Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Qupperneq 21
21 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 DV Tilvera Brian Wilson sextugur Einn af mestu snilling- um poppsögunnar, Brian Wilson, á stórafmæli í dag. Á sínum tíma stofh- aði Wilson ásamt bræðr- um sínum Beach Boys, sem sendi frá sér hvern smellinn á fætur öðrum. Wilson hætti snemma að koma fram með Beach Boys, sneri sér að tónlistarsköpun og auk þess að semja ógleymanleg lög vann hann að tilraunum í upptökum sem áttu eftir að gera hann að einum mesta áhrifavaldi í þeim efnum. Líf Wilsons hefur ekki verið dans á rós- um. Auk ofhotkunar á eiturlyiium hefur hann átt við geðveiki að stríða. i Yiuuiqimi </ : Gildir fyrir föstudaginn 21. Júní Vatnsberinn I?0. ian.-1R. fehr.>: , Þú átt skemmtilegan ' dag fram undan og hver veit nema að ástin leynist á næstu grosum. Náinn vinur þinn þarfnast þín. Flskamir (19. febr.-20. marsl: Þér gengur vel að Iráða fram úr minni háttar vanda og hlýtur mikið lof fyrir. Þú gengur í gegnum erfitt tímabil í ástarmálum. Hrúturinn rn . mars-19. anrilt . Deilur í fjölskyldunni ^hafa mikil áhrif á þig. Deilumar eru þó ekki eins alvarlegar og á horfðist og í kvöld verður allt fallið í ljúfa löð. Nautið (20. april-20. maii: / Ekki vera að reyna að sýna fram á yfirburði þina í tima og ótíma, lítillæti er líklegra til að vekja aðdáun. Ekki er ólíklegt að þú farir í óvænt ferðalag. Tvíburarnir i?a . maí-?i. iúníi: Þú gætir þurft að fresta 'einhverju vegna breyttr- ar áætlunar á síðustu stundu. Það verður létt yfir déginum, jafnvel þó að þú lend- ir í smávægilegum illdeilum. Krabbinn (22. iúní-22. iúií): Það er lítið að gera í | félagslífinu um þessar ' mundir og það er gott þar sem er kominn i þú takir þig á í námi eða starfi. Forðastu kæruleysi. Lióníð [23. iúlí- 22. áeústl: , Það er mikið að gera hjá þér um þessar mundir. Þér gengur þó vel með allt sem þú tekur þér fyrir hendur og hefur gaman af þvi sem þú ert að gera. Mevian 123. áeúst-22. sept.l: Þú ert í góðu skapi í dag og færð góðar ^^V^lLhugmyndir. Hresstu ^ f upp á minnið varðandi ákveðin atriði sem eru að líða •úr minni þér. Voein (23. seot.-23. okt.t: Ekki vera of fljótur að dæma fólk og felldu allan vafa um ágæti einhvers, manneskj- uhíú í hag. Kvöldiö verður rólegt. Happatölur þínar eru 2, 7 og 19. Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nðv.): Það er gott að eiga góða vini og þú þarft mikið á þeim að halda nm þessar mundir. Ekki vera feiminn við að leita til þeirra. Bogmaðurinn (22. nóv.-2i. des.): IFarðu út og gerðu eitt- ||hvað sem veitir þér út- {rás. Kýldu á það sem _ ___þú þarft að gera í stað þess affeyoa orkimni í það að vera með áhyggjur yfir því. Steingeitln (22. des.-i9. ian.i: Þér hættir til að vera of fús til að fóma þér fyrir aðra og í dag ættir þú að hugsa meira um sjálfan þig. Reyndu að klára hluti sem þú hefur verið að draga lengi. Landið og ieiðsögumennirnir - 2. hluti Vestfirðir: Vestasti oddinn mögnuð upplifun - segir Lilja Magnúsdóttir „Mér fmnst líka afar gaman að koma í Ósvörina í Bolungarvík, gömlu verbúðina sem segir okkur svo mikla sögu um lífsbaráttu fyrri alda á íslandi. Einnig finnst mér - þó að ég sé Vestfirðingur - mjög gaman að heim- sækja höfuðstað fiórðungsins, ísa- fiörð, sem í seinni tíð hefur tekið miklum stakkaskipt- um og er orðinn mjög fallegur bær,“ segir Lilja. Ferðamenn um Vestfirði fá góðar móttökur og viðurgjöming á ferðum sínum um fiórðunginn, að sögn Lilju. Gestrisnin er allsráðandi fyr- ir vestan. En flytji menn vestur seg- ir hún að heimamenn séu varir um sig í fyrstu. Aðkomufólkið veröi að sanna sig áður en það er tekið inn í samfélagið. „Vestfirðingar eru kannski ekki allra; þeir eru dugleg- ir, sannarlega vinir vina sinna og láta ekki troða á sér,“ segir Lilja að síðustu. -sbs „Hverjir sem gestir mínir væra hér á Vestfiörðum færi ég með þá út á Látrabjarg. Það er mögnuð upplif- un að koma þangað - á vestasta odda Evrópu. Á leiðinni út á bjarg er farið um Örlygshöfn þar sem er Byggðasafnið á Hnjóti - merkilegt safn sem segir mikla sögu um menningu og lífsbaráttu hér á Vest- fiörðum sem löngum var harðsótt, en hér var þó aldrei harðæri. Sjór- inn var matarkista Vestfirðinga þannig að hér svalt enginn," segir Lilja Magnúsdóttir, bankamaður á Tálknafirði. Það er víða fagurt fyrir vestan. „... stundum þarf fólk bara að stansa og stiga úr úr bílnum til þess að upplifa gullmolana sem við eigum - fagra staði sem næsta fáir stoppa á. Þetta á til dæmis við í Barðastrand- arsýslunni og í