Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2002, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002
15
H>V
___________________Menning
Umsjon: Silja Adaisteinsdóttir silja@dv.is
Sannkallaö músíkalskt partí
- skemmtileg sunnudagssíðdegi í Salnum með kökum og tónlistarkonfekti
Kammerhópur Salarins í Kópavogi
fékk svo dúndrandi góöar viðtökur viö
nýmœlum á síðdegistónleikum sínum
síðastliöinn vetur að hann boðar nú
nýja sex tónleika röð með tilbrigðum,
annan sunnudag hvers mánaðar frá
október fram í apríl. Enn verður sérstök
kynning á verkunum í höndum sér-
fróðra aðila sem frœða og gefa tón-
dœmi, enn verða leikin glœsiverk tón-
bókmenntanna af úrvals hljóðfœraleik-
urum en í stað matarkynningar eftir
tónleika veröur nú ókeypis kaffihlað-
borð á undan tónleikunum og sérstakt
tilboð til barna: Efykkur langar ekki á
tónleikana með pabba og mömmu getið
þið fengið að búa til tónverk sjálf ann-
ars staðar í húsinu!
Þetta er annað starfsár Kammerhóps Salarins og
eru tónleikarnir sex hluti af Tíbrárröðinni en njóta
einnig stuðnings frá fyrirtækjum. Tilhögunin verð-
ur sú að kafiistofa Salarins verður opnuð kl. 15.30
með fríu meðlæti í boði Kökuhomsins í Kópavogi,
kl. 16 hefst tónleikaspjall sem í vetur verður í hönd-
um Johns Speight, Karólínu Eiríksdóttur og Þor-
kels Sigurbjörnssonar og um leið hefst tónsmiðja
barna í Kórnum í nýja bókasafninu sem sambyggt
er Tónlistarhúsinu. Kl. 16.15 hefjast svo tónleikam-
ir sjálfír og standa til kl. 17.
Gaman að spila kammermúsík
„Heildarpakkinn er klukkutími án hlés, sérstak-
lega miðaður við fólk sem er önnum kafið,“ segir
Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari, hugmynda-
smiður KaSa og ein úr hópnum. „Stærsta nýjungin
er tónsmiðjan sem ætluð er bömmn frá þriggja ára
aldri. Hún er í umsjón Sigríðar Pálmadóttur lekt-
ors en nemendur hennar úr Kennaraháskóla ís-
lémds taka aö sér að vinna skapandi vinnu í tónlist
með bömum tónleikagesta gegn vægu gjaldi. Sig-
ríður er frumkvöðull í tónmenntakennslu og hefur
kennt flestum tónmenntanemum undanfama þrjá
áratugi eða svo. Okkur þykir mikill fengur að
henni í hópinn. Undir hennar stjóm fá börnin að
syngja, leika með hljóðfæri og fleira."
Áshildur Haraldsdóttir og Nina Margrét láta afar
vel af viðtökum við KaSa í fyrra. En hvað fá tón-
listarmennimir út úr þessu starfi?
„Við fáum að spila hvert með öðm,“ svarar Ás-
hildur um hæl. „Ég fæ til dæmis að spila með fólki
sem ég hef ekki spilað með áður, frábærum tónlist-
armönnum, og svo fæ ég að spila kammermúsík,
sem er ótrúlega gaman, sannkallað músíkalskt
partí í hvert skipti. Svo getum við stungið upp á
verkum sem við höfum sérstakt dálæti á.“
„Allir geta komið með óskir um verkefnaval,"
Er ég hæfur?
