Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 2002 I>v Fréttir Vísindaleg bomba íslenskrar erfðagreiningar gæti breytt ýmsu: Fyrirtækið hefur aldrei verið sterkara - segir Kári Stefánsson og viðurkennir að stundum sé starfið erfitt Kári Stefánsson, forstjóri ís- lenskrar erfðagreiningar, var að vonum hæstánægður með árangur fyrirtækisins i gerð öflugasta og Eldur kom upp í íbúðarhúsi við Vogabraut á Höfn um kl. 19 á fostudagskvöld. Slökkviliöinu gekk greiðlega að slökkva eldinn, sem var mestur í eldhúsinu þar sem hann kom upp, en hann fór einnig inn í stofuna og á ganginn framan við eldhúsið. áreiðanlegasta erfðamengunarkorts sem kynnt hefur verið visindaheim- inum til þessa. Hann hrósaði starfs- fólki sínu í spjalli við DV í gær- á Höfn í húsinu búa ung hjón með tvö böm. Þau urðu fyrir tflfmnanlegu tjóni því innbú skemmdist mikið af eldi og reyk. Hús og innbú er vátryggt. Tryggingamatsmenn koma frá Reykjavík á mánudag til að meta skemmdimar. -JI kvöld. „Ég leyni því ekkert að ég er rosalega montinn af þessu," sagði Kári Stefánsscn, en um hann og fyr- irtæki hans hefur gustað talsvert um alllanga hríð. „Ég tel þetta stórt skref, ekki bara fyrir okkur heldur erfðavísindin í heild sinni," sagði Kári. Konan merkilegri en karlinn Athygli vekur að rannsókn ÍE gengur út frá því að konur gegni stærra hlutverki í þróvrn mannsins en karlmennirnir: „Þegar erfðamengi flyst frá for- eldrum tfl afkvæmis leiðir það tfl breytingar sem viö köflum endur- röðun og er 1,6 sinnum meiri þegar það flyst frá móður til bams en frá fóður til barns. Ein af ályktununum sem má draga af því er sú að breyt- ingar sem eiga sér stað verða meiri í konum en körlum. Hvað þetta þýð- ir endanlega er alls ekki ljóst en svona er þetta. Svipuð tala hefur verið viðruð áður en þetta er góð staðfesting. Hitt er nokkuð nýtt aö endurröðunartíðnin er nokkuð mis- munandi eftir flölskyldum og breytileg frá einu bami tfl annars hjá sömu móður,“ sagði Kári. Kári Stefánsson segir að erfða- kortið veki mjög margar spennandi spumingar sem íslensk erfðagrein- ing og aðrir muni takast á við á komandi ámm. „Þetta kort veitir öllum heimin- um aðgang að þessu korti, öllum þeim sem eru að vinna að erfða- rannsóknum. Við komum tfl með að senda þeim niðurstöðumar af þessu korti og vonandi mun þetta hjálpa mönnum við störf þeirra á rann- sóknastofum og án efa verður það notað mjög víða,“ sagði Kári. Kortið er að mati visindamanna flmm sinnum öflugra en fyrri mengiskort og Kári segir að ástæðan fyrir þvi að starfsmenn fyrirtækisins gátu unnið þetta verk sé sú að slagkraft- ur þeirra hjá íslenskri erfðagrein- ingu sé tífaldur á viö þá stofnun sem næst kemur - hér hafi menn unnið meiri vinnu, unnið nákvæm- ar. Lækningin langt undan „Auðvitað er langur vegur þang- að tfl lækning flnnst á ýmsum sjúk- dómum sem að steðja. Menn þurfa að átta sig á að margir af þessum al- gengu, flóknu sjúkdómum, sem herja á okkur í dag, stafa af því hversu lífaldur fólks hefur lengst. Það má segja að hönnun mannsins hafi verið flott þegar ævin entist í fjörutíu ár en afleit eftir að hún varð áttatíu ár. Við losnum ekki við þessa sjúkdóma með öllu en lærum að kljást viö þá,“ sagði Kári. „Við erum með frábæra vísinda- menn i fyrirtækinu sem eru stöðugt að setja saman nýjar aðferðir, allt saman fólk sem vinnur hér í Reykjavík, margir algjör sjení - annað verður ekki sagt. Þetta er lið sem á sér engan líka neins staðar og ekki undarlegt að ég sé montinn af þessu fólki,“ sagði Kári Stefánsson. Stundum auðmýkjandi Kári sagði það vissulega erfitt að reka fyrirtæki á þessu sviði, stund- um hreint út sagt auðmýkjandi, en svo komi bjartari dagar eins og þeir sem nú renna upp. Fyrirtæki á þessu sviði hafa lækkað í markaðsvirði eins og deCODE genetics, sem Kári segir að stafi af glötun á tiltrú al- mennings til þessa iðnaðar. „En fyr- irtækið hefur aldrei verið sterkara en einmitt núna. Markaðurinn mun eiga eftir að meta okkur að verðleik- um. Þetta er stundum erfitt og auð- mýkjandi og við það þurfum við að búa. Svona er nú lífið. í okkar vinnu tekst sumt og annað ekki, menn verða að hafa biðlund en varast að níða skóinn niður af öðrum," sagði Kári að lokum. -JBP DVA1YND JÚLÍA IMSLAND Miklar skemmdir Eins og sjá má á myndinni er eldhúsiö og borökrókurinn mjög illa brunniö og öll rafmagnstæki ónýt. Brann hjá ungum hjónum Fíkniefnapartí í Hveragerði: Þrettán unglingar handteknir - fíkniefnahundur sannaði gildi sitt Þrettán unglingar á aldrinum 17-20 ára, úr Hveragerði, Reykjavík og af Suðurnesjum, voru handtekn- ir í Hveragerði upp úr klukkan eitt í fyrrinótt þar sem þeir voru með fikniefni undir höndum. Lögreglan á Selfossi gerði húsleit í samkvæmi í húsi í bænum, eftir aö hafa komist á snoðir um sam- kvæmi í því. Húsið er nokkuð þekkt fyrir samkvæmi og talið að þar séu gjaman fikniefni höfð um hönd. í húsinu fannst bæði hass og am- fetamín. Fólkið var flutt á lögreglu- stöðina á Selfossi. 