Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2002, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2002, Blaðsíða 32
Æl jTíjí£3Jj'J£j JUUJ ú ]-ulun J3 FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ Viðbótarlífeyrissparnaður Allianz(ífí) - Loforð er loforð MIÐVIKUDAGUR 26. JUNI 2002 Sími: 533 5040 - www.allianz.is Slökkvistarfið í Arizona: Kostar 90 millj- ónir króna á dag - 30.000 manns yfirgefa heimili sín „Fólk hefur þurft aö velja hvað það tekur með sér af heimilinu. Oft- ast eru það myndaalbúm, fót og upp- áhaldsleikfong barnanna sem valin eru. Svo setur fólk garðslöngumar af stað úti í garði og flýr síðan heim- Arizona. Oi sín í von um aö húsið standi enn þegar það kemur til baka,“ sagði Stefán Sigurðsson, námsmaður í Arizona State háskólanum í borg- inni Phoenix í Arizona, en skæðir skógareldar eru ekki nema um 300 km frá heimili Stefáns. Eins og kunnugt er hafa skógar- eldar geisað í Arizona í Bandaríkj- unum undanfarið og erfitt hefur verið fyrir slökkviliðsmenn að ráða við þá. Stefán er námsmaður í Arizona State háskólanum í Phoen- ix en skógareldamir em aðeins um 300 km frá heimili hans. Stefán sagði í samtali við DV að yfir 2000 slökkviliðsmenn ynnu daga sem nætur að því að slökkva eldinn en árangur hefði verið lítill sem eng- inn. „Um 30 jarðýtur og yfir 15 þyrl- ur og flugvélar eru notaðar við björgunarstörf," sagði Stefán. Yfir 30.000 manns hafa nú orðið Beðið eftir reyk- merki í Árborg „Við munum ræða málin áfram, ætli viö gefum bara ekki reykmerki eins og þegar páfi er kjörinn þegar niðurstaðan liggur fyrir," sagði Þor- valdur Guðmundsson forseti bæjar- stjórnar Árborgar við DV í gær, léttur í lund þrátt fyrir langa fundarsetu undanfama daga. „Það er ekki neitt nýtt að frétta af ráðningarmálum bæj- arstjóra í Árborg, við höfum verið í sambandi í dag og rætt málin en nið- urstaða liggur ekki fyrir,“ sagði Þor- valdur. Margir eru orðnir langeygir eftir niðurstöðu framsóknarmanna og Samfylkingar í Árborg vegna ráðning- ar bæjarstjóra og þykir málið orðið hið vandræðalegasta fyrir flokka sem strax eftir kosningar skrifuðu undir viljayfirlýsingu um samstarf og stuttu síðar var skrifað undir málefnasamn- ing. -NH að yfirgefa heimili sin og hefur fólk leitað skjóls á farfuglaheimilum, hjá fjölskyldum og í íþróttahúsum. Þá eru 390 heimili brunnin. Stefán sagði jafnframt að aðgerð- ir vegna skógareldanna kostuðu bandariska ríkið yfir eina milljón dala eða um 90 milljónir íslenskra króna á dag. Eldsvæðið er nú orðiö yfir 100 km á lengd og er hraðinn ca 40 km á klst. og fer eftir vindátt hvert hann teygir sig. Enginn mannskaði hefur enn orð- ið af skógareldunum en þetta eru mestu skógareldar sem orðið hafa i Arizona. 40 til 50 Islendingar búa í Arizona en þeir hafa ekki þurft að yfirgefa heimili sín þar sem þeir búa flestir í Phoenix. Ekki er talin hætta á að eldamir nái þangað en borgin er til- tölulega langt frá skóginum. Sjá nánar á bls. 13 -ss , DV-MYND ÞB I í leik og starfi Menn höfðust ólíkt aö um helgina í Mývatnssveitinni þegar Ijósmyndari DV átti leiö um. Æskan sprellaöi á bökkum Mývatns meöan eldri kynslóöin greiddi silungsnet og geröi klárt fyrir næsta veiöitúr. í baksýn hvíldi p Bláfjall meö hvíta húfu. Bræður dæmdir í fangelsi - komust yfir bensínkort íslandspósts: Stálu bensíni út á Jökulsárhlíð lokuð: *'^ Vegagerö vinn- é ur að hjáleið 1 kort í 137 skipti - meira en sjö þúsund lítrum dælt á bíla og brúsa Bræður, 17 og 19 ára, voru í gær sakfelldir fyrir að hafa stolið meira’ en sjö þúsund lítrum af bensíni í samtals 137 skipti frá Olís á síðasta ári. Þannig var stolið bensínkort, sem tilheyrði íslandspósti, notað í öll skiptin til að fá bensínið afgreitt. Fram kom hjá öðrum bræðranna að hann hefði verið að elta ákveð- inn mann, sem starfaði hjá íslands- pósti og tekið lyklana úr bíl hans. Bensínkortið hefði verið á lyklakip- unni og það því tekið af henni en lyklamir settir aftur í bílinn. Bróð- irinn sagði að margir hefðu svo fengið að nota kortiö - þess vegna hefði svo oft verið tekið út af því. Bræðumir voru sakfelldir fyrir að taka bensín 67 sinnum út hjá Olís við Hamraborg, í 56 skipti við ÓB-stööina