Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Page 16
36
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 2002
Skoðun I>,V
Spurning dagsins
Ferðu til útianda í sumar?
(Spurt á Akureyri.)
Ama Guömundsdóttir:
Nei, ég kemst ekki í ár vegna annrík-
is en ef ég væri á leiO eitthvaö yröi
Krít væntanlega fyrir valinu.
Ólafur Runólfsson frömuður:
Nei. Læt mér nægja aö feröast inn-
anlands þar sem víöa er fallegt. Nei,
ég geri ekki upp á milli staöa
hérna heima.
Rut Petersen hjúkrunarfræðingur:
Já, ég er aö fara til Svíþjóðar sem
fararstjóri hjá 4. flokki KA
í handbolta.
Sigmundur Einarsson veitingamaður:
Nei, ekki í sumar en ég ætla í
haust. Ætli maöur skelli sér ekki til
Portúgals eöa Spánar.
Gunnlaugur Eiðsson nemi:
Ég er nýkominn frá Portúgal þannig
aö þaö veröur aö bíöa eitthvaö eftir
næstu ferö.
Leifur Jónsson skrifstofumaður:
Nei, ég ætla aö feröast innanlands.
Elta góöa veöriö og hafa þaö gott.
Snæfellsnesiö kemur sterklega til
greina þetta sumariö.
'JUKRABÍLL
IPÍL
\ ■
!: I
■
Inn og út af sjúkrahúsunum.
- Og sífellt lengjast biölistarnir.
Pólitískur vilji og rekstrarfé
„Ég hef lengi haldið því
fram að við séum nœr hálfu
milljóninni en þrjú hundruð
þúsundunum. - Þá vœri
fjöldinn á biðlistunum hugs-
anlega nærri lagi. “
Meðalbiðtími
eftir skurðlækn-
ingum á Landspít-
ala háskóla-
sjúkrahúsi er nú
allt að tveimur
árum. Það er geta
til þess að láta
alla listana með
GeirR. um 3.300 manns
Andersen innanborðs sem
blaöamaöur skrifar: bíða eftir aðgerð-
"umá Landspítala
háskólasjúkrahúsi hverfa, sé til
þess pólitískur vilji og spítalanum
útvegað nægilegt rekstrarfé. Þetta
fullyrðir sviðsstjóri lækninga á
skurðlækningasviði spítalans. Nú
er því ekkert sem heitir að bíða og
vona, hugsa eða halda i heilbrigðis-
málunum. Útvegsmenn í ríkisgeir-
anum bara opna tékkheftið og
skrifa óskaupphæðina.
Nýleg frétt sagði að þeir sem
væru á biðlistum til aðgerða væru
2.500. Þeim hefur því fjölgað um 800
í hlýindunum síðustu daga. Ég skal
játa að ég er ekki einn þeirra sem
er á biðlistunum. Ekki enn a.m.k.
Ég get átt eftir að fylla þann hóp og
mun ekki þá, fremur en nú, gera lít-
ið úr þörfínni til að komast á
sjúkrahús. Ég er þess hins vegar
fullviss að hér er maðkur i mys-
unni. Ég trúi ekki að 3.300 manns
bíði eftir aðgerð á Landspítalanum
háskólasjúkrahúsi.
Ég hef lesið að eitthvað um 5000
íslendingar þjáist af gigt, um 2000
séu vanhæfir á geði, nokkur þús-
und magasjúklingar, og tugir þús-
unda landa okkar þjáist af stöðugri
streitu, og séu nánast áskrifendur
að kvalastillandi lyfjum og róandi
töflum af einhverri gerð.
Ef þetta er allt rétt, eða hvort í
sínu lagi, þá á þessi þjóð það eitt
eftir að biðjast vægðar gegn sjálf-
stæði sínu og fullveldi, líta til hins
almáttuga Evrópusambands og
styrkjakerfis þess, fýlla út inn-
göngubeiðni og biðja einhvem vel-
unnara sambandsins sem næst á
leið til Brussel að leggja hana inn.
Og væri ekki upplagt að dreifa
biðlistunum hér á sjúkrahúsin inn-
an ESB?
Það er fullyrt að þjóðhagslega
besta aðgerð sem til er sé sú að
skipta um gerviliði. Aðeins sú að-
gerð að skipta um augastein sé hag-
kvæmari. Og nái fólk fótaferð yfir-
leitt vegna svona aðgerða komist
það hugsanlega út af öldmnarstofn-
unum eða úr hjúkrun, auk þess sem
það þurfi minna af verkjalyfjum og
njóti lífsins mun betur. Biðlistarnir
eru því hagkvæmir. Bíða þess kom-
ast inn - og út aftur og gerast þjóð-
hagslega hagkvæmur, eftir því sem
efni standa til.
