Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 11. MARS 2002 29 Sport Eggert Garðarsson og Helgi Már Magnússon bestir í körfunni í febrúar: Gaman að sjá fram- farirnar hjá liðinu - segir Eggert Garðarsson og Helgi Már hefur tekið stefnuna á Bandaríkin „Ég verö að segja alveg eins og er að mér fannst við eiga það mikinn styrk í öllum stöðum til að komast þangað sem við erum í dag. Ég átti samtal við hvern og einn í upphafi tímabilsins og spurði þá hvert þeirra takmark væri. Þeir nefndu allir sem einn úrslitakeppnina og þangað stefndu þeir leynt og ljóst. Við mátum einnig stöðuna miðað við önnur lið og fannst þegar að öllu var á botninn hvolft við ekki lak- ari en mörg lið í deildinni. Það er ekki annað hægt en að vera ánægður með strákana til þessa í vetur,“ sagði Eggert Garðarsson, þjálfari Breiðabliks, í samtali við DV en hann var að mati íþrótta- fréttamanna hlaðsins þjálfari febrúarmánaðar. Með lið sem hefur burði til að leggja Njarðvíkinga Það ætti kannski ekki að koma neinum á óvart sem fylgst hefur með körfuboltanum á síðustu vikum. Blikum gekk flest í hag- inn og léku feiknarlega vel í mánuðinum og tryggðu sér að lokum sæti í úrslitakeppninni sem verður að teljast harla gott af nýliðum í deildinni. Spennandi og gefandi - Úr þvi sem komið er, hvert er takmark ykkar? „Við stefnum á íslandsmeist- aratitilinn, það er ekkert hægt að gera annað fyrst við erum komn- ir þarna inn. Leikirnir við Njarð- vik í 8-liða úrslitunum verða ör- ugglega hörku erfiðir. Njarðvík- ingar eiga á að skipa sterku liði en ég tel mig vera með það lið í höndunum sem hefur burði til að leggja þá að velli. Fyrst okkur tókst að komast í úrslitakeppn- ina verður maður að hafa trú á sínu liði og það hef ég svo sann- arlega," sagði Eggert en þetta er hans fyrsta tímabil sem þjálfari í efstu deild í körfuknattleik. Áður hafði Eggert þjálfað hjá Fjölni en tók síðan við Breiða- bliksliðinu og kom því síðan í úr- valsdeildina. Eggert sagði þjálf- arastarfið spennandi og gefandi. „Það er mjög gaman að sjá framfarirnar hjá liðinu. Þegar vel gengur er fátt skemmtilegra en að þjálfa og maður er í góðum félagsskap." Aðspurður hvernig honum hef- ur mótið fundist vera sagði hann það hafa verið skemmtilegt og spennan mikil undir það siðasta. Keflvíkingar hafa komið á óvart, maður átti von á þeim sterkum en ekki í toppsætinu. Það voru síðan ákveðin vonbrigði með fyrrum félaga mína í ÍR og eins Hauka að þessi lið náðu ekki að sýna sitt rétta andlit. Annars er flest annað eftir bókinni. Nú hefst úrslitakeppnin og spennan fyrir alvöru," sagði Eggert Garð- arsson. Viö ætlum aö fara alla leiö „Okkur hefur svona heilt yfir gengið ágætlega og það er ekki slæmt að lenda í þriðja sætinu. Við ætluðum okkur hins vegar að vinna deildina en þriðja sætið er samt viðunandi," sagði Helgi Már Mágnússon, hinn 19 ára gamli KR-ingur, sem valinn var leikmaður febrúarmánaðar. Háskóli og körfubolti í Bandaríkjunum „Mér líst vel á Hamarsmenn sem mótherja í 8-liða úrslitun- um. Það er engin launung að við ætlum aö fara alla leið en við höf- um svo sannarlega mannskap til þess,“ sagði Helgi Már. Hann sagði það stefna hjá sér eftir tímabilið að fara utan, fara í skóla og leika samhliða með körfubolta. „Ég ætla í háskólanám í Bandaríkjunum, það er ekki vit- að hvert á þessu stigi, en það er verið að vinna í þessum málum fyrir mig. Þangað stefnir hugur- inn og ég er bjartsýnn á að það gangi eftir. Ég ætla að bæta mig enn frekar sem körfuboltamann og svo sér maður hvað tekur við eftir það,“ sagði Helgi Már sem hlakkaði mikið til