Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Side 29
FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 29 DV Valur-Breiöablik 1-0 1-0 Dóra Marla Lárusdóttir . . 67. skot úr teig . . . frákast af markverði Skot (á mark): 9 (3) - 12 (7) Horn: 1-4 Aukaspyrnur: 9-6 Rangstöður: 3 -2 Varin skot: Þóra 7 - Elsa 2. Best á vellinum: íris Andrésdóttir, Val. @@ íris Andrésdóttir, Dóra Stefánsdóttir, Dóra M. Lárusdóttir og Þóra R. Rögnvaldsdóttir, Val. Björg A. Þórðardóttir, Margrét Ólafsdóttir og Erla S. Amardóttir, Breiðabliki. @ Rósa J. Steinþórsdóttir, Laufey Jóhannsdóttir, Soffla Ámundadóttir, Málfríður Sigurðardóttir, Ásgerður Ingibergsdóttir, Katrín Jónsdóttir, Val. Sigrún Gunnarsdóttir, Eyrún Oddsdóttir, Hjördís Þorsteinsdóttir, Eva S. Guðbjömsdóttir, Breiðabliki. Stjarnan-ÍBV 0-1 0-1 Margrét L. Viðarsdóttir . . 83. skot úr teig ....Rakel Logadóttir Skot (á mark): 10 (2) - 18 (8) Horn: 7-4 Aukaspyrnur: 11 - 16 Rangstöóur: 0 -0 Varin skot: María 1 - Petra 1. Best á vellinum: Margrét L. Viðarsdóttir, IBV. ®@ María B. Ágústsdóttir, Auður Skúladóttir, Stjömunni. Margrét L. Viðarsdóttir, Rakel Logadóttir, ÍBV. @ Harpa Þorsteinsdóttir, Elfa Erlingsdóttir, Ema Sigurðardóttir, Stjömunni. Petra F. Bragadóttir, Michelle Barry, Laufey Ólafsdóttir, Rachel Hamil. SÍMA DEILDIN Valur 5 4 KR 4 4 Breiðablik 5 3 ÍBV 5 2 Stjaman 5 1 FH 5 1 Grindavík 4 1 Þór/KA/KS 5 1 1 0 11-4 13 0 0 24-0 12 028-6 9 039-9 6 2 2 4-6 5 1 3 5-19 4 032-9 3 0 4 5-15 3 Margrét tryggði ÍBV sigurinn ÍBV sigraði Stjömuna, 0-1, í Garðabænum í gærkvöldi í Símadeild kvenna í knattspyrnu. Gestirnir áttu fyrri hálfleikinn eins og hann lagði sig og voru óttalegir klaufar að skora ekki í það minnsta tvö mörk fyrir leik- hlé. Þær María B. Ágústsdóttir markvörður og Auður Skúladótt- ir héldu Stjömunni á floti í fyrri hálfleik. í seinni hálfleik kom lið Stjörnunnar mun ákveðnara til leiks og tókst fljótlega að komast inn í leikinn. Laufey Ólafsdóttir, einn besti leikmaður ÍBV, fór meidd af velli á 67. minútu og við það bakkaði liðið og Stjam- an fór að færa sig framar á völi- inn. Heimastúlkur voru mun sterkari á síðustu 15 mínútum leiksins og ansi líklegar til að skora en þær fylgdu ekki nógu vel eftir þessum meðbyr og þeim var refsað sjö mínútum fyrir leikslok. Þá skoraði Margrét L. Viðarsdóttir, sem verður 16 ára eftir tæpa viku, glæsilegt mark og tryggði liði sínu mikilvægan sigur. -SMS Sport ^ Smáþjóðaleikar kvenna í körfuknattleik: Stórsigur gegn Möttu - íslenska liðið sigraði með 75-49 í fyrsta leik mótsins DV, Andorra: íslensku stelpumar byrjuðu vel á Promotion Cup í Andorra en 26 stiga sigur vannst í fyrsta leiknum gegn Möltu, 75-49, sem var 50. lands- leikur Guðbjargar Norðfjörð. Best á vellinum var hins vegar sú leikja- hæsta frá upphafi en Anna María Sveinsdóttir, sem lék sinn 52. lands- leik, var stigahæst islensku stelpn- anna með 17 stig auk þess sem hún tók 15 fráköst og gaf 5 stoðsending- ar