Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002
27
DV
Sport
FH-KA 0-1 (0-0)
0-1 Neil McGowan (89., skot úr vítateig eftir sendingu Slobodans Milisics og klafs í
teignum.)
FH (4-4-2)
Ðaði Lárusson............3
Magnús Einarsson........3
Benedikt E. Árnason.....3
Róbert Magnússon.........3
Hilmar Bjömsson ..........3
Guðmundur Sævarsson ... 2
(65. Emil Hallíreðsson .... 3)
Baldur Bett ..............3
Heimir Guðjónsson ........4
Jón Þ. Stefánsson........3
(79. Sigmundur Ástþórsson -)
Jóhann Möller............2
Valdas Trakis ..........2
Dámari: Egill
Markússon (3).
Áhorfendur: 475.
Már
Gul spjöld:
Róbert (74.),
FH. McGowan
(43.), Milisic
(71.), Kristján
(90.)
Rauð sniöid:
Engin.
Skot (á mark):
14 (10) - 6 (3)
Horn:
5-2
Aukaspyrnur:
14-12
Rangstöður:
2-0
Varin skot:
Daði 2 - Þórður
10.
KA (4-4-2)
Þórður Þórðarson ........5
Steingrímur Eiðsson .... 3
Steinn V. Gunnarsson ... 3
Slobodan Milisic.......3
Kristján Sigurðsson....3
Neil McGowan...........2
Róbert Skarphéðinsson . . 2
Ásgeir Ásgeirsson .....2
Dean Martin ...........3
Þorvaldur Makan .........2
(84. Elmar Dan Sigþórss. . -)
Hreinn Hringsson........2
Gæði leiks:
Maður leiksins hjá j' -Sporti:
Þóröur Þórðarson, KA
Jafnteflið sem
enginn vildi
- í botnbaráttuleik Þórs og ÍBV
Þór og ÍBV skildu jöfn, 1-1, í
Símadeild karla á Akureyri í
gær. Hvorugt liðið vildi hins veg-
ar fá jafntefli úr leiknum þar sem
þau eru bæði í botnbaráttunni.
Það varð engu að síður niðurstað-
an eftir ágætan leik með góðum
færum.
ÍBV kom mun sterkara til
leiks í gær og átti leikinn fyrstu
15 mínúturnar. Þegar á leið hálf-
leikinn komust Þórsarar hins
vegar meira inn i leikinn og áttu
algjört dauðafæri á 17. mínútu
þegar Aleksandre Santos skaut
fram hjá einn á móti markmanni
eftir góða sendingu Jóhanns Þór-
hallssonar. Eftir færið var meira
jafnræði með liðunum en hvorugt
þeirra náði að brjóta ísinn.
Draumabyrjun Eyjamanna í
síðari hálfleik
Eyjamenn fengu draumabyrj-
un í síðari hálfleik. Eftir aðeins
tvær mínútur sendi Gunnar Þor-
valdsson boltann inn í teig á
Tómas Inga sem var aleinn í
dauðafæri. Atli Már varði hins
vegar frá honum skotið en bolt-
inn hrökk aftur til Tómasar Inga
sem þakkaði fyrir sig og skoraði í
autt markið.
Þórsarar náðu að jafna leikinn
á 61. mínútu. Jóhann Þórhallsson
lék laglegan þríhyming við Óð-
inn Árnason, sem var nýkominn
inn á, og náði að pota boltanum í
markið rétt áður en Birkir Krist-
insson náði til hans.
Eyjamenn áttu betri færi eftir
þetta og voru beittari i sínum
sóknaraðgerðum. Bjarnólfur Lár-
usson fékk tvö góð færi á 67. mín-
útu en fyrra skoti hans var bjarg-
að rétt utan marklínu og síðara
skot hans lenti í þverslánni. Nið-
urstaðan varð því jafntefli sem
enginn vildi fá.
Jóhann Þórhallsson var einn
af betri mönnum vallarins og
gerði mikinn usla með hraða sín-
um. Atli Már Rúnarsson átti mjög
góðan leik í markinu og varði
hvað eftir annað úr mjög góðum
færum ÍBV.