Nauðsyn er þó að komast til
botns í einu. Það þarf að telja lands-
menn með trúverðugum hætti. Lík-
lega kemur þá í ljós mun hærri tala
en við þekkjum. Ég hef lengi haldið
því fram að við séum nær hálfu
milljóninni en þrjú hundruð þús-
undunum. - Þá væri fjöldinn á
biðlistunum hugsanlega nærri lagi.
Sá á stutta föstu ...
Auðunn Bragi Sveinsson
rithöfundur skrifar:
Skuldir eru eitt af því ömurleg-
asta sem til er. Það er reynsla
margra. Hver gleymir því ef sú hót-
un berst að selja eigi eignir vegna
þess að ekki hefur verið greitt af
ákveðinni skuld á gjalddaga? Marg-
ir eru kærulausir hvað þetta varð-
ar. Alveg er ótrúlegt hvað fljótt líð-
ur að skuldadögum. Áður en varir
er gjalddagi kominn, ef ekki
eindagi. Sagt er að dráttarvextir séu
bönkum mikil búbót en lántakend-
mn að sama skapi til tjóns.
Ekki minnist ég þess að ég hafi
þurft að greiða dráttarvexti um
mina daga. Það borgar sig að fylgj-
ast vel með fjármálum sínum. Ger-
„Það borgar sig að jylgjast
vel með fjármálum sínum.
Gerum við það ekki er
nokkurn veginn víst að illa
kann að fara. Við hœkkum
aðeins útgjöld okkar með því
að greiða ekki á gjalddaga.“
um við það ekki er nokkum veginn
víst að Ula kann að fara. Við hækk-
um aðeins útgjöld okkar með því að
greiða ekki á gjalddaga. Meira að
segja útvarps- og sjónvarpsgjaldið
hækkar greiðum við ekki á tilsett-
um tíma, og ekki nema sanngjamt.
Ég las ævisögu Benjamíns Frank-
lins (1706-90), hins kunna banda-
ríska stjórnmálamanns og eðlis-
fræðings sem fann m.a. upp eldinga-
varann. Hann samdi og sjálfstæðis-
yfirlýsinguna 1776, sem batt enda á
yfirráð Breta í Norðurameríku. Þar
með urðu Bandaríki Norður-Amer-
íku til.
Ég hefi þennan formála fyrir
einni stuttri málsgrein sem Benja-
mín Franklín lét frá sér fara og sem
mér líður ekki úr minni. Setningin
er þessi: „Sá á stutta fostu sem á að
gjalda skuld á páskum.“ Sjálfan
nefndi hann sig Ríkarð snauða, eða
„Poor Richard", er hann samdi sín
fjölmörgu heilræði er fjalla um iðju-
semi, heiðarleika og reglusemi sem
stuðlar að hamingjusömu lífi og
falla aldrei úr gildi.
Garri
Attavillir gestgjafar
Kínverski forsetinn Jiang Zemin er væntanleg-
ur í opinbera heimsókn til landsins 12. júni og
verður hér nokkra daga. Garra finnst sá kin-
verski enginn aufúsugestur því að hendur ráða-
manna í Kina eru blóði drifnar og umgengni
þeirra við mannréttindi á kaldranalegiun nótum,
svo ekki sé meira sagt. En hefðbundinn undir-
lægjuháttur hérlendra ráðamanna kemur ekki
lengur á óvart heldur hitt að gestimir eru ekki
einu sinni komnir til landsins þegar þeir eru
famir að ráðskast með það hvemig við tökum á
móti þeim.
Úrræðaleysi lögreglunnar
Þrýstingi hefur verið beitt til að erlendir liðs-
menn Falun Gong-hreyfingarinnar fái ekki að
koma til landsins. Landamærunum hefur verið
lokaö fyrir þessu fólki. Garri hefði skiliö ákvarð-
anir um lokun landamæra íslands hefðu liðs-
menn Falun Gong verið þungvopnaðir, haft í
hótunum og hagað sér á allan hátt eins og versti
skríll. En það er ekki tilfellið. Vandinn er að
liðsmenn Falun Gong mótmæla ekki. Þeir setjast
,niður í mestu makindum, stunda hugleiðslu og
em yfirleitt til friðs. Það er meira en íslenska
lögreglan getur ráðiö viö. Hún hefur engin úr-
ræði til að ráða við allt það fólk sem hingað ætl-
ar að koma til að mótmæla ekki komu Jiangs
Zemins heldur minna á mannréttindabrotin sem
hann fremur með því að setjast niður og hug-
leiða. Víkingasveitin hefur engin úrræði til að
takast á við slíka uppákomu og því síður þeir
600-700 lögreglumenn sem starfa á Fróni. Þeir
segjast ekki ráða viö mótmæli ef mótmælendur
em fleiri en nokkur hundruð en sannleikurinn
er að þeir ráða ekki við fólk sem kemur en mót-
mælir ekki. Því að þá líta þeir út eins og kjánar,
gráir fyrir jámum og tilbúnir i átök við fólk sem
mótmælir ekki.
