Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Side 11
11
FTMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002
PV_____________________________________ Útlönd
Stefnubreyting hjá ísraelsstjórn í viðbrögðum við sjálfsmorðsárásum:
Ótímabundið hernám
sjálfstjórnarsvæða
Snemma í morgun sóttu ísraelskar
hersveitir inn á þrjú sjáifstjómar-
svæöi Palestínumanna á Vesturbakk-
anum, handtók þar eftirlýsta harölínu-
menn og setti á útgöngubönn.
Aðgerðimar koma í framhaldi af
sjálfsmorðsárás Palestínumanns á
strætisvagnabiðstöð í gær þar sem 6
ísraelar fórust og 35 slösuðust. Það var
önnur árásin á tveimur dögum. Þær
hafa kostað 25 ísraela lífið.
Árásin í gær varð til þess að Bush
Bandaríkjaforseti frestaði ræðu þar
sem búist var við að hann markaði
stefnu i átt að palestínsku ríki.
Talsmaður hans, Ari Fleischer,
sagði: „Forsetinn veit hvað hann vill
segja. Hann mun deila því með ykkur
þegar... það kemur að mestu gagni.“
Palestínska heimastjómin for-
dæmdi árásina og Arafat gaf út
yfiriýsingu þess efnis að árásum yrði
þegar hætt gegn óbreyttum borgurum.
Óbreyttir borgarar stráfelldir:
ísraelskar öryggissveitir hreinsa til á strætisvagnastööinni þar sem
palestínskur uppreisnarmaöur sprengdi sjálfan sig og sex israela í loft upp í
gær. Tvö börn voru meðal fórnarlambanna.
Sagði hann hag þjóðarinnar í veði.
í yfirlýsingu hersins kom fram að
hann muni ekki fara frá svæðunum
þremur, Betlehem, Deheisheh-flótta-
mannabúðunum og Betounia, þar til
markmiðum hans hafi verið náð.
Aðgerðir hersins eru í takt við nýja
stefnu ísraelsstjómar um að bregðast
við árásum á óbreytta borgara með
því að hemema ótímabundið á ný
svæði sem afhent hafa verið Palestínu-
mönnum til sjálfstjómar samkvæmt
friðarsamningum.
„Hver hryðjuverkaárás til viðbótar
mun leiða til enn frekari töku á land-
svæðum," sagði stjórnin. Þetta er
stefnubreyting frá hinum tímabundnu
hemaðaraðgerðum sem hún hefur not-
að hingað til til að bregðast við árás-
um uppreisnarmanna.
1403 Palestínumenn og 539 ísraelar
hafa fallið frá því Intifada-uppreisnin
hófst í september árið 2000.
José Maria Aznar
Spánn logar í verkföllum þegar for-
sætisráöherrann tekur á móti kolleg-
um sínum úr Evróþusambandinu.
Verkfall veldur
vanda á Spáni
Verkalýðsfélög á Spáni eru komin
í sólarhrings allsherjarverkfall til
að mótmæla nýlegum breytingum
sem stjómvöld fyrirskipuðu að
gerðar yrðu á atvinnuleysisbótum.
Atvinnuleysi á Spáni er 11,3 pró-
sent, hið mesta í ESB, og nýju regl-
umar gera atvinnulausum erfiðara
fyrir mn að fá bætur.
Búist er við að athafnalíf lamist
nánast alveg, á sama tíma og leið-
togar ESB em að tínast til Sevilla til
síðasta fundar í formennskutíð
Spánar að þessu sinni.
REUTERS-MVND
Réttað vegna þjóðarmorös í Rúanda
Konur í Kanombe-héraöi í Rúanda hlusta á þaö sem fram fer á fyrsta degi réttarhalda meö nýju sniöi þar sem venju-
legt fólk fær aö dæma þá sem sakaöir eru um aö hafa drepiö fjölskyldur þess og vini í þjóöarmorðinu 1994. Öfga-
menn af ættbálki húta drápu þá um átta hundruö þúsund tútsa og hófsama húta.