8 fengu að fara heim eftir yfirheyrslur en fimm fengu að gista fangaklefa lögregl- unnar og voru yfirheyrð í gær. Hjá lögreglunni á Selfossi fengust þær upplýsingar í gærkvöld að rann- sókn málsins væri lokið. Búið væri að sleppa öllum sem handteknir voru í aðgeröum lögreglunnar og á næstu dögum færi málið tfl með- ferðar á dómstigi Nýr liðsauki lögreglunnar kom að góðu gagni við lögreglustörfin, Fenrir, ungur fikniefnahundur sem er sérlega efnilegur. Rúnar Þór Steingrímsson lögreglumaður hefur þjálfað hundinn Fenri og aliö hann upp. Hann sagði við DV í gær að hundurinn hefði staðið sig með af- brigðum vel í aðgerðinni. „Hann fann fíkniefni bæði á fólkinu, í bíl og þar sem búið var að fela það inn- andyra eftir að aðgerðin fór í gang,“ sagði Rúnar. Það er því góður liðs- auki sem Selfosslögreglu hefur hlotnast með þessum ötula lögreglu- hundi. -NH DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON Sannaöi sig Rúnar Þór Steingrímsson meö hundinn Fenri sem átti stóran þátt í aögeröum Selfosslögreglunnar í Hverageröi á sunnudegsnóttina. Hundurínn fær sitt sérkennilega nafn af Fenrisúlfi, syni Loka, skæöasta háskagrip norrænnar goöafræöi. Svínakjöt vinsælla Samkvæmt nýju yfirliti frá Bændasamtökum íslands seldist meira af svínakjöti hér á landi en lambakjöti og hefur það ekki gerst áður. í aprílmánuði seldust rúm 524 tonn af svínakjöti en 513 tonn af lambakjöti. Ákærður fyrir morðtilraun 54 ára íslenskur karlmaður er í haldi í Kaupmannahöfn fyrir morð- tilraun. Maðurinn stakk fimmtuga eiginkonu sína í háls og brjóst. Hún er mállaus en úr lífshættu en radd- bönd hennar eru skorin í sundur Samkvæmt dönskum blöðum höfðu hjónin deilt um peningamál. Bæjarstjóri óskast Auglýstar hafa verið 8 stöður bæj- ar- og sveitarstjóra. Auglýst er eftir bæjarstjórum á Blönduósi, Austur- Héraði, Ólafsfirði, í sveitarfélaginu Árborg og í Vesturbyggð. Sveitar- stjórastöður eru lausar í sveitarfé- laginu Ölfusi, Hrunamannahreppi og Húnaþingi vestra. Eldsneyti úr bensíngufum Verið er að undirbúa uppsetn- ingu á lofthreinsibúnaði, eins konar gufugleypikerfi, á athafnasvæði 01- íudreifmgar og Skeljungs í Örfiris- ey í Reykjavík þar sem félögin reka birgðastöðvar fyrir eldsneyti. Þannig er unnt að safna bensínguf- um sem streyma út þegar bensíni er dælt í tóma birgðatanka og þétta þær til að úr þeim verði bensín á ný. Einnig kemur söfiiunarbúnaður- inn í veg fyrir mengun. Mbl.is greindi frá. Þrumuveður á Suöurlandi Eldingu laust niður í línu Lands- virkjunar sem liggur frá Hrauneyja- fossvirkjun að Sultartanga upp úr klukkan fimm á laugardaginn og sló línunni út í nokkrar mínútur. í veðurathugun klukkan níu á laugardagsmorgun var tilkynnt til Veðurstofunnar um þrumuveður í Básum í Þórsmörk og eins á Vatns- skarðshólum í Mýrdal. Eldur í bílskúr Slökkviliðiö í Vestmannaeyjum var kallað út um hálifjögurleytið í gær vegna elds í bílskúr við Vest- mannabraut. Nágranni varð var við eldinn og hafði samband við lög- reglu. Greiðlega gekk aö slökkva eldrnn en bílskúrinn er talinn ónýt- ur. Tvö fimm ára böm, piltur og stúlka, höfðu verið aö leika sér með eldspýtur í skúmum. Þau hentu log- andi eldspýtu ofan í ruslafotu og hlupu svo út. Faðir annars bamsins á skúrinn og var hann ólæstur. Eng- in slys urðu á fólki og engin önnur hús voru í hættu því að bílskúrinn er á bersvæði. Forseti skal hafa afskipti Guðmundur Ámi VI Stefánsson alþingis- fl maður telur eðlilegt ™ r að forseti Islands, , | hr. Ólafur Ragnar JM Grímsson, hafi af- ■ W skipti af banninu á ■ jj| kínversku friðar- og inguna Falun Gong. Guðmundur segir aö Ólafi beri skylda til þess þar sem hann er gestgjafi Jiang Zemin, forseta Kína, en opinber heimsókn hans til landsins hefst í vikunni. -vlg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.