Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Síða 10
10
Utlönd
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 2002
MENN! NGARSÖGU LEGT
GAGNASAFN
Kynning þriðjudaginn 11. júní, kl. 13.00-17.00
Þingsal 1-4 Hótel Loftleiðum
Setning:
Guðbjörg Sigurðardóttir
aðstoðarmaður menntamálaráðherra
Val hugbúnaðarumhverfis
Bjarni Júlíusson
tölvunarfræðingur
Þróunarverkefnið Sarpur 2.0
Markmið og nýjungar
Frosti F. Jóhannsson
verkefnisstjóri Þjms.
Kerfisgerðin - Fyrirkomulag gagnavinnslu
Guðjón S. Steindórsson
kerfisfræðingur Hugviti
Hagnýting Sarps
Anna Guðný Ásgeirsdóttir
fjármálastjóri Þjms.
Gagnasöfn í Sarpi
Umfang og ástand
Margrét Hallgrímsdóttir
þjóðminjavörður
Munir
Lilja Árnadóttir
deildarstjóri munadeildar Þjms.
Myndir
Þorvaldur Böðvarsson
menningarfræðingur myndadeild Þjms.
Þjóðhættir
Sigrún Kristjánsdóttir
þjóðfræðingur þjóðháttadeild Þjms.
Hús
Haraldur Helgason
arkitekt húsadeild Þjms.
Fornleifar
Agnes Stefánsdóttir
fornleifafræðingur Fornleifavernd ríkisins
Jarðfundir
Guðmundur Ólafsson
deildarstjóri fornleifadeildar Þjms.
Örnefni
Svavar Sigmundsson
forstöðumaður Örnefnastofnunar íslands
Kirkjuminjar og hliðarskrár
Frosti Jóhannsson
verkefnisstjóri Þjms.
Um höfundarrétt gagna Sarps
Erla S. Árnadóttir hrl.
hjá Lex ehf lögmannsstofu
Framtíðaráform - Kerfisgerð
Bjarni Júlíusson
tölvunarfræðingur
Pallborðsumræður
Fyrirspurnir
ÞJÓÐMINJASAFN
ÍSLANDS
HUGVIT
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og er aðgangur ókeypis.
Nánari upplýsingar á wvi/w.sarpur.is
Al-Qaeda-liðar virkir í Bandaríkjunum:
Nýjar upplýsingar
um njósnamistök
Bob Graham, formaður leyniþjón-
ustunefndar öldungadeildar Banda-
ríkjaþings, sagði í gær að „umtals-
verður fjöldi fólks“ úr stjómkerfinu
hefði komið fram með nýjar upplýs-
ingar um mistök bandarísku leyni-
þjónustunnar 1 tengslum við hryðju-
verkaárásirnar 11. september.
Graham, sem er demókrati frá
Flórída, sagði að nýlegar uppljóstr-
anir starfsmanns alríkislögreglunn-
ar FBI hefði eflt mörgum kjark til
að gefa sig fram og veita rannsókn-
arnefndum þingsins upplýsingar.
Þá sagði Graham að það væri ljóst
að einhverjum yrði að refsa fyrir
gjörðir sínar fyrir 11. september.
Richard Shelby, háttsettur
repúblikani i leyniþjónustunefnd-
inni, sagði að mistökin næðu út fyr-
ir raðir FBI og leyniþjónustunnar
CIA til hinnar mjög svo leynilegu
Þjóðaröryggisstofnunar og fleiri.
Tom Ridge, sem fer fyrir öryggis-
málum innanlands, sagði í sjónarps-
viðtali í gær að útsendarar al-Qaeda
væru virkir um allan heim, og þar á
meðal í Bandaríkjunum. Hann sagði
að það undirstrikaði þörfina á sér-
stöku ráðuneyti öryggismála, eins
og George W. Bush forseti lagði til í
síðustu viku.
Ridge sagði að um væri að ræða
þúsundir manna í 40 til 50 löndum
sem litu á Bandaríkin sem helsta
skotmark sitt.
Tom Ridge
Forstööumaður innanríkisöryggis
Bandaríkjanna talaöi um virka al-
Qaeda-liöa um allan heim í sjónvarpi.
REUTERSMYND
Girðing milli trúarhópa
Breskir hermenn hófu í gær aö reisa háan friðarvegg sem á aö skilja aö
kakólikka og mótmælendur í vandræðahverfi í austurhluta Belfast þar sem
trúarhóparnir hafa tekist á aö undanförnu.
