Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Síða 13
13
FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002
DV_______________________________________________________________________________________________________Innkaup
Rétta Ijósið
Ekki þarf aö fara langt til aö slökkva
eöa kveikja á þessu tjaldljósi því það
kemur með fjarstýringu.
Loftiö í og úr
Rafdrifin vindsængurþumþa. Ekki
nóg meö aö hún dæli lofti í, heldur
er einnig hægt að nota hana til að
dæla lofti úr vindsængunum. Stung-
iö í sígarettukveikjarann í bílnum.
Veglegur vatnsbrúsi
Er einangraöur og heldur því drykkn-
um heitum/köldum lengur. Meö
krana svo auövelt er aö stjórna
rennslinu.
Viðlegubúnaðurinn verður sífellt fullkomnari:
Réttu mér fjar-
stýringuna, elskan
- er eitt af því sem búast má við að heyra úr tjöldum landsmanna í sumar
Þegar sumarið gengur i garð
kjósa margir að nýta frítímann til
að ferðast um landið með tjaldið í
skottinu. Liðin er sú tíð er tjald,
svefnpokar, prímus og pottasett var
hið eina sem til þurfti. Nú eru
græjumar orðnar mun viðameiri.
Tjöldin hafa stækkað og meiri kröf-
ur gerðar um alls kyns útbúnað,
misjaMega nauðsynlegan þó. Inn-
kaup kíkti í verslanimar Everest og
Útilíf og kynnti sér úrvalið.
Þegar komið er á tjaldsvæðið og
búið að tjalda 15 m2 tjaldinu er gott
að setjast niður og fá sér kaldan
drykk. Þá koma rafknúin kælibox
sér vel. Þeim er stungið í sígarettu-
kveikjarann í bílnum og virka þá
eins og lítill ísskápur á leiðinni.
Sum era jafhvel þeirrar náttúru
gerð að þeim er hægt að breyta í
hitaskáp og flytja þannig tilbúna
heita rétti með sér í sveitina. Enn
annarri gerðinni er svo hægt að
stinga í samband hvort sem er í
bílnum eða í venjulega 230 V
innstungu. í þessi kælibox þarf auð-
vitað ekkert að vera vesenast með
kælikubba og halda þau matnum
kældum í nokkuð langan tíma eftir
að þeim er kippt úr sambandi, jafn-
vel yfir nótt.
Þegar búið er að teyga einn ís-
kaldan er rétt að huga að svefnað-
stöðunni. Hún verður að vera góð
því eins og allir vita nýtur maður
landsins mun betur vel útsofmn.
Flestir helgarferðalangar notast við
vindsængur en þeim hefur gamla
fótstigna pumpan fylgt. En ekki
lengur. Nú fæst nefnilega vindsæng
með innbyggðri pumpu og ekkert
sem gera þarf nema stíga nokkram
sinnum ofurlétt á horn hennar og
hún er tilbúin til notkunar. Þeim
sem fmnst jafnvel það vera of erfitt
má benda á rafmagnsknúnar pump-
ur sem stungið er í sígarettu-
kveikjarann á bílnum og blása þær
Brennir alkóhóli
Prímus sem brennir flestum tegund-
um eldsneytis, þar á meðal alkóhóli.
Gott aö eiga einn slíkan þegargasiö
klárast.
vindsængina upp á örskotsstund.
Eins er tækið notað til að draga loft-
ið úr vindsænginni ef ekki er þolin-
mæði fyrir hendi til að bíða eftir að
það leki úr af sjálfsdáðum.
Góður svefnpoki, sem helst ver
gegn heimskautagaddi, þarf einnig
að vera með í fór. Nú fást þeir í öll-
um stærðum, bæði fyrir börn svo og
fyrir stóra fullorðna. Fyrir þá sem
era í breiðara eða stærra lagi fást
svo yfirstærðarsvefnpokar sem eru
230 cm langir og 95 cm breiðir. Þeir
duga vel fyrir allt að 2 m háar
manneskjur. Til gamans má geta
þess að venjulegur svefnpoki er um
80 cm breiður.
Sérstakir útilegukoddar koma
svo í stað þess að taka hlunkana,
sem notaðir eru heima, með. Til eru
nokkrar gerðir ferðakodda, sá vin-
sælasti er mjúkur fíberkoddi sem er
minni en sá sem notaður er heima
auk þess sem hægt er að troða hon-
um inn i sjálfan sig þannig að lítið
fari fyrir honum á meðan ferðast er.
