Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2002, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2002, Blaðsíða 15
15 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 DV Þetta helst HEILDARVIÐSKIPTI 4.464 m.kr. Hlutabréf 579,129 mkr. Húsbréf 1800 m.kr. MEST VIÐSKIPTI v Delta 128,477 m.kr. ðssur 104,205 m.kr. Bakkavör Group 79,204 m.kr. MESTA HÆKKUN O Bakkavör 3,5% 0 Skeljungur 1,5% © Flugleiðir 1,2% MESTA LÆKKUN © Marel -3,3% O Eimskipafélag íslands -3,1% © Össur -1,8% ÚRVALSVÍSITALAN 1,279 - Breyting © 1,03% Eimskip byggir í Færeyjum Allir starfsmenn Eimskips í Færeyjum tóku nýlega fyrstu skóflustunguna að nýrri skrifstofu og vöruhúsi sem á að rísa á Skansabryggjunni í Þórshöfn. Þetta er í fyrsta skipti sem flutn- ingafyrirtæki í Færeyjum byggir eigin skrifstofu og vöruhús á hafn- arsvæðinu í Þórshöfh. I tilefni af þessu var haldin mót- taka úti á svæðinu í blíðskapar- veðri. Allir starfsmenn voru boðn- ir, auk u.þ.b. 40 annarra gesta. í upphafi flutti Linda B. Gunnlaugs- dóttir, forstöðumaður Eimskips í Færeyjum, ræðu. í kjölfarið voru þrír samningar undirritaðir, þ.e. við byggingarverktakann, Mt. Höjgaard, bæjarráð Þórshafnar og hafnaryfirvöld. Að þvi loknu tóku allir starfsmenn Eimskips ásamt tveimur meðlimum stjómarinnar, Högna Mohr og Páli Patursson, alls 31 maður, fyrstu skóflustung- una. Þetta vakti mikla kátinu og var skemmtilegur atburður. Hver maður fékk í hönd skóflu sem þeir gátu tekið með sér heim að athöfh lokinni. Byggingarframkvæmdir eru hafnar og samkvæmt áætlunum er reiknað með að flytja inn í nýja húsið í desember á þessu ári. Húsnæðið veröur samtals 1.500 fermetrar. Þar af verður skrif- stofuhúsnæðið um 300 fermetrar sem ér mikil breyting frá núver- andi skrifstofuhúsnæði. Nýja hús- næðið mun bæta aðkomu fyrir viðskiptavini og aðstöðu starfs- manna Eimskips í Færeyjum. Vöruhúsið verður svipað að grunnfleti og það eldra en 4 metr- um hærra sem gefur möguleika á auknu geymslurými. Byggingin verður nýtískuleg og búin öllum þeim tækjum sem.nauðsynleg eru fyrir Eimskip til að veita við- skiptavinum sínum enn betri og fjölbreyttari þjónustu en verið hef- ur, eins og segir í frétt frá Eim- skip. Ekta fiskur ebf. J $.4661016 J Útvatnaður saltftskur, án beina, til að sjóða. Sérútvatnaður saltfiskur, a, til að stetkja. Saltfisksteikur (Lomos) fyrir veitingabús. án beina, til Viðskipti Umsjón: Viöskiptablaöið Alcan í tilkynningu frá félaginu segir aö horfur fyrir þetta ár séu góöar þótt álverö hafi enn lækkaö frá því í fyrra. Besta afkoma Alcans frá upphafi Hagnaður ISAL eftir skatta árið 2001 var 2,6 milljarðar króna. Velta fyrirtækisins nam 26,6 millj- öðrum króna og skattgreiðslur ISAL vegna ársins 2001 voru rúm- ar 900 milljónir króna. Fram- leiðslumet var slegið enn eitt árið þar sem 168.276 tonn af áli voru framleidd í kerskálunum á sl. ári. Útflutningsverðmæti framleiðsl- unnar nam um 13,5% af heildar- verðmæti útfluttra vara frá ís- landi árið 2001. Við síðustu stækkun verksmiðj- unnar, árið 1997, var árleg fram- leiðslugeta álversins áætluð 162.000 tonn. Framleiðsla síðasta árs var hins vegar 4% hærri, enda hefur með sértækum aðgerðum tekist að auka framleiðsluna veru- lega og stefnt er að enn meiri framleiðslu á þessu ári. Afkoma ársins 2001 er ein sú besta i sögu fýrirtækisins þrátt fyrir að álverð hafi verið lágt. Meðalverð ársins var 1456 USD/pr tonn af áli á heimsmarkaði, 111 dollurum lægra en árið 2000. Skýr- ingar á góðri afkomu felast því fyrst og fremst í góðum tæknileg- um rekstri verksmiðjunnar og aukinni framleiðslu. Gengisþróun hafði einnig jákvæð áhrif á rekstr- arreikning, þó minni en gengis- sveiflur gefa tilefni til að ætla þar sem stór hluti rekstrarkostnaðar ISAL er greiddur í erlendri mynd; aðallega dollurum og evrum. í tilkynningu frá félaginu segir að horfur fyrir þetta ár séu góðar, þótt álverð hafi enn lækkað frá því í fyrra. Reiknað er með að verðið fari að hækka að nýju á seinni hluta þessa árs og spum eftir áli aukist með bættu efna- hagsástandi víða um heim. Á aðalfundi ISAL, sem haldinn var 5. júní, var ákveðið að breyta lögformlegu nafni fyrirtækisins. í kjölfarið var nafnið „Islenska álfé- lagið hf.“ lagt niður og „Alcan á íslandi hf.“ tekið upp í staðinn. Verksmiðjan sjálf verður þó áfram kölluð ISAL. Nafnabreyt- ingin endurspeglar breytt eignar- hald fyrirtækisins en í október árið 2000 var algroup, þá móðurfé- lag ISAL, sameinað fyrirtækinu Alcan undir nafni þess síðar- nefnda. Alcan á íslandi hf. rekur sjöunda stærsta álverið innan samsteypunnar. Framleiðslugetan er um 170 þúsund tonn og starfs- mennimir em um 500. Á aðalfundinum urðu einnig breytingar á stjóm ISAL. Cynthia Carroll, yfirmaður hráálsdeildar Alcan, tók sæti Emery LeBlanc, fyrrverandi yfirmanns hrááls- deildarinnar, sem hefur látið af störfum vegna aldurs. Cynthia er fyrsta konan sem tekur sæti í stjóm ISAL. Heiti Potturinn: 6. flokkur, 25. júní 2002 HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS 57 f" vænle%iisl til vinnings Einfaldur kr. 4.940.000,- 35377B k 35377E 35377F 35377G 35377H Tromp kr. 24.700.000.- r. 24.700.000,- kr. 4.940.000,- kr. 4.940.000,- kr. 4.940.000,- kr. 4.940.000,- Trompmiði er auökenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaöar. Birt með fyrirvara um prentvillur. HYUnDfll MEISTARALEG ÚTFÆRSLA HM Elite pakki fylgir völdum Hyundai bílum: Geislaspilari, álfelgur, filmur í rúðum, vindskeið og gúmmímottur. Bflasamningur miðast við 30% útborgun og 48 mánaða samning með 30% lokaafborgun af nývirði. Allar tölur eru með vsk. Hyundai Accent 3d verðfrá: 13.668 á mánuði Rekstrarleiga: 24.672 Verðlistaverð: 1.160.000 Hyundai Matrix verðfrá: 19.369 á mánuði Rekstrarleiga: 33.840 Verðlistaverð: 1.650.000 Hyundai Elantra 4d verðfrá: 19.369 á mánuði Rekstrarleiga: 33.840 Verðlistaverð: 1.650.000 30" wracan. Hyundai Terracan verðfrá: 31.474 Rekstrarleiga: 52.274 Verðlistaverð: 2.690.000 á mánuði Gijótháls 1 • Sími 575 1200 • Söludeild 575 1220 • www.bl.is Opnunartími: Virka daga 9-18 Allar uppfýsingar eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur og myndabrengl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.