Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2002, Page 21
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002
21
DV
Tilvera
s§
msmm
Baz Luhrmann fertugur
Einn heitasti kvik-
myndaleikstjórinn, Baz
Luhrmann, á stóraf-
mæli í dag. Luhrmann
er ástralskur og var
skiröur Bazmark Ant-
hony Luhrmann. Hann
vakti fyrst athygli þegar hann setti La
Bohéme á svið í Sydney. Var um bylt-
ingarkennda uppsetningu að ræða
sem var síðar kvikmynduð. Fyrsta
kvikmynd hans, Strictly Ballroom,
gerði hann heimsfrægan. í kjölfarið
fylgdu Romeo+Juliet og Moulin Rou-
ge. Eiginkona hans heitir Catherine
Martin og er hönnuður. Hefur hún
starfað við allar hans kvikmyndir.
i ¥i»uiqnm '
v;
</!
*--•. mu
Gildir fyrir miðvikudagínn 18. september
Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.t
, Aðrir hafa mikil áhrif
' á þig og í kvöld þarftu
að vera viðbúinn því
að sinna óvæntum
gesti. Fréttir af fjölskyldunni
eru uppörvandi.
nskamir(19. fehr.-?Q. marsl:
Áhugamál þín og
lákvörðun sem þú
tekur veita þér
ánægju. Nú er líka
góður tími til að endumýja
gömul kynni.
Hrúturinn l?1. mars-19. aprín:
. Hlustaðu á ráð sem
íþér eru gefin en
notaðu eigin dóm-
_ greind til að taka
ákvörðun. Þú ert líklegur til að
gera góð kaup.
Nautið (90. anríl-?0. maíl:
Þú sinnir heimilinu
, og hugar að ýmsu út
á við. Ekki vera
hræddur við breyting-
ar. ívöldið verður ánægjulegt.
Happatölur þínar eru 8, 19 og 25.
Tvíburarnir (?1. maí-21. ii'iníi:
Einhverrar óánægju
'gætir fyrri hluta dags-
ins í ástarsambandi
þinu en þetta er
líklegá aðeins tímabundið ástand.
Þú ert fremur vlðkvæmur í lund.
Krabbinn (22. iúní-22. iúii):
Áætlanir þínar ganga
I upp og það sem þú
’ trúðir að myndi
_____ gerast gerist og verður
þér til ánægju. Kvöldið verður
skemmtilegt.
Liónið (23. iúlí- 22. áeústl:
, Þér reynist auðvelt að
flækja þér inn í hin
ólíklegustu mál en það
er þó betra en að
aðhafast ekki neitt. Best er fyrir
þig að vera á eigin vegum.
Mevlan (23. áeúst-22. seot.l:
Ljúktu öllum skyldu-
verkefnum sem fyrst
^^V^i-vegna þess að þig
^ r langar að skemmta
þér seinni partinn. Þú þarfnast
tilbreytingar og nýbreytni.
Vogin (23, sept.-23. oktJ:
Þú þarft að taka tillit
til annarra, allar
breytingar gætu
skemmt fyrir þér.
Aætlanir um félagsstarf eða frí
eru líklegar til að ganga upp.
Sporðdreklnn (24, okt.-21. nóv.l:
BIÞú hefúr mikið
; ímyndunarafl í dag.
jEkki búast við of
s miklu af öðrum, þú
ara fyrir vonbrigðum.
Happatölur þínar eru 6, 13 og 29.
BogmaðUfinn (22. nóv.-21. des.l:
’Hugmynd þín um
^að græða peninga er
I ekki líkleg til að
skila árangri.
þig tvisvar um áður
en þú framkvæmir.
Stelngeltln (22. des -19. ian.l:
Vinur leitar til þín eft-
ir aðstoð við verkefni.
Þú kannt að vera óviss
um hvemig þú getur
hjaTpað honum en þú ættir að
minnsta kosti að sýna stuðning.
