Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Síða 5
MÁNUDAGUR 11. MARS 2002
21
DV
Sport
Annaö áriö í röö varö KR bikarmeistari í unglinga-
flokki undlr stjórn Inga Pórs Steinþórssonar.
DV-mynd Óskar
Annað árið í röð
- Njarðvíkingar bættu við bikar í safnið
ing.“
Var eitthvert vanmat í gangi til aö
byrja meö hjá ykkur?
„Við vissum að Stjarnan er með
fínt lið þar sem við höfum spilað við
þá áður. Ég tel ekki að menn hafí
haldið fyrirfram að þetta yrði auðvelt.
Við vorum kannski ekki að spila neitt
frábærlega en við gerðum það sem við
þurftum til að vinna og það er það
sem skiptir máli þegar upp er staðið."
Hjalti jafnbestur KR-inga
Helgi átti sjálfur ágætan leik þó svo
að hann geti mikið betur en hann
sýndi að þessu sinni. Hjalti Kristins-
son var valinn maður leiksins og var
jafnbesti leikmaður KR en enginn
náði sér almennilega á strik.
Magni Hafsteinsson spilaði fína
vörn en hitti illa i sókinni. Jón Arn-
ór var eitthvað illa upplagður og
Steinar Páll kom með fína baráttu af
bekknum og kom sterkur inn. Valdi-
mar Helgason var atkvæðamikill og
gerði 18 stig og tók níu fráköst og Jón
Brynjar Óskarsson er efnilegur strák-
ur en þarf að bæta varnarleikinn
þónokkuð.
Hjá Stjörnunni var Guðjón Lárus-
son sterkur en bróðir hans Sigurjón
gat ekki beitt sér á fullu en hjálpaði
tO. Sverrir Óskarsson og Vilhjálmur
Steinarsson voru ágætir sem og Jón
Gunnar Magnússon. -Ben
KR sigraði í unglingaflokki karla á
laugardaginn en KR-ingar mættu
Stjörnunni í úrslitaleik. Lokatölur
urðu 69-86 en þær gefa ekki alveg
rétta mynd af leiknum þar sem Stjam-
an stóð í KR-ingum megnið af leikn-
um.
Stjarnan spilaði 2-3 svæðisvörn á
móti KR og gekk það ágætlega til að
byrja með. KR-ingar virtust áhuga-
lausir og héldu greinilega að þetta
yrði átakalaus sigur gegn Stjörnunni.
Staðan eftir fyrsta leikhluta var 15-12,
Stjömunni í vil, og var sóknarleikur
KR stirður.
Jón Arnór rekinn út
Þegar skammt var eftir af fyrri
hálfleik var Jóni Arnóri Stefánssyni
vikið af leikvelli fyrir að missa stjóm
á skapinu. Þetta átti þó bara eftir að
hafa jákvæð álrrif á KR-inga og fóru
menn loksins að taka á því. KR fór að
beita pressuvörn allan völl sem
Stjarnan réð illa við.
Aldrei spurning
Leiðir
skildi síðan í
seinni háifleik
og jók KR
muninn jafnt
og þétt. Helgi
Már Magnús-
son, fyrirliði
KR, var sáttur
í leikslok með
sigurinn.
„Eftir slaka
byrjun tókum
við okkur á
eftir að Jóni
var hent út úr
húsinu. Eftir
þaö þá kom
baráttan og
Steinar Páll
Magnússon
kom inná með
aukakraftinn
sem vantaði
og eftir það
var þetta
aldrei spurn-
veldum körfum.
Jóhann skoraði 29 stig, tók 13 frá-
köst, gaf fimm stoðsendingar, stal
fímm boltum og varði fímm skot.
Þessi frammistaða varð til þess að
hann var valinn maður leiksins.
Kristján Sigurðsson var einnig
drjúgm- þó svo að hann hafi oft hitt
betur.
Villuvandræði hjá ÍR
Hjá lR var Jakob Egilsson góður
en hann lenti í villuvandræðum
snemma í leiknum og þurfti að sitja
á bekknum lengur en ÍR-ingar hefðu
viljað. Sveinbjöm Claessen átti fín-
an leik en hann var sömuleiðis í
vUluvandræðum og fór útaf með
fímm viilur þegar tæpar þrjár mín-
útur voru eftir.
Það voru sömu lið og í fyrra sem
mættust í úrslitaleiknum í 10. flokki
karla en Njarðvík og ÍR spiluðu til
úrslita annað árið í röð. Njarðvík-
ingar hafa verið mjög sigursælir í
þessum árgangi en lentu í kröppum
dansi i fyrra gegn ÍR en þetta árið
var sigurinn sanngjam.
Einar Ámi Jóhannsson lét sína
menn spila 2-3 svæðisvöm í seinni
hálfleik og hitti ÍR-ingar illa fyrir
utan. ÍR spilaði 1-3-1 svæðisvörn
en sú vörn stoppaði ekki Jóhann
Ólafsson frekar en aðrar varnir
hingað til.
