Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2002, Page 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002
Tilvera
DV
Lionskonur í Ólafsvík gjafmildar:
mmmm
Tvist, apa- og valsróla
Það var flaggað í Grunnskóla
Ólafsvíkur um daginn og tilefnið
ærið. Lionsklúbburinn Rán í
Ólafsvík bauð öllum krökkunum
út á skólalóð til að veita viðtöku
þremur vönduðum leiktækjum
sem klúbburinn gaf skólanum.
Sigrún Ólafsdóttir, formaður Rán-
ar, hafði orð fyrir Lionskonum.
Hún sagði við afhendinguna að
þær Lionskonur hefðu verið að
vinna að þessu verkefni með leik-
tækin í þrjú ár en verðmæti
þeirra er alls um 1,1 milljón
króna. Auk þessara tækja kæmi
bekkur sem þær gæfu seinna. Sig-
rún sagði aö nöfnin á þessum leik-
tækjum væru, samkvæmt upplýs-
ingum innflytjanda, tvist, apa og
valsróla en hún óskaði eftir fleiri
tilnefningum frá krökkunum um
nöfn.
Sveinn Þór Elinbergsson skóla-
stjóri veitti leiktækjunum viðtöku
og þakkaði fyrir hönd skólans
þessa höfðinglegu gjöf. Hann
sagði enn fremur að það væri
hverju bæjarfélagi mikill fengur
BiOgagnryni
DV-MYNDIR PÉTUR S. JÓHANNSSON
Myndarieg gjöf
Sigrún Ólafsdóttir, formaöur Lions-
klúbbsins Ránar í Ólafsvík, aö af-
henda Sveini Þór Elinbergssyni
gjafabréf fyrir hinum glæsilegu leik-
tækjum.
að eiga bakhjarl eins og Lions-
klúbbinn Rán. Kristinn Jónasson
bæjarstjóri þakkaði einnig
klúbbnum fyrir þetta góða fram-
lag. Að endingu var Rán klappað
lof í lófa og hrópað ferfalt húrra
fyrir þeim. Þess má geta að skóla-
lóðin er aö miklum hluta endur-
byggð og verður hin glæsilegasta.
Hún er hönnuð af Erlu Kristjáns-
dóttir landslagsarkitekt hjá
Teiknistofunni Eik í Grundarfirði
en framkæmdum er ekki lokiö
enn þá.
-PSJ
Krakkarnir og leiktækin
Krakkarnir í Grunnskóla Ólafsvíkur meö leiktækin í baksýn.
Smárabíó/Laugarásbíó/Regnboginn - XXX
Ofurtöffari
★★★
Hílmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
James Bond hefur mörg líf og nú
er Die Another Day, tuttugasta
kvikmyndin um frægustu njósna-
hetju kvikmyndanna, í farvatninu
og verður frumsýnd á næstunni.
Hvort Bond endist miklu lengur er
ekki vist, mörgum flnnst komin
þreyta í formúluna og Pierce Brosn-
an, sem hefur leikið hann í síðustu
myndum með góðum árangri, vill
helst hætta. Hvað um það, arftakinn
er fundinn, hann heitir Xander
Cage og fellur betur að nútímanum
heldur en James Bond. Cage er gróf-
ur einfari með vafasama fortíö,
frægur fyrir að stunda íþróttir sem
geta verið hættulegar, lyftir lóðum,
er sköllóttur og hræðist ekki neitt.
Eitt og annað á hann þó sameigin-
legt með Bond, hann hrífst af fal-
legu kvenfólki og kann að meta
tæknivædd vopn. Drykkjusiðir
þeirra eru ólíkir,. Bond drekkur
martinikokkteil á meðan Cage
drekkur vodka af stút.
Það að hér. skuli þessum ofurhetj-
um líkt saman er að XXX hefur, eft-
ir að hetjan hefur verið kynnt, nán-
ast sömu uppbyggingu og Bond
kvikmynd, sérstaklega er það áber-
andi þegar verið er að sýna Xander
Cage nýjustu vopnin sem koma hon-
um að góðum notum í baráttu við
flokk harðsvíraðra Rússa sem hafa
það eitt markmið að ná yfirráðum á
jörðinni, hvað annað.