- svar Stefáns Sturlu Sigurjónssonar við yfirlýsingu stjórnar Leikskáldafélags Islands
verk. Það er einn hluti gagnrýninnar, það sem
eftir stendur er leiksýningin sjálf, frammistaða
leikhúslistamannanna. Ef best væri að gagnrýni
nýrra leikverka staðið þá sendi Leikskáldafélag
íslands, leikhúsin eða leikskáldin gagnrýnend-
mn handrit nýrra leikverka fyrir frmnsýningu
svo þeir mættu skoða vinnu leikskáldsins, rétt
eins og gagnrýnendur gera með eldri verk. Ekki
hvarflaði að mér að Leikskáldafélag íslands ryki
upp „með því tilfinningalega uppnámi sem ein-
kenndi“ yfirlýsingu þess. Heldur hélt ég að það
gleddi íslensk leikskáld að Þjóðleikhúsið væri
gaghrýnt fyrir að gera ekki nóg og nógu vel, við
íslensk leikskáld. Gott er að vita til þess að leik-
skáld eru södd með þá mögru sneið sem þeim er
rétt, sérstaklega konum og ungum skáldum. ís-
lendingar, til ykkar var orðunum væntanlega
beint þegar Leikskáldafélag íslands segir í yfir-
lýsingu sinni „... að þeir hafi gert sig vanhæfa til
að fjalla opinberlega um nýja, innlenda leikritun
á komandi vetri“. Ég hef myndað mér skoðanir
á eldri innlendum og erlendum leikverkum,
samkvæmt yfirlýsingu frá stjóm Leikskáldafé-
lags íslands, er ég því algerlega vanhæfur að
sinna því starfi sem ég hef tekið að mér á sunnu-
dögum á Rás 2. Er ég hæfur ef ég mynda mér
ekki skoðanir á nýjum verkum höfunda í Leik-
skáldafélagi íslands og gagnrýni ekki verkefna-
val Þjóðleikhússins?
Stefán Sturla Sigurjónsson
Leikari, leikstjóri og gagnrýnandi á Rás 2
Kæru íslendingar.
Þið fenguð yfirlýsingu frá stjórn Leikskáldafé-
lags íslands á síðum þessa blaðs í gær þar sem
bent er á að undirritaður og Jón Viðar Jónsson
hafi myndað sér fyrirfram skoðanir á verkum
sem sýnd verða á fjölum leikhúsanna á komandi
vetri og einnig á mannaráðningum leikhússins.
Skömm ef satt er, að gagnrýnendur séu nú fam-
ir að mynda sér skoðanir. Kæru íslendingar, ég
vil aðeins minna á það sem ég fjallaði um í pistli
mínum á Rás 2 þann 2. september sl. Ég var og
er óhress með uppstillingu þjóðleikhússtjóra á
verkum vetrarins. Ég fagnaði hins vegar þeim
fimm nýju ieiKyerkum sem kynnt era og var
ekki að fella dóm um þau að svo komnu máli,
heldur hitt sem ekki er gert. Nú vil ég benda á
að engin kona er í hópi þessara fimm kynntu
leikskálda. Ekkert ungskáld er i þessum fimm
leikskálda hópi. Hvaða leikhús ef ekki Þjóðleik-
húsið á að taka að sér konur og ungskáld að
minnsta kosti til jafns við eldri kalla? Og hvaða
leikhús ef ekki Þjóðleikhúsið á að hafa þor til að
nota eitt leiksvið þar sem eingöngu væm sýnd
íslensk leikverk, leiklesin, leikin og unnin með
höfundum? Ég vil benda á það að Þjóðleikhúsið
hefur meira en tvöfalt hærra fjárframlag á ári en
Leikfélag Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu. Við
getum því gert kröfur til þjóðleikhússtjóra að
hann taki eitt litlu leiksviöanna undir tilrauna-
hóp.
Hissa var ég á því að íslendingar skyldu fá yf-
irlýsingu frá Leikskáldafélagi íslands þess efnis
að menn skyldu vera vanhæfir vegna skoðana
sinna á verkefnavali Þjóðleikhússins, musteri ís-
lenskrar menningar og stærsta vinnuveitanda
leikskálda. Oft er það svo að gagnrýnandi hefur
lesið þau leikverk sem sýnd em á fjölum leik-
húsanna og gjaman myndað sér skoðun um þau
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Ashildur Haraldsdóttir og Nína Margrét Grímsdóttir
„Fyrst og fremst eru þaö forréttindi að fá að spila þessi yndislegu verk meö þessu hæfileikaríka fólki.“
segir Nina Margrét, „en við miðum efnisskrána
hverju sinni við eitthvað sérstakt - ákveðin tón-
skáld eða þemu. Það er gaman að geta þess að tvö
verk sem við flytjum í vetur hafa líklega aldrei ver-
ið flutt hér á landi áður - Tríó fyrir fiðlu, selló og
píanó í F dúr op. 42 eftir danska tónskáldið Gade,
sem var einn lærifeðra Sveinbjöms Sveinbjöms-
sonar á sínum tíma, og septettinn Rhapsodie Négre
eftir Poulenc þar sem við fáum Einar Jóhannesson
klarinettuleikara með i hópinn. Hljóðfæraskipanin
í því verki er mjög spennandi. Svona stórir hópar
bjóða upp á miklu meiri sveigjanleika en tríó eða
kvartettar."