Lög félagsins
eru faðmlög
„Einu lög félagsins eru faðmlög,“
segir Kolbrún Karlsdóttir, formaður
líknar- og vinafélagsins Bergmáls,
brosandi og þegar fylgst hefur verið
með lokahófi orlofsviku á vegum fé-
lagsins verða þau orð ekki dregin í
efa. Þar sveif mikil hlýja yfir vötn-
um enda eitt af markmiðum félags-
ins að gefa fólki kost á að eignast
vini hvert f öðru, að sögn formanns-
ins. Að þessu sinni hafði Bergmál
boðið 45 manna hópi krabbameins-
sjúkra og annarra langveikra til
hvíldar- og skemmtiviku að Sól-
heimum í Grímsnesi. Það leigði
gistiheimilin Brekkukot og Veghús
til starfseminnar og kvöldvökur
voru á hverju kvöldi í íþróttahúsinu
og Sesseljuhúsi þar sem landsþekkt-
ir einstakiingar lögðu fram krafta
sína. Á þær var boðið öllum íbúum
á Sólheimum, auk orlofsgesta. Þetta
kvöld sem DV var á staðnum söng
Bergþór Pálsson sig inn í hug og
hjörtu áheyrenda og leiddi fjölda-
söng af miklum þrótti eins og hon-
um einum er lagið. Einnig hélt
Vinabandið. uppi fjöri, bæði sem
sönghópur og danshljómsveit. Að
loknu balli settust gestir Bergmáls
að kaffihlaðborði í matsalnum og
var það áreiðanlega ekki fyrsta
veislan þessa vikuna.
Anægjan er eldsneyti
„Svona orlofsvikur eru
fastur liður í starfsemi fé-
lagsins vor og haust og
þær eru gestum að kostn-
aðarlausu,“ segir Kolbrún.
„Síðustu árin höfum við
verið hér á Sólheimum en
áður vorum við í Hlíðar-
dalsskóla í Ölfusi. Það eru
10 félögum innan Öryrkja-
bandalagsins boðið að
senda gesti, þar má nefna
félag sykursjúkra, fólk
með alsheimer, MS-sjúk-
dóminn, parkinsonveiki
og heilaskaða, svo eitt-
hvað sé nefnt. Viö kapp-
kostum að gera gestum dvölina sem
ánægjulegasta og höfum sjálf
ómælda gleði af. Helgistundir eru
fastur liður, boðið er upp á margs
konar nudd, höfuðbeina- og spjald-
hryggjarmeðferð, auk þess sem hár-
greiðslufólk og fótsnyrtar bjóða
fram vinnu sína endurgjaldslaust.
Að sjálfsögðu eru hjúkrunarfræð-
ingur alltaf til staðar.“
Þó að félagar Bergmáls vinni
óeigingjarnt starf til að koma þess-
um orlofsvikum á lítur Kolbrún
ekki á það sem fómir. „Við erum
ekki að leggja neitt inn eða taka út
heldur að þakka. Gleðin yfir að vera
hvert með öðru í svona starfi er svo
mikil,“ segir hún og heldur áfram.
„Það eru forréttindi að fá að kynn-
ast öllu því góða fólki sem kemur til
okkar og er svo ríkt af reynslu og
þroska, þannig að ánægjan er okkar
eldsneyti." Hún tekur líka fram að
fjölmargir styðji við þessa starf-
semi, bæði fyrirtæki og einstakling-
ar. „Hluti af starfmu felst i að út-
vega allt sem þarf til svona orlofs-
dvalar, með sem minnstum tilkostn-
aði, það þarf til dæmis heilmikinn
mat fyrir sextíu manns í tvær vikur
á ári,“ segir Kolbrún og nefnir líka
að rútubílastöðvamar á Selfossi og
Þóranna Eiríksdóttir er ein af hjálparhellunum.
A kvöldvöku
Ibúar og gestir Sólheima hiýöa meö aödáun á Bergþór Pálsson.
Sæmundur í Borgar-
nesi gefi til skiptis
dags skemmtiferð í
hverri orlofsviku.
Hún segir líka alla
þá sem koma fram á
kvöldvökunum gera
það í sjálfboðavinnu
og getur m.a. Karla-
kórs Reykjavíkur
sem gefi félaginu
konsert bæði vor og
haust.
Byrjaði sem kór
Bergmál byrjaði
sem sönghópur fyrir
níu árum, undir
stjórn Jóns Hjörleifs
Jónssonar kennara.
DV+1YND GVA
Formaður Bergmáls
„ Viö erum ekki aö leggja neitt inn eöa taka út heldur aö
þakka. Gleöin yfir aö vera hvert meö ööru í svona starfi
er svo mikil, “ segir Kolbrún Karlsdóttir.
