Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Side 4
4
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 2002
Fréttir ÐV
Falun Gong-iðkendur hittust á Austurvelli í gær:
Við erum samfé-
laginu skaðlaus
- segir Kevin Yang, einn Falun Gong-iðkendanna sem eru staddir hér á landi
Nokkrir Falung Gong-iökendur sem komu til landsins til aö mótmæia mannréttindabrotum í Kína hittust á Austurvelli í
gær. Einn þeirra, Kevin Yang, sagöi fótkiö ekki vera ofbeldisfulla mótmælendur heldur fámennan hóp leikfimiiökenda
sem væri aö vekja athygii á mannrétindabrotum í Kína.
„Við erum ekki að mótmæla held-
ur erum við friðsamlega að benda á
ýmsar staðreyndir um Falun Gong
og þær ofsóknir sem fólk hefur
þurft að þola í Kína vegna skoðana
sinna,“ segir Kevin Yang, einn
þeirra sem leggja stund á æfingar
Falun Gong og er staddur hér á
landi vegna heimsóknar forseta
Kína síðar í vikunni.
Kevin segir Falun Gong vera eins
konar endumýjun á fomri kín-
verskri orkuleikfimi sem byggist á
hægum líkamshreyfíngum og önd-
un sem eykur jafnvægi í orkubraut-
um líkamans. Æfingarnar stuðla að
heilbrigði og líkamshreysti, auk
þess sem þær stuðla að bætri siðvit-
und.
Ofsóknir hefjast
Falun Gong kom fram á sjónar-
sviðið árið 1992 í Kína, þegar Li
Hongshi hélt fyrst fyrirlestur um
fyrirbærið. Næstu ár á eftir hlaut
þessi sami maður viðurkenningu
hjá kínversku ríkisstjóminni fyrir
að stuðla að bættu líferni og bæta
siðferði í samfélaginu. Á árunum
1996-1999 fjölgaði iðkendum Falun
Gong til muna, bæði í Kína og ann-
ars staðar í heiminum. í Kína voru
50 milljónir manna famar að kenna
sig við Falun Gong í ársbyrjun 1999.
í apríl sama ár hófust ofsóknir á
hendur þeim sem stunduðu Falun
Gong-æflngamar. Ofsóknirnar byrj-
uðu með handtökum á nokkrum
iðkendum sem siðan vom leiddir
fyrir rétt og dæmdir í 7-18 ára fang-
elsi. Síðan þá hefur Faiun Gong ver-
ið bannað í Kína og stofnandi hreyf-
ingarinnar, Li Hongshi, fluttist til
New York, þar sem hann býr nú.
„Við vitum ekki af hverju þessar
ofsóknir hófust. Líklegast hefur
stjórnvöldum ekki litist á það
hversu margir voru farnir að
stxrnda Falun Gong og þess vegna
litið á þetta sem ógnun við yfir-
valdið. Það er í sjálfu sér fáranlegt
því Falun Gong er ekki pólitiskt
fyrirbæri - það eina sem við ger-
um er að stunda æfingar og tala
fyrir bættri siðvitund og friði. En
síðan bann var lagt við Falun
Gong hafa yfir 50.000 manns verið
handteknir, meira en 10.000 hafa
verið sendir i þrælkunarbúið án
dóms og laga, 200 hafa verið dæmd-
ir í fangelsi og 1000 manns hafa
verið vistaðir á geðsjúkrahúsum.
Það versta er að yfir 200 manns
hafa svo verið drepnir fyrir það
eitt að leggja stund á æfingarnar,"
segir Kevin Yang.
Friðsamlegt fólk
Kevin er staddur hér á landi
ásamt nokkrum öðrum til þess að
benda á þessi mannréttindabrot
sem framin eru í Kína og til að
boða sannleikann um Falun Gong
meðal íslendinga.
„Við trúum á umburðarlyndi og
samúð og reynum að vera sam-
kvæm sannleikanum. Það er meg-
ininntak Falun Gong og því reyna
þeir sem það stunda að vekja fólk
til umhugsunar um ofbeldiö sem
fólk verður fyrir eingöngu vegna
skoðana sinna. Við erum stödd hér
á landi til þess með friðsemd að
biðja forseta Kína að hætta ofsókn-
unum og til að segja íslendingum
hvað Falun Gong er í raun og veru.
Við erum friðsamlegt fólk sem
leggjum stund á öndunaræfingar
og hugarleikfimi en erum ekki of-
beldisfullir mótmælendur. Við
erum samfélaginu skaðlaus og von-
umst til að íslendingar styðji okkur
í baráttunni til að ná fram mann-
„Ég er vongóður um að tillagan
verði samþykkt," segir Einar
Skúlason, formaður Sambands
ungra framsókn-
armanna, um
ályktun sem
hann og varafor-
maður sam-
bandsins leggja
tú að samþykkt
verði á sam-
bandsþingi um
næstu helgi.
Ályktimin geng-
ur út á að sækja
beri um aðild að Evrópusamband-
inu eftir næstu alþingiskosning-
ar.
„Ef þetta gengur í gegn væri
SUF fyrsta stofnun Framsóknar-
flokksins sem tekur afgerandi af-
stöðu til Evrópumálanna. Ég von-
ast til að það gerist og að það hafi
þau áhrif, að flokkurinn marki
sér afgerandi stöðu, taki eitt skref
í viðbót í átt að ESB fyrir næstu
alþingiskosningar," segir Einar.