Alls eru ellefu hljóðfæraleikarar í KaSa; Auður
Hafsteinsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir, Helga
Þórarinsdóttir, Miklos Dalmay, Peter Máté, Sif M.
Tulinius, Sigrún Eðvaldsdóttir, Sigurður Bjarki
Gunnarsson og Þórunn Ósk Marinósdóttir auk
Nínu Margrétar og Áshildar.
Að brjóta upp tónleikaformið
- En hvað er í þessu fyrir hinn almenna borgara?
„Hann fær að hlýða á tónlist i yndislegum sal,
hann fær fræðsiu frá fagmönnum sem hleypir hon-
um dýpra ofan í verkin en ella,“ segir Nína Margrét.
„Fyrir þann sem ekki hefur áhuga á tónlist en vill
víkka út áhugasvið sín er þetta skínandi gott tæki-
færi. Hann kynnist klassískum tónskáldum, fær að
vita hvertiig þau unnu og hver helstu einkenni
þeirra eru, getur nálgast þau á þægilegan hátt.“
„Þetta er frábær leið til að eyða notalegu síðdegi
með fjölskyldunni og fá bæði fræðslu og skemmtun
um leið,“ bætb Áshildur við. „Til dæmis verða
jólatónleikarnir okkar klassískt jólakonfekt, vinsæl
verk sem ýmist tengjast jólunum eða bara minna
einhvem veginn á jólin. Þá verður frítt inn fyrir
fólk yngra en tvitugt og eldra en sextugt, Sírí-
us&Nói gefa nammipoka og kannski kemur jóla-
sveinn! Klassísk gleði.“
„Það þarf að efla áhuga á klassískri tónlist," seg-
ir Nína Margrét, „og einn þáttur í því er að byggja
upp áhuga hjá áheyrendum framtíðarinnar, böm-
unum. Klassísk tónlist hefur að mörgu leyti lokast
inni með sjálfri sér og það er nauðsynlegt að brjóta
upp tónleikaformið og færa hana nær fólki. Næsta
skref væri kannski að halda tónleika á vinnustöð-
um og sjúkrahúsum og þetta er angi af þeirri hugs-
un. En fyrst og fremst era það forréttindi að fá að
spila þessi yndislegu verk með þessu hæfileikaríka
fólki."
Loks benda þær á getraun KaSa á strik.is þar
sem fólk getur svarað spumingum um komandi
tónleika og unnið miða á þá. Fyrstu tónleikar
KaSa-hópsins verða 13. október og geta áhugasam-
ir pantað sæti í Salnum strax. Þeir sem kjósa að
kaupa alla tónleikaröðina fyrirfram fá geisladisk í
kaupbæti með völdum hljóðritunum frá tónleikum
á síðasta vetri.
Breytt
hlutverk safna
í dag kl. 17.15 heldur Neil Faza-
kerley, sérfræðingur við Visindasafnið
í Lundúnum (The Science Museum),
fyrirlestur i stofu 101 í Odda um þróun
í sýningagerð og breytt hlutverk safna
á 21. öld. Neil hefur verið gestur Þjóð-
minjasafns íslands undanfarnar vikur
þar sem hann hefur miðlað af þekkingu
sinni og verið ráðgefandi í undirbún-
ingsvinnu vegna nýrra grunnsýninga
sem settar verða upp í safninu að lokn-
um endurbótum á safnhúsinu við Suð-
urgötu. Neil hefur sérhæft sig í hönnun
sýninga fyrir nútímasamfélag þar sem
nútímatækni og aðferðafræði er beitt.