Góöir gestir
Reynir Sveinsson og Hjörtur Guðjónsson ánægöir meö
kvöldiö.
Að sögn Kolbrúnar var það fráfall
eins kórfélagans sem varð nokkurs
konar vendipunktur starfseminnar.
„Súperbassi kórsins, Ólafur Ólafs-
son, fór, eins og margir fleiri, alltof
snemma. Hann greindist með
krabbamein og við fylgdumst með
baráttu hans frá fyrsta degi. Það
breytti okkur öllum og þegar við
stóðum yfir moldum hans fundum
við sterkt að við vildum gera eitt-
hvað fyrir fólk sem berst við van-
heilsu og vissum aö betur gátum við
ekki heiðrað minningu þessa látna
vinar. Þannig varð líknar- og vina-
félagið Bergmál til og síðan hafa
margar góðar manneskjur bæst í
hópinn sem áhuga hafa á þessu
starfi."
Kolbrún segir fjáröflunarleiðir fé-
lagsins hafa verið ýmsar. Hún nefn-
ir málverkasölu. „Við fengum lista-
menn í lið með okkur sem gáfu okk-
ur málverk og styttur sem við síðan
seldum. Svo hefur jólakortasalan
verið okkar stærsta fjáröflun og
einnig erum við með minningar-
kort.“ En hversu fjölmennt er Berg-
mál og hvað gerir það annað en
halda orlofsvikur tvisvar á ári? Fé-
lagar eru milli 40 og 50 og það er
fólk úr ýmsum stéttum þjóðfélags-
ins. Viö höfum opið hús í hverjum
mánuði í Hamrahlíð 17, með sam-
eiginlegum málsverði og skemmti-
atriðum, við höldum árshátíð og
sumarmálahátíð og aðventuhátíð,
forum í skemmtiferðir og hvaðeina
sem okkur dettur í hug til að treysta
vináttuböndin."
-Gun
Má ekki vera að því að sofa
- segir Ingrid Hlíðberg sem opnað hefur sýningu á Garðatorgi
„Mér datt í hug að sýna fram á að
eldri borgarar hafa ýmislegt fyrir
stafni og sitja ekki alltaf auðum
höndum. Ég gef mér ekki meira en
5-6 tima til svefns, það er svo mikið
að gera,“ segir Ingrid Hlíðberg sem
opnaði um helgina sýningu á mál-
verkum í nýlegum sal á Garðatorgi.
Myndimar eru unnar með olíu,
pastellitnm og vatnslitum. „Ég fór á
myndlistamámskeið og byrjaði að
mála um síðustu áramót. Er búin
með 35 verk en kom ekki nema 21
upp núna,“ segir hún. Ingrid er
samt ekki nýgræðingur í listum.
Hún hefur fengist við postulínsmál-
un í 25 ár og hefur kennt hana í 15
ár. Hún teiknar öll mynstur sjálf á
sitt postulín og kveðst líka leika sér
með kvenháriö. Árið 1995 tók hún
þátt í alheimssýningu á postulíns-
munum í Bandaríkjunum og nú hef-
Ustakonan vlö verk sín
Ingrid hefur fengist viö margs konar listform gegnum tíöina. Nú um stundir er
þaö olíumálunin sem mest heillar.
ur hún verið beðin um aö setja upp
sérstakan bás í Leifsstöð. Þar ætlar
hún að vera með „sina ögnina af
hverju" eins og hún oröar það en
hún fæst jöfnum höndum við ker-
amik, tau- og silkimálun, postulíns-
málun, kertamálun og nú hefur
myndlistin bæst við. „Ég er líka
með fyrstu glermyndina mína á sýn-
ingunni á Garðatorgi. Ég gerði hana
undir handleiðslu Hafdísar Bene-
diktsdóttur, sem leiðbeindi mér viö
málunina. Hún hefur hvatt mig til
dáða,“ segir Ingrid. Undir lok sam-
talsins trúir hún blaöamanni fyrir
því að hún sé nettur tölvufikill ofan
í kaupiö! Þess má geta að eiginmað-
ur hennar er Bragi Hlíðberg harm-
ónikuleikari og hann spilaði við
opnun sýningarinnar á fostudaginn.
-Gun.