Xander Cage er fenginn til að
þjóna foðurlandinu vegna þess að
hann hefur hæfileika sem aðrir
hafa ekki þegar yfirmaður í CLA er
aö leita að manni sem ekki aðeins
er búinn hæfileikum til að takast á
við mikla hættu heldur fellur inn í
umhverfið (Cage færi aldrei að
klæðast smóking). Cage er sendur
til Tékklands þar sem hann kemur
sér inn í raðir óvinanna, vefur þeim
um fingur sér og skemmtir sér með
þeim um leið og hann plottar og
bjargar að lokum heiminum frá ill-
um örlögum.
XXX er bráðskemmtileg kvik-
mynd. Hraðinn er mikill og brellur
stórfenglegar. Vert er að benda á
snjóflóðsatriðið sem er með því
allra svakalegasta sem sést hefur.
Leikstjórinn Rob Cohen (The Fast
and the Furious) kann vel til verka
og veit greinilega hvað lýðurinn vill
og segja má að hann slái ekki feil-
nótu þegar kemur að hasarnum.
Hann veit sem er að í myndum á
borð við XXX skiptir sagan ekki
öllu máli heldur að geta hrifið
áhorfandann með sér í æsilegan
leik. Þrátt fyrir allar brellur og
áhættuatriði er það nú samt svo að
mynd á borð við XXX stendur og
fellur með aðalleikaranum. Vin
Diesel er eins og fæddur í hlutverk-
ið, stór og stæðilegur, fullur sjálfs-
traust og leikur hetjuna eins og það
sé honum daglegt brauð að bjarga
heiminum.
Leikstjóri: Rob Cohen. Handrit: Rich Wil-
kes. Kvikmyndataka: Dean Semler. Aðal-
leikarar: Vin Diesel, Asia Argeno, Marton
Csokas og Samuel L. Jackson.
Svartir hárskerar
Aðra vikuna í röð var My Big Fat
Greek Wedding spáð efsta sætinu,
aðeins til að sjá það hverfa í fangið
á svörtum hárskerum sem eru aðal-
persónurnar í Barbershop, sem kom
öllum á óvart og náði að fara yfir
tuttugu milljón dollara í aðsókn yfir
helgina. í Barbershop leikur Ice
Cube rakara sem erfir eftir föður
sinn rakarastofu. í fyrstu vill hann
ekkert með hana hafa og vill selja.
Það er ekki fyrr en hann hefur selt
stofuna og kynnist nokkrum hár-
skerum að hann fer að sjá lif fóðurs
síns i öðru ljósi og vill fá rakarastof-
una til baka. Myndin fær ágætar
viðtökur hjá gagnrýnendum. Það
sama verður ekki sagt um Stealing
Harvard, gamanmynd með Tom
Green í aðalhlutverki. Eru nánast
allir sammála um að verri kvik-
mynd hafi ekki sést á árinu og einn
lét um svo mælt að það væri ekki
nóg með að Tom Green léki í verstu
mynd ársins, það virtist sem hann
Barbershop
lce Cube, Cedric the Entertainer og
Carl Wright í hlutverkum sínum.
léki í öllum verstu kvikmyndum
síðasta áratugar. Tom Green hefur
sést hér í eigin þáttum á Skjá einum
og satt best að segja koma þessir
dómar um frammistöðu hans ekki á
óvart í ljósi þess gæðaflokks sem
þættir hans eru í.
-HK
ALLAR UPPHÆÐIR í ÞÚSUNDUM BANDARÍKJADOLLARA.
