Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2002, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2002, Blaðsíða 4
4 Fréttir MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 DV 1,8 milljarða framkvæmdir á Reykjanesbraut um Hafnarfjörð: Mislæg gatnamót komin í biðstöðu - nýr meirihluti ræðir við Vegagerðina um heildstæða lausn Ný mislæg gatnamót á Reykjanesbraut Hönnun mannvirkisins er aö mestu lokiö en ekki er útséö hvort þetta veröur endanlegt útlit. Mislæg gatnamót á Reykjanes- braut í Hafnarfirði sem Línuhönn- un er að ljúka hönnunarvinnu á eru nú komin í biðstöðu. Ástæðan er sú að nýr meirihluti Samfylkingarinn- ar i Hafnarfírði hefur aðrar áhersl- ur á uppbyggingu Reykjanesbrautar í gegnum Hafnarfjörð en fyrri meirihluti. Hafa staðiö yfir óform- legar viðræður bæjaryfirvalda við Vegagerðina vegna þessa. Lúðvík Geirsson segir að ekki eigi að þurfa aö koma til frestunar á framkvæmdum vegna áherslubreyt- inga. Þvert á móti segist hann frek- ar leggja áherslu á að framkvæmd- um verði flýtt. „Við lýstum því yfir með skýr- um hætti fyrir kosningar að við værum á móti hindrunarlausri hraðbraut um Reykjanesbrautina. Við vildum hins vegar tryggja þar gott umferðarflæði og öryggi. í ljósi þess höfum við átt óformlegar viðræður við Vegagerðina um end- urskoðun á þeim áætlunum sem legið hafa fyrir. Við viljum tryggja að meö sem skjótustum hætti verði hægt að koma á eðlilegu og öruggu umferðarflæði um götuna alla leið, en ekki bara um hluta af leiðinni. Það er á öllu svæðinu frá Kaplakrika og suður fyrir kirkju- garð. Þær viðræður eru nú í frek- ari undirbúningi og munu skýrast alveg á næstunni." Lúðvík segir að fyrirliggjandi hugmyndir Línuhönnunar um mislæg gatnamót séu nú allar til skoðunar. Bæjaryfirvöld vilji láta skoða þar aðrar útfærslur. „Það á þó ekki að þurfa að tefja fram- kvæmd þessa máls nema síður sé. Við erum að skoða leið til að flýta framkvæmdum til að nýta það fjár- magn sem fyrir liggur vegna fram- kvæmda á þessu svæði til að tryggja örugga umferð á öllu svæð- inu,“ segir Lúðvík. Samkvæmt teikningu Línuhönn- unar er fyrirhugað að endurgera um 2,2 km kafla á Reykjanesbraut frá Sólvangi og suður fyrir kirkju- garð. Á kaflanum frá Sólvangi að Læknum er fyrirhugað að lækka brautina um nærri 6 metra. Reykjanesbrautin verði því í raun grafin undir fyrirhuguð gatnamót. Þarna verður um að ræða tvenn mislæg gatnamót, þ.e. við Lækjar- götu og Kaldárselsveg. Þá á að byggja tvær göngubrýr og tvenn undirgöng fyrir gangandi vegfar- endur. Einnig á að endurgera Lækjargötu frá gatnamótum við Hringbraut. Þar verður ný tenging Ásbrautar gerð frá Goðatorgi að Kcddárselsvegi og kafli af Kald- árselsvegi endurgerður. Heildarkostnaður vegna fram- kvæmdanna var áætlaður um 1,8 milljarðar króna og falla um 90% hans á Vegagerðina en 10% á Hafn- arfjarðarbæ. -HKr. Siguröur Ragnarsson verkefnisstjóri Línuhönnun hefur haft meö höndum hönnun mislægra gatnamöta á Reykja- nesbraut í Hafnarfiröi. Hugsanlegt er aö því mannvirki veröi þreytt til sam- ræmis viö breyttar áherslur meö nýjum meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjaröar. Landsmót 2002 að Vindheimamelum í Skagafirði: Búist við fjögur til fimm þúsund erlendum gestum DV*1YND GVA Gæöingar sýndir fjöldanum Allt fastagistirými í Skagafiröi er löngu uppbókaö vegna Landsmóts hestamanna sem hefst í næstu viku. Búist er við miklum fjölda útlend- inga á Landsmót 2002 að Vind- heimamelum í Skagafirði sem hefst 2. júlí næstkomandi. Að sögn Guð- bjargar Guðmundsdóttur, ferða- málafulltrúa í Skagafirði, er gert ráð fyrir allt að 4-5000 erlendum gestum á mótið. Land- mótshaldarar eru til- búnir að taka á móti allt að 10.000-12.000 gestum. En eins og fyrri daginn hafa veð- urguðimir alltaf sín áhrif á aðsókn á landsmót. Guðbjörg sagði að fyrirspurnir frá út- löndum um mótið hefðu einkum borist fyrr í vetrn-. Erlendir gestir hefðu þegar verið famir að bóka sig í hestaferðir, útsýnisferðir og