í bál og brand
Og vandinn flest líka í því að kínverskir ör-
yggsiverðir hafa svör á reiðum höndum, vita
hvemig á að taka á fólki sem safnast saman en
mótmælir ekki. Þeir em vanir að ofsækja svona
fólk með ýmsum hætti og gætu farið að sýna
slíkar æfingar meðan á heimsókn forsetans
stendur. Lausnin er því einfóld. Hérlendir ráða-
menn ættu að hleypa fólkinu sem mótmælir ekki
inn í landið en loka á kínverska öryggisverði
sem skiija ekki að ekki er verið að mótmæla
einu né neinu, gætu hleypt öllu í bál og brand og
dregið áttavillta íslenska lögreglumenn inn í at-
burðarás sem þeir mundu örugglega ekki ráða
við.
Cspurri
Byggðastofnun á Sauðárkróki
- Farsinn aldrei langt undan.
Byggöastofnun víki
Haraldur Gunnarsson skrifar:
Nú er svo komið að mál Byggða-
stofnunar, stjóm hennar og forráða-
maður era orðin það erfið ríkinu að
best væri að leggja hana af nú þegar.
Það er ekkert auðveldara en að láta
bankastofnanir annast núverandi
starfsemi Byggðastofhunar, og sjálf-
sagt mál. Það er ekki hægt að bjóða
landsmönnum upp á farsann sem sí-
fellt er að koma upp innan stofnunar-
innar, nú með stjómarformann og
forstjóra í aðalhlutverkum. Við-
skiptaráðherra er ekki við að sakast,
hún tekur á málinu af hlutleysi, en
það þarf meira til nú. Ráðherra á að
loka Byggðastofnun, það er þjóðhags-
lega hagkvæmast
Enn eitt hneyksliö
Kristinn Sigurðsson skrifar:
í lok síðasta mánaðar vora þrír
ungir menn sýknaðir af því að kasta
Molotov-kokkteil (sem er banvæn,
hættuleg logandi sprengja) að banda-
ríska sendiráðinu. Sem betur fer varð
ekki skaði af. Maður skilur ekki
þessa dómara. Erlendu sendiráði var
sýnd lítilsvirðing. Sama er hvaöa
sendiráð um ræðir, við eigum að
vemda þau samkvæmt alþjóðalögum,
en ekki að mati duglausra dómara.
Þarna hefði utanríkisráðuneytið átt
að koma að en þar var dauðaþögnin
ein. Svona mál er afleitt til afspumar
fyrir ísland á erlendum vettvangi og
valtar yfir mörg önnur afrek okkar.
Úr réttarhöldum í Árnamáli.
- Margir til kallaöir, vitni og
ákæröir.
Vitnin í Árnamáli
Óskar Sigurðsson skrifar:
Það er ekki nema eðlilegt að menn
reki upp stór augu við fréttir frá rétt-
arhöldum yfir fyrrverandi þingmann-
inum, Áma Johnsen. Ekki að þar sé
svo margt nýtt að sjá eða heyra, held-
ur öllum þeim öðrum, ákærðum og
vitnum sem þarna eru til kallaðir, for-
stjórar, framkvæmdastjórar, veitinga-
menn, dyraverðir og „gólfmenn". Það
er furðulegt hve margir hafa þama
dregist inn í málið, vitandi vits eða
ómeðvitað (sem þó verður að telja
ólíklegt). Og það frá stórum og þekkt-
um fyrirtækjum. Þjóðleikhúsið er auð-
vitað kapítuli út af fyrir sig, og búið er
að sverta þá stofnun varanlega með
því að tengjast þessu stóra sakamáli.
Kúrbítur í Bónus-
búðum
Steinunn Bergsteinsdðttir hringdi:
Það er loks kominn kúrbítur i Bón-
usverslanimar. Þessu hef ég beðið
eftir því ég versla þar og vil halda því
áfram. Kúrbít (zucchini) má nota á
margan hátt. Það má steikja, grilla,
nota í salat og sem meðlæti með ýms-
um réttum, auk þess sem þess má
neyta beint af augum. Framtakið hjá
Bónus er gott, og ekki er verra að þar
er kúrbítur mun ódýrari en annars
staðar. Og það svo um munar. Þakkir
til Bónusmanna.
[PV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Skaftahlíð 24, 105 ReykJavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.