Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Qupperneq 9
9 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 DV Fréttir Svört skýrsla hjálparstofnunarinnar Oxfam um afskipti Vesturlanda af þróunarríkjum: Ríkir verndaðir gegn þeim fátæku Ríkustu þjóðir heims sitja yfir hlut þeirra fátækustu með við- skiptaháttum sem samrýmast illa frjálsum markaði og alþjóðavæð- ingu. í nýbirtri skýrslu hjálpar- stofnunarinnar Oxfam er lögð fram hörð gagnrýni á efnuðustu iðnaðar- þjóðimar sem setja alls kyns inn- flutningshömlur á vörur frá þróun- arríkjum jafnframt því sem þær styðja útflutning á eigin fram- leiðsluvörum með niðurgreiðslum og styrkjum. Þá fá alþjóðabankamir tveir á baukinn fyrir að setja fá- tæku þjóðunum stólinn fyrir dymar með þvi að setja þeim ófrávikjanleg skilyrði fyrir lánum og styrkjum sem virka letjandi á framleiðslu og útflutningshæfni. ESB, BNA og Kanada styrkja landbúnað verulega og em búvömr seldar á markaði fyrir sem svarar tvo þriðju af framleiðslukostnaði. Þá samkeppni stenst landbúnaður fátæku þjóðanna ekki. Þá ofan í kaupið felst þróunarhjálp hinna ríku oft í því að gefa þeim af offram- leiðslu sinni. Með því em ekki ein- ungis eyðilagðir möguleikar á út- flutningi landbúnaðarafurða heldur er heimamarkaðurinn í sunnan- verðri Afríku, Austur- og Suður- Asíu og Rómönsku Ameriku lagður í rúst. Þannig verða ríku bændum- ' Slæm áhrif Landbúnaöur fátækustu þjóöanna er í rúst vegna styrkja til ríkustu bænda heims. ir í auðugu löndunum enn rikari á kostnað hinna fátækustu í aumustu ríkjunum. Fátæku löndin njóta lítils af al- þjóðavæðingimni og kemur þar margt til. Þau verða undir í sam- keppni á nær öllum sviðum og hafa enga möguleika á að setja á neins konar viðskiptahömlur eins og iðn- rikin gera til að vemda hagsmuni sinna framleiðenda. Þau verða að sætta sig við skilyrði Alþjóðabank- ans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til að fá lán og styrki og felast þau und- antekningarlítið í því að búa við galopið markaðskerfi og virða frjálsa samkeppni, sem keppinaut- amir í iðnríkjunum koma sér hjá með ýmsu móti, svo sem styrkjum við atvinnuvegi sína og útflutnings- bótum sem kallaðar em eitthvað allt annað. Samkvæmt skýrslu Oxfam arð- ræna ríku þjóðimar hinar fátækari með grófum hætti og eru aðgerðir þeirra i beinni mótsögn við allt talið um að verið sé að styðja og styrkja hina fátækustu til sjálfsbjargar. Þegar fátækar þjóðir flytja út til hinna ríku verða þær að horfast í augu við viðskiptahömlur sem eru flómm sinnum hærri en gilda með- al viðskipta milli efnaðra ríkja. Þessar hömlur kosta þróunarlöndin um hundrað milljarða dollara á ári, eða helmingi meira en þau þiggja í þróunaraðstoð. Evrópusambandið greiðir sínum bændum sem svarar milljarði doll- ara á dag í styrki. Ríkustu bænd- umir fá hæstu bæturnar. Skatt- greiðendur standa undir styrkja- greiðslunum sem valda verulegri lækkun heimsmarkaðsverðs bú- vara og skaða landbúnað í þróunar- rikjum mjög. Víða eiga bændur sér engrar viðreisnar von. Auk þess að fátæku löndin njóta lítilla gæða af alþjóðavæðingunni og stórauknun heimsviðskiptum sitja þau eftir á íjölmörgum öðrum sviðum. Þau hcifa ekki efni á mennt- un og heilsuvemd sem sjálfsögð þykir meðal rikra þjóða og dragast því aftur úr á þeim sviðum sem öðr- um. Ef ekki koma til viðhorfsbreyting- ar gagnvart þróunaraðstoð og i við- skiptum ríkra þjóða og snauðra mun bilið enn breikka og verða erf- iðleikar þeirra fátæku óyfirstígan- legir ef heldur sem horfir. Skýrslu Oxfam er misjafnlega tekið. Framkvæmdastjóri Alþjóða- viðskiptastofnunarinnar segir gagn- rýnina réttmæta og hvetur til að iðnríkin fari að ráðum hjálparstofn- unarinnar og taki upp nýja og betri siði gagnvart fátækum meðbræðr- um. Talsmenn Evrópusambandsins viðurkenna að skýrslan geti gert sitt gagn í baráttunni við fátæktina en rök höfunda hennar séu umdeil- anleg. En þeir draga ekki í efa rétt- mæti gagnrýninnar á landbúnaðar- stefnuna og telja fráleitt að mark- aðsverð búvara skuli vera langt undir framleiðslukostnaði. -OÓ Bjöm Bjarnason. Heimsókn Kínaforseta: Lærdómsrik en óskemmti- leg reynsla - segir Bjöm Bjarnason „Við öndum létt- ar, þegar ljóst er, að Jiang Zemin, forseti Kína, og hið mikla fóru- neyti hans hefur komist heilu og höldnu frá landi okkar,“ segir Bjöm Bjamason á vefsíðu sinni eftir að kínverski forsetinn fór af landinu. Bjöm segir að athygli hafi vakið að forsetanum var ekið niður Almanna- gjá. Heimild til slíks heyri til undan- tekninga. Skýringin á ökuferð niður Almannagjá hafi verið sú að Jiang sé aldraður, fótfúinn og óvanur að ganga mikið. Bjöm segir að ástæða sé til að fagna þvi að landamærin hafa verið opnuð að nýju fyrir Falun Gong-fólki eins og öðrum. Gripið hafi verið til margvíslegra aðgerða til að sýna Falun Gong-iðkendum stuðning sem og stað- genglum allra þolenda mannréttinda- brota í Kína. 50 milljónir teknar af lífi „Ástæðulaust er að gleyma því að Ji- ang er fulltrúi stjómar og stjómmála- afls sem hefur svipt að minnsta kosti 50 milljónir manna lífi. Maó, forveri Jiangs, hefur þann óskemmtOega sess í heimsmetabók Guinness að vera talinn mesti fjöldamorðingi mannkynssög- unnar,“ segir Bjöm Bjamason. Hann segir það hafa verið lærdómsríka en óskemmtilega reynslu fyrir okkur ís- lendinga að dragast inn í þessi átök Falun Gong og kínverskra stjórn- valdasem hófust formlega fyrir þremur árum og hafa síðan teygt sig um víða veröld. -NH KLIKKAÐ TILBQÐ!!! Efþú safnarfimm nýjum áskrífendum færð þú gefins i Aiwa TVC-140014” sjónvarp ísl. textavarp - A/V-tengi Euro scart-tengi -fullkominfjarstýring. wgr / 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.