Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2002, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2002, Blaðsíða 19
í kvöld verða haldnir stórtónleikar á Grandrokk þar sem fjöldi tónlistar- manna og grínara mun koma fram. Það er skákfélagið Hrókurinn sem stendur fyrir samkomunni en ætlunin er að safna fjármunum fyrir komandi stórmót sem verður haldið á vegum félagsins í byrjun næsta mánaðar. Stórmeistararokk Lúna er ein þeirra hljómsveita sem kemur fram. Jakob Bjarnar kynnir herlegheitin. „Þetta verða einhverjir stærstu tónleikar sem haldnir hafa verið lengi,“ segir Jakob Bjamar Grét- arsson sem verður sérlegur kynn- ir á samkomu sem skákfélagið Hrókurinn stendur fyrir á Grandrokk í kvöld. „Tilefni þessara tónleika er tvíþætt, ann- ars vegar erum við að minnast Dan Hanson, sænsks stórmeist' ara í skák og góðs vinar okkar úr skákfélaginu Hróknum, en hins vegar erum við líka að afla fjár fyr- ir komandi skákmót sem við ætl- um að standa fyrir í byrjun næsta mánaðar." í kvöld mun fjöldi hljómsveita koma fram ásamt nokkrum grínistum en allir munu þeir gefa vinnu sína. „Það sem við fáum inn er náttúrlega ekki nema dropi í hafið miðað við það sem það kostar að halda svona stórmót í skák en þetta er náttúrlega að mestu gert til gamans. Andrea Gylfadóttir mætir þama ásamt hljómsveit, svo verður Jakob Frímann Magn- ússon líka að spila. Heiða, sem er oft kennt við hljómsveitina Unun, verður líka á svæðinu ásamt pönkskáldinu Ceres 4. Aðrir sem munu koma fram eru Björn Jörundur, hljómsveitin Lúna, Majones og hljómsveit sem kallar sig Kántrípiltar en söngvari f þeirri sveit heitir Atli Geir og gerði áður garðinn frægan með hljómsveit sem einhverjir muna kannski eftir og kallaðist Kátir piltar. Svo verða Radíus- bræður þama ásamt einhverjum leynigestum þannig að það má búast við veglegri tónlistar- og grínveislu." Eins og áður sagði gefa allir listamennimir vinnu sína og rennur allur ágóði til komandi skákmóts þar sem fjöldi þekktra skákmanna mun etja kappi. „All- ir íslensku stórmeistaramir munu keppa á þessu móti og það er í raun affek út af fyrir sig. Svo hef- ur fullt af köppum utan úr heimi boðað komu sína, m.a. Jan Timm- an, undrabamið Luke McShane, Ivan Sokolov og nokkrir fleiri en þetta eru allt toppskákmenn með vel yfir 2000 stig. Þeir munu svo ailir keppa í byrjun mars f Ráð- húsinu en tefld verður atskák þar sem verður bara útsláttarfyrir- komulag þannig að það verður spenna í hverri skák.“ Hér verður því um eitthvert stærsta skákmót, sem haldið hef- ur verið hér á landi, að ræða og verður spennandi að fylgjast með. —'tí' föstudag^ 22/2 •Popp ■ ÚTGAFUPARTÍ í 12 TÓNUM Þaö verður heljarinn- ar útgáfupartí í 12 tónum viö Skólavöröustig í dag, milli 17 og 18, í tilefni af útkomu lyrstu eiginlegu sðlóplötu tónlistarmannsins Aöalsteins Guömunds- sonar, undir listamannsnafninu Yagya. Aöalsteinn hefur síðasta áratuginn gefið út mikiö af raftónlist undir nafninu Plastik og sem annar helmingur Sana- sol, en The Rythm of Snow er fyrsta eiginlega sóló- plata hans, í partíinu veröur platan kynnt, boðið upp á veitingar og allir eru velkomnir. ■ U2 í ÍSLENSKU ÓPERUNNI Tvennir stórtónleikar veröa haldnir í islensku ópemnni í kvöld. Þessir tón- leikar eru til heiðurs hljómsveitinni U2. Einstakt tæki- færi sem enginn unnandi U2 ætti aö láta fram hjá sér fara. Hljómsveitin, sem mun flytja þessa tónlist, er skipuð: Rúnari