Þeir sem vilja eitthvað einfaldara
geta fengiö sér ferðakoddaver. Það
er fyllt með peysu eða öðru mjúku
sem við hendina er og stungið und-
ir höfuðið fyrir svefn.
Þegar búið er að koma sér vel fyr-
ir i svefnpokanum er tilvalið að lesa
nokkrar línur í góðri bók við milda
birtu tjaldljóss. Margar gerðir tjald-
ljósa eru til en þeim fylgir sá galli
að hangi þau i súlum tjaldsins eða
standi á borði í fortjaldi þarf að
skríða úr hlýjmn
pokanum til að
slökkva. En koma
má í veg fyrir
þetta stóra vanda-
mál með því að fá
sér tjaldljós með
fjarstýringu. Það
gefur góða birtu,
enda með flú-
orperu og getur
staðið á borði eða
hangið í lofti.
Nauðsynlegt í öll
tjöld. Því ekkert
er notalegra en að
sofna úti í náttúr-
Feröaísskápur
Fullkomiö kælibox sem stungiö er í
sígarettukveikjarann og heldur matn-
um vel köldum á leiöinni og í dá-
góða stund eftir það.
unni við gutlið í læknum og smell-
ina í fjarstýringunni.
Prímusar eru eitt af því sem verð-
ur að vera með ef útilegan á að vera
þægileg. En klári menn gasið, eða
gleymi að kaupa áfyllingu fyrir lok-
un má bjarga sér með því að nota
annað eldsneyti. Til eru prímusar
sem ganga fyrir fleiri tegundum af
eldsneyti, t.d. bensíni, steinolíu,
rauðspritti eða jafnvel áfengi. Þeim
fylgir eldsneytisflaska sem vökvinn
sem brenna á er settur í. Þannig má
t.d. nýta brennvín um verslunar-
mannahelgi, láta það ylja sér bæði
að innan og utan á kroppnum.
-ÓSB
Feröakoddi og ver
Það duga engir venjulegir svæflar í sveitinni. Til eru
nokkrar gerðir ferðakodda og ferðakoddaver.
Sumarsmellir frá Herrera
Nú eru komnir á markað tvær
nýjar tegundir af ilmi frá Carolina
Herrera. Dömuilmurinn kallast 212
On Ice og herrailmurinn 212 MEN
On Ice. Segja má að hér sé um sann-
kallaðan sumarilm að ræða, lyktin
er fersk með áherslu á framandi
ávexti og undirliggjandi ilmi af
blómum og moskus.
Umbúðimar era skemmtilegar og
vísa til ferskleika innihaldsins,
tveir kubbar sem minna á ísmola og
hægt er að nýta á margan hátt eftir
að ilmvatnið hefur verið tekið úr,
t.d. undir penna, smáhluti eða jafn-
vel kerti.
Heildverslunin Gasa flytur ilm-
vötnin til landsins. -ÓSB
Lónkot í Skagafirði:
Markaðir í risatjaldi
Ferðaþjónustan Lónkot í Skaga-
firði stendur fyrir þremur mörkuð-
um í sumar en slikir markaðir hafa
verið árvissir síðan árið 1999. í
fréttatilkynningu frá Lónkoti segir
að markaðirnir fari fram síðustu
sunnudaga í júní, júlí og ágúst og
era haldnir í risatjaldi staðarins,
sem er hið stærsta á landinu. Dag-
amir era 30. júní, 28. júlí og 25.
ágúst. Markaðimir eru opnir gest-
um frá kl. 13-18, en sölufólk hefur
auk þess timann frá kl. 10-13 til aö
koma sér fyrir. Hægt er að fá frek-
ari upplýsingar og panta söluborð
hjá Ferðaþjónustunni Lónkoti.
Frá Lónkoti
Þar ergóð aðstaða fyrir ferðamenn
og ekki úr vegi aö skella sér á
markað þar i sumar.
Verður þú
heppinn
áskrifandi?
ov
Fimmtudaginn 20.júní
munu TVEIR heppnir DV-áskrifendur vinna
► FUJITSU SIEMENS TÖL VUR.
Ad auki munu tveir heppnir áskrifendur vinna
► pizzQuaislu fgrir 8 manns ó Pizza Hut.
K
Tfilvur
- borgar sig