SÆTl FYRRI vika nnu. INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLDI BÍÓSALA
O _ Barbershop 20.627 20.627 1605
e 2 My Big Fat Greek Wedding 10.772 110.443 1764
o 13 One Hour Photo 8.006 14.567 1212
o 1 Swimfan 6.051 19.682 2860
© _ Stealing Harvard 6.041 6.041 2366
o 4 Signs 5.405 213.032 3051
o 3 City By the Sea 4.862 16.654 2575
© 5 XXX 3.308 135.393 2771
© 6 Spy Kids 2 2.742 77.397 2493
© 7 Austin Powers in Goldmember 1.854 209.634 1811
© 9 Spider Man/Men in Black II 1.406 3.971 1670
© 12 The Good Girl 1.257 11.663 669
© 10 Blue Crush 1.149 38.963 1386
© 8 fear.dot.com 982 12.247 1548
© 11 Serving Sara 969 15.874 1908
© 14 Road To Perdition 913 102.521 1134
© 16 Possession 773 9.088 619
© 15 Undisputed 611 11.830 823
© 20 The Bourne Identity 504 119.546 468
© 18 Master of Disguise 460 38.792 687
Vínsælustu myndböndin
Schwarzenegger
í hefndarhug
Hin ágæta sakamálamynd, Don’t
Say a Word, með Michael Douglas í að-
alhlutverki nær að fella Shallow Hal
úr efsta sætinu, en þar hefur Hal setið
í þrjár vikur. í þriðja sætið kemur síð-
an nýjasta kvikmynd Amolds
Schwarzeneggers, Collateral Damage.
Myndin er hryðjuverkamynd.
Mótorhjól með sprengju er komið
fyrir framan við veitingastað þar sem
væntanlegir eru háttsettir embættis-
menn. Sprengjan springur, skotmarkið
sleppur lifandi og saklausir borgarar,
meðal annars móðir og ungur sonur
hennar, farast. Eiginmaðurinn,
slökkviliðsmaðurinn, Gordy Brewer
(Amold
Schwarzenegger) verður]
vitni að atburðinum og
er harmi sleginn sem
von er. Harmurinn
snýst þó upp í reiði
þegar yfirvöld, sem
vita hver stóð á bak við
sprengutilræðið neita
af pólitiskum ástæðum
að hafa uppi á
kólombíska hryðju-
verkamanninum Úlfin-
um. Brewer ákveður
því að taka til eigin
ráða og þar kemur
reynsla hans í slökkvi-
liði Los Angeles hon-
um til góða. Þá er vert
að benda á My Big Fat
Greek Wedding í
fimmta sæti, en það
hlýtur að vera einstakt
að kvikmynd sem er I
mikilli aðsókn i Banda-
rikjunum skuli um
sama leyti koma út á
myndbandi hér á landi
Collateral Damage
Arnold Schwarzenegger leitar
hefnda í frumskógum Kólombíu.
VIKAN 9.-15. SEPTBWeSR
FYRRI VIKUR
SÆn vika nna (DREifingaraoili) ÁUSTA
ð 2 Don’t Say a Word (Skífan) 3
© 1 Shallow Hal (SKífan; 4
© _ Collateral Damage isam myndbönd) 1
© 6 Blade II imynðform) 2
© _ My Big Fat Greek Weddiog (myndform) 1
© 5 The 51st State (myndform) 4
o 3 A Beautifui Mind (sam myndböndj 3
Q 4 Vanilla Sky <sam myndbönd) 4
Q _ We Were Soldiers (skIfan) 1
© 8 The Last Castle (sam myndbönd) 3
0 9 Birthday Girl (skífan) 2
© 7 Ocean's Eleven (sam myndbönd) 7
© 10 Monsters, Inc (sam myndbönd) 5
© 11 Long Time Dead <sam myndbönd) 3
© 12 Slackers (myndformj 3
© 16 Crossroads (sam myndbönd) 5
© 14 Elllng (sam myndbönd) 6
© _ Amores Perros (sam myndbönd) 1
17 Not Another Teen Movie iskífan) 8
© 20 The Curse of the Jade.... <sam myndbönd ) 2
kBKmmammimÍÍmimdmmmmmmmmmmmmmmioB—mmmmummmmm