæsilegu höfðingjasetri þeirra í Beverly Hills. En á bak við töfraljóma tísk- unnar verða á vegi Forrester-fjölskyld- unnar hindranir eins og hjónaskilnað- ir, alkóhólismi og dauðsföll." Þar ber hæst þessa dagana ástarfer- hymingur bræðranna Ridge og Thome Forrester með þeim Taylor og Brooke. Taylor er nefnilega óffísk með bami Ridge en Thome fær Brooke í lið með sér til þess að leyna þvf fyrir Ridge og hún nær með klókindum að fá hann til að biðja hana um að giffast sér. Ridge er sár út í Taylor þar sem hann heldur að Thome sé faðir bamsins ófædda en þau eru í raun ástfangin. Taylor finnst hins vegar að hún hafði verið svikin af Ridge þar sem hún kom að honum og Brooke í því sem sýndust vera ástarlotur, en í raun var Ridge ofurölvi og var því algerlega á valdi Brooke en Ridge vildi ekkert með hana hafa. Þá var aðalkarlinn, Eric Forrester, í flugvél með Lauren Fenmore, ungri konu sem gimist hann, sem fórst og eru þau sem stendur föst í óbyggðum Græn- lands en þeim var bjargað af Rush, dularfullum manni sem býr þar langt frá allri siðmenningu. Eric ætlaði að giftast Stephanie sem var einu sinni kona hans en þau eiga saman þá Ridge og Thorne en ítök Sally Spectra, eiganda Spectra Fashion, varð til þess að þau fórust á mis við hvort annað á Italíu, þar sem þau ætluðu að giftast. Sally er mjög illa við Stephanie og því ráðleggur hún ásamt Lauren að skemma samband þeirra og koma Lauren saman við Eric. Þá ber að nefna James Warwick og vanda hans. Hann var giftur Maggie Forrester en á bam með annarri konu, Sheilu. Þegar það fæddist ættleiddu James og Maggie það en Sheilu snerist fljótlega hugur og vildi fá bamið aftur. Þar sem Sheila er veik á geði, var eitt sinn á geðveikrahæli, grípur James til örþrifa- ráða til að sanna að hún sé óhæf móðir. Hann skilur við Maggie og tekur saman við Sheilu og þykist elska hana en er í raun að safna sönnunargögnum til að sanna óhæfi hennar. Nácrannar Nágrannar eru án efa ein sú allra frægasta sápa hér á landi enda het'ur Stöð 2 sýnt alla þætti frá byrjun en fyrsti þáttur var sýndur snemma árs 1985 í Ástralíu og hefur farið sigurför um heiminn. Þetta hefur reynst frábær stökkpallur fyrir ástralska leikara og söngvara sem telj- ast í dag með þeim fremstu í sinni grein, svo sem Kylie Minogue, Natalie Imbruglia, Guy Pearce og Russel Crowe. Að ónefhdum Jason Donovan sem hefur að vísu átt mis- jöfnu gengi að fagna í gegnum árin. Atburðarásin á sér stað í nokkrum húsum í Ramsay-götunni þar sem aðalpersónur þátt- anna búa. Af öðrum stöðum í Erinsborough-hverfinu þar sem hlutirnir gerast er kaffihúsið, kráin, skólinn og sjúkrahúsið. Þau Drew og Libby fengu óvænta heimsókn í brúð- kaupsferð sinni en kollegi Libbyar á dagblaðinu sem hún vinnur á er að skrifa dálk um þau þar sem þau eru lesendum þess vel kunn en reglulega birtust skrif um undirbúning brúðkaupsins. Treglega samþykkja þau að leyfa Geri að umgangast þau í skamman tíma. Hún er hins vegar mjög uppáþrengjandi og er smám saman að breyta draumaferðinni í martröð. Þá eru hin ungu Lance og Allana að safna pening fyrir ferð sinni til Banda- ríkjanna þar sem þau hyggjast fara á geimveruslóðir í Roswell, en þau eru bæði mjög miklir Star Trek aðdáend- ur, og gerast jafnvel það djörf að selja sjaldgæfa hluti úr Star Trek-safhi sínu til að fjármagna ferðina. Af öðrum persónum er það að segja að hin viðkunnanlegi Lou liggur á sjúkrabekk og er umhugað um hina ungu dóttur sína, Lolly, sem er þó vel gætt af þeim Harold og Madge. Hjónaband Joe og Lyn Scully er í uppnámi vegna hins nýja sölustarfs hennar þar sem hún selur förðunarvörur Beauty Tree en Joe efast um heiðarleika forsvara viðskiptaævintýr- isins. f ó k u s 14 22. febrúar 2002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.