Hann mun m.a. fjalla um gagnvirk
samskipti safns og gesta í fyrirlestri
sínum.
Fyrirlesturinn er ætlaður öllum
þeim sem hafa áhuga á söfnum og sýn-
ingagerð.
Láttu ljós þitt skína
Láttu ljós þitt
skína - Fegurð yst
sem innst er ný bók
eftir Victoriu Moran,
höfund hinnar víð-
lesnu bókar Fegraðu
líf þitt. í nýju bók-
inni leggur Victoria
Moran áherslu á hin
andlegu verðmæti -
hvemig rækta má huga, líkama og sál
með margvíslegum hætti til að kveikja
þann innri bjarma sem leynist með
okkur öllum. Ef við finnum lífinu til-
gang, lítum á okkur sjálf, annað fólk og
umhverfiö sanngjörnum augum fer ljós
okkar að skína.
1 50 gagnorðum köflum leiðbeinir
höfundurinn um hvemig við getum
öðlast vellíðan og miðlaö henni til ann-
arra. Meðal kaflaheita eru „Safnaðu i
kringum þig fólki sem sér ljós þitt
skina“, „Hættu að hafa holdafarið á
heilanum", „Taktu upp betri venjur",
„Vertu dugleg að hreyfa þig“, „Njóttu
næðisstunda", „Klæddu þig eftir eigin
smekk“, „Láttu draumana rætast",
„Lifðu einföldu lífi en hugsaöu hátt“ og
„Vertu fús að fyrirgefa". Hildur Her-
móðsdóttir og Ragnheiður Sigurðar-
dóttir þýddu bókina en Salka gefur
hana út.
Höfundur bókarinnar, Victoria Mor-
an, er væntanleg til íslands 24. septem-
ber. Hún er virtur rithöfundur og fyrir-
lesari sem hefur vakið mikla hrifningu
fyrir visku sína og framkomu víða um
heim. Hægt er að skrá sig á fyrirlestur
eöa námskeið hjá henni dagana 27. og
28 hjá Sölku á vefsetrinu www.salkafor-
lag.is. Sætafjöldi er takmarkaður.
Parmiggiani
í Hafnarhúsi
í kvöld kl. 20 verður haldin sérstök
kynning í Listasafni Reykjavíkur -
Hafnarhúsi á nýútkominni listaverka-
bók um útilistaverkið íslandsvitinn
eftir italska listamanninn Claudio
Parmiggiani. Listaverkið var reist á
Hraunhólum við Sandskeið að frum-
kvæði Reykjavíkurborgar þegar
Reykjavík var ein af Menningarborg-
um Evrópu árið 2000. Verkið hefur
vakið athygli langt út fyrir landstein-
ana og nýlega var gefin út í Frakk-
landi glæsileg listaverkabók um vit-
ann, Le phare d’Islande. Útgefandi er
bókaforlagið Société nouvelle Adam
Biro og em textar i bókinni á þrem
tungumálum, ensku, frönsku og
ítölsku. Bókin er prýdd fjölda ljós-
mynda eftir Guðmund Ingólfsson en
textahöfundar era Ester Coen, Marco
Vallora og Ólafúr Gíslason.
í tilefni af útgáfú bókarinnar hefur
Reykjavíkurborg boðið Claudio
Parmiggiani til landsins og hann held-
ur ávarp á kynningunni og svarar fyr-
irspumum. Ölafur Gíslason flytur er-
indi um íslandsvita Parmiggiani og
frumsýnt verður hér á landi 15 mín-
útna myndband um listaverkið sem
Páll Steingrímsson kvikmyndagerðar-
maður kynnir. Einnig flytja Voces
Thules sönglag, sem einnig var flutt
við vígslu Vitans á opnunardegi
Menningarársins í janúar árið 2000.
Sönglag þetta, sem er gamalt og litt
þekkt verk eftir þýska heimspeking-
inn Michael Maier úr kvæðabálkinum
Atalanta Fugiens frá 17. öld, tengist
skilningi höfundar á merkingu ís-
landsvitans.
Kynningin er öllum opin.