við Knarrarvog en 14 sinnum hjá Olís við Sæbraut. Þegar bræðurnir voru spurðir hvers vegna þessar tilteknu stöðvar heföu verið valdar til að ná í bensín sögðu þeir enga sérstaka ástæðu fyrir því. Þeir kváöust heldur ekki kannast við að hafa átt við myndavélar á stöðvunum. Einnig neituðu bræð- urnir að hafa verið að greiða skuld- ir sínar með því að lána bensínkort- ið. Engu að síður hefðu a.m.k. fimmtán manns fengið að nota það. Ákærðu neituðu að hafa selt bensínið til vina og kunningja fyrir hálfvirði eins og grunur lögreglu beindist að. Vitni bar engu að síður að annar bræðranna hefði hringt í sig og „boðið sér ódýrt bensín". Þeg- ar lögreglan fylgdist með úr fjar- lægð varð hún vitni að þvi að annar bræðranna hitti nokkra aðra á bensínstöð og bensíni hefði verið dælt á bíla þeirra. Stundum var bensín einnig tekið á brúsa. Eldri bróðirinn er dæmdur í 12 mánaða fangelsi en 9 mánuðir era skilorösbundnir. Hinn fær 9 mán- aða fangelsi en 6 mánuði skilorðs- bundna. Inni í þessum refsingum eru dómar, hegningarauki fyrir önnur og eldri brot. Bræðurnir em einnig dæmdir til að greiða Olís 745 þúsund krónur í bætur fyrir bensín- ið sem þeir stálu. -Ótt Vegurinn um Jökulsárhlíð, milli Hellisheiðar eystri og þjóðvegar eitt, er ófær vegna skemmda á Þver- árbrú. Brúin skemmdist töluvert í vatnavöxtunum í siðustu viku og verið er að vinna í að gera hjáleið. Samkvæmt upplýsingum frá Vega- gerðinni er mikil rigning á staðnum þessa stundina og gæti það eitthvað tafið framkvæmdir en engu að síður er vonast til að hjáleiðin verði tilbú- in á morgun. Annars eru allir helstu vegir landsins greiðfærir. -vig / / / / / Innkaupastofnun: / Stefan kjorinn á ný „Það þarf að breyta samþykkt- um um kjör stjómarformanns Inn- kaupastofnunar. Við lögðum það til á fundi borgarráðs i gær að ekki verði áskilið að formaður sé borgarfulltrúi eða varafulltrúi. Að því gefnu getum við endurtekið kosninguna þannig að hún verði lögmæt," sagði Ámi Þór Sigurðs- son, forseti borgarstjómar, í sam- tali við DV í morgun. Stefán Jó- hann Stefánsson mun því eftir sem áður sitja sem stjórnarformaður þótt minnihlutinn hafi bent á að kjör hans hafi verið ólögmætt. Ámi Þór segir langa hefð fyrir þeim skilningi að varaborgarfull- trúar geti talist þeir sem séu á list- anum. Stefán Jóhann var í 18. sæti en telst ekki varaborgarfulltrúi að óbreyttu. Ekkert bendir til að fleiri ólögmætar kosningar hafi farið fram, að sögn Áma Þórs, en til að taka af öll tvímæli hefur hann beðið lögmann að taka sam- an greinargerð um þessi mál. -BÞ / / / Áhættuatriði í háloftunum: Fer á vélsleða út úr flugvél Talaðu við okkur um ir,AR aldrei áður verið reynt í heiminum Nýtt áhættuatriði verður fram- kvæmt um næstu helgi þegar maður keyrir á vélsleða út úr flugvél yfir Is- landi. Ökumaöurinn mun sitja á sleð- anum í u.þ.b. 30 sekúndur eða sem svarar falli í 6.000-7.000 fet. Siðan opn- ast fallhlífar ökumannsins og sleðans og lenda þeir á sama stað ef allt geng- ur að óskum. Það verður íslendingur sem stýrir sleðanum en aðstandendur uppákomunnar segja ekki tímabært að greina frá hvaða „ofurhetja“ muni eiga í hlut. Þetta er i fyrsta skipti sem þessi til- raun verður framkvæmd í heiminum Sigurður Baldursson. og er Sigurður Baldursson upp- hafsmaður tiltæk- isins. „Ég er búinn að vera með þessa hugmynd í kollin- um i mörg ár,“ segir Sigurður. Hann starfar hjá Motul.is sem er umboðsaðili Frontier Films á framleiða áhættu- og kviknaði áhugi íslandi. Þeir vélsleðamyndir þeirra strax á samstarfi þegar Sigurð- ur skýrði þeim frá hugmyndinni. Tveir myndatökumenn, annar ís- lenskur og hinn amerískur, munu kvikmynda atriðið í frjálsu falli og er því ætlað að verða hápunktur nýrrar myndar sem kallast Cold Smoke 5. Hún verður að líkindum frumsýnd á íslandi í haust að sögn Sigurðar. Staðsetning atriðisins liggur ekki endanlega fyrir en þau mál munu skýrast á næstu dögum að sögn Sig- urðar. Hann er enginn nýgræðingur í fallhlífarstökki, því hann hefur stokk- ið um 1800 sinnum við ýmsar kring- umstæður. -BÞ MITCHELL 40% AFSLÁTTUR Sportvörugerðin hf. Skipholti 5, s. 562 8383 m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.