Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Side 1
4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 Israelskar öryggissveitir bera lík eins af sex fórnarlömbum burt af strætóstoppistöóinni þar sem palestínskur uppreisnarmaöur geröi sjálfsmorösárás í gær. Sjónarvottur sagöi: „Égsá árásarmanninn sundrast í tætlur. Síöan fylltist allt af blóöi." ísraelsher sótti í morgun inn í þrjú sjálfsstjómarsvæöi Palestínumanna. Aögeröirnar eru til marks um þá stefnubreytingu ísraelsstjórnar aö bregöast viö hverri sjálfsmorösárás meö því aö hernema sjálfssjórnarsvæöi aö nýju ótímabundiö. Saksóknari mátti ekki krefjast þyngri sviptinga - tugir ökumanna í Reykjavík og álíka margir úti á landi sviptir of lengi Sú einstaka staða er upp komin að tugir einstaklinga á landinu sem hafa verið sviptir ökuleyfi vegna ölvun- araksturs síðustu 10 mánuði hafa ver- ið látnir sæta hálfs til eins árs lengri ökuleyfissviptingu en heimilt er í lög- um. Verra er að þetta hefur verið gert með héraðsdómum sem eru óaftur- kræfir sé áfrýjunarfrestur viðkomandi runninn út. Komið hefur í ljós að fyr- irmæli ríkissaksóknara til allra lög- reglustjóra landsins á síðasta ári, um að þeir krefðust þyngri ökuleyfissvipt- inga fyrir dómi á hendur þeim sem teknir eru fyrir ölvunarakstur, teljast ekki lögleg nema sérstök lagabreyting komi til á Alþingi. Þetta á sérstaklega við um þá sem frömdu fyrsta ölvunarakstursbrot, voru með meira en 1,51 prómill í blóði og voru dæmdir í 18 mánaða eða 2 ára ökuleyfissviptingar eftir 5. nóvember á síðasta ári. Þeim bar aðeins að fá eins árs sviptingu. Um þetta hefur Hæstiréttur nú fellt dóm í prófmáli sem hefur klárt fordæmisgildi. Ríkis- saksóknari hefur í ljósi þessa þegar sent bréf til allra lögregluembætta landsins og afturkailað fyrirmæli sin til þeirra í nóvember. Ríkið kann að hafa bakað sér skaðabótaskyldu með framangreindu bréfi og/eða þeim dóm- um sem upp voru kveðnir í kjölfarið. Mismunandi dómar hvern dag Jóhann Hauksson, lögfræðingur hjá lögreglunni í Reykjavík, segir að sennilega séu það tugir ökumanna bú- settra í Reykjavík sem hafi verið svipt- ir ökuréttindum í meira en eitt ár fyr- ir fyrsta brot eftir að bréf ríkissak- sóknara barst í nóvember. Því má gera ráð fyrir að annar eins fjöldi hafi að líkindum sætt sömu meðferð hjá öðrum lögregluembættum eða dóma- umdæmum. Jóhann segir að lögreglustjóraemb- ættin geti lítið við þessu gert - vissu- lega geti þeir sem hafi verið sviptir of lengi komiö og rætt málin og jafnvel krafist skýringa. Hins vegar hafi rikis- saksóknari gefið út fyrirmælin á síð- asta ári, lögreglustjóramir ákært í samræmi við það og krafist sviptinga með hliðsjón af þvi og sumir dómarar sakfellt eftir kröfunum. Þeim héraðs- dómurum fór hins vegar æ fækkandi sem sakfelldu i samræmi við kröfu ríkissaksóknara því lengra sem leið frá ákvörðun hans um þyngingar sviptinga og sekta í samræmi við reglugerð frá 1997. DV hefur vitneskju um að einstaka daga í vetur hafi allt að 30 ölvun- arakstursmál verið tekin fyrir á dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þannig hafi sumir dómarar dæmt í samræmi við kröfu ríkissaksóknara 18-24 mánaða sviptingu fyrir fyrsta ölvunaraksturs- brot ef meira en 1,51 prómill reyndist í blóði ökumanns. Dómahefð hefur hins vegar verið frá 1987 um að dæma ökumenn aldrei í meira en árs svipt- ingu fyrir fyrsta ölvunarakstursbrot. Aðrir dómarar hafa í vetur komist að sömu niðurstöðu og Hæstiréttur nú fyrir skömmu - dæmdu hámark árs ökuleyfissviptingu fyrir fyrsta brot ef vínandamagn í ökumanni var yfir efri mörkum í blóði. Engu að síður var að hálfu ákæruvaldsins haldið áfram að krefjast lengri sviptinga - allt þar til Hæstiréttur kvað upp sinn dóm. -Ótt ■ NÁNARI UMFJÖLLUN Á BLS. 2 í DAG Norðmenn: Telja skip- stjórann ábyrgan Norska bláoið Cmotposten seg- ir í vefútgáfu sinni að röng ákvörðun íslenska skipstjórans á Guörúnu Gísladóttur eftir að skipið strandaði hafi leitt til þess að skipið sökk. Amt Enebakk, skipstjóri drátt- arbátsins á staðnum, segir að skipstjórinn hafi stöðvað sig þeg- ar hann vildi láta draga skipið á flot um 7-leytið á þriðjudags- kvöldið en þá hefði verið nálægt háflæði. Hann hafi þá þegar ver- iö búinn að draga skipið til þannig aö aðeins þriðjungur þess hafi verið eftir á skerinu. Skip- stjórinn hafi kosið þess í stað að láta dæla úr kælitönkum og við það hafi skipið misst stöðugleika og farið að hallast. Lofotposten spyr hver beri mesta ábyrgð á að svo fór sem fór og svarar skipstjóri dráttar- bátsins að það hljóti að vera is- lenski skipstjórinn. „Þetta þurfti ekki að fara svona.“ DV hefur innt stjómarmenn útgerðar Guðrúnar Gísladóttur svara við spumingum likt og hvort þaö hafi hugsanlega verið mistök að fá ekki hafnsögumann til að fylgjast með siglingunni með fram skerjunum en útgerð- armennimir viíja ekki tjá sig um slikt fyrr en að loknum sjópróf- um sem fram fara á morgun. Útgerðarfélagið Festi hefur frest til hádegis í dag til að skila aögerðaáætlun til að koma í veg fyrir mengunarslys. Mikið magn olíu er í skipinu og mun útgerð- in bera allan kostnað af slíkum framkvæmdum skv. upplýsing- um DV. -BÞ Lofotposten spyr hver beri mesta ábyrgð á að svo fór sem fór og svar- ar skipstjóri dráttar- bátsins að það hljóti að vera íslenski skipstjór- inn. „Þetta þurfti ekki að fara svona.“ SÍMADEILDIN í KNATTSPYRNU: Fylkir skaust á toppinn LANDIÐ OG LEIÐSÖGUMENNIRNIR: Vestasti oddinn mögnuð upplifun www.intersport.is VINTERSPORT W0%SPOHT BÍLDSHÖFÐA SMÁRALIND SELFOSSI s. 510 8020 s. 510 8030 s. 482 1000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.