Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Side 12
12
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002
DV
REUTERSMYND
Viö bílflak
ísraelskur hermaöur stendur viö flak
bíls Jihads Jibrils, sonar palestínsks
skæuruliðaleiðtoga, eftir sprengjutil-
ræði i Beirút i gær.
Leyniþjónusta
Jórdaníu bendluð
við bílsprengju
Palestínski skæruliðaleiðtoginn
Ahmed Jibril sakaði i morgun
leyniþjónustu Jórdaníu um að hafa
tekið þátt í því með ísraelum að
drepa son hans i bílsprengingu í
Beirút í gær. Það var arabíska sjón-
varpsstöðin al-Jazeera sem greindi
frá þessu.
ísraelar hafa visað á bug vanga-
veltum um að þeir hafi staðið fyrir
morðinu.
Jihad Jibril, sonur skæruliðaleið-
togans, hefur verið sakaður um að
standa fyrir smygli á vopnum frá
Líbanon til palestínskra vígamanna
á Vesturbakkanum og Gaza.
Lögregla i Beirút lokaði götu þar
í morgun eftir að ábending barst um
að sprengja væri þar í bíl.
Harðir bardagar í
Kasmír í morgun
Indverskar og pakistanskar her-
sveitir beittu þungavopnum í átök-
um i hinu umdeilda Kasmír-héraði í
morgun. íbúar í landamærahéruð-
unum sáu þann kostinn vænstan að
flýja heimili sin vegna bardaganna.
Hermt er að fimm menn hafí fall-
ið í átökunum í morgun sem hafa
orðið til þess að auka enn á spenn-
una milli kjamorkuveldanna Ind-
lands og Pakistans. Indverska lög-
reglan sagði að þrír óbreyttir borg-
arar og einn hermaður hefðu fallið
og Pakistanar sögðu að tíu ára
drengur hefði látið lífið.
Atal Behari Vajpayee, forsætis-
ráðherra Indlands, er væntanlegur
til Kasmírs í dag og heimsækir her-
stöð þar sem rúmlega þrjátíu féllu í
árás fyrir helgi.
Blair hvetur ESB
og BNA til að
jafna ágreining
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hvatti í morgun stjóm-
málamenn beggja vegna Atlants-
hafsins til að hætta að reka fleyg
milli Evrópu og Bandarikjanna, á
sama tima og George W. Bush
Bandarikjaforseti leggur lokahönd á
undirbúning erfiðrar Evrópuferðar.
Bush leggur á morgun upp í sex
daga ferðalag til Þýskalands, Rúss-
lands, Frakklands og Ítalíu. Búist er
við að þúsundir manna muni nota
tækifærið og mótmæla hugsanleg-
um árásum á írak, svo og stefnu
Bush í viðskiptum, umhverfismál-
um og málefnum Mið-Austurlanda.
Blair, sem er dyggasti bandamað-
ur Bush i Evrópu, reyndi að róa
menn í báðum herbúðum.
Aukinn ótti við hryðjuverk:
Varað við sjálfsmorðs-
árásum á Bandaríkin
Robert Mueller, yfirmaður
bandarísku alrikislögreglunnar
FBI, segist nokkuð sannfærður
um það að sjálfsmorðsárásir verði
gerðar í Bandaríkjunum líkt og er
að gerast í ísrael. Þetta kom fram
í ræðu Muellers í gær, aðeins degi
eftir að Dick Cheney, varaforseti
Bandaríkjanna, hafði lýst því yflr
að hann væri viss um að al-Qaeda-
samtökin væru með nýjar árásir á
Bandarikin í undirbúningi. „Að
mínu mati er það ekki spurningin
um hvort af því verður, heldur
hvar og hvenær," sagði Cheney.
Mueller var á sama máli og
sagði: „Ég hefði frekar viljað færa
ykkur jákvæðari fréttir eftir það
sem á undan er gengið, en það er
þvi miður ekki hægt. Ég á frekar
von á að þetta muni gerast fyrr en
síðar og að skotmörkin verði opin-
berar byggingar og fjölfarnir stað-
ir. Þaö er mjög erfitt fyrir okkur
að fylgjast grannt með því hvað
öfgasamtök eins og al-Qaeda hafa í
hyggju og þess vegna verðum við
Robert Mueller
Robert Mueller, yfirmaður alríkislög-
reglunnar FBI, varaði igær við hugsan-
legum sjálfsmorðsárásum í
Bandaríkjunum.
stöðugt að vera á varðbergi,“
sagði Mueller.
Aðrir áhrifamenn í Bandaríkj-
unum hafa tekið undir viðvaranir
þeirra Muellers og Cheneys og er
þingmaðurinn Bob Graham, sem
jafnframt er formaður leyniþjón-
ustunefndar þingsins, einn þeirra.
Hann segir að í raun séu Banda-
ríkin opin fyrir hvers kyns árás-
um allra mögulegra hryðjuverka-
hópa annarra en al-Qaeda.
„Al-Qaeda-samtökin eru ekki
okkar eini óvinur," sagði Graham
i sjónvarpsviðtali i gær og nefndi
til sögunnar samtök eins og Hez-
bollah og íslömsku Jihad-samtök-
in sem bæði hefðu það að tak-
marki sínu að ráðast gegn Banda-
ríkjunum.
„Það eru nokkur alþjóðleg
hryðjuverkasamtök sem sett hafa
sér svipuð takmörk og al-Qaeda,
sem hafa meiri getu og styrk til
þess að ráðast gegn Bandaríkjun-
um,“ sagði Graham.