á aðeins 22 mínútum. Það var frá- bært aö fylgjast með Önnu Maríu í leiknum, hún hitti úr 5 af 9 skotum sínum utan af velli og öllum sjö vít- um sinum og gjörbreytti leik ís- lenska liðsins þegar hún kom inn á í fyrsta leikhluta. íslenska liðið varð fyrir áfalli þegar 5 mínútur vom eftir af 3ja leikhluta er Erla Þorsteinsdóttir meiddist illa á ökkla og er óvíst um framhaldið hjá henni. Mestu skipti aö kiára leikinn „Þetta var góður sigur en leikur- inn leystist upp í hörku og vitleysu í lokin og það skipti mig mestu máli að klára hann,“ sagði Sigurður Ingi- mundarson, þjálfari islenska liðs- ins, í leikslok. íslenska liðið byrjaði leikinn ekki vel og lenti undir, 11-15, í fyrsta leikhluta en stelpumar tóku sig þá á, skoruðu sex síðustu stig fyrsta leikhluta og unnu síðan annan leik- hluta 23-2 og lögðu gmnninn að ör- uggum sigri. íslensku stelpurnar fengu harðar móttökur í síðasta leikhlutanum sem Malta vann, 22-16, og minnkaði muninn í 26 stig í lokin. Grófur leikur Möltustelpna og mörg mistök kostuðu 17 tapaða bolta í leikhlutanum en sigurinn var samt löngu unninn og næst mæta stelpurnar Albaníu í dag klukkan 16.30. íslensku stelpumar vörðu alls 18 skot Möltu í leiknum og Signý Hermannsdóttir varöi þau flest eða 6 en Erla kom þar næst med 4 þrátt fyrir að spila aðeins í 11 mínútur. Stig íslands í leiknum: Anna Maria Sveinsdóttir 17 (15 fráköst, 5 stoösendingar), Hildur Sigurðar- dóttir 10 (6 fráköst, 5 stoðsending- ar), Signý Hermannsdóttir 7 (7 frá- köst, 6 varin skot), Kristín Blöndal 7, Kristín Björk Jónsdóttir 7, Erla Þorsteinsdóttir 6 (5 varin skot á 11 mínútum), Guðbjörg Norðfjörö 5, Helga Þorvaldsdóttir 4 (5 stoðsend- ingar), Svava Ósk Stefánsdóttir 4, Bima Valgarösdóttir 4, Lovísa Guð- mundsdóttir 4. Helga Jónasdóttir var sú eina af íslensku stelpunum sem ekki komst á blaö. -ÓÓJ Siguróur Ingimundarson, landsliösþjálfari kvenna f körfuknattleik, var bjartsýnn fyrir mótiö og fyrstu hindruninni var ýtt úr vegi í gær. Símadeild kvenna í knattspyrnu: Valsstúlkur efstar og taplausar í deildinni - unnu Blika verðskuldað, 1-0, á Hlíðarenda Pinto í keppnisbann Joao Pinto, portúgalski fram- herjinn sem rekinn var af leik- vefli í leik Portúgals og Suður- Kóreu í riðlakeppninni, hefur verið dæmdur í ótímabundið keppnisbann þangað til Alþjóða knattspyrnusambandið dæmir í máli hans. Pinto kýldi dómara leiksins í magann eftir að hann rak hann út af og sést það á myndbandi sem FIFA hefur und- ir höndum. Atvikið sást hins vegar ekki á sjónvarpsmyndavél- um. Fernando Couto, fyrirliði Portúgala, var einnig undir smá- sjánni fyrir að hafa gripið um höfuð dómarans í kjölfar þessa atviks en hann mun líklega sleppa við refsingu. -HI Hetjan rekin frá Ítalíu Kóreumaðurinn Ahn Jung- hwan, sem skoraði gullmarkið sem sló ítali út úr HM, hefur ver- ið rekinn frá liði sínu, Perugia á Ítalíu. Og ástæðan er eingöngu þetta framangreinda mark. „Þessi maður mun aldrei stíga fæti