Jóhann maður leiksins
Jóhann fór fyrir sínu liði að
vanda og steig upp þegar leikurinn
var í jámum með annaðhvort körf-
um eða sendingum sem skiluðu auð-
Að ofan eru bikarmeistarar Njarövíkur en fyrir neðan þeir Rúnar Ingi
Erlingsson (t.v.) og Hjörtur meö manni leiksins, Jóhanni Árna Ólafssyni, en
þeir féiagar eru enn í 7. flokki og spiia
því þrjá flokka upp fyrir sig.
DV-myndir Óskar
Fjórir meistarar
krýndir í gær
Seinni hluti bikarúrsiitanna
fóru fram í gær og mun DV-Sport
flalla betur um þá í vikunni. KR
vann í 9. flokki karla en þeir
burstuðu Snæfell 75-30 í ójöfnum
leik.
í 11. flokki var jafnari leikur en
Fjölnr sigraði Snæfell með átta
stigum, 57-49, þar sem Magnús
Pálsson var valinn maöur leiks-
ins. Mesta spennan var í drengja-
flokki þar sem KR bar sigurorð af
Njarðvík 62-60 þar sem Jóel Sæ-
mundsson skoraði sigurkörfuna á
síðustu sekúndu leiksins.
Þá vann Keflavík I unglinga-
flokki kvenna en þær mættu
Grindavík 1 úrslitum. Lokatölur
urðu 51-36 fyrir Keflavík. -Ben
10. flokkur karla
ÍR-Njarövík 56-66
2-0, 9-4, 9-11, 11-16, 15-23, 21-25,
27-28, (28-34), 30-34, 36-40, 44-44,
50-51, 52-61, 53-65, 56-66.
ÍR
Stig: Jakob Egilsson 19, Sveinbjöm
Claessen 13, Haildór Glslason 12,
Elvar Guðmundsson 6, Hrannar
Hallgrímsson 2, Svavar Sigurðsson 2,
Haraldur Sigurðsson 2.
Fráköst: 35 (14 í sókn, 21 í vörn,
Svavar 9, Jakob 8)
Stoósendingar: 17 (Elvar 6,
Sveinbjöm 5, Svavar 4)
Stolnir boltar: 8 (Svavar 3)
Varin skot: 1 (Elvar)
3ja stiga: ÍR 5/1, Njarðvík 14/3.
Víti: fR 11/5, Njarðvík 24/18.
Niarðvik
Stig: Jóhann Olafsson 29, Kristján
Sigurðsson 17, Róbert Ingvason 9,
Daníel Guðmundsson 7, Hjörtur
Einarsson 2, Marinó 1.
Fráköst: 38 (9 í sókn, 29 1 vörn,
Jóhann 13, Kristján 8)
Stoðsendingar: 14 (Jóhann 5,
Kristján 3, Róbert 3)
Stolnir boltar: 10 (Jóhann 5)
Varin skot: 9 (Jóhann 5 ).
Maður leiksins:
Jóhann Ólafsson,
Njarðvík
Ungl.flokkur karla
Stjarnan-KR 69-86
0-3, 7-6, 11-11, (15-12), 15-16, 16-24,
25-26, 30-33, 33-38, (36-40), 38-40,
38-48, 43-55, 51-55, (53-61), 59-71,
63-75, 67-77, 67-83, 69-83.
Stiaman
Stig: Guðjón Lárusspn 17, Jón Gunnar
Magnússon 15, Jón Ólafur Jónsson 11,
Vilhjálmur Steinarsson 10, Sverrir
Óskarsson 9, Sigurjón Lárusson 5,
Ingvar Helgi Kristinsson 2.
Fráköst: 48 (16 í sókn, 32 í vörn,
Guðjón 13, Sigurjón 9, Jón Gunnar 7,
Jón Ólafur 7)
Stoösendingar: 16 (Vilhjálmur,
Guðjón 4)
Stolnir boltar: 5 (Jón Gunnar 3)
Varin skot: 8 (Guðjón 4, Jón Ólafur 3)
3ja stiga: KR 20/5, Stjarnan 21/4.
Víti: KR 31/25, Stjarnan 26/17.
KR
Stig: Valdimar Helgason 18, Hjalti
Kristinsson 18, Helgi Magnússon 17,
Steinar PáU Magnússon 8, Magni
Hafsteinsson 7, Jón Brynjar
Óskarsson 6, Jóel Sæmundsson 4,
Grétar Guðmundsson 3, Jón Amór
Stefánsson 3, Sindri Sigurðsson 2.
Fráköst: 49 (18 i sókn, 31 i vöm, Helgi
10, Valdimar 9 Hjalti 8, Magni 8)
Stoðsendingar: 21 (Jón Amór 5, Jóel 5)
Stolnir boltar: 14 (Jóel 4, Helgi 3)
Varin skot: 11 (Magni 5)
Maður leiksins:
Hjalti Kristinsson, KR
Skylduverkefni
- KR-ingar bikarmeistarar í unglingaflokki karla í slökum leik