Friörikssyni, Gunnari Eggertsyni, Birgi Nielsen og Friöriki Sturiusyni. fýrri tónleikamir eru kl. 20 og þeir seinni kl. 23. Miöaverö er 2.300 krónur. Forsala er í versluninni 12 tónum á Skólavöröustign- um. •Klúbbar ■ 14 ÁRA AFMÆUSHELGI Á CUIB 22 Standandi afmælispartí verður alla helgina á 22 í tilefni af 14 ára afmæli staöarins. Plötusnúöurinn viökunnanlegi, hann Doddi litli, veröur viö stjómvölinn í diskóbúrinu og mun hann láta gamminn geisa bl morguns. Af- mælisblboö á bamum ogfritt inn til kl. 2.30. ■ IBIZAKVÓm Á MABLO Enn á ný býöur Club dk abk) til Ibfcakvökls þar sem sólarlandafílingurinn veröur í algleymingi. Glowsticks og fordrykkur í boöi hússins fyrir þá sem mæta snemma. Kvöldið er upp- hitun fyrir ferð sem Diablo mun standa fyrir þl Ibiza í sumar. Ivar og Atli í búrinu. ■ SPOTUGHT Á Spotlight veröur pöbbastemning uppi en óvænt þema í kjallaranum. Dj Sesar i búrinu. 500 kr. inn. Munið: Opiö 17-01 virka daga og 17-06 um helgar. ■ TEDDY Á PÍANÓBARNUM Partídýriö og plötu- snúöurinn Teddy mætir á Píanóbarinn og sér til þess að allir fari sveittir heim. Tilboö á bamum. ■ WORtD CtASS PARTÍ Á ASTRO Þeir sem sturv da líkamsrækt hjá World class eru hjartanlega vel- komnir í Wotfd class partí á Astró. Aðrir eru velkomn- ir eftir miönætti. •Krár ■ BUFF Á VÍPAIJN Stuðboltamir í Buff munu spila á Vídalín í Aöalstræti í kvöld og halda uppi fjörinu langt fram á nótt eins og þeim einum er lagið. ■ GEIRMUNPUR Á CAFÉ CATAIÍNU Haldið ekki aö hljómsveR Geimtundar Valtýssonar veröi ekki bara á Catalínu í Hamraborginni! Gleöin hefst kl. 23 og stendur til 3. Góða skemmtun! ■ PENTA Á DUBUNERS Hljómsveltín Penta mun skemmta þeim sem leggja leið sína til Dublinets í Hafnarstrætí f kvöld. ■ PÁLL RÓSINKRANZ Á NASA Söngsýning Páls Rósinkranz veröur haldin á NASA í kvöld, frá kl. 21.30-23.00. Hljómsveit hans skiþa Jón Ólafsson (píanó og hljómsveitarstjóm), Guömundur Jónsson (gítar), Frlörik Sturfuson (bassi), Jóhann Hjörieifsson (trommur) og Margrét Eir og Védís Hervör (söngur). Miðasala er f sfma 511-1313. ■ ROBBI CHRONIC Á VEGAMÓTUM Hinn eini og sanni skifuþeytari Robbi Chronic fer á kostum á Vegamótum f kvöld, eins og honum einum er lagiö. ■ SGH Á GULLÓLDINNI Stuðboltamir Svensen og Hallfunkel halda uppi stuöinu á GullöJdinni alla helg- ina. Bottí f beinni og boltaverö á bjór. ■ SCANDALL Á AMSTERDAM Hljómsveitin Scandall mun spila f kvöld á Café Amsterdam og langt ffam á nótt. ■ SIXTTES Á KAFFI REYKJAVÍK Það veröur flör á Kaffi Reykjavík ! kvöld er hljómsveltín Sixties mun leika fýrir dansi. Stemningu hennar þekkja flestír og una vel við. ■ SPÚTNIK Á PLAYERS Drengimir i Spútnik munu trylla lýöinn á Players í Kópavogi í kvöld og fíútta langt fram á nótL ■ TÓNUST OG GRÍN Á GRANOROKK Úrvalslíö tórv listarmanna kemur fram á Grandrokk! kvöld, þeirra á meðal Andrea Gylfadóttlr, Jakob Frimann Magnús- son, Ceres 4, Heiða, Mæjónes, KántripiHar; Bjart- mar Guölaugsson, Bjöm Jörundur og Lúna. Þá munu Radíusbræöurnir Stelnn Ámtann Magnússon og Davíö Þór Jónsson sprella upp á gamla mátann. Leynigestir munu dúkka upp en kynnir veröur Jakob Bjamar Grétarsson. ■ yÍKINGASVEfTIN Á FJÓRUKRÁNNI Hermann Ingí Junior og Gummi Sím skemmta með Víkinga- sveltínni fýrir matargestí á Fjörukránni í Hafnarfiiöi f kvöld. ■ ÍRAFÁR Á GAUKNUM Hljómsveitín irafár heldur tónleika á Gauki á Stöng f kvöld og húsiö veröur opn- aö kl. 23.30. •Klassík ■ EUASARDAGAR í