Hjá gestunum var Bjarnólfur
Lárusson fremstur meðal jafn-
ingja ásamt framliggjandi væng-
mönnum þeirra, Inga Sigurðssyni
og Gunnari Þorvaldssyni sem var
mjög góður fram á við.
-AÞM
Sagt eftir leikinn:
Bæöi liðin
vildu vinna
Þetta var skemmtilegur leik-
ur. Við virkuðum stressaðir í
byrjun og óagaðir. Það tók smá-
tíma að komast í gang,“ sagði
Atli Már Rúnarsson, leikmaður
Þórs og besti maður leiksins, í
samtali við DV eftir leikinn á
Akureyri í gærkvöld.
Um eigin frammistöðu sagði
hann þetta.
„Ég er vonandi búinn að
finna mitt form. Ég veit að ég
hefði getað gert betur í þessum
leikjum sem búnir eru.“
Bjarnólfur Lárusson var sátt-
ur við frammistöðu sinna
manna þó hann væri ekki jafn
sáttur við úrslitin.
Sáttur meö leikinn þrátt
fyrir úrslitin
„Bæði liðin lögðu upp með
að vinna leikinn. Ég var samt
mjög sáttur við okkar leik þrátt
fyrir úrslitin. Við byrjuðum af
miklum krafti og áttum að setja
mark á þá á fyrstu mínútum.
Við héldum samt okkar dampi
allan leikinn og ég var ánægður
með það. Við fengum drauma-
byrjun í síðari hálfleik en þvi
miður náðum við ekki að halda
það út,“ sagði Bjarnólfur.
-AÞM
KA-menn stálu
sigri í blálokin
- sneru glaðir heim en FH-ingar sátu eftir með sárt ennið
Það skiptast á skin og skúrir í
knattspymunni og því hafa FH-ing-
ar fengið að kynnast. Það er ekki
langt siðan þeir hirtu öll stigin gegn
Grindavík á ævintýralegan hátt
með tveimur mörkum í uppbótar-
tíma en í gærkvöldi fengu þeir að
kynnast því að tapa leik í lokin eft-
ir að hafa haft gott tak á leiknum
þegar KA kom í heimsókn í Hafnar-
fjörðinn. Það var Neil McGowan
sem skoraði fyrir gestina þegar aö-
eins ein mínúta var eftir af venju-
legum leiktíma en fram að því var
lítið í gangi hjá norðanmönnum og
ekki hægt að segja að sigurinn hafi
verið sanngjam.
Leikurinn í gærkvöldi var slakur
og ekki hjálpuðu til allir stórleikim-
ar sem knattspymuáhugamenn
hafa fengið í sjónvarpinu frá HM og
því menn orðnir góðu vanir. Byrj-
unin lofaöi ágætu en síðan datt leik-
urinn niður og hélst þar meira og
minna. Þorvaldur Makan, fyrirliði
KA, átti skot í slá strax í upphafi
leiks en hann virtist vera að gefa
fyrir markið og boltinn hafnaði í
markslánni. FH-ingar fengu tvö
hálífæri stuttu seinna en Þórður
Þórðarson var vandanum vaxinn í
marki KA og varði í bæði skiptin.
Eftir þetta gerðist litið sem ekkert
fyrir hlé og fór leikurinn nánast
eingöngu fram á miðsvæðinu. Bar-
áttan var mikil hjá báðum liðum en
sóknarbroddinn vantaði.
Seinni hálfleikur var skárri þó að
hann teljist ekki góður. FH var
meira með boltann og var Heimir
Guðjónsson sterkur á miðjunni.
Hann og félagar hans þar höfðu öll
völd á miðjunni um tíma og voru
gestimir að verjast og loka svæðum
sem gekk ágætlega. Það sem fór í
gegnum vömina sá Þórður um og
geta KA-menn þakkað honum fyrir
að hafa ekki fengið á sig mark.
Það var síðan á 89. mínútu sem
KA-menn skoruðu sigurmarkið.
Slobodan Milisic sendi boltann inn
á teig og eftir smábaming náði Mc-
Gowan að leggja knöttinn fyrir fæt-
umar og skora með fínu skoti.
