Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2002, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2002
13
i
I
!
PV_______________________________
í amstri dagsins og hita leiksins
Menn geta endalaust
deilt um gæði islenskrar
ljósmyndunar, en sú stað-
reynd að hér í fámenninu
skuli vera hægt að flnna
þrjá eða fjóra aðskilda hópa
faglega þenkjandi ljós-
myndara hlýtur að vera
vitnisburður um vægi ljós-
myndarinnar á íslenskum
sjónmenntavettvangi. Þess
vegna þykir ýmsum sem
Ijósmyndasýningar í háum
gæðaflokki mættu vera
fleiri.
Það er hins vegar alveg
óhætt - og að öllum öðrum
ólöstuðum - að halda sér-
staklega á lofti merki ís-
lenskra blaðaljósmyndara.
Jafnt í gúrkutíð sem í ann-
an tíma hafa þeir hnykkt á
fréttum með eftirminnileg-
um hætti, búið til fréttir og
sagt ógleymanlegar sögur
af mannlegum örlögum.
Um leið hafa þeir verið
blessunarlega lausir við
sjúklega hnýsni ýmissa erlendra starfsbræðra
sinna. Þeir hafa a.m.k. ekki verið að eltast við
dæmda barnaníöinga eða smygla sér inn á
sjúkrahús til að ljósmynda hjartaaðgerð á ráð-
herra, eins og breskum og þýskum blaðaljós-
myndurum flnnst sniðugt að gera. Ljósmynd-
arar á borð við Rax, Áma Sæberg og Einar
Fal á Morgunblaðinu, Gunnar V. Andrésson
og Þorvald Örn á DV, Braga Þór á Fróða og
Pál Stefánsson á Eddu-útgáfunni em allir fag-
menn fram í flngurgóma; þeirra er mátturinn
og dýrðin.
Uppskeruhátíð blaðaljósmyndara
Þrátt fyrir farsælt samstarf Ljósmyndarafé-
lagsins og Blaðaljósmyndarafélagsins til nokk-
urra ára um árlega sýningu, þá er sýningin sú
fyrst og fremst uppskeruhátið blaðaljósmynd-
ara. Með réttu ættu menn því að velja „mynd
ársins“, ekki bara „fréttamynd ársins“, úr
harðsoðnum fréttamyndunum sem verða til í
amstri dagsins og hita leiksins, ekki úr upp-
stilltum myndum, vandlega sniðnum að þörf-
um greinahöfunda eða spyrla. En hvaða aug-
‘um sem menn líta samsýningu ljósmyndara í
Gerðarsafni er hún fjölbreytt, áhugaverð og
sennilega betur upphengd en oft áður.
Myndlist
Ég hugsa líka að meiri sátt ríki um verð-
launaðar ljósmyndir en á fyrri sýningum,
með áðumefndum fyrirvara um „mynd árs-
ins“. Fréttamynd ársins er ótvírætt stúdía
Gunnars V. Andréssonar af Áma Johnsen,
bæði í ljósi undangenginna atburða og afsögn
þingmannsins nokkrum klukkustundum
áður. Þorkell Þorkelsson tók líka sterka
fréttamynd af Flóðinu í Norðfjarðará. Og þótt
ég hafl yflrleitt á mér vara gagnvart stríðs- og
hörmungafíkn blaðaljósmyndara þá verður
ekki horft fram hjá myndröð Þorvaldar Am-
ar frá New York, þó svo hún sé ekki tekin
beint af atburðunum 11. september. íþrótta-
ljósmynd ársins eftir Kristin Ingvarsson er
skondin og skemmtflega tvíræð en í þeim
flokki hefði einnig komið tfl greina ljósmynd
Þorvalds Arnar af
Þórey Eddu stangar-
stökkvara.
Portrett
af kynþætti
Af öðrum tegundum
ljósmynda staðnæmdist
ég einna helst við por-
trettmyndirnar, einkum
stúdíur Hreins Hreins-
sonar af Lóu Konn, sem
er greinilega einstakur
karakter. Svart-hvit
mynd Ásdisar Ásgeirs-
dóttur af Oddi Nerdram
er einnig frábærlega
uppbyggð, enda fyrir-
sætan sér vel meðvit-
andi um sitt dramatíska
útlit.
