Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Síða 10
10 Útlönd FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 DV REUTERS-MYND í vanda staddur Nú er svo komiö aö nærri helmingur breskra kjósenda telur Tony Blair for- sætisráðherra ekki heiöarlegan. Breska þjóðin vantreystir Blair Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Verkamannaílokkur hans sem hafa verið við völd í fimm ár, hafa á þeim tíma glatað trausti kjósenda, að því er fram kemur í nýrri skoðanakönnun fyrir blaðið Daily Telegraph. Aðeins 45 prósent aðspurðra sögðu að Blair væri heiðarlegur og nærri tveir þriðju sögðu að ríkis- stjórn hans væri ekki treystandi. Skoðanakönnunin birtist á sama tima og stjómin á í vök að verjast vegna uppljóstrana um vandræða- legar uppákomur. Því hefur meðal annars verið haldið fram að reynt hafi verið að tryggja Blair aukið vægi í undirbúningnum fyrir útför drottningarmóðurinnar. Blair vísar öllu sliku tali á bug en svo virðist sem breska þjóðin trúi honum ekki. UPPBOÐ Eftirtaldar bifreiöir verða boðnar upp að við lögregiustöðina Þjóð- braut 13, Akranesi, föstudaginn 28. júní 2002 kl. 14:00: AI-107 KV-127 VD-020 XT-989 Greiðsla við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI. UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Ásvallagata 31, 0201, 2. hæð og 1/3 kjallari, Reykjavík, þingl. eig. Elín Björk Bruun og Garðar Ólafsson, gerð- arbeiðandi íbúðalánasjóður, mánu- daginn 24. júní 2002, kl. 15.00. Bugðulækur 1, 0201, 6 herb. íbúð á 2. hæð og 2/3 bílskúr fjær lóðarmörkum, Reykjavík, þingl. eig. Bragi Friðfinns- son, gerðarbeiðandi Tollstjóraembætt- ið, mánudaginn 24. júní 2002, kl. 13.30. Hjarðarhagi 45, verslunar- og skrif- stofuhús á S-hluta lóðar, Reykjavík, þingl. eig. fsbúðin ehf., Reykjavík, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður versl- unarmanna og Tollstjóraembættið, mánudaginn 24. júní 2002, kl. 15.30. Merkjateigur 4, 0101, aðalhæð, sól- skýli og bílskúr, Mosfellsbæ, þingl. eig. Bjarni Bærings Bjarnason, gerðar- beiðandi Mosfellsbær, mánudaginn 24. júní 2002, kl. 10.30._______ Miðtún 10, 0001, 2ja herb. kjallaraí- búð, Reykjavík, þingl. eig. Hjörtur Markússon, gerðarbeiðandi Byggða- stofnun, mánudaginn 24. júní 2002, kl. 14.30. _________________________ Rauðalækur 45, 0201, 2. hæð og bfl- skúr fjær húsi, Reykjavík, þingl. eig. Rósa Sigríður Gunnarsdóttir og Hann- es Kristinsson, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður og Tollstjóraembætt- ið, mánudaginn 24. júní 2002, kl. 14.00.__________________________ Vesturgata 23, 0401, rishæð, Reykja- vík, þingl. eig. Þór Örn Víkingsson, gerðarbeiðendur Deloitte & Touche hf., íbúðalánasjóður og Tollstjóraemb- ættið, mánudaginn 24. júní 2002, kl. 16.00.__________________________ SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Aðdragandi hryðjuverkaárásanna 11. september: Hleruöu boð dag- inn fyrir aðgerðir Starfsmenn bandarisku Þjóðarör- yggisstofnunarinnar hleruðu tvenn boð daginn fyrir hryðjuverkaárásirn- ar 11. september á New York og Was- hington um að eitthvaö myndi gerast daginn eftir. Boðin voru hins vegar ekki þýdd fyrr en 12. september, að því er heimildarmenn innan banda- ríska stjómkerfisins greindu frá í gær. Þjóðaröryggisstofnunin hefur það hlutverk að hlera fjarskipti um heim allan og er einhver leynilegasta stofn- un Bandaríkjanna. 1 boðunum sem stofnunin hleraði sagði: „úrslitashmd- in er á morgun" og „leikurinn hefst á morgun". Boð þessi voru á arabísku og voru þau ekki þýdd yfir á ensku fyrr en 12. september, daginn eftir að hryðju- verkamenn rændu flugvélum og flugu þeim á World Trade Center í New York og Pentagon í Washington með þeim afleiðingum að um þrjú þúsund Skilaboðln hleruð Bandarískir leyniþjónustumenn hier- uöu boö frá bandamönnum Osama bin Ladens um aö stóra stundin væri aö renna upp. manns týndu lífi. Bandarísk stjóm- völd kenna Osama bin Laden og al-Qa- eda-hryðjuverkasamtökum hans um árásimar. í skilaboðunum sem starfsmenn Þjóðaröryggisstofnunarinnar hleruðu kom ekki fram hvenær, hvar né hvers eðlis atburðimir væru sem um var talað. Stofnunin grípur inn í mikinn fjölda boðskipta um heim allan á hverjum degi og eru þau á fjölmörg- um tungumálum. Einn heimildarmaður innan banda- rísku leyniþjónustunnar sagði að ekki hefði verið hægt að gripa til neinna aðgerða á grundvelli boða sem voru jafh óljós og raun bar vitni. Ekki hefði því