úrslita- keppninnar. -JKS Eggert Garðarsson, til vinstri, var útnefndur besti þjálfarinn í úrvalsdeild í febrúar. Það ætti að koma fáum á óvart en Blikar hafa átt góðu gengi að fagna á síðustu vikum. Við hliö Eggerts er Ólafur Már Magnússon, KR-ingur, en hann þótti að mati DV besti leikmaöur deildarinnar í febrúar. Ungur og upprennandi leikmaður á ferð. DV-mynd Hilmar Þór Mánaöarverdlaun Helgi Már Magnússon, KR, er besti leikmaður Epsondeildar karla í febrúar að mati blaðamanna DV-Sport. Helgi Már hefur vakið mikla athygli á sinu fyrsta ári í úrvalsdeildinni og er óum- deilanlega besti nýliði ársins. Helgi er aðeins 19 ára og fáir leik- menn í deildinni eru jafn fjölhæfir og hann. Barátta hans og vinnusemi á vell- inum er ómetanleg fyrir KR-liðið og mikið af hans framlögum í sókn og vöm telja kannski lítið í tölfræðinni en mikið fyrir liðið. Helgi skoraði 14,8 stig, tók 7,5 fráköst og gaf 2,5 stoðsendingar að meðaltali í sex leikjum KR í febrúar en Helgi nýtti 11 af 24 þriggja stiga skotum sínum í mánuðinum sem gerir 45,8% þriggja stiga nýtingu. Aðrir tilnefndir Pálmi Sigur- geirsson, Breiöabliki, fylgdi eftir frá- bærum janúar- mánuði með góð- um febrúar þar sem hann var að- almaðurinn á bak við frábæran ár- angur Blika. Pálmi skoraði 17,5 stig, stal 4,2 boltum og gaf 4 stoösendingar að meðaltali í sex leikjum Blika í febr- úar en fimm þeirra unnust. Guðjón Skúla- son, Keflavik leiddi sitt lið til sigurs í fimm af sex leikjum febr- úarmánaðar þar sem Guðjón skor- aði 19 stig að meðaltali í fimm leikjum. Guðjón fór mikinn fyrir utan þriggja stiga lin- una en alls setti hann niður 23 af 47 þriggja stiga skotum sínum, þar af 7 í sigri á Haukum. Þetta gerir 49% þriggja stiga skotnýtingu og 4,6 þriggja stiga körfur ileik. Teitur Örlygs- son, Njarðvík kom sterkur upp í febrúar eftir að hafa verið róleg- ur í tveimur mánuðum þar á undan en Teitur gerði 107 stig í sjö ieikjum sem gera 15,3 stig að meðaltali. Teitur skor- aði 18 stig og tók 8 fráköst þegar Njarö- víkingar fógnuðu bikarmeistaratitlin- um og var aðeins tveimur stoinum bolt- um og tveimur fráköstum frá þrefaldri tvennu í leik gegn Stjömunni þar sem hann varð fyrsti leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildar karla til að stela 1000 bolt- um. Óðinn Ásgeirs- son, Þór Ak. lék vel í febrúar og þá sérstaklega í sigurleik gegn Breiðabliki og naumu tapi gegn Keflavík. Óðinn gerði 19 stig að meðaltali í þrem- ur leikjum og tók auk þess að taka 8,8 fráköst og stela 2,8 boltum í leik. Óðinn gerði 34 stig og stal 5 boltum gegn Breiðabliki og skoraði 26 stig, tók 14 fráköst og stal 7 boltum gegn Keflavík. Logi Gunnars- son, Njarðvík var maðurinn á bak við að koma Njarðvíkingum aftur inn í bikar- úrslitaleikinn en hann gerði 22 stig i þeim leik og 17 stig að meðaltali í leik í febrúar. Logi hitti úr 89% víta sinna og42% skota sinna í mánuðinum. Eggert Garðarsson, Breióabliki, er besti þjálfarinn í febrúar að mati blaða- manna DV-Sport en undir hans stjórn vann Breiðablik fimm af sex leikjum sínum og kom sér úr hatrammri fall- baráttu inn i öruggt sæti í úrslita- keppninni. Eggert hefur sett saman stórskemmti- legt lið. 1 Kópavogi, þar sem allir eru að leggja sig fram og vinna sem ein liðs- heild og þrátt fyrir ungan aldur, litla reynslu og stjömulaust lið, eru Blikar að sýna þaö og sanna að þeir geta gert góða hluti í körfunni á næstu árum. Auk hans voru þeir Friðrik Ragnars- son, Njarðvik, Siguróur Ingimundar- son, Keflavik og Ingi Þór Steinþórs- son, KR tilnefndir. -ÓÓJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.