TONSKÓLA SIGURSVEINS Elfasardagar eru tónlistarhátíð í Tónskóla Sigur- sveins. Á hátföinni munu nemendurflytja verk eftír El- ías Davíösson tónskáld. í dag veröa tónleikar á sal Tónskólans á Engjateigi 1. kl. 18. •Sveitin ■ x-rottweilebhunparog á móh sóháims- HÓLI Stórhljómsveitímar Á móti sól og X-Rottweileihundar sameina krafta sfna á sveitaballi í inghóli, Selfossi, f kvöld. Húsiö veröur opnar kl. 23.30 og miðaverö er aðeins 1800 kr. Forsala aö- göngumiöa er í Mangó, Selfossi. ■ BER Á KRÓKNUM íris Kristinsdóttir og nýja hljóm- sveitin hennar, Ber, trallar á C’est La Vie á Sauöár- króki i kvöld. ■ BINGO Á AKUREYRI Hin vinsæla hljómsveit Bingo verður á Oddvitanum Akureyri þessa helgina. Kannski einhveijir fái heila röö á þessu balli... ■ PJ F1NNUR Á BÚPAKLETT1 í Búöakletti á Boigar- nesi í kvöld mun DJ Finnur Jónsson þeyta skífum og skemmta lýönum. ■ HLYMON OG ÞORFUNKEL I EGILSBÚÐ Þeir Hlymon og Þorfunkel munu halda uppi sykursætri stemningu i kvöld, frá kl. 2303, í Egilsbúð i Nes- kaupstaö. Aðgangseyrir er enginn fyrir miönættí en rukkaö um 500 kall eftír það. ■ KVÓIPSTVNP í TRÚPADQR. .ÓG..MQLL Kl. 22 veröur haldin kvöldskemmtun í Deigkmni á Akureyri. Þar koma fram nokkur söngvaskáld frá Akureyri og úr nærsveitum. Þeir sem koma fram eru: Brandur, Eirik- ur Bóasson, Jón Laxdal, Toggi og Geiri og Þórarinn Hjartarson.Ef vel teksttíl veröa fleiri kvöld sem þetta skipulögö i náinni framtíð. Allir eru velkomnir meöan húsrúm leyfir og veröa miðar seklir viö innganginn. ■ VH> POLUNN AKUREYRI Stulli og Sævar Sverris- son skemmta eins og þeim einum lagiö á Viö Pollinn á Akureyri. •Leikhús ■ ANNAKARENINA í kvöld sýnir Þjóðleikhúsið verk- iö Anna Karenina eftír Leo Tolstoy. Leikgerö er f hörtd- um Helenar Edmundson. -Hin fagra Anna Karenina ákveöur að yfirgefa mann og bam og hefja nýtt Fif með hinum glæsta \Yonskf greifa. Eitt af meistara- verkum heimsbókmenntanna f rómaöri leikgerð, saga um ástriður og grimm örlög f Rússlandi 19. akt arinnar. Leikstjóri er Kjartan Ragnarsson en sýnt er á stóra sviöinu f kvöld, kl. 20. ■ GESTURINN Gesturinn eftir Eric-Emmanuel Schmitt, í þýöingu Kristjáns Þóröar Hrafnssonar, var frumsýndur í Borgarleikhúsinu þann 6. febrúar sl. Bjöm Hlynur Haraldsson hefur æft hlutverk Ókunna mannsins samhliða Ingvari Sigurössyni. I kvöld verö- ur frumsýning á verkinu meö Bimi Hlyni í hlutverkinu. Þeir Ingvar og Bjöm Hlynur munu síðan hér eftír skipt- ast á aö leíka hlutverkiö. Meö hlutverk Sigmunds Fireud i verkinu fer Gunnar Eyjólfsson en leikstjóri er Þór Tulinius. Sýningin hefst kl. 20. ■ HVER ER HRJEDOUR VK) VIRGINÍU WOOiF? í kvöld sýnir Þjóölelkhúslö hiö magnaöa leikverk Hver er hræddur viö Virgíníu Woolf?. Martha og George bjóða ungum hjónum í „eftírparti" viö upphaf há- skólaársins en þegar líöur á nóttina verður Ijóst aö hér er ekki um neitt venjulegt heimboö aö ræöa. Magnþrungiö verk um grimmileg átök, eitt frægasta leikrít tuttugustu aldarinnar i nýstáriegri uppfærslu. Höfundur veiksins er Edward Albee en sýningin í kvöld hefst kl. 20. ■ JÓNGNARR i kvöld, kl. 21, sýnir Borgarieikhúsiö sýningu sem ber heitið Jón Gnarr og er sjálfstætt framhald á hinni geysivinsælu sýnirtgu Ég var elnu sinnl nórd sem sýnd var viö miklar vinsældir leikáriö 1999-2000.1 sýningunni fjallar Jón m.a. um ýmsar umbreytíngar í Fifi sínu, samskiptí kynjanna, fallega fólkiö, hvemig best sé aö borða rækjur, erfiöleika sem fýlgja þvf