verið hægt að koma í veg fyrir árásimar, jafnvel þótt þau hefðu ver- ið þýdd samdægurs. Þjóðaröryggisstofnunin afhenti leyniþjónustunefnd þingsins upplýs- ingar um boðin fyrir mánuði. REUTCRSMYND Dauður kjúkllngur í bandl Argentínskur sparifjáreigandi heldur á dauöum kjúklingi dingiandi í bandi yfir skilti sem á stendur „spilltur stjórnmáia- maöur“. Efnt var til mótmæiaaögeröa viö seötabankann í Buenos Aires vegna frystra bankainnistæöna. Bandaríkin hamast gegn alþjóðlega stríðsglæpadómstólnum: Hóta að draga hermenn sína út úr aðgerðum SÞ Bandarikin hafa hótað að draga sig út úr friðargæsluaðgerðum Samein- uðu þjóðanna verði bandarískir her- menn ekki undanþegnir lögsögu nýja, fasta alþjóðlega stríðsglæpadómstóls- ins. ígær lögðu þeir fram tillögu að samþykkt í Öryggisráði SÞ sem und- anskilur hermenn þeirra frá öllum að- gerðum SÞ, jafnvel þeim sem NATO leiðir, svo sem friðargæslunni i fyrr- um Júgóslavíu. Enginn annar af 15 fulltrúum ör- yggisráðsins tók undir kröfur Banda- ríkjamanna eða skoðun þeirra á dóm- stólnum, sem er hinn fyrsti sinnar tegundar og að margra mati mikil- vægasta skref á sviði þjóðaréttar frá því Numberg-réttarhöldin fóru fram. Bush-stjórnin hefur frá upphafi barist hatrammlega gegn stofnun, Hugmyndafræöilegt jlhad? Bandaríkin vilja friöhelgi fyrír hermenn sína. áhrifum og lögsögu dómstólsins, sem hún telur að myndi skerða fullveldi Bandaríkjanna, hefði hann lögsögu yf- ir hermönnum þeirra. Aðrir benda á að það sé til lítils að stofna dómstólinn ef fordæmi sem þetta um skilyrðislausar undanþágur verði gefið strax í byrjun, ekki hvað síst hjá voldugri þjóð eins og Banda- ríkjamönnum. Dómstóllinn væri þá andvana fæddur, vængstýfður. Clinton-stjómin hafði skrifað undir stofiisáttmála dómstólsins en Bush ógilti undirritunina þegar hann komst til valda. Alþjóðasamninga sem þessa þarf fyrst að undirrita en síðan að fullgilda samkvæmt stjómlögum hvers lands til að þeir verði bindandi. 67 lönd hafa þegar fullgilt sáttmál- ann, þar á meðal öll ESB-löndin. Inn- an Öryggisráðsins leita menn nú málamiðlana til að koma í veg fyrir það sem mannréttindafrömuðir kalla „hugmyndafræðilegt jihad“ Banda- ríkjamanna. Bush aldrei í hættu George W. Bush Bandaríkjaforseti var aldrei i hættu þegar rýma þurfti Hvíta húsið í 15 mínútur í gær eftir að lítil flugvél flaug inn á flugbanns- svæði við forseta- bústaðinn. Svo virðist sem vélin hafi villst af leið. Sóknardögum fækkað Færeyska hafrannsóknarstofnun- in mælir með því við yfirvöld að sóknardögum í þorsk og ýsu verði fækkað um 35 prósent á næsta fisk- veiðiári og að sóknardögum í ufsa verði fækkað um fimmtán prósent, að sögn færeyska útvarpsins. Aukin hætta á krabba Böm karla sem hafa unnið í kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Sellafield eru í tvisvar sinnum meiri hættu á að fá hvítblæði en aðrir og kann það að skýrast af geislun sem feðurnir urðu fyrir. Fossett gengur vel Bandaríski ævintýramaðurinn Steve Fossett svífur nú á loftbelg sinum yflr Ástralíu í sjöttu tilraun sinni tfl hnattflugs. Ferðin hefur gengið vel fram að þessu. Allt snýst um Kanann Svo virðist sem tveggja daga fundur þjóðarleiðtoga G-8 hópsins svokEillaða muni aðaUega snúast um þarfir og áhyggjur Bandaríkja- manna, öðrum tU líklegrar armæðu. Baráttan heldur áfram Franski baráttu- bóndinn José Bové, sem í gær hóf að af- plána þriggja mán- aða fangelsisdóm fyrir að eyðUeggja veitingastað McDonalds í sunn- anverðu Frakk- landi, sagði mörg hundruð stuðn- ingsmönnum sínum að baráttan gegn hnattvæðingunni myndi halda áfram á meðan hann sæti inni. Malbikað í göngunum Færeyingar eru byrjaðir að mal- bika jarðgöngin sem tengja flugvöU- inn í Vágum við Straumey þar sem Þórshöfn er. Del Ponte ómyrk í máli Carla del Ponte, aðalsaksóknari stríðsglæpadóm- stólsins fyrir Júgóslavíu í Haag, sakaöi stjómvöld í Belgrad í gær um að vera ekki nógu samvinnuþýð við að koma grunuðum mönnum í hendur réttvísinnar. Tanaka vikið úr flokknum Ráðamenn stjómarflokksins i Jap- an véku í morgun Makiko Tanaka, fyrrum forsætisráðherra, úr flokkn- um i tvö ár fyrir að neita að styðja frambjóðanda flokksins. Ákærð fyrir skógarelda Ákærukviðdómur í Bandarikjun- um hefur ákært Terry Lynn Barton, starfsmann bandarísku skógarþjón- ustunnar, fyrir að eiga sök á skógar- eldunum sem hafa geisað suövestur af Denver í Kólóradó.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.