Fram að þessu höfðu KA-menn
átt eitt skot á markið í byrjun
seinni hálfleiks. En knattspyrnan
gengur mikið út á að klára þau færi
sem skapast og það gerðu KA-menn
að þessu sinni á meðan heimamenn
fengu mörg tækifæri til að tryggja
sér stigin þrjú.
Heimir Guðjónsson átti mjög góð-
an leik fyrir FH og stjómaði miðju-
spilinu vel. Hann var ekki að gera
flókna hluti heldur hélt góðu flæði í
kringum sig með góðum sendingum
í allar áttir. Jón Þorbjörn Stefáns-
son átti nokkra góða spretti, sér-
staklega í fyrri hálfleik, en varð að
yfirgefa völlinn vegna meiðsla þeg-
ar skammt var eftir. Vöm FH stóð
sig ágætlega og hélt hættulegustu
sóknarmönnum KA algjörlega niðri.
Hjá KA átti Þórður mjög góðan
leik í markinu og bjargaði sínum
mönnum ansi oft. Vörnin átti flnan
dag en miðjan og sóknin hefur ver-
ið betri. -Ben
FH-ingurinn Jóhann Mölier sækir hér hart að varnarmanni KA og Þórður
Þórðarson, markvörður norðanmanna, er viö öllu búinn. DV-mynd Teitur
Þór-IBV 0-0 (1-1)
0-1 Tómas Ingi Tómasson (47., fylgdi eftir skoti eftir sendingu Gunnars Þorvaldss.)
1-1 Jóhann Þórhallsson (61., skot úr vítateig eftir sendingu Óðins Ámasonar)
Þór(3-5-2)
Atli Már Rúnarsson......4
Hörður Rúnarsson........3
Jónas Baldursson .......4
Þórir Áskelsson.........3
(49. Páll Viðar Gíslason ... 3
Örlygur Þór Helgason .... 3
Andri Hjörvar Albertsson . 3
Hlynur Birgisson........3
Jóhann Þórhalisson......4
Kristján Ömólfsson......3
Alexandre Santos........2
(59. Óðinn Ámason ......-)
Orri Freyr Óskarsson .... 3
Dómari: Gísli Jóhannsson
(4).
Áhorfendur: 535.
Gul spjöld:
Orri Freyr (71.
mín.), Þór.
Hjalti Jónsson
(24.), Tómas
Ingi 30.), ÍBV.
Rauð spiöld:
Engin.
Skot (á mark):
12 (5) - 17 (10)
Horn:
6-6
Aukaspyrnur:
10-16
Rangstöóur:
3-3
Varin skot:
Atli 7 - Birkir 4.
IBV (4-5-1)
Birkir Kristinsson.....4
Hjalti Jóhannesson .....3
Einar Hlöðver Sigurðsson 3
Unnar H. Ólafsson......3
Bjami G. Viðarsson.....3
Gunnar H. Þorvaldsson . . 4
Atli Jóhannesson........3
Hjalti Jónsson..........3
Bjamólfur Lámsson ......4
Ingi Sigurðsson ........4
Tómas Ingi Tómasson ... 4
Maður leiksins hjá DV-Sporti:
Atli Már Rúnarsson, Þór
Hilmar samdi
við Cangas
Hilmar Þórlindsson, landsliðs-
maður í handknattleik, samdi í
gærkvöld við spænska 1. deildar
liðið Cangas og er samningur
hans við félagið til eins árs.
Spænska liðið og Grótta/KR,
sem Hilmar er á samningi hjá,
komust að samkomulagi um
lánssamning.
„Það er mjög gott aö þetta er
komið í höfn og ég er strax far-
inn að hlakka til að fara utan en
æfingar hjá Cangas hefjast 1. ág-
ust. Það er tilhlökkunarefni að
fá tækifæri til að leika í einni
sterkustu deild Evrópu. Ég er
ennfremur ánægður meö samn-
inginn en hann er mun betri en
ég hafði hjá Modena á Ítalíu á
síðasta tímabili," sagöi Hilmar
Þórlindsson í samtali við DV í
gærkvöld.
Hilmar er annar íslendingur-
inn sem gerir samning við
spænskt félagsliö. Heiðmar Fel-
ixsson úr KA leikur meö Bida-
soa á næsta tímabili.
-JKS