fleira af þeim toga fyrir nokkmm misser- um. Þá væm tvö ár siðan flestir gististaðir í Skagafirði hefðu verið uppbókaðir. Útlendingamir sem mæta á landsmót 2002 eru nánast hvaðanæva úr heiminum. Stórir hópar koma frá Þýskalandi en einnig af Norðurlöndunum, svo og öðrum Evrópulöndum. Að þessu sinni koma fleiri Englendingar en áður hefur verið. Ástæðan er m.a. sú að Anna Bretaprinsessa verður heiðursgestur á mótinu. Ekki er vit- að hve margir koma frá Bandaríkj- unum. Þeim Bandaríkjamönnum hefur farið fjölgandi sem hafa sótt landsmót á undanfomum árum en engar tölur liggja fyrir um fjölda þeirra nú. Guðbjörg sagði, að allt fastagistirými í Skaga- firði væri löngu uppbók- að. Síðan hefði bæst við töluverður listi yfir hús- næði sem einstaklingar væm að bjóða til leigu, svo sem herbergi í heimahúsum. Listi yfir það húsnæði er birtur inni á vef landsmótsins, en að sögn Guðbjargar hefur leiga á því tekið kipp síðustu vikurnar. Því má bæta við hér að Hestasport hef- ur enn til ráðstöfunar nokkur svefn- pokapláss í Miðgarði, að því er fram kom í viðtali blaðsins við Magnús Sigmundsson i gær. Öflug upplýsingamiðlun verður starfrækt á mótinu. Upplýsingamið- stöð verður rekin í Varmahlíð og einnig verður útibú frá henni á Vindheimamelum. Áætlanaferðir verða milli Vindheimamela og Sauðárkróks alla daga mótsins. FBA Norðurleið mun sjá um þær ferðir sem verða líklega fjórar tals- ins yfir daginn. Fólk getur því auð- veldlega smellt sér á Krókinn, skoð- að sig um og bmgðið sér í sund, svo eitthvað sé nefnt. Á svæðinu verður fjöldi sölu- og kynningarbása fyrir ýmis málefni. „Við erum að vonast til að ná upp svolítilli markaðsstemningu á bak viö svæöið þar sem sölutjöldin verða,“ sagði Guðbjörg. „Þama veröur barnagæsla, leikvellir, sparkvöllur og leiktæki. Það em því allar forsendur til þess að skapast geti afar fjölbreytt mannlif á Lands- mótii 2002.“ -JSS LANDSMÓT REYKJAVIK AKUREYRI Sólariag í kvöld 24.03 23.59 Sólarupprás á morgun 02.59 02.45 Síödegisflóó 19.39 24.12 Árdegisflóö á morgun 07.59 12.32 Hægviðri í dag, 3 til 8 metrar á sekúndu og léttskýjað sunnan- og vestanlands. Þokuloft eða súld á Noröur- og Austurlandi. Vestlægari átt, 5 til 8 metrar á sekúndu vestanlands i kvöld, en austan til í nótt. Hlýjast sunnanlands. Veörið á Léttskýjað víðast hvar Hætt viö þokulofti úti við sjóinn við vesturströndina en annars léttskýjað víöast hvar. Hlýjast inn til landsins. Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur Hiti 10° Hiti 8° Hiti 8° til 23° til 21° til 21° Vindur. 5-8">/» Vindun 3-5»"/. Vindun 3-3™/* -» Hætt viö þokuloftl útl vlö sjólnn vlö vesturströndl na en annars léttskýjaö víöast hvar. Hlýjast Inn tll landslns. Hægviöri, skýjaö meö köflum og dálítll súld, einkum vlö ströndina. Hægvlöri, skýjaö meö köflum og dá- Irtll súld, elnkum vlö ströndina. A-'r/Tr.i c-' m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldl 8,0-10,7 Stlnnlngskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviöri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveöur 28,5-32,6 Fárviöri >= 32,7 AKUREYRI skýjað 5 BERGSSTAÐIR skýjaö 6 BOLUNGARVÍK EGILSSTAÐIR þokumóða 7 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 12 KEFLAVÍK léttskýjaö 9 RAUFARHÖFN rigning 5 REYKJAVÍK léttskýjaö 9 STÓRHÖFÐI léttskýjaö 9 BERGEN rigning 12 HELSINKI alskýjaö 13 KAUPMANNAHÖFN skýjaö 14 ÓSLÓ skýjaö 11 STOKKHÓLMUR 15 ÞÓRSHÖFN skúr 9 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 12 ALGARVE heiöskírt 17 AMSTERDAM þokumóöa 15 BARCELONA heiðskírt 22 BERLÍN hálfskýjaö 17 CHICAGO heiöskírt 23 DUBUN skýjaö 11 HAUFAX léttskýjaö 15 FRANKFURT léttskýjaö 17 HAMBORG skýjaö 14 JAN MAYEN skýjað 7 LONDON heiöskírt 12 LÚXEMBORG léttskýjaö 17 MALLORCA hálfskýjaö 22 MONTREAL skýjaö 19 NARSSARSSUAQ alskýjaö 7 NEW YORK mistur 24 ORLANDO heiöskírt 22 PARÍS léttskýjaö 16 VÍN heiöskírt 17 WASHINGTON hálfskýjaö 25 WINNIPEG heiðskírt 16 r.'íviH'..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.