Og rétt er að geta
þess að innan vébanda
þessarar samsýningar
er að finna sérsýningu
sem nefnist „Leitin að
breska herramannin-
um“, höfundarverk Sig-
urðar Jökuls Ólafssonar. Hugmyndin er ein-
föld og klár; búa til eins konar portrett-úttekt
af þessum næstiun horfna kynþætti á Bret-
landseyjum. Sigurður ljósmyndar valda séntil-
menn, lorda, söra á ýmsum aldri, og biður þá
um leið að láta uppi skilgreiningar á séntil-
mennsku sinni. Sem felur í sér ákveðna þver-
stæðu, því eins og Gunnar Eyjólfsson segir í
sýningarskrá eiga sannir séntilmenn ekki að
vera sér meðvitandi um sérstöðu sina og hlut-
verk. Allt um það fylgjast að portrett og texti
frá hverjum fyrirsáta.
Þetta eru vel unnar myndir en format þeirra
og stærð gera að verkum að þær virka sem
„vignettur" í gömlum stíl fremur en sem átaka-
eða áhrifamiklar portrettmyndir fyrir nútima-
manninn. Má vera að höfundur sé með þessu
að árétta að breski séntilmaðurinn sé eins kon-
ar tímaskekkja. Aðalsteinn Ingólfsson
Sýningin stendur fram aö páskum. Geröarsafn er
opiö á skírdag kl. 11-17 og laug. 30.3. kl. 11-17
en lokaö föstudaginn langa.
Heimsviðburðir á Listahátíð í Reykjavík
- miðasala hefst strax þriðjudaginn eftir páska
Miðasala Listahátíðar í Reykjavík hefst
þriðjudaginn 2. apríl kl. 11 að Bankastræti 2.
Sala miða á Listahátíð hefur aldrei hafíst
svona snemma en í ljósi sívaxandi áhuga á há-
tíðinni og þess að fólk vill hafa tímann fyrir
sér var tekin sú ákvörðun aö hefja miðasölu
strax í byrjun apríl, rúmum mánuði áður en
hátíðin hefst.
Heildardagskrá Listahátíðar er komin út og
mun liggja frammi í miðasölunni og á helstu
listastofnunum landsins. Þar er að flnna allar
upplýsingar um viðburði, jafnt innlenda og er-
lenda, staðsetningar, dagsetningar og verð.
Mikil flölbreytni einkennir hátíðina og
koma listamennimir frá öllum heimshomum,
allt frá Japan tfl ísraels, og í fyrsta sinn í sögu
Lis,tahátíðar koma hingað stórir hópar frá
Argentínu, Rúmeníu og Kúbu. Meðal þeirra
viðburða sem mesta athygli vekja era tónleik-
ar sígaunahljómsveitarinnar Taraf de
Haidouks, tónleikar fiðlusnillingsins Maxim
Vengerovs og June Anderson sem er nú talin
ein fremsta sópransöngkona í heimi.
Af innlendum vettvangi era margir merkir
viðburðir, þeirra á meðal stórtónleikar Sigur
Rósar, Hilmars Amar Hilmarssonar, Stein-
dórs Andersen og fleiri í Laugardalshöll. Þar
hefla þeir til vegs og virðingar fomkvæðið
Hrafnagaldur Óðins sem legið hefur óbætt hjá
garði i mörg hundruð ár. Athugið að miðasala
á þann viðburð hefst viku síðar en almenn
sala eða 9. apríl.
Boðið verður til ókeypis tónleika á lista-
söfnum borgarinnar undir yfirslíriftinni „Fyr-
ir augu og eyru“; þar flytja innlendir tónlist-
armenn tónlist sem tengist sýningunum á
söfnunum. „Níu virkir dagar" er annað verk-
efni sem eflaust á eftir að setja svip á borgina.
Alla virka daga frá 13.-24. maí verða að viö-
stöddum áheyrendum flutt um 10 mínútna
löng örleikverk. Útsendingamar verða frá
hinum ólíklegustu stöðum, til dæmis frá
Bankastræti 0, frá strætóskýli í Lækjargöt-
unni, úr einum af hitaveitutönkunum undir
Perlunni og úr anddyri Landsbanka íslands.
Að hverju örleikverki standa eitt leikskáld og
einn myndlistarmaður en leikstjórar eru
Harpa Amardóttir og Ásdís Thoroddsen.