Djúpinu," segir Lilja. Hún nefnir einnig Dynjandis- foss í Amarfirði og önnur paradís vestra sem Lilja heldur upp á er friðlandið í Vatnsfirði - slóðimar þar sem Hrafna-Flóki hafði vetur- setu; þar sem kappinn kleif á hæstu fiöll og sá firði fulla af ís; og nefndi landið fyrir vikið ísland. DVWND: -SBS Vestfirðlngurinn „Stundum þarf fólk bara aö stíga úr úr bílnum til þess aö uþþlifa gullmolana sem viö eigum, “ segir Lilja Magnús- dóttir. Dynjandisfoss í baksýn. Ósvör vib Bolungarvík Einn afmörgum skemmtilegum stööum sem heimsækja má á Vest- fjöröum. Galdra- menn og skraut- blóm Þegar komið er á Vestfirði í suðri er fyrst komið i Reykhóla- sveit. Strandlengja Vestfiarða er hundruð kílómetra og drjúgt telja þeir löngu firðir í áðumefndri sveit sem ganga langt inn í landið. Vegir, bæir og byggðarlög eru yf- irleitt niðri við ströndina. Á fyrri öldum bjuggu mestu galdra- og særingamenn landsins i fiórð- ungnum og sögu þeirra geta ferða- menn víða kynnt sér, svo sem á Ströndum. Einnig eru fyrir vestan víða söfn um búsetu á þessum slóðum, sem löngum hefur verið harðari en annars staðar. Er í því sambandi sjósókn gert hátt undir höfði, enda hafa Vestfirðingar öðr- um fremur verið kappsamari afia- menn. Há fiöll, hrjóstrugt landslag og hörð lífsbarátta. Segja má að þetta sé um margt einkenni Vest- fiarða; fiórðungsins sem samt sem áður býr yfir svo ótalmörgum perlum og fallegum skrautblóm- um - i margræðri merkingu þeirra orða sem vert er fyrir ferðamenn að skoða. Biogagnryni . m Háskólabió - D-Tox ★ ★ Með raðmorðingja í farangrinum Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Löggur í afvötnun Sylvester Stallone leikur haröjaxl sem raömoröingi hefur einstakt dálæti á. Strax á fyrstu mínútunum í D- Tox þarf Sylvester Stallone I hlut- verki FBI löggunnar, Jake Malloy, að sýna bæði kómískan og há- dramatískan leik í þremur atriðum, nokkuð sem hann hefur ekki verið fær um hingað til og hefur enn ekki náð valdi á. Hann þarf sem sagt fyrst að glíma við að vera fyndinn í kaupum á demantshring fyrir eigin- konuna. Þessu atriði hefði átt að sleppa. Að vísu kemur hringurinn við sögu síðar meir. Það hefði þó ör- ugglega verið betri byrjun ef Stallone hefði sleppt kómíkinni. En eins og fleiri kvikmyndastjömur þá hefur Stallone tröllatrú á sjálfum sér (annars væri hann ekki í þess- um bransa) og fer sínu fram. í hin- um tveimur atriðunum þarf hann fyrst að sýna tilftnningaþrunginn leik þegar samstarfsmaður hans er drepinn. Hann nánast sleppur frá þessu skammlaust. Það gerir hann aftur á móti ekki þegar kemur að enn meiri tilfinningaþunga er hann kemur að eiginkonu sinni myrtri. Þetta er sem sagt ekki gæfuleg byijun og ekki hefði ég boðið mikið í myndina hefði orðið framhald á „dramatískum" og „kómískum" leik Stallones. Sem betur fer tekur myndin þá jákvæðu stefnu að vera beinskeytt spennumynd þar sem Stallone þarf aðeins að vera hinn harði nagli sem bjargar á ögur- stundu. Að vísu þjáist hann af sökn- uði og leitaði á náðir flöskunnar í þijá mánuði. Traustur vinur hans sendir hann að loknu því tímabili í afvötnunarstöö fyrir lögreglumenn þar sem síðar kemur í ljós að raðmorðingja er að fmna innan um dvalargesti. Myndin gengur síðan út á það að veijast morðingjanum sem virðist hafa sérstakt dálæti á Malloy og ætlar sér að geyma hann þangað til siðast. T-Dox er ekki svo slæm spennu- mynd þegar kemur að stígandi í spennandi atburðarás. Hún gerist að mestu í vetrarhörkum þar sem stormur og sjókoma er alla daga. Skapar það nöturlega umgjörð utan um persónur sem mega muna sinn fifil fegri. Þá er afvötnunarstofnun- in, sem er í stóru stálbyrgi þar sem áður hafði verið flugvarnarvirki og síðan geðsjúkrahús, líkara fangelsi en sjúkrahúsi og passar vel inn í umhverfið. Best er þó að það er nán- ast ómögulegt að geta sér til um hver morðinginn er og það gefur myndinni ekki svo lítið vægi. Helsti gallinn, fyrir utan leik Stallones í upphafi, er að sagam er ótrúverðug og beinlíns skrifuð með það að leiðarljósi að gera morðingj- ann mjög ógnandi og að áhorfand- inn komist ekki að því hver hann er. Þetta gerir það að verkum að einstök atriði eru í mótsögn hvert við annað. Heildin er þó sæmileg- asta afþreying þegar upp er staðið. Leikstjóri: Jim Gillespie. Handrit: Ron L. Brinkerhoff. Kvikmyndataka: Dean Semler. Tónlist: John Powell. Aöalhlut- verk: Sylvester Stallone, Tom Berenger, Kris Kristofferson, Charles Dutton, Polly Walker, Robert Patrick, Robert Prodsky og Christopher Fulford.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.