Arafat stokkar upp í heimastjórninni:
Leiðtogi Jihad-sam-
takanna handtekinn
REUTERSMYND
Tveir forsetar í sveltinni
Bush Bandaríkjaforseti og Mubarak
Egyptalandsforseti ræddu friðarmál
fyrir botni Miöjaröarhafs um helgina.
Palestínska lögreglan handtók
einn leiðtoga samtakanna Heilags
stríðs, eða Jihad, i Gaza-borg í gær-
kvöld. Samtökin lýstu ábyrgð á
sjálfsmorðsárásinni á ísraelskan
langferðabíl í síðustu viku þar sem
sautján Israelar létu líflð.
„Þetta er ólögleg handtaka," sagði
Mohammad al-Khattib, háttsettur
liðsmaður Jihads, við Reuters.
Yasser Arafat, forseti Palestínu-
manna, tilkynnti í gær um breyting-
ar á heimastjórn sinni þar sem ráðu-
neytum er fækkað úr 31 í 21. Breyt-
ingar þessar gætu leitt til umbóta á
heimastjórnarkerfi Palestinumanna
sem ísraelar hafa margoft krafist.
Þeir tóku tilkynningunni í gær hins
vegar fremur fálega. Ariel Sharon,
forsætisráðherra ísraels, er kominn
til Washington þar sem hann mun
ræða við Bush forseta og aðra.
rwr
óheiöarlegur
Helmingur Breta
telur að Tony Blair
forsætisráðherra sé
óheiðarlegur, að
því er fram kemur í
skoðanakönnun
sem greint var frá í
gær. Þá er stuðn-
ingurinn við Verka-
mannaflokkinn kominn undir 40
prósent og hefur aðeins einu sinni
áður verið svona lítill í átta ár.
Svíar handsama tvo
Sænska lögreglan hefur handtek-
ið tvo menn sem grunaðir eru um
tengsl við hryðjuverkasamtök.
Mennimir voru teknir í Málmey
þangað sem þeir komu frá Þýska-
landi um Danmörku í síðustu viku.
Áhyggjur af illu umtali
Stjórnvöld og embættismenn i
Danmörku hafa áhyggjur af illu um-
tali um landið vegna strangrar
stefnu í garð útlendinga og innflytj-
enda, skömmu áður en Danir taka
við formennsku í ESB.
Tafir á Loya Jirga
Afganska ættflokkasamkoman
Loya Jirga kemur ekki saman fyrr
en síðdegis í dag, fimm stundum á
eftir áætlun, vegna pólitísks ágrein-
ings. Samkoman á að velja stjórn
fyrir næstu tvö árin, þegar kosning-
ar verða haldnar.
Hafnar forseta ESB
Forseti þings Evrópusambands-
ins hafnar tillögum Breta um að for-
seti ESB verði kjörinn til fimm ára
í stað þess að aðildarlöndin skipti
formennskunni á miiii sín á hálfs
árs fresti.
Blair talinn
Róandi áhrif Rumsfelds
Indverjar og
Pakistanar hafa
heldur dregið úr
orðaskaki sínu í
Kasmírdeilunni
vegna fyrirhugaðr-
ar heimsóknar Don-
alds Rumsfelds,
landvamaráðherra
Bandaríkjanna, tii landanna síðar í
vikunni. Rumsfeld ætlar að reyna
að koma í veg fyrir átök milli kjarn-
orkuveldanna tveggja.
Stúlku ákaft leitað
Mikill fjöldi manna hefur leitað
fiórtán ára stúlku í Salt Lake City i
Utah í Bandaríkjunum sem vopnað-
ur maður nam á brott frá heimili
hennar á miðvikudagskvöld. Bæna-
samkoma var haldin í almennings-
garði í gærkvöld.
Drottning opnar bókhaldið
Elisabet Eng-
I landsdrottning hef-
ur ákveðið að opna
bókhaldið og sýna
almenningi hvemig
um ellefu milljörð-
um, sem hirðinni er
úthlutað af al-
mannafé, er varið.
Þetta ku vera enn ein viðleitni
drottningar til að nútímavæða kon-
ungsveldið.
Ecevit ætlar að hvíla sig
Bulent Ecevit, forsætisráðherra
Tyrklands, sagði í gær að hann ætl-
aði aö fara að ráði lækna og hvíla
sig í tvær til þrjár vikur í viöbót en
vísaði á bug vangaveltum um að
hann ætlaði að segja af sér.