REUTERSMYND
Clinton gerður að heiðursdoktor
Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseti, var gerður að heiðursdoktor við Nihon-háskóla í Japan i morgun fyrir þátt sinn í
vexti og viðgangi bandarísks efnahagslífs og fyrir forystuhlutverk sitt í aö koma á friði í heiminum. Á myndinni tekur
Clinton i hönd Miwako Ando, sem stundar nám við Nihon-háskólann, þann stærsta í Japan.
Kúbverjar saka Bandaríkjaforseta um atkvæðaveiðar:
Bush neitar að slaka á við-
skipabanninu gegn Castro
Kúbversk stjómvöld sökuðu Ge-
orge W. Bush Bandaríkjaforseta um
að vera á atkvæðaveiðum í Flórída
og um að virða að vettugi skoðanir
flestra Bandaríkjamanna með því
að herða á viðskiptabanninu á
Kúbu.
Bush hét því í gær að beita neit-
unarvaldi sínu gegn öllum tilraun-
um til að slaka á viðskiptabanninu
þar til stjómvöld á Kúbu innleiddu
markaðshagkerfi og lýðræði. Með
afstöðu sinni gengur Bush þvert á
stefnu margra stórfyrirtækja og ým-
issa samflokksmanna sinna sem að-
hyllast frjálsa verslun.
„Ég vil að þið vitið hvað það þýð-
ir að eiga í viðskiptum við harð-
stjóra. Það þýðir að við ábyrgjumst
harðstjóm og við getum ekki látið
það gerast," sagði Bush í ræðu sem
REUTERSMYND
Bandaríkjaforsetl í ham
George W. Bush sagði á fundi með
kúbverskum útlögum í Miami aö
hann væri alfariö á móti þvi aö
slaka á viðskiþtabanninu á Kúbu.
hann hélt á hátíð kúbverskra
Bandaríkjamanna sem upp til hópa
era andstæðingar Castros.
„Og ég vil líka að þið vitið að ég
mun ekki líða það að skattfé banda-
rískra borgara fari í að auðga stjóm
Castros. Og ég er reiðubúinn að
beita neitunarvaldi mínu,“ sagði
Bandaríkjaforseti enn fremur.
Bandarikjamenn settu viðskipta-
bann á Kúbu fyrir fjórum áratug-
um. Jimmy Carter, fyrrum Banda-
ríkjaforseti, var á Kúbu i síðustu
viku og hvatti hann meðal annars
til þess að slakað yrði á viðskipta-
banninu. Sú skoðun nýtur vaxandi
fylgis á Bandaríkjaþingi og meðal
kaupsýslumanna sem sjá hag sinn í
viðskiptum við Kúbverja. Kúb-
verskir útlagar í Bandaríkjunum
eru andvígir öllum tOslökunum.
Fékk ekki meirihluta
Bertie Ahern, for-
sætisráðherra ír-
lands, og flokkur
hans náðu ekki
hreinum meiri-
hluta á írska þing-
inu, þrátt fyrir
glæsilegan sigur í
þingkosningunum
sem haldnar voru á írlandi um helg-
ina. Niðurstaðan þýðir að Ahem
muni að öllum líkindum halda
áfram samvinnu sinni við fram-
sækna demókrata.
Engin áhrif á HM
Yfirvöld í Suður-Kóreu sögðu í
morgun að þau hefðu náð tökum á
gin- og klaufaveikifaraldri sem
kominn er upp i landinu og að hann
hefði engin áhrif á heimsmeistara-
keppnina í knattspymu.
Sögðu ekki forsetanum
John Ashcroft, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, og Robert S.
Mueller, forstjóra FBI, var sagt
skömmu eftir árásimar 11. septem-
ber frá minnisblaði þar sem varað
er við að öfgamenn kynnu að vera í
flugnámi vestra. Þeir létu Bush for-
seta ekki vita, að sögn New York
Times í morgun.
Bankaræningjar út á land
Bankaræningjar i Danmörku láta
í æ meiri mæli til skarar skríða í
litlum bankaútibúum úti á lands-
byggðinni þar sem löggæslan er
ekki jafnmikil og í Kaupmannahöfn.
Sammála um NATO
Laura Bush, for-
setafrú í Bandaríkj-
unum, ræddi við
Vaclav Havel Tékk-
landsforseta i Prag
í gær, síðasta
áfangastað Evrópu-
ferðar sinnar. Þau
voru sammála um
að Rússar gætu orðið bandamenn
NATO, en ekki endilega aðilar að
bandalaginu.
Japanar gefa eftir
Japönsk stjómvöld gáfu til kynna í
morgun að þau væru að gefa eftir í
deilu sinni við Kínverja um flmm
norður-kóreska flóttamenn sem voru
dregnir burt úr japanskri ræðis-
mannsskrifstofu fyrir nærri tveimur
vikum.
Aznar styður breytingar
José Maria Aznar,
forsætisráðherra
Spánar, bættist í gær
í hóp þeirra sem
hvetja til að gerðar
verði breytingar á
formennsku í Evr-
ópusambandinu. Að-
ildarrikin gegna nú
formennsku hálft ár í senn en ljóst er
að það muni ekki ganga í framtíðinni
eftir stækkun ESB.
Vísindamaður látinn
Bandariski steingervingafræðing-
urinn Stephen Jay Gould, prófessor
við Harvard-háskóla sem best er
þekktur fyrir að breyta kenningum
Charles Darwins, lést í gær, sextugur
að aldri.
Valdbeiting er úrelt
Dalaí Lama, útlægur trúarleiðtogi
Tíbeta, sagði í morgun að valdbeiting
Bandaríkjamanna í samskiptum sín-
um við aðra væri úrelt.