Svipuð ályktun vai- borin undir
síðasta sambandsþing SUF fyrir
tveimur árum en var ekki borin
fram af formanni. Sú ályktun
hlaut ekki afgreiðslu eftir að
málamiðlun kom fram.
Önnur tillaga liggur fyrir kom-
andi þingi þess efnis að gallar
ESB-aðildar séu meiri en kostii-n-
ir; hún sé þess vegna ekki á dag-
réttindum í Kína, svo sem trú- og
málfrelsi," segir Kevin að lokum.
skrá. Að þessari tillögu stendur
þjóðmálanefnd SUF. Einar segir
viðbúið að átök um þessar tillög-
ur verði aðalmál sambandsþings-
ins.
Nýr formaður SUF verður kos-
inn á þinginu og eru tveir í fram-
boði. Deilan um ESB-aðild mun
líklega setja mark sitt á kosning-
una þar sem annar frambjóðand-
inn hefur gert andstöðu við aðild
að meginstefnumáli sínu.
Einar segir að meðal ungra
framsóknarmanna sé almennt
meiri andstaða við ESB-aðild á
landsbyggðinni en á suðvestur-
horninu. Mest sé andstaðan á
Norðurlandi vestra. Hann efast
um að ný könnun DV gefi rétta
mynd af afstöðu stuðningsmanna
flokksins almennt. Samkvæmt
könnuninni eru tæp 46% þeirra
andvíg ESB-aðild en tæp 33%
fylgjandi. Stuðningur við aðild
var raunar samkvæmt könnun-
inni hvergi minni en meðal stuðn-
ingsmanna Framsóknarflokksins.
„Þessi niðurstaða kom mér
mjög á óvart. Aðrar kannanir
hafa ekki verið með þessum
hætti. Flokkurinn er í sókn og ég
tel að Evrópumálin eigi stóran
þátt í því. Ég vil því sjá fleiri
kannanir um þetta,“ segir Einar
Skúlason.
-ÓTG
DRDGUM
Á MDRGUN
Fáðu þér miða í síma 800 6611 eða á hhi.is
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
Formaður og varaformaður SUF:
Vilja að sótt
verði um að-
ild að ESB
- tekist á um málið á sambandsþingi
Sá fyrsti
Fyrsti farþeginn sem sté á jörö á Eg-
ilsstaöaflugvelli eftir flugiö frá
Dusseldorf var heiöraöur sérstak-
lega viö komuna.
Millilandaflug:
Enn eitt hlið til
íslands opnað
Farþegaþota þýska LTU-flugfé-
lagsins þýska lenti í fyrsta sinni á
fóstudagskvöldið á Egilsstaðaflug-
velli og var henni vel fagnað. Er þar
með hafið í fyrsta sinn beint áætl-
unarflug frá útlöndum til Egils-
staða, án millilendingar annars
staðar á landinu. Með vélinni komu
milli 30 og 40 farþegar, auk nokkurs
hóps blaðamanna sem ætlar að
kynna sér aðstæður á Austurlandi.
Yfir 80 farþegar fóru með vélinni frá
Egjlsstöðum áleiðis til Dússeldorf.
í tilefni af þessu var haldin hátíð-
leg móttökuathöfn í flugvallar-
bygginunni. Þar fluttu ávörp sam-
gönguráðherra, Sturla Böðvarsson,
Tómas Ingi Olrich menntamálaráð-
herra, fyrrverandi formaður Ferða-
málaráðs, sendiherra Þýskalands á
íslandi, sölustjóri LTU-flugfélagsins
og bæjarstjórinn á Egilsstöðum,
Björn Hafþór Guðmundsson.
Michael Rudolff, sölustjóri LTU,
sagði að menn gerðu sér góðar von-
ir um að hægt væri að ná góðum ár-
angri. Miklu fé hefði verið varið í
að kynna þá möguleika sem beint
flug til Egilsstaða fæli í sér. -PG
Gulli sendill
Gulli sendill á hjólinu sínu meö for-
látavagn sem hann notar til flutn-
inga. Auglýsingastofan Vinnandi
menn merkti vagninn fyrir Gulla,
honum aö kostnaöarlausu.
Gulli sendill:
Auglýsir eftir
verkefnum
Gunnlaugur Ingi Ingimarsson er
nýfluttur til Akureyrar frá ísafirði
og auglýsir eftir verkefnum sem
sendill. Hann notar reiðhjól og for-
látavagn til starfans, auk þess sem
hann skýst á milli staða á vespu
þegar mikið liggur við. Gunnlaugur
- eða Gulli eins og hann kýs að láta
kalla sig - er eini sendillinn í bæn-
um sem notar reiðhjól og kerru við
störf sín og segist hann taka að sér
ólík verkefni, allt frá því að skutla
pökkum og símaskrám milli staða
til flutninga á ísskápum.
„Ég vona að Akureyringar taki
vel á móti mér hérna og verði hjálp-
legir við að útvega mér verkefni. Ég
vona að ég fái að kynnast góðu fólki,
vinum, vinkonum og vandamönn-
um. Ég þakka fyrir að fá að koma
hingað og sjá nýtt og gott fólk og
vona að allir nýti sér vel þjónustu
mína og mig,“ sagði Gulli i samtali
við DV og kvaðst vera í góðum gír í
sumarblíðunni. -BÞ