aö vera frægur meðal dýrategunda og ýmislegt fleira. Með Jóni kemur fram ung stúlka sem segir sögur úr reynsluheimi kvenna. ■ MBIFULLA VASAAF.GRJgn .1 kvöld sýnir Þjóö- leikhúsiö verkið Meö fulla vasa af gijótl eftír Marie Jones. Leikertdur eru Stefán Karl Stefánsson og Hilmir Snær Guðnason en leikritíð er nýtt íiskt verö launaleikrit sem nú fer sigurför um leikhúsheiminn. Verkiö flallar um tvo írska náunga sem taka aö sér að leika f alþjóölegri stórmynd. Fjölskrúöugar persónur verksins eru allar leiknar af tveimur leikunrm: kvik- myndaleikstíórinn, Hollywoodstíaman, þorpsbúamir og allir aörir. Sýningin hefst i kvöld kl. 20. ■ MEÐ VÍFK> í LÚKUNUM Borgarieikhúsiö sýnir i kvöld leikritíö Meö víftö í lúkunum eftir Ray Coone. Leikritíð hefur veriö til sýningar lengi vel og viö miklar vinsældir. Sýningin í kvöld hefst kl. 20 og eru örfá sætí laus. Jón Jónsson leigubílstjóri lifir hamingju- samlega tvöföldu fifi. Hann býr á einum stað meö Mariu og í öörum bæjarhluta meö Barböru, en sveigj- anlegur vinnutimi leigubílstí'órans gerir honum kleift aö sinna báöum heimilum eftír nákvæmri stunda- töflu. Einn daginn gerir góöverk þaö að verkum aö hann fær högg á höfúöið og tímaáætíunin riölast svo um munar. Meö aðstoö nágranna síns og góðvinar reynir hann aö bjarga því sem bjargað veröur og af- stýra því aö eiginkonumar komist að hinu sanna. Þegar lögreglan og blöðin fara aö hnýsast í einkalff hans flækist máliö tíl muna. ■ PÍKUSÓGUR Halldóra Geirharösdóttir, Jóhanna Vigdis Arnardóttír og Sóley Eliasdóttir fara meö aðal- hlutverkin í þessari sýningu sem sett verður upp i kvökJ, kl. 20, i Borgaríelkhúsinu. Pikusögur, eða The Vagina Monologues, em eftir bandaríska leikskáldiö Eve Ensler, og byggðar á viötölum leikskáldsins við konur, gamlar konur og ungar, um þeirra leyndustu parta, píkuna. Viðfangsefnið er óvenjulegt en höfund- ur setur hugsanir viömælenda sinna fram á einstak- an hátt og lýsir meö þessu safni eintala fifi og Fifsvið- horfum ólíkra kvenna. Sum þessara eintala em nokkum veginn orörétt viðtöl, önnur em skálduö upp úr ótal viðtölum. Pikusögumar voru fyrst settar á sviö áriö 1996 og hlaut sú uppfærsla hin eftirsóttu Obie- verölaun ári seinna. Síðan hefúr verkið veriö sýnt um öll Bandarikin, f London, Berlin, Aþenu, Jerúsalem og víðar. ■ SLAVAR i kvökJ sýnir Lelkfélag Akureyrar veikiö Slavar eftir Tony Kushner. Leikstjóm, leikmynd og búningar eru f höndum Halldórs E. Laxness en sýt> ingin hefst kl. 20 í kvöld. •Opnanir ■ TATTÚINORRÆNA HÚSINU í dag veröur opnuð sýning í Norræna húsinu sem kemur frá Þjóömlnjæ safnl ÁJandseyja. Þetta er Ijósmyndasýning sem ber nafniö Tattóveraði ÁJendingurinn. Sýningin sýnir vel þá þróun sem orðiö hefúr í myndefni húöflúra í gegn- um árin. Aögangur er ókeypis og stendur sýningin tíl 17. mars. •Bió ■ VANfLLUHIMINN Á EGILSSTOPUM Heitasta pariö f Hollywood, Tom Cmise og Penelope Cmz, heimsækir Egilsstaöl í kvöld en nýjasta mynd þess, Vaniila Sky, veröur sýnd á Orminum kl. 20 í kvöld. •Sport ■ FRÍSTA-LPANSKEPPNI TÓNABÆIAR Úrslltín i freestyledanskeppni Tónabæjar ráöast i kvöld og þar með hver verður íslandsmeistari. 150 unglingar á aldrinum 1317 ára eru komnir f úrslit og hefst keppn- in kl. 18. Það er Björgvin Franz Gislason sem er kynnir keppninnar og kostar 500 kall inn. Keppnin fer fram! íþróttahúsi Fram. 22. febrúar 2002 f ó k u s

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.