Á heimasíðu Listahátíðar www.lista-
hatid.is er að finna allar upplýsingar um
miðasölu og viðburði.
Tónlist
Ólafur og Jóhann
í gamalli leikmynd eins og út úr Spanskflug-
unni eða Fló á skinni hófu þeir Ólafur Kjartan
Sigurðarson barítónsöngvari og Jóhann Friðgeir
Valdimarsson tenórsöngvari að flyfla dagskrá
sina i gær, á síðustu hádegistónleikum íslensku
óperunnar í bili. Margt var um manninn og
menningarleg stemning í salnum. Ólafi Kjartani
var vel fagnað þegar hann stakk sér fram á svið-
ið út um einar af flölmörgum dyrum leikmynd-
arinnar góðu. Hann hóf dagskrána með tveimur
stuttum lögum eftir Sigurð Rúnar Jónsson og Jó-
hann G. Jóhannsson, hvort tveggja við
bráðsmellna texta Þórarins Eldjárns. Söngvar-
amir sungu svo tfl skiptis íslensk lög úr ýmsum
áttum, bæði kunn og minna þekkt. Ólafur Kjart-
an kitlaði áhorfendur og heillaði með litríkri og
leikglaðri túlkun sinni, textaframburður hans er
jafnan skýr og tær. Kannski má vitna í gagnrýni
Jónasar Sen frá því um daginn þar sem hann
kvartaði yflr þreytumerkjum á rödd Ólafs Kjart-
ans þvi að á efstu nótunum virtist hún reyndar
á stundum dálítið mött. En hann bætti það upp
með skemmtilegum og einlægum flutningi.
Engum dylst sem hlustað hefur á Jóhann Frið-
geir að þar fer maður með óvenjulega sterka ten-
órrödd. En það veldur jafnan vonbrigðum þegar
slíkir söngvarar freistast til að fara að sýna um
of hversu sterkt þeir geta sungið. Því miður féll
Jóhann Friðgeir of oft í þá gryflu á þessum tón-
leikum. Svo virðist sem hann noti hvert tæki-
færi til að þenja rödd sína til hins ýtrasta, oft á
kostnað tónlistarinnar. Nokkur lög voru þessu
marki brennd, t.d. Bikarinn eftir Eyþór Stefáns-
son og Jóhann Sigurjónsson en þar virtist það
beinlinis vera ætlunin hjá Jóhanni Friðgeiri að
sprengja í áheyrendum hlustirnar, hlutu menn
því þar t.d. að hugsa meira um sín eigin eyru og
þanþol og heilsu Jóhanns sjálfs en tónlistina sem
hann var að flyfja.
Hins vegar var víða unun á hann að hlýða,
þegar rödd hans fær að njóta sín áreynslulaust
eða þegar hann heldur aftur af henni og stund-
um nokkuð ýktum dramatískum tilþrifum sín-
um; flutningur hans t.d. á Ég lít í anda liðna tíð
var mjög fallegur og fór þar allt saman, hrein
innlifun og fögur raddbeiting. Oft mætti texta-
framburður hans vera betri en stundum skilst
alls ekki hvað hann syngur. Þannig varð t.d.
Einn sit ég yfir drykkju að „Usiévedrígju" og Ég
lít í anda liðna tíð að „Élídíanalínatí".
Söngvaramir tveir sungu svo í lokin tvö lög
saman og gerðu það sérlega vel, og nutu raddim-
ar sín afar vel saman. Jónas Ingimundarson lék
frábærlega vel undir á píanóið, fylgdi söngvur-
unum út i æsar og undirstrikaði og jók á stemn-
inguna.
Hrafnhildur Hagalin
___________________Menning
Umsjón; Silja Aðalsteinsdóttir silja@dv.is
Meistari Jakob
í Bergen
Myndin hér fyrir ofan er af sýningu sex fé-
laga úr Meistara Jakob galleríi sem stendur
yfir í Galleri Tablá í Bergen. Á sýningunni er
listvefnaður og leirlistaverk eftir Elísabetu
Haraldsdóttur, Guðnýju Hafsteinsdóttur,
Kristínu Sigfríði Garðarsdóttur, Sigríði
Ágústsdóttur, Auði Vésteinsdóttur og Þor-
björgu Þórðardóttur.
