Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2002, Qupperneq 29
I
%
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002
29
Arni Gautur tæpur
Ekki er víst að Arni Gautur Arason
geti staðið í marki Rosenborgar sem
mætir Inter Milan í kvöld í meistara-
deildinni vegna tognunar í nára. Þetta
eru ekki góðar fréttir fyrir Rosenborg þar
sem varamarkvörðurinn, Espen Johnsen,
er einnig meiddur. Það er ljóst að Rosen-
borg veitir ekki af sínum bestu mönnum
gegn stórstjömunum í liði Inter á borð
við Vieri, Crespo og Recoba, ef ekki á illa
að fara á móti ítalska stórliðinu. -PS
Riðlakeppni meistaradeildar Evrópu á fullt í kvöld:
Rafpostur: dvsport@dv.is
Real Madrid á fund páfans
Riölakeppni meistaradeildar Evr-
ópu hefst i kvöld með átta leikjum
en í kvöld verða tvö ensk lið í eld-
línunni, Liverpool og Arsenal.
í A-riðli mætast á Highbury i
London Arsenal og Dortmund og er
þar við ramman reip að draga fyrir
heimamenn þrátt fyrir rólega byrj-
un Dortmund í þýsku deildinni. All-
ar likur eru á að Arsene Wenger
stilli upp sama liði og á laugardag,
en þá náði liðið að skora í 45. leikn-
um í röð í ensku úrvalsdeildinni.
Patrick Viera verður í liðinu þrátt
fyrir þreytuna sem hann segir vera
að herja á hann vegna mikils álags
að undanfomu. Dortmund sem hef-
ur gert fjögur jafntefli í fyrstu funm
leikjum í deildinni verður án miðju-
mannsins, Tomas Rosicky. í sama
riðli mætast Auxerre og PSV Eind-
hoven.
í B-riðli tekur Valencia á móti
Liverpool. Þetta verður gríðarlega
erfitt verkefni fyrir Liverpool en
Valencia hefur byrjað mjög vel í
spænsku deildinni og unnið tvo
fyrstu leikina. Liverpool hefur á
hinn bóginn verið að hiksta eilítið
og verið að missa unna leiki niður í
jafntefli. Ekki er víst að aðalleik-
stjórnandi Valencia, Pablo Aimar,
verði með í kvöld og þá er Kily
Gonzalez í leikbanni. Það er hins
vegar áhyggjuefni fyrir leikmenn
Liverpool að John Carew, fyrrum
leikmaður Rosenborgar, virðist
vera í hörkuformi um þessar mund-
ir.
Gerard Houllier er að vonast til
þess að Stephane Henchoz verði
orðinn góður af meiðslum sem hann
varð fyrir á kálfa og þá er gert ráð
fyrir að Michael Owen komi aftur
inn í liðið í stað Milan Baros, en
hann gerði tvö mörk í sigri Liver-
pool á Bolton um helgina. Að öðru
leyti er gert ráð fyrir óbreyttu liði
Liverpool í kvöld.
í C-riðli er stórleikur dagsins en
það er leikur Roma og Real Madrid
og fer leikurinn fram í Rómaborg.
Leikmenn Real Madrid nýttu tæki-
færið og gengu á fund páfa í gær, en
það var hluti af undirbúningi liðs-
ins fyrir átök kvöldsins. Ekki er
talið líklegt að Ronaldo leiki með
Real í kvöld, en að öðru leyti mæta
þeir með sitt sterkasta lið með þá
Morientes og Raul í sókninni.
Mótherjarar þeirra, Roma, byrj-
aði leiktímabilið ekki vel á Ítalíu,
en þeir töpuðu fyrir Bologna um
helgina. Það er skarð fyrir skildi í
liði Roma að þeir eru án Fransesco
Totti, Gabriel Batistuta og Franc-
isco Lima, sem allir eru í leikbanni,
en líklegt er að Pep Guardiola og
Marco Delvecchio komi inn í liðið.
í D-riðli tekur Rosenborg á móti
stórliði Inter Milan, en eins og fram
kemur annars staðar á síðunni eru
uppi efasemdir um að Árni Gautur
Arason geti leikið, en hins vegar
mætir Milan-liðið fullmannað í
þennan leik. Hinn leikurinn í
riðlinum er viðureign Ajax og Lyon.
Sjónvarpsstöðin Sýn sýnir beint
frá leik Roma og Real Madrid kl.
18.30 en strax að honum loknum
verður sýndur leikur Valencia og
Roma.
-PS Erfitt verkefni bíður Houllier og féfaga er þeir mæta Valencia á Spáni í kvöld.
Jón R. Ársælsson með 15 punda lax úr Hofsá í Vopnafirði fyrir fáum dögum en mjög góö veiði hefur veriö í ánni. Alls
1840 laxar eru komnir á land. DV-mynd F
Stóra-Laxá í Hreppum:
Veiðiskapurinn geng-
ur mjög rólega
Veiðin í Stóru-Laxá í Hreppum
hefur alls ekki tekið þann kipp sem
veiðimenn áttu von á með haustinu.
Veiðimenn sem hafa verið þar síð-
ustu daga hafa lítið orðið varir og
aðeins séð fáa fiska í henni.
„Það er mjög rólegt héma á bökk-
um Stóru-Laxár í Hreppum, einn og
einn fiskur er að stökkva en ekkert
meira,“ sagði veiðimaöur sem hefur
verið við veiðar á neðstu svæðum
árinnar.
Haustgusan í Stóru-Laxá í Hrepp-
um lætur á sér standa en veiðitím-
inn hefur verið lengdur og aldrei að
vita hvað gerist. Engar stórar tölur
hafa borist af Iðunni.
Haukadalsá lokuð í dag
„Laxinn kom seint hjá okkur eins
og víða annars staðar í veiðinni
þetta árið. En núna eru komnir 416
laxar á land,“ sagöi Torfi Ásgeirs-
son er við spurðum um stöðuna í
Haukadalsá í Dölum en veiöinni
lýkur þar í dag.
„Það er víða fiskur í ánni en
hann hefur verið tregur, stáersti lax-
inn er 15 pund og þetta er heldur
minni veiði en var í fyrra,“ sagði
Torfi enn fremur.
í Laxá í Dölum eru komnir 850
laxar og það á eftir að veiöa nokkra
daga í viðbót.
Veiðimenn sem DV-Sport hitti við
Sólheimafoss fyrir nokkrum dögum
voru komnir með fimm laxa, áin
var mjög vatnsmikil og lax að finna
víða í henni.
Miðá í Dölum hefur gefið á milli
60 og 70 laxa og töluvert af bleikjum.
Húseyjarkvísl meö 50 laxa
Staðan í Húseyjarkvísl í Skaga-
firði er sú að þar eru komnir 50 lax-
ar og fullt af silungi.
Veiöimaður sem var þar fyrir
skömmu fékk lax og nokkra urriða.
G.Bender
Ölfusá:
Stórlax slapp
eftir langa baráttu
Veiðimaöur sem er ýmsu vanur
úr veiðinni og þá sérstaklega lax-
veiðinni, missti stórlax í Ölfusá
fyrir nokkru. Veiðimaður sem hef-
ur veitt víða glímdi lengi við fisk-
inn en að lokum hafði fiskurinn
stóri betur og slapp.
Veiðimaður telur að laxinn hafi
verið risavænn fiskur, sá lang
stærsti sem hann hafi séð í gegn-
um árin í veiðinni. Þó hefur þessi
veiðimaður veitt nokkra laxa
kringum 20 pundin.
Á Pallinum í Ölfusá eru komnir
144 laxar.
G.Bender