Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2002
23
I>V
Spænsku úrvalsdeildinni í knatts]
Sjö stiga
- Valencia vann spænska meistaratitilinn m
auk unr helg*
**’ ■ -
helg^H
fw
Sport
Leikmenn Valencia fengu spænska
meistarabikarinn, sem þeir tryggðu
sér fyrir viku, afhentan á laugardag-
inn eftir að hafa lagt Real Betis að
velli, 2-0.
„Við sýndum það í þessum leik að
við erum sannir meistarar. Leik-
menn mínir hafa staðið sig fráæbr-
lega á allan vetur og eiga þetta svo
sannarlega skilið,“ sagði Rafael Beni-
tez, þjálfari Valencia, eftir leikinn á
laugardaginn en hann tók við liðinu
síðastliðið sumar af Hector Cuper
sem hvarf til starfa hjá Inter Milan á
Italíu.
Valencia fékk aðeins 27 mörk á sig
í deildinni í vetur i 38 leikjum og
lagði sterk vörn ásamt frábærum
markverði grunninn að fyrsta Spán-
artitli Valenciu í 31 ár en félagið hef-
ur nú fimm sinnum unnið spænska
meistaratitilinn.
Þegar upp var staðið var förysta
Valencia sjö stig þvi Real Madrid,
sem undirbýr sig af kappi fyrir úr-
slitaleikinn gegn Bayer Leverkusen í
meistaradeild Evrópu á miðvikudag-
inn, steinlá fyrir Deportivo La Cor-
una á föstudagskvöldið. Real Madrid
heföi getað dottið niður i fjórða sætið
en Barcelona náði aðeins jafntefli
gegn neðsta liði deildarinnar, Real
Zaragoza, og missti þar með af mögu-
leikanum á þriðja sætinu.
Það breytir samt ekki því að sigri
Real Madrid ekki Bayer Leverkusen
á miðvikudaginn þá verður liðið að
fara í forkeppni meistaradeildarinn-
ar ásamt Barcelona. Deportivo La
Coruna er hins vegar öruggt inn í
meistaradeildina, þökk sé öðru sæt-
inu.
Real Mallorca bjargaði sér frá falli
í síðustu umferðinni með þvi að
sigra Valladolid, 2-1. Tenerife tapaði
fyrir Athletic Bilbao og heföi með
sigri komist upp fyrir Mallorca ef
þeir síðamefndu heföu ekki unnið
sinn leik. Fyrrverandi vinnu
veitendur Þórðar Guðjóns-
sonar í Las Palmas, sem
áttu einnig möguleika á því
að bjarga sér frá falli fyrir
síðustu umferðina,
gerðu jafntefli
gegn Real Socie-
dad og féllu
niður í fyrstu
deild ásamt
Tenerife og
Real
Zara-
goza.
-ósk
Santiago
Canizares,
landsliðsmark-
vörður Spánverja
og fyrirliði Spánar-
meistara Valencia, hef-
ur spænska meistara-
bikarinn hátt á loft en Val-
encia tryggði sér sjö stiga
forustu um helgina með
sigri i lokaleiknum gegn
Real Betis. Canizares lék
vel í marki Valencia í vet-
ur en liðið fékk á sig lang-
fæst mörk eða aðeins 27 í
38 leikjum. Reuters
•/ SPANN
í>í"'
Úrslit:
Deportivo-Real Madrid ........3-0
1-0 Makaay (45.), 2-0 Fran (74.), 3-0
Pandiani (90.).
Rayo VaUecano-Celta...........1-0
1- 0 Peragon (87.).
Osasuna-Alaves................0-1
0-1 Karmona (38.).
Tenerife-Athletic Bilbao .... 2-3
0-1 Urzaiz (11.), 1-1 Jaime (16.), 2-1
Fuertes, víti (45.), 2-2 Urzaiz (61.), 2-3
Guerrero (77).
R. Sociedad-Las Palmas.......1-1
0-1 Jorge, víti (21.), 1-1 Kovacevic
(78.).
R. Mallorca-VaUadolid ........2-1
0-1 Femando (35.), 1-1 Ibagaza (51.),
2- 1 Luque (72.).
Valencia-R. Betis.............2-0
1-0 Baraja (44.), 2-0 Vicente (90.).
Espanyol-Malaga...............1-2
0-1 Litos (11.), 0-2 Musampa (40.), 1-2
Tamudo (55.).
R. Zaragoza-Barcelona........1-1
1-0 Aragón (9.), 1-1 Saviola (44.).
^ SeviUa-ViUarreal............1-0
41-0 Toedtli, víti (32.).
Lokastaða:
[Valencia 38 21 12 5 51-27 75
' Deportivo 38 20 8 10 65-41 68
R. Madrid 38 19 9 10 69-44 66
’ Barcelona 38 18 10 10 65-37 64
Celta 38 16 12 10 6A46 60
R. Betis 38 15 14 9 42-34 59
Alaves 38 17 3 18 4144 54
Sevilla 38 14 11 13 51-40 53
Malaga 38 13 14 11 44-44 53
A. Bilbao 38 14 11 13 54-66 53
Vallecano 38 13 10 15 46-52 49
Valladolid 38 13 9 16 45-58 48
R. Sociedad 38 13 8 17 48-54 47
Espanyol 38 13 8 17 47-56 47
Villarreal 38 11 10 17 46-55 43
Mallorca 38 11 10 17 40-52 43
Osasuna 38 10 12 16 364 9 42
Las Palmas 38 9 13 16 40-50 40
Tenerife 38 10 8 20 32-56 38
Zaragoza 38 9 10 19 35-54 37
Jóhannes Karl Guðjónsson kom inn
á sem varamaður á 63. minútu í liði
Real Betis gegn Valencia.
Schalke bikarmeistari
- eftir sigur á Leverkusen, 4-2, í úrslitaleik á laugardag
Hollendingurinn Huub Stevens, þjálfari Schalke, kvaddi félagið með
bikarmeistaratitli en hann mun stjóma Herthu Berlin á næsta ári. Reuters
Schalke tryggði sér þýska bikar-
inn annað árið í röð þegar liðið
lagði Bayer Leverkusen, 4-2, í úr-
slitaleik í Berlín á laugardaginn.
Leikurinn var fjörugur og áður en
yfir lauk voru bæði Huub Stevens,
þjálfari Schalke, og Klaus Toppmöll-
er, þjálfari Bayer Leverkusen,
komnir upp í stúku. Stevens var
skrefinu á undan og var kominn
upp í stúku í hálfleik fyrir að rífast
í dómara leiksins og 16 mfnútum
síðar fór Toppmöller á eftir honum
fyrir sömu syndir.
Búlgarinn Dimitar Berbatov kom
Leverkusen yfir á 27. mínútu. Schal-
ke jafnaöi metin rétt fyrir leikhlé
þegar Jörg Böhme skoraði beint úr
aukaspymu. í seinni hálfleik tók
Schalke öll völd í leiknum. Victor
Agali kom þeim yfir, 2-1, á 68. mín-
útu og þremur mínútum síðar jók
gamla brýnið Andreas Möller mun-
inn í 3-1 eftir góðan undirbúning frá
Agali.
Danski framherjinn Ebbe Sand
skoraði síðan fjórða mark Schalke
með skalla á 85. mínútu og það
skipti litlu fyrir lokaútkomu leiks-
ins þegar Ulf Kirsten minnkaði
muninn fyrir Bayer Leverkusen á
siðustu mínútu leiksins.
Leikmenn Schalke hefðu ekki get-
að kvatt þjálfara sinn, Hollending-
inn Huub Stevens, á betri hátt en
hann mun taka við liði Herthu Berl-
in í sumar.
Leikmenn Bayer Leverkusen hafa
sennilega verið með hugann við úr-
slitaleikinn gegn Real Madrid í
meistaradeild Evrópu á miðvikudag-
inn i Glasgow en þetta var annar tit-
illinn sem liðið missir af á einni
viku.
-ósk
kerrupoki
buroarpoki
Stáikerra
Létt og meðfærileg
Verð áður: ^
3.500 kr. ír
Léttur 9" poki með
góðum hólfum og fæst
í fjórum litum 1
Verð áður: 12,500 kr. I
Léttur og góður poki
fæst í nokkrum litum
Verð áður: 11.500 kr.
Ho e n