Fj alla-Eyvindur
á frönsku
Leikritið Fjalla-Eyvindur
eftir Jóhann Sigurjónsson er
komið út á frönsku í þýðingu
Ragnheiðar Ásgeirsdóttur og
Nabil E1 Azan. Þýðendumir
eru hjón og bæði leikhúsfólk.
Á frönsku heitir það Les
proscrits eða Útlagarnir, en
það heiti hefur kvikmynd
Victors Sjöströms eftir leikritinu á frönsku.
Útgefandi er Éditions Théátrales með styrk úr
þýðingarsjóðnum La Maison Antoine Vitez.
í tilefni af þessari útgáfu hefur verið boðað
tfl islenskrar leiklestrarhátíðar í París í mars
á næsta ári. Þar verður Fjalla-Eyvindur leik-
lesinn og auk hans flögur ný verk, Hægan El-
ektra eftir Hrafnhfldi Hagalín, Einhver í dyr-
unum eftir Sigurð Pálsson, Hafið eftir Ólaf
Hauk Símonarson og And Björk of course...
eftir Þorvald Þorsteinsson. Heiðursgestur á
hátíðinni verður frú Vigdís Finnbogadóttir.
Minjar og
mannvistarleifar
Næsti fyrirlestur í röðinni „Biskupstungur
- land og saga“ í Reykholtsskóla í Biskups-
tungum verður að kvöldi skírdags kl. 20.30. Þá
talar Bryndis Róbertsdóttir um minjar og
mannvistarleifar í héraðinu. Fyrsti fyrirlest-
urinn eftir páska er 4. apríl. Þá tala Davíð
Ólafsson og Lýður Pálsson um sögu héraðsins
á 19. og 20. öld.
Töfrar tvennra tíma
Á föstudaginn langa kl. 17 verða tónleikar í
Langholtskirkju þar sem Kór Langholtskirkju
flytur tónlist eftir Stravinsky og Bach.
Stjómandi er Jón Stefánsson.
Á efnisskránni er Messa eftir Stravinsky
(samin 1948) fyrir kór, einsöngvara og tvöfald-
an blásarakvintett. Einsöngvarar eru úr kórn-
um, Sigríður Gröndal sópran, María Mjöll
Jónsdóttir alt, Egill Árni Pálsson og Magnús
Guðmundsson tenórar og Þorvaldur Þorvalds-
son bassi. Seinna kórverkið er motettan Jesu,
meine Freude (BWV 227) eftir J. S. Bach. Þar
leikur Ágúst Ingi Ágústsson með á barokorg-
el, þannig að verkið hljómar í réttri tónhæð.
Þetta er lengsta mótetta Bachs og að líkindum
samin á mörgum árum.
Milli verkanna leikur Lára Bryndís Egg-
ertsdóttir á orgel sálmforleikinn O Mensch,
bewein’ dein’ Súnde groft (BWV 622) eftir J. S.
Bach, en Lára er félagi í Kór Langholtskirkju.
Operuperlur
A laugardaginn kl. 16 stendur Norðuróp, fé-
lag um óperuflutning, fyrir styrktartónleikum
í Salnum í Kópavogi undir yfirskriftinni „Óp-
eruperlur". Flutt verða atriði og aríur úr
þekktum verkum óperabókmenntanna, allt
frá Mozart til Wagners. Flytjendur eru Dagný
Jónsdóttir sópran, Elin Halldórsdóttir sópran,
Hrólfur Sæmundsson baritón, Jóhann Smári
Sævarsson bassi og Sigríður Aðalsteinsdóttir
mezzosópran. Pianóleikari er Ann Champert,
en hún er tónlistarstjóri við ríkisóperuna í
Saarbruecken i Þýskalandi auk þess sem hún
starfar reglulega við Bastille-óperuna í París
og á fleiri stöðum.
Páskar í
Listasafni Reykjavíkur
Öll hús Listasafns Reykjavikur, Ásmundar-
safn, Kjarvalsstaðir og Hafnarhús, verða opin
alla daga yfir páskana en leiðsögn færist til.
Ásmundarsafn er opið kl. 13-16, Kjarvalsstað-
ir kl. 10-18, leiðsögn mánud. kl. 15, og Hafnar-
hús kl. 11-18, skírdag kl. 11-19, leiösögn
þriðjudag kl. 16.
Á annan dag páska, 1. apríl, lýkur sýningu
Hannesar Lárussonar, Hús í hús á Kjarvals-
stöðum.