í Perugia aftur,“ sagði Luci- ano Gaucci, stjómarformaður Perugia. „Hann var aðeins til þegar hann lék gegn Ítalíu. Ég er þjóðemissinni og ég lít á þessa hegðun ekki aðeins sem aðfor að ítölsku stolti heldur einnig móðgun við land sem opnaði dyr sínar fyrir honum fyrir tveimur ámm. Ég ætla mér ekki að borga manni laun sem hefur eyöilagt ítalskan fótbolta." Viðbrögð ítölsku pressunnar við þessum ósigri hafa verið nokkuð ofsafengin. Dómarinn hefur verið sakaður um að hafa vísvitandi reynt að koma ítölum úr keppninni og hafa jafnvel for- stöðumenn knattspymumála á Ítalíu gefið í skyn að Kóreumenn hafi reynt að hafa ólögleg áhrif á leikinn. -HI Hiddink til Portúgal? Gus Hiddink, sem þjálfað hef- ur landslið Suður-Kóreu með eft- irtektarverðum árangri, er nú orðaður við landslið Portúgala. Hollenska dagblaðið De Tel- egraaf greinir frá þessu. Samkvæmt frétt blaðsins hef- ur Hiddink um þrennt að velja eftir heimsmeistarakeppnina. Hann geti haldið áfram að stjórna liði Suður-Kóreu, hann geti farið til Hollands og tekið við stjórnartaumunum hjá PSV Eindhoven eða að hann geti tek- ið við landsliði Portúgala sem olli gríðarlegum vonbrigðum á mótinu sem kunnugt er. Hvað sem gerist er nokkuð ljóst að Antonio Oliveira mun ekki þjálfa liðið áfram en fleiri eru taldir eiga möguleika á stöð- unni. -HI Valur skaust tímabundið á topp símadeildar kvenna með naumum sigri á Breiðabliki á heimavelli sínum 1 gærkvöldi. Sigurinn var verðskuldaður en Blikar áttu engu að síður góða kafla í þessum leik. Gestirnir hófu leikinn betur og pressaði Valsliðið framarlega. Þeim gekk vel að brjóta niður spil þeirra og öflugir miðvallarleik- menn þeirra náðu að byggja upp margar vænlegar sóknir. Margrét Ólafsdóttir komst næst því að skora en skot hennar af löngu færi fór rétt fram hjá. Valur komst meira inn í leik- inn eftir því sem á leið og varð sóknin nokkuð stíf síðustu mínút- ur fyrri hálfleiks. Ásgerður Ingi- bergsdóttir skaut yflr af markteig eftir rúmlega hálftíma en annars þurfti hvorugur markvörðurinn að taka á honum stóra sínum í fyrri hálfleik. Breiðablik átti sinn besta leikkafla i upphafl seinni hálf- leiks og nokkrum sinnum skapaö- ist hætta við Valsmarkið, sérstak- lega þegar Þóra Rögnvaldsdóttir varði vel skalla Elínar Önnu Steinarsdóttur en Þóra sýndi mik- ið öryggi í markinu í þessum leik. Eins og fyrr þurfti Valur nokkurn tíma til aö komast í gang og Breiðabliksliðið gaf mikið eftir í baráttunni á miðjunni en sókn- araðgerðir Vals skiluðu litlu þar til á 67. minútu þegar Elsa Einars- dóttir missti klaufalega frá sér aukaspymu írisar Andrésdóttur og sendi knöttinn í tómt markið. Eftir þetta var leikurinn að mestu í höndum Vals sem gaf fá færi á sér. -HRM Grannaslagur á KR-velli Símadeild karla fimmtudaginn 20. júní kl. 19.15 KR-ingar! Fjölmennum á völlinn og styöjum okkar lið Domino s pizzur verða til sölu frá kl. 17.45

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.