REUTERS-MYND
Karzai í góöra vina hópi
Hamid Karzai, forseti Afganistans,
umkringdur fulltrúum á ættbálkaráö-
stefnunni sem lauk í gær.
Afganskur ráð-
herra ekki sáttur
Yunis Qanuni, nýr menntamála-
ráðherra Afganistans, er ekki sáttur
við hlutskipti sitt í nýrri stjórn
Hamids Karzais forseta og kann að
fá nýtt ráðuneyti. Qanuni gegndi áð-
ur embætti landvamaráðherra.
Þreyttir fulltrúar á ættbálkaráð-
stefnunni Loya Jirga héldu til síns
heima í gær eftir að hafa lagt bless-
un sína yfir tillögur um ráðherra-
skipan stjómarinnar. Nýja stjórnin
er litið breytt frá þeirri fyrri og hef-
ur það vakið ótta um að henni muni
ekki takast að friða öll þjóðarbrotin,
þrátt fyrir mikinn stuðning á ráð-
stefnunni.
Karzai sór embættiseið i gær og
verður hann forseti næstu átján
mánuðina, þar til boðað verður til
kosninga í landinu.
Fórnarlömb ap-
artheid-stefnunn-
ar höfða mál á
hendur bönkum
Fjögur fómarlömb kynþáttaað-
skilnaðarstefnu hvitu minnihluta-
stjómarinnar í Suður-Afríku höfð-
uðu í gær mál gegn þremur bönk-
um, Citigroup, USB og Crédit Suis-
se, fyrir að hafa lagt sitt af mörkum
til að fjármagna stjórnina og fyrir
að lána henni milljarða dollara svo
hún gæti haldið áfram glæpum sín-
um gegn mannkyninu.
Málið var höfðað fyrir dómstóli á
Manhattan i New York og var farið
fram á það að fjórmenningarnir
gætu sótt málið fyrir hönd annarra
fómarlamba mannréttindabrota
suður-afrísku stjómarinnar. Farið
var fram á skaðabætur en engar
upphæðir eru nefndar í stefnunni.
Tveir stefnenda voru pyntaðir af
lögreglu hvitu minnihlutastjómar-
innar sem var við völd fram á síð-
asta áratug og tveir eru foreldrar
bama sem voru drepin.
Talsmaður svissneska bankans
UBS sagði í samtali við fréttamann
Reuters að ásakanimar ættu ekki
við nein rök að styðjast og að bank-
inn myndi halda uppi vömum.
r
7C
>
FIM. 20. JÚKl
Geir Ölafs & Furstamir
....................Vídalífl u. Ingótfstorg
FÖST. 21. 3Í3MÍ
í SVÖRTUM FÖTUM Skuísusundi Vestmey.
R0KKSLÆFAN..........Vídalín v. ingðifstorg
PAPAR Players Kópavogi
L
LAUG. 22. J0MÍ
í SVÖRUJM FÖTUM Breiðnni Akranesi
SPÚTNIK.............Félagsheim. Gmndarf.
BER.................C'est La Vie Sau&rkróki
M00NB00TS..........Vídalín v. Ingólfstorg
PAPAR...............Players Kópavogi
www.promo.is
FRAMUMDAK
FIMT. 27. JÚKl
Nánar augl. síðar Vídalín v. Ingólfstorg
FÖS7. 28. JÚKl
BUFF Vídalín V. Ingólfstorg
ISVÖRTUM FÖTUM Players Kópavogi
LAUG. 29. JÚKl
Á MÖTISÖL Sjallanum Akureyri
í SVÖRTUM FÖTUM EgilsbúðNeskaupstað
BUFF Vídalin v. Ingólfstorg
ÍSLANDS EINAV0N Players Kópavogi