Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2002, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002
Fréttir
DV
Varðskipið Þór tekur stakkaskiptum:
Fegurðarkóngur sprautar
skip með bílalakki
- fljótandi diskótek með plötusnúð á brúarþaki
Skrapaö
Gríöarleg vinna er fólgin í því að undir-
vinna skipið fyrir lakkið. Fjariægja þarf
allt ryð til að bólur komi ekki á skipið.
Hér má sjá Oliver Edvardsson málara
að störfum.
anta. Ekki náðist i þá félaga en
samkvæmt heimildum DV hafa
þeir kallað til liðs við sig erlenda
og íslenska fjárfesta. Meðal þeirra
sem vinna að því að koma skipinu
í drift er sá kunni athafnamaður,
Ingvar Þórðarson, sem kenndur
var við Kaffibarinn. Ingvar, sem
hafði sest að í London, hefur und-
anfarið verið á íslandi og meðal
annars komið að þessu máli.
Áform eru uppi um að „gullskip-
ið“ sigli milli hafna á Spáni næsta
sumar og haldi uppi diskómenn-
ingu. Dansað verður á framdekk-
inu þar sem fallbyssan var áður og
á brúarþakinu verður skífuþeytir
eða öðru nafni DJ. Á þyrlupallin-
um aftan á skipinu verður veit-
ingasalur en í þyrluskýlinu verður
eldhús.
Víst er að gullskipið Þór mun
vekja athygli þar sem það siglir á
móti rísandi sól á komandi mán-
uðum. -rt
Varðskipið Þór er að taka
stakkaskiptum þar sem það liggur
við Ægisgarð í Reykjavík. Skipið
mun á næstu mánuðum halda til
Ibiza á Spáni þar sem því er ætlað
að verða fljótandi skemmtistaður.
Skipið hefur allt verið skverað í
bak og fyrir en það sem vekur
mesta athygli er að það er ekki
málað eins og venjan er með skip
af þessu tagi heldur er það spraut-
að í gulllit með bílalakki. Skipið
verður annars vegar í ljósum gull-
lit á skrokkinn en yfirbyggingin
verður í dekkri gulllit. Eftir því
sem DV kemst næst er þetta í
fyrsta sinn í sögunni sem skip af
þessari stærðargráðu er sprautað
með þessum hætti. Aðeins lakkið
á skipið kostar langt á aðra millj-
ón króna en hefðbundin málning
kostar aðeins 300 þúsund krónur.
„Þetta verður skuggalega flott.
Við notum vörubílalakk á skipið
sem vissulega mun vekja athygli á
heimshöfunum. Þar sem um bíla-
lakk er að ræða er engin leið að
mála með pensli og við höfum orð-
ið að sprauta lakkinu," segir Ægir
Valgeirsson, annar aðaleigenda
Skipaþjónustu íslands. Ægir, sem
er þekktur sem fegurðarkóngur Is-
lands árið 2000, hefur staðið í
ströngu með félögum sínum við að
sprauta gullinu á skipið milli rign-
ingarkafla. Hann segir að þetta sé
stærsta verkefni fyrirtækisins frá
þvi það var stofnað.
„Það hefur verið gaman að fást
við þetta verkefni og auðvitað er
gríðarleg vinna í þessu. Við erum
í raun að vinna skipið eins og um
bíl væri að ræða,“ segir Ægir.
Margir hafa bent á að bílalakkið
á skipinu muni þurfa undan að
láta fyrir sjávarseltu. Ægir segir
að það þurfi ekki að verða vanda-
mál.
„Það þarf bara að bóna dallinn
reglulega, rétt eins og bilana.
Kannski maður sæki um að starfa
við það suður á Spáni,“ segir Ægir
og hlær.
Hann segir að eigendurnir séu
DV-MYNDIR E.ÓL.
Gullmálarar
Helgi Helgason ogÆgir Valgeirsson, eigendurSkipaþjónustu íslands, eru frum-
kvöðlar aö því leyti að þeir eru fyrstir íslendinga til þess aö sprauta skip með bíla-
lakki. Hér eru þeir við varðskipið Þór sem óðum er að taka á sig gullleitan blæ.
Gamli Þór
Varðskipið Þór þjónaði Landhelgis-
gæslunni um árabil með skipherra í
brúnni. Nú stefnir í að skipið fái nýtt
hlutverk með DJ, öðru nafni plötu-
snúð, á brúarþakinu.
ekkert að velta fyrir sér kostnaði.
„Þeir vilja bara fá þennan lit,“
segir Ægir.
Þór á sér langa sögu sem varð-
skip við íslandsstrendur og hefur
margan laridhelgisbrjótinn gómað.
Fyrir nokkrum árum var skipinu
breytt í „veitingahús" og lagt við
Stærsta verkefnið
Helgi Helgason, til vinstri, og Ægir
Valgeirsson hafa tekið aö sér
risaverkefni þar sem bílasprautu er
beitt á skip.
bryggju á Húsavík og seinna í
Hafnarfirði. Sá rekstur gekk ekki
upp og í maí síðastliðnum seldi
eigandi skipsins það. Kaupendurn-
ir eru athafnamennirnir Siggeir
Pétursson, skipstjóri á hvalaskoð-
unarbátnum Brimrúnu, og Helgi
Hilmarsson, flugvélstjóri hjá Atl-
Norski listamaðurinn Odd Nerdrum:
Vill kaupa Esjuberg
af Guðjóni í Oz
Með hinni kínversku söngkonu
Kristján söng óperuaríur og dúetta með kínversku söngkonunni Wen Hong-
ling á tónleikunum.
Kínverjar fagna Kristjáni
Norski lista-
maðurinn og ís-
landsvinurinn
Odd Nerdrum
hefur gert
kauptilboð í
Esjuberg, Þing-
holtsstræti 29,
glæsilegt hús
sem flestir
þekkja væntan-
lega sem gamla
Borgarbókasafnið. Tilboðið er
gert með fyrirvara um breytingar
á deiliskipulagi hverfisins sem
leyfir að húsið verði notað sem
íbúðarhús. Þeir sem gerst þekkja
telja litlar líkur á að breytingar á
deiliskipulagi standi í borgarkerf-
inu en búið var f húsinu í á fjórða
áratug.
Kaupverð í tilboðinu fæst ekki
gefið upp en Guðjón Már Guðjóns-
son, forstjóri og stofnandi Oz,
keypti húsið á 70 milljónir króna
þegar Reykjavíkurborg leitaði eft-
ir tilboðum f það fyrir nokkrum
árum.
Guðjón hafði uppi hugmyndir
um að reka frumkvöðlasetur fyrir
böm í húsinu, eins konar uppeld-
isstöð fyrir tölvuforritara, en sú
hugmynd varð aldrei að veru-
leika.
Esjuberg var teiknað af Einari
Erlendssyni, húsameistara i
Reykjavík, og byggt á árunum
1915-16. Upphaflega hét húsið
reyndar Villa Frieda og þótti þá,
eins og nú, eitt fallegasta og glæsi-
legasta íbúðarhús bæjarins. Þegar
Ólafur Johnson stórkaupmaður
eignaðist húsið fékk það nafnið
Esjuberg.
Odd Nerdrum er mikill íslands-
vinur, kemur reglulega í heim-
sóknir og hrífst mjög af landi og
þjóð. Heimildum I menningarlíf-
inu ber saman um að mikill feng-
ur sé að reglulegum heimsóknum
Odds Nerdrums hingað til lands
og enn frekar hyggist hann eiga
hér fastan samastað. Hann er án
efa þekktasti málari Norðmanna
um þessar mundir en afar um-
deildur, hefur um árabil ögrað og
skapraunað fólki heima fyrir með
málverkum, háttemi og djarfleg-
um ummælum um myndlist og
menningarpólitík. Odd Nerdrum
hélt sýningu á kitsch-verkum sín-
um á Kjarvalsstöðum í fyrravor.
Hlaut sýningin metaðsókn. -hlh
Dúndrandi lófaklapp og fagnaðaróp
1.600 áhorfenda kváðu við þegar tón-
leikum Kristjáns Jóhannssonar lauk í
21. Century Theater, helstu tónleika-
höll Pekingbúa, á laugardagskvöldið.
Ólafur Egilsson sendiherra sagði við
DV að tónleikamir hefðu tekist frábær-
lega og margir gestir komiö að máli við
sig á eftir og lokið miklu lofsorði á söng
Kristjáns enda hafi undirtektir verið
meiri en menn eigi að venjast á klass-
ískum tónleikum í Peking.
Kínverska þjóðarsinfónían lék undir
á tónleikunum undir stjóm Lee Xincao
en Kristján söng óperuaríur og dúetta
með kínversku söngkonunni Wen
Hongling. Kristján hafði dvalið í viku-
tíma i borginni til að undirbúa tónleik-
ana en með honum vora synir hans,
Sverrir og Víkingur.
Tónleikamir á laugardag voru
haldnir að tilhlutan íslenska sendiráðs-
ins en Kristján kom til Peking sem
gestur kínverska menningarmálaráðu-
neytisins. Meðal viðstaddra voru Quio
Zonghuai, varautanríkisráðherra Kína,
og fleiri háttsettir gestir. Þegar tónleik-
unum lauk kváðu við gleðihróp og
söngvaramir vom klappaðir fram.
-Ótt
Hafiö slær aðsóknarmet
Alls höfðu 8.176 manns séð Hafið,
kvikmynd Baltasars Kormáks, þeg-
ar hurðum kvikmyndahúsanna var
skellt í lás á sunnudagskvöld. Þor-
valdur Ámason hjá Sambíóunum
segir þetta bestu aðsókn sem íslensk
kvikmynd hefur fengið fyrstu sýn-
ingardagana en Hafið var frumsýnt
á fimmtudagskvöld. Sló Hafið hasar-
myndina XXX út í aðsókn þrátt fyr-
ir mun umfangsmeira markaðsstarf
að baki þeirri mynd og lægra miða-
verð. Haflð hefur fengið mjög já-
kvæða dóma hér á landi og spurst
vel út, þ.e. auglýst sig sjálf. -hlh
Það er hugur í mér
„Það er hugur
í mér,“ sagði
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir,
þingmaður Sam-
fylkingarinnar í
Reykjavík, að-
spurð hvort hún
ætlaði að blanda
sér i baráttuna
um leiðtogasæti í
öðru Reykjavík-
urkjördæmanna. Ásta vildi þó ekki
kveða fastar að orði en svo að hún
stefndi á eitt af efstu sætunum.
Ótímabært væri að gefa stærri yfir-
lýsingar að svo stöddu enda ýmis-
legt á huldu enn varðandi fyrir-
komulag við val á lista.
Bryndís Hlöðversdóttir og Jó-
hanna Sigurðardóttir, þingmenn
Samfylkingarinnar, hafa báðar lýst
því opinberlega yflr að þær stefni á
leiðtogasæti í öðru Reykjavikur-
kjördæmanna. Össur Skarphéðins-
son, formaður Samfylkingarinnar,
sagði í DV í gær að ákvörðun Bryn-
dísar væri eðlileg og það væri eftir
nokkru að slægjast að leiða flokkinn
í kjördæmunum þar sem líkur væru
á að leiðtogamir gætu orðið ráð-
herrar í næstu ríkisstjórn.
-BÞ
Háskólanám heima fyrir
Núna fyrir helgina var undirrit-
aður samstarfssamningur um fjar-
nám á háskólastigi á Norðurlandi
vestra. Samningurinn er á milli Há-
skólans á Akureyri, Háskólans í
Reykjavik og Háskóla íslands ann-
ars vegar og Farskóla Norðurlands
vestra - miðstöðvar símenntunar og
Hólaskóla hins vegar.
Anna Kristín Gunnarsdóttir, for-
stöðumaður Farskóla Norðurlands
vestra, segir að með þessum samn-
ingi skapist miklir möguleikar fyrir
íbúa á svæðinu að afla sér háskóla-
menntunar. Hún sagðist vonast til
að ekki einungis Skagflrðingar njóti
góðs af fjarnáminu til háskólanáms,
heldur allt Norðurland vestra. Það
hefði sýnt sig að mikill áhugi væri
hjá fólki að mennta sig og nú opnuð-
ust enn frekari möguleikar. Þegar
væm allmargir í fjamámi á Sauðár-
króki og einnig væri aðstaða til
námsins á Siglufirði og Blönduósi
sem fólk nýtti sér. Þá væri fólki í
námi úr sveitunum í Húnavatns-
sýslu og frá Skagaströnd og
Hvammstanga, og stefiit væri að því
að koma upp aðstöðu til háskóla-
námsins á þessum þéttbýlisstöðum
en eins og er vantaði aðeins upp á
fjölda nemenda þar.
-ÞÁ