Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 DV Fréttir Héraðsdómur: Dæmdur fyrir kynferðislega hegðun Maöur á sjötugsaldri var fyrir Héraðsdómi Reykjavikur dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega hegðun gagnvart unglingsstúlku þegar þau unnu saman á bensínstöð í ágúst sl. Maðurinn og stúlkan voru bæði á vakt á bensínstöðinni daginn sem þetta gerðist. Samkvæmt framburði stúlkunnar fór maðurinn inn á sal- erni þar sem hún var að snyrta sig, læsti hurðinni, kastaði af sér þvagi og þvoöi síðan kynfæri sín í vaskin- um fyrir framan stúlkuna. Maðurinn bar að hann hefði farið inn á salemið án þess að gera sér grein fyrir því að hún væri þar inni og spurt hvort hann mætti kasta af sér vatni. Við þingfestingu sagðist hann hafa þvegið á sér kynfærin en hann dró þann framburð síðan til baka fyrir dómi. Hann neitaði að hafa talað við hana á klámfenginn hátt og að hafa snert hana. Dómurinn telur það sannað mið- að við framburö þeirra beggja og annarra vitna að maðurinn hafl far- ið inn á salemið og viðhaft kynferðislega tilburði gagnvart stúlkunni. Ekki þótti hins vegar sannað að hann hefði snert hana. Hæfileg refsing þótti tveggja mán- aða fangelsi en refsingin fellur nið- ur eftir tvö ár haldi ákæröi almennt skilorð. Ákærði var einnig dæmdur til að greiða stúlkunni 150 þús. krónur auk vaxta í miskabætur og til að greiða allan sakarkostnað. -HI Leigubílstjórafélagið Átak í stríð við Kynnisferðir: Hefur kært fyrirtækið til Ríkislögreglustjóra - m.a. vegna þungaskattsbrota - framkvæmdastjóri vísar því á bug Bifreiðastjórafélagið Átak, félag óháðra og frjálsra leigubifreiðar- stjóra í Reykjavík og nágrenni, hef- ur sent efnahagsbrotadeild Ríkislög- reglustjóra, Ríkisskattstjóra, Sam- keppnisstofnun og Vegagerðinni kæru vegna meintra brota fyrirtæk- isins Kynnisferða á lögum um þungaskatt og brot á samkeppnis- reglum. Kristján Jónsson, fram- kvæmdastjóri Kynnisferða, vlsar þeim ásökunum algjörlega á bug Bifreiðastjórafélagiö Átak óskar eftir rannsókn á því hvemig Kynnis- ferðir komist hjá því að vera með bifreiðir sinar, sem era yfir 4 tonn að þyngd, á þungaskattsmæli. Bent er á að ákveðnar bifreiöir af Benz Sprinter gerð séu yfir 4 tonn að þyngd og eigi samkvæmt því að vera á mæli en ekki fóstu þungaskatts- gjaldi. Þess vegna verði ríkissjóður af miklum tekjum um leiö og það skekki samkeppnisstöðu á markaði. Þá er líka bent á að Kynnisferðir hafi fengið niðurfellingu á þunga- skatti á leiðinni Keflavíkurflugvöll- ur - Loftleiðahótel í Reykjavík. Telja Átaksmenn niðurfellingu þunga- skatts á þessari leið ekki samrýmast lögum og benda á hagnaðartölur Kynnisferða á síðasta ári. Þá er full- yrt að Kynnisferðir noti þessar sömu bifreiðar í akstri um allt land. Átaksmenn hafa líka áhyggjur af akstri hópferðabíla Kynnisferða um höfuðborgarsvæðið. Þar séu kynnis- ferðir að fara inn á starfssvið leigu- bílstjóra í skjóli sérleyfis á leiðinni til Keflavíkur. Fráleitt Kristján Jónsson, ffamkvæmda- stjóri Kynnisferða, segir þetta erindi Átaksmanna koma sér á óvart. Ekk- ert óeðlilegt sé við notkun umræddra Benz Sprinter bifreiða. Þær séu skráðar af opinberum aðOum og beri þungaskatt samkvæmt þeirri skrán- ingu. Reyndar séu slíkir bilar notaðir af fjölda aðila um aiit land, m.a. af leigubílstjórum. „Ég vísa því bara til yfirvalda i þessu efni,“ segir Kristján. „Varðandi niðurfellingu þunga- skatts á leiðinni Keflavíkurflugvöll- ur Hótel Loföeiðir þá er fráleitt að halda því fram að sú leið sé rekin meö hagnaði. Það er bara hluti af þungaskattinum felldur niður og þá einungis af farþegaakstrinum. Nið- urfellingin tekur eingöngu til akst- urs á þessari leið og því er ekkert óeðlilegt að sömu bílar geti verið á öðrum leiðum líka. Varðandi innanbæjarakstur á höfuðborgarsvæðinu segir Kristján að það sé verið að reyna að láta hót- el og gististaði sitja við sama borð. „Við lágum undir ámæli fyrir aö mismuna stöðunum með því að vera eingöngu með akstm- frá Hótel Loftleiðum. Þá fóram við út í það að láta alla sitja við sama borð og sækja farþegana á hótelin. Fyrir það tökum við ekkert gjald. Samkeppn- isyfirvöld hafa áður úrskurðað um sama mál 1998 þar sem þetta var talið fullkomlega lögmætt,“ sagði Kristján að lokum. -HKr. ☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆ tfiftarfeiB ehf. ? Stórhöfda 27 sími 5S2-2125 og 895-9376 ☆ Klassískur kaBBafl't*1, 9.900 8tálBtron8l»9itar 16.900 Barnagítarar 7.900 BaBBli magnart 09 *nur www.gitarinn.is ^ gitaPÍnn@gitarinn.iE ^ Ríkisendurskoðandi annast verkefni fyrir Reykjavíkurborg: Endurskoðar reikninga leikskóla borgarinnar - borgarendurskoðandi er vanhæfur vegna skyldleika Sigurði Þórðarsyni ríkisendur- skoðanda hefur verið falið að end- urskoða ársreikninga leikskóla Reykjavíkurborgar fyrir árið 2001. Venjulega sér Borgarendurskoðim um þessa vinnu en ástæðan fyrir því að það er ekki gert núna er sú að borgarendurskoðandi er van- hæfur vegna skyldleika. Þannig er mál með vexti að fjár- málastjóri leikskóla Reykjavíkur er nú í fæðingarorlofi og sá sem gegnir starfinu í fjarveru hans er sonur Símonar Hallsonar borgar- endurskoðanda. Þar með er borg- arendurskoðandi og allt hans starfsfólk vanhæft 1 málinu. Því varð að fá ann- an aðila til að annast þessa endurskoðun og var Sigurð- ur fenginn til þess. Slmon sagði 1 samtali við DV að þetta væri gert í sam- ræmi við lög um endurskoö- endur sem kveða á um að stjómendur megi ekki vera skyldir þeim sem endurskoða reikninga stofnunarinnar. „Það var samþykkt á fundi borgarstjóm- ar i síðasta mánuði að fela Sigurði þessa vinnu. Mér finnst það aukaatriði hvort sá sem vinmu- þetta sé ríkisendur- skoðandi eða einkaaðili. Þetta er iðulega gert þegar um vanhæfi er að ræða,“ segir Símon. Ef fúndargerðir era skoð- aðar kemur fram að Sigurði sjálfúm er falið að annast þessa vinnu en Ríkisendur- skoðun er að öðra leyti ekki nefnd á nafn. Ekki náðist í Sigurð i gær vegna málsins þar sem hann er staddur erlendis. -HI Slgurður Þðrðarson. Þar sem gengi krónunnar er hagstætt í dag getum við boðið þér frábært verð á þessum Renault bílum. Renault Laguna II fólksbfll Renault Scénic fólksbíll Renault Mégane Berline fólksbíll aialán, afborgun á mán. Rekstraileiga: 39.351 Verðáöur 2.090.000 Verðnú 2.006.000 aialán, afborgun á mán. Rekstrarleiga: 38.665 Bílalán, afbongun á mán. Rekstrarieiga:31.758 Verðáöur 1.630.000 Verðnú 1.564.800 Verðáður 2.050.000 Verðnú 1.968.000 Grjóth&la 1 • Slmi 675 1200 Söludaild 575 1220 • www.bl.is Rekstrarleigan er til 36 mán., m.v. við 20.000 km á ári og ertenda myntkörfu. Rekstrarleiga er aðeins (boði til rekstraraðila (fyrirtækja). Bílalán miðast við 30% úttrorgun og 84 mán. samning. Allar tölur eni með vsk. DV-MYND í fótbolta í Fífunni Einn af efnilegustu fótboltamönnum yngri kynslóðarinnar sýndi snilldartakta við opnun Fífunnar, nýs fjölnota íþrótta- og sýningarhúss í Kópavogsdal. Hús- iö var formlega opnað fyrir helgina. Fífan er byggð af Kópavogsbæ og hófust framkvæmdir 3. júlí á síðasta ári. Byggingartíminn er því óvenju skammur. I húsinu ergóð aðstaða til margvíslegrar íþróttaiökunar. Heildarkostnaöur við byggingu